Þjóðviljinn - 19.08.1980, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 19. ágúst 1980
MOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjódfrelsis
Otgefandi: tJtgáfufélag ÞjóBviljans
Framkvemdastjóri: Eiöur Bergmann
Riutjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Kjartan Olafsson
Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir.
> Auglýsingastjóri: Þorgeir ölafsson.
Umsjónarmaöur Sunnudagsblaós: Þórunn Siguröardóttir
Rekstrarstjóri: Olfar Þormóftsson
Afgreiftslustjóri: Valþór Hlöftversson
Blaftamenn: Álfheiftur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guftjón Friftriks-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson.
Þingfréttir: Þorsteinn Magnússon.
iþróttafréttamaftur: Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Ellsson
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Safnvörftur: Ey jólfur Arnason.
Auglýsingar: Sigríftur Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa :Guftrún Guftvarftardóttir.
Afgreiftsla: Kristin Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir, Bára Sigurftardóttir.
Simavarsia: ölöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Bárftardóttir.
Húsmóftir: Jóoa Sigurftardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
" Otkeyrsla: Sölvi Mágnússon, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn, afgreiftsla og auglýsingar: Sfftumúla 6, Reykjavfk, sfmi 8 13 33.
Prentun: Blaftaprent hf.
Og samt er það
sama fólkið
<gf Við (slendingar búum í landi andstæðna. Það sem af
er þessu ári hefur tíðarfar verið með eindæmum gott
mjög viða um land og náttúran leikið við fólk og fé. En
skyndilega,óvænt og án alls fyrirvara opnast Heklugjá.
Okkar kunnasta eldf jall þeytir eldi og eimyrju yfir ná-
grennið og enginn veit hvaða skaða öskufall og hraun-
rennsli kann að valda áður en kraftar f jallsins komast í
jafnvægi á ný.
0 Þannig hefur land okkur löngum fyrr og síðar lagt
oKkur til strítt með blíðu og mun svo enn verða.
0 Trúlega hafa fáir átt von á Heklugosi nú svo skammt
er um liðið síðan jarðeldur var þar síðast laus. Á síðari
öldum hafa yfirleitt liðið um það bil 100 ár milli gosa í
Heklu sjálfri og telja jarðf ræðingar að Heklugosið nú sé
trúlega það 15. í röðinni á 11 alda skeiði, frá upphafi is-
landsbyggðar. Þess utan hefur gosið nokkrum sinnum í
næsta nágrenni Heklu og er skemmst að minnast Skjól-
kvíagossins fyrir áratug. Aldrei f sögunni mun svo
skammur tími hafa liðið milli gosa á Heklusvæðinu sem
nú, aðeins 10 ár f rá gosinu í Skjólkvium og ekki nema 32
ár frá stórgosi í Heklu sjálfri. Með tilliti til þess hvað
skammt er um liðið frá síðasta gosi, má e.t.v. gera sér
þær vonir að gos það sem nú er hafið lendi í röð minni
Heklugosa, þar sem þau gos haf a oft verið skæðust, sem
lengst hafa látið bíða eftir sér. — Um þetta verður þó að
sjálfsögðu ekkert fullyrt af jarðvísindamönnum og því
siður af leikmönnum i fræðum þeim.
0 Sagan sýnir, að hér á landi má vænta eldsumbrota
einhvers staðará landinuá svosem 5 ára fresti, en mörg
eru þau umbrot minniháttar. Síðustu 20 árin hefur eld-
virknin verið öllu meiri en áratugina næst á undan:
öskjugosið 1961, Surtseyjargosið 1963-1967, Vestmanna-
eyjagosið, sem hófst 1973, Kröflueldar og svo loks nýtt
Heklugos.
0 „Fjör kenni oss eldurinn", sagði Bjarni Thoraren-
sen, sem fæddur var í lok Móðuharðinda, og kann
mörgum, sem lifir í vellyst nútíðar að þykja hörð kenn-
ing. En hversu margfalt betur erum við þó i stakk búin
til að mæta nokkrum skell af völdum náttúru landsins
heldur en fyrri tíðar menn, sem hér þokuðu lífinu fram
flestir með tvær hendur tómar. Og víst er um það að
sjaldan verður samkenndin sterkari, en þegar áföll
dynja yf ir. Tjón af völdum náttúruhamfara verður sam-
félagiðalltað bera,einn fyrir alla og allir fyrir einn.
• Vart getur tvær ólíkari myndir en bílalestina, sem
hlykkjaðist um þjóðvegi Suðurlands í áttina til og frá
Heklu í góöviðrinu á sunnudaginn var og svo hins vegar
það hungraða tötrafólk, sem þokaðist troðninga landsins
þessar sömu slóðir i Móðuharðindum Skaftárelda fyrir
tæpum 200 árum. Það eru ekki aðeins tvær aldir, sem
skilja að þessa tvo ólíku hópa, heldur einnig flest það
sem greinir örbirgð frá auðsæld. — Og samt er þetta
sama fólkið. Þau urðu við, og við vorum þau. Því ætti
fólkið i bílalest sunnudagsins síst að gleyma. Meðan við
munum og virðum það nakta líf sem hér reyndist,á fyrri
tíð þrátt fyrir allt, sterkara en dauðinn í nauðum elds og
allri áþján, þá munum við þola öll Heklugos stór og smá.
• Fari hins vegar svo að við gleymum sjálfum okkur,
gleymum lífi þeirra kynslóða sem tómhentar lærðu að
búa við þetta land, og héldu velli þótt þær féllu, — þá
mun skammt í endalokin, þá mun íslensk þjóð ekki lifa
lengi í þessu landi, jaf nvel þótt Helka og allar eldstöðvar
landsins aðrar leggist í langan dvala.
• „Drambsemin sté upp, sem ávallt er fallinu næst",
segir Jón Steingrímsson þegar hann ræðir velsældarárin
næstá undan Skaftáreldum. — Vonandi höfum við ekki
miklast svo af velsæld okkar að f all sé á næsta leiti.
0 Island er samt við sig og við skulum ekki biðja um
það öðru vísi, — því hvað sagði ekki Jónas við Pál Gai-
mard: „Þú stóðst á tindi Heklu háum og horfðir yfir
landið f ríða... En Loki bundinn beið í gjótum bjargstudd-
um undir jökulrótum. — Þótti þér ekki (sland þá yfir-
bragðsmikið til að sjá?"
• Landið er yf irbragðsmikið. Vonum enn að það setji
svip sinn á fólkið.
— k.
Klrippt
! Yfirlýsing fyrir
| annars hönd
I Þaö viröist ekki eiga af Sjálf-
I' stæöisflokknum aö ganga. Nú er
þvi lýst yfir i Morgunblaöinu á
sunnudaginn var aö Gunnar
Thoroddsen, varaformaöur
I' flokksins og forsætisráöherra,
ætli ekki aö styöja flokkinn i
næstu kosningum, veröi Geir
Hallgrimsson áfram formaöur.
IEkki er þaö nú Gunnar
Thoroddsen sjálfur sem lýsir
þessu yfir, heldur annar maöur.
— Og hver skyldi þaö nú vera?
IEnginn annar en Björn
Bjarnason, pólitiskur aöstoöar-
maöur i forsætisráöuneytinu
f meöan Geir Hallgrlmsson
Igegndi þar störfum og aö þvÞ
best er vitaö enn i dag helstur
pólitiskur ráögjafi Geirs.
, Meö öörum oröum, þaö er
Italsmaöur Geirs Hallgrimsson-
ar, sem lýsir þvi yfir, aö Gunnar
Thoroddsen muni ekki styöja
, Sjálfstæöisflokkinn framar,
Inema skipt sé um formann!!
En er þá þessi „rödd hús-
bónda sins”, Björn Bjarnason
, aö bjóöa upp á formannsskipti i
ISjálfstæöisflokknum. — Nei
fjarri fer þvi, öll greinin gengur
I rauninni út á þaö aö „sannir”
( Sjáifstæöismenn láti sko ekki
IGunnar Thoroddsen segja sér til
um eitt eöa neitt, viö þann mann
eigi enga samninga aö gera.
, Þaö er sjaldgæft, aö talsmaö-
Iur eins flokksformanns taki sig
til og lýsi þvi opinberlega yfir aö
varaformaöur sama flokks ætli
, alls ekki aö kjósa flokkinn i
Inæstu kosningum, og þaö án alls
umboös frá varaformanninum.
Ólíkt hafast
þeirað
S
Sjálfur hefur Gunnar
Thoroddsen hvergi látiö aö þvi
liggja aö hann hygöist hætta
stuöningi viö Sjálfstæöisflokk-
inn, þvert á móti hefur hann
viöa að undanförnu fariö fögr-
um oröum um vilja sinn til sátta
innan flokksins, en látiö á sér
heyra aö líklega yröu þeir báöir
aö vlkja, hann og Geir Hall-
grimsson, ef sættir ættu aö tak-
ast innan flokksins.
En svar þeirra Geirs Hall-
grimssonar og Björns Bjarna-
sonar viö þessu tali Gunnars
kemur skýrt fram i grein Björns
I Morgunblaðinu á sunnudaginn.
Meö þvi aö lýsa þvi þar yfir, aö
Gunnar ætli ekki einu sinni aö
kjósa þann flokk sem hann er þó
varaformaöur fyrir, þá eru þeir
félagar, Björn Bjarnason og
Geir Hallgrlmsson, aö segja
Gunnari Thoroddsen svo skýrt
sem verða má, aö honum sé
sæmst aö hypja sig úr stássstof-
um Sjálfstæðisflokksins, — þar
eigi hann ekkert erindi lengur.
Skóggangssök
IMaöur sem kýs ekki þann
flokk sem hann er varaformaö-
1 ur fyrir er auövitaö ekkert
Iannaö en vargur i véum I þeim
flokki. Þaö vita þeir Björn
Bjarnason og Geir Hallgrims-
I' son aö lesendur Morgunblaösins
skilja mæta vel, og þarf ekki út-
skýringar.
Gunnar Thoroddsen hefur
I' marga hildi háö og ersjálfsagt
ekki uppnæmur fyrir smámun-
um. Sagt er aö hann eigi enn
margvisleg itök i völundarhúsi
I' Sjálfstæöisflokksins og því of
snemmt aö spyrja um úrslit.fyrr
en aö leikslokum.
Gunnar Thoroddsen hefur
I' reyndar leyft sér að spá þvi
opinberlega aö Sjálfstæöisflokk-
urinn muni tapa fylgi veröi Geir
áfram formaöur, og þótti eng-
I um mikiö! Fleirum hefur vist
| dottiö eitthvaö svipaö i hug.
Skulu bræöur berjast?
Björn Bjarnason: Gunnar kýs
ekki flokkinn
Sverrir Hermannsson: Til
vopna
En heföi nú ekki veriö hyggi-
legra, eöa þó a.m.k. drengilegra
fyrir þá Björn og Geir, aö láta
varaformann Sjálfstæöisflokks-
ins um þaö sjálfan aö segja til
hvort hann styddi sinn eigin
flokk eöa ekki? — En nú er þaö
ekki iengur Gunnar Thorodd-
sen, forsætisráöherra, sem
ákveður þaö hvort hann styöji
þann flokk, sem hann hefur
starfaö fyrir i 50 ár. Þaö eru
aörir sem ákveöa þaö fyrir hann
og þeirra ákvöröun er sú aö
þessi voöamaöur megialls ekki
styöja Sjálfstæöisflokkinn þótt
hann gjarnan vilji. Hann skal
stimplaöur vargur I véum, sek-
ur skógarmaöur, óalandi og
óferjandi um allt hiö viðlenda
riki þess flokks, sem hann þó er
varaformaöur fyrir.
Óneitanlega minna svona
fyrirfram yfirlýsingar um þaö,
aö varaformaöur Sjálfstæöis-
flokksins ætli ekki aö styðja sinn
eigin flokk, dálitiö hastarlega á
aödraganda ýmsra annarra
flokkshreinsana á öörum stöö-
um I veröldinni. Ekki er vist
hvernig „sönnum” Sjálfstæöis-
mönnum list á blikuna þegar til
slikra vopna er gripið.
Til vopna
„Til vopna” — jú reyndar
skrifaöi einn ákafasti andstæö-
ingur Gunnars Thoroddsen
grein meö þvi nafni I kjördæma-
blaö Sjálfstæöisflokksins á
Austurlandi nokkru fyrir
alþingiskosningarnar s.l. vetur.
Og heföi vist ekki staðiö á út-
ieggingunum i Morgunblaöinu
ef svo hroöalegt oröbragö heföi
veriö uppi haft hér i Þjóöviljan-
um. Þessi vopnaglaöi þingmaö-
ur Sjálfstæöisflokksins var auö-
vitaö Sverrir Hermannsson,
sem um sinn hefur staöið fyrir
prýöilega menntuöu einveldi
hjá Framkvæmdastofnun rikis-
ins. Sverrir var þarna aö taka út
-------------09
forskot á sælu leiftursóknarinn- I
ar, þar sem allt átti aö skera ,
niður viö trog nema völd Sjálf- ■
stæöisflokksins og gróöa I
braskaranna.
1 þessari grein sinni segir,
Sverrir Hermannsson orðrétt ■
þann 19. okt. s.l.: „I væntanleg-1
um kosningum veröur vitanlega |
kveöinn upp dómur yfir nú- •
verandi rikisstjórn (stjórn Ólafs |
Jóhannessonar), og þeim flokk-1
um, sem hana hafa myndaö. Sá |
dómur hlýtur aö veröa mjög á •
einn veg.' Formælendur mun I
hún eiga fáa. En þaö er Sjalf-1
stæöisflokknum ekki nóg. Sjálf-1
stæöisflokknum, sem hlýtur aö ■
taka viö forystu (!) um stjórn *
landsins aö kosningum loknum,!
ber aö kappkosta aö kjósendur |
taki um leiö afstööu til þjóö- ■
málastefnu flokksins. Fyrir þvi I
ber brýna nauösyn aö hann birti I
stefnu sfna öllum almenningi á I
einfaldan og auöskilinn hátt og ■
dragi ekkert undan.”
Beinskurður á !
degi dómsins
Og siöar i þessari sömu grein ,
segir þessi postuli komandi ■
leiftursóknar, — „Bein- I
skera veröui niöur alla fjárfest- I
ingu svo aö braki i hverju ,
tré”?
Já, ekki var vist til einskis I
gripiö til vopna eöa hvaö.þarna I |
skammdeginu? Eöa hafa ,
vopnin snúist I höndum manna? ■
Er þaö máske Sjálfstæöis- I
flokkurinn sem veriö er aö bein- I
skera? ,
Nú eru kosningar afstaönar ■
fyrir mörgum mánuöum, og I
hvaö skildi Sverrir Hermanns- |
son nú hafa aö segja i nýjasta ,
tölublaöi af málgagni Sjálf- ■
stæöisflokksins á Austurlandi? I
Skildi þar vera boöskapur um |
sættir I Sjalfstæðisflokknum, ■
eöa máske meiri beinskuröur I
innan dyra og utan? Viröum I
fyrir okkur vopnaburöinn. |
Sverrir segir orörétt: „Hryggi- •
legast fyrir Sjálfstæöismenn er I
þó sú staöreynd aö i bland við 1
þessi stjórnartröll skuli vera aö I
finna menn úr þeirra rööum. *
Meira aö segja menn sem J
forystu höföu um stjórnar- I
myndunina (Gunnar Thorodd- I
sen),og skeyttu ekki um skömm *
né heiöur I trylltri valdafikn J
sinni. Þaö eru dýr kaup, aö I
kaupa völd viö æru sinni. En svo I
liggur hver sem hann hefur lund *
til.”
Þetta voru orö Sverris I
Hermannssonar og fer vist ekk- I
ert á milli mála aö vopn blika ■
þar viö himin á degi bein- .
skuröarins i húsi Sjálfstæöis- I
flokksins.
Þaö segir máske ekki stórt, aö ,
Sverrir Hermannsson láti slik ■
orö frá sér fara. Hitt segir I
meira, aö einmitt orö Sverris I
um ærusöluna voru endurprent- ,
uö meö velþóknun i ritstjórnar- ■
pistlum Morgunblaösins tveim I
dögum áöur en Björn Bjarnason |
lýsti þvi yfir i sama blaöi, aö •
Gunnar Thoroddsen ætlaöi ekki ■
(mætti ekki) aö kjósa Sjálf- I
stæöisflokkinn.
Þegar svona hefur hitnaö i •
kolum jafngilda allar sættir I
svikum aö dómi þeirra sem I
hæst bera vopnin. —k. I
sKorrið