Þjóðviljinn - 21.08.1980, Blaðsíða 2
2 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 21 ágúst 198«
Skipadur
bæjarfógetí
á Siglufirði
Forseti Islands hefur sam-
kvæmt tillögu dómsmálaráð-
herra, skipað Halldór Þ. Jóns-
son, fulltrúa á Sauðárkróki,
bæjarfógeta á Siglufirði, frá
15. ágúst 1980 að telja.
' Halldór Þ. Jónsson, nýskipað-
ur bæjarfógeti á Siglufirði.
Keppt í hjólreiðum
Hjólreiðaféiag Reykjavikur
heldur sina fyrstu hjólreiða-
keppni i Reykjavik um næstu
helgi og verður keppt i 3 flokk-
um, 12-15 ára og 16 ára og
eldri, einnig verður keppt i
kvennafiokki ef næg þátttaka
fæst.
Hjólreiðakeppni þessi er sú
fyrsta sinnar tegundar hér i
Reykjavik og er ætlunin að
keppni þessi verði árlegur við-
burður. Veittir verða farand-
bikarar ásamt verðlaunapen-
ingum og viðurkenningaskjöl-
um.
Hjólað verður ca. 10 km á
hringlaga braut i eldri flokk,
og 5 km i yngri og i kvenna-
flokki.
Búist er viö góðri þátttöku,
þar sem hjólreiðanotkun hefur
átt vaxandi fylgi að fagna
undanfarin ár og má tilkynna
þátttöku i sfma 22800 og 25641
eftir kl. 6 á kvöldin.
Gjafir til Styrktarfélagsins
Nýlega afhenti Kiwanis-
klúbburinn Elliöi höfðinglegar
gjafir til sambýlis Styrktar-
félags vangefinna i Auöar-
stræti i Reykjavik, húsgögn og
litsjónvarp, alls aö verömæti
tæpar tvær milljónir króna, en
klúbburinn hefur tvivegis áður
gefiö heimilum félagsins
gjafir.
Stefnt er að þvi að taka sam-
býlið *i notkun i september
mánuði, en þar munu dveljast
12-14 manns, segir i frétt frá
Styrktarfélaginu sem þakkar
Kiwanismönnum i Elliða allar
þessar góðu gjafir og hlýjan
hug til málefna félagsins.
Fyrsti þjóðhöfðinginn, eða verðandi þjóðhöfðinginn, hefur nú heim-
sótt hinn nýja forseta islands, Vigdisi Finnbogadóttur, að Bessa-
stöðum. Það var Karl Bretaprins sem kom við á leið sinni til lax-
veiða i Vopnafirði I fyrradag og þáöi hádegisverð. — Ljósm. — gel.
10 þúsund eintök gefín
Sænski trúboðinn Rolf
Karlsson er væntanlegur til
Reykjavikur i næsta mánuði
til að halda samkomur á veg-
um Filadelfiu.
Rolf Karlsson er þekktur
trúboði viða um heim. Saga
hans og starf hefur vakið at-
hygli og samkomur hans verið
fjölsóttar. Lifandi boðun og
áhrifarik fyrirbænaþjónusta
einkennir samkomurnar.
Margir hafa reynt áhrifamátt
bænarinnar, sjúkir læknast,
sundruð heimili sameinast, og
vonlausir eignast nýjan lifs-
þrótt og lifstilgang i trúnni á
Jesúm Krist, að þvi er fram
kemur i fréttatilkynningu frá
Filadelfiu. Sjálfur veiktist
Rolf ungur af sykursýki og
missti sjónina.
Hann hefur skrifað bók um
lifsreynslu sína, ,,ljós i
myrkri” og hefur trúboðs-
stofnun hans i tilefni tslands-
heimsóknarinnar gefið 10 þús-
und eintök af bókinni til dreif-
ingar i Reykjavik og nágrenni.
Verður næstu daga gengið i
hús og bókin afhent þeim er
þiggja vilja.
Samkomur Rolfs Karlsson-
ar i Filadelfiu, Hátúni 2, verða
kl. 8 á hverju kvöldi 10.-14.
sept. og er öllum heimill að-
gangur, en þær eru liður i her-
ferö Hvitasunnusafnaðanna á
tslandi, „island fyrir Krist
1980”.
Kjörmannafundur bœnda við ísajjarðardjúp:
Setja ber lög um
hámarksbústærð
A kjörmannafundi bænda i
Norður-isafjarðarsýslu, sem
haldinn var 10. ág. s.l. voru sam-
þykktar eftirfarandi 3 ályktanir:
1. Kjörmannafundur N.-ísa-
fjarðarsýslu 1980 telur að draga
beri úr framleiðslu með þvi að
sett verði lög um búfjárrækt sem
atvinnugrein. Þar i verði ákvæði
um hámarks bústærð. Undan-
þágur verði aðeins þar sem
skortir neyslumjólk á afmörk-
uöum svæðum. Beinir fundurinn
þvi til Stéttarsambands bænda að
vinna að þvi að næsta Alþingi
setji lög meö þessi ákvæði i staö
kvótakerfis og fóðurbætisskatts.
Fundurinn lýsir andstöðu sinni
við framleiðsluskerðingu á 400
ærgildabú og minni. Þá mótmælir
fundurinn ennfrekar fóðurbætis-
skatti sem bitnar fyrst og lang-
verst á byggðarlögum sem búa
við óöryggi i heyfölun, hátt kjarn-
fóðurverð og erfiðar samgöngur.
Bendir fundurinn á að Fram-
kvæmdastofnun rikisins vinnur
nú þegar að áætlun um aðstoð við
bændur sem væntanlega munu
flosna upp vegna fóðurbætis-
skatts og kvótakerfis þess er nú
gildir.
2. Kjörmannafundur N.-ísa-
fjaröarsýslu 1980 telur réttlætis-
mál að verð á graskögglum
komnum til bænda sé allstaðar
eins. Fundurinn felur Stéttar-
sambandi bænda að vinna aö
þessu máli í fullri alvöru.
3. Kjörmannafundur N,-
isafjarðarsýslu 1980 gerir þá
kröfu að slátursleyfishöfum verði
gert skylt að greiða eigendum
sláturfjár fullt útborgunarverö
strax og Seðlabankinn hefur af-
greitt afurðalánin. Otborgunin
verði greidd inn á bankareikning
viðkomandi aðila — eða f þann
stað er þeir visa til. Sama regla
gildi um rekstrarlán á meðan þau
eru afhent sláturleyfishöfum.
Væntir fundurinn þess að Stéttar-
samband bænda reyni eitthvað
raunhæft í þessu sjálfsagða rétt-
lætismáli.
Sameiginleg könnun og tillögugerð á Norðurlöndum:
Almenningsfarartæki
aðlöguð þtrturn fatlaöra
Flugið mikilvœgast jyrir íslendinga
Viðtæk könnun og tilraunir i þvi
skyni að auðvelda fötluðum og
öidruðum notkun almenningsfar-
artækja fer nú fram á vegum ráð-
herranefndar Norðurlanda og er
nú lokið skýrslugerð varðandi
járnbrautalestir, langferðabila
og skip og hafist handa um loka-
áfangann, sem á að fjaiia um
ferðir fatlaðra meö flugvélum.
Það verkefni skiptir, fatlaða á
islandi miklu máli og er gert ráö
fyrir að samgönguráöuneytið i
Reykjavik leggi til sérfróðan
mann.
Könnunin hófst 1978 og fól ráð-
herranefndin norrænu embættis-
mannanefndinni (NET) að sjá
um hana, en NET valdi aftur
fimm manna nefnd fulltrúa allra
landanna að stjórna verkinu.
Fulltrúi Islands er Magnús
Kjartansson.
1 ágústbyrjun sl. hélt nefndin
tveggja daga fund á Hótel Eddu
við Laugarvatn. Þar var fjallað
um skýrslu sem hafði að geyma
ýmsar tillögur um aðgerðir sem
geri fötluðum kleift að ferðast
meö skipum. Þar er þaö vanda-
mál torleystast að komast um
borð og i land aftur — einkum ef
skipin eru smá.
Siglingamálastofnun Noregs
hefur annast kannanir i verki.
Gerðar hafa verið langar land-
brýr sem hjólastólar geti komist
um og ennfremur hafa verið
gerðar sérstakar lyftur sem hægt
er að hafa á hafnarbakka eða um
borð i skipum og lyft geti hjóla-
stóli með fötluðum manni ásamt
aðstoðarmanni.
Um borð I skipum er að finna
torfærur fyrir fatlaða, m.a. eru á
flestum dekkjum mjög háir
þröskuldar, sem gert er ráð fyrir i
öryggisreglum svo að sjór komist
ekki inn. Gert er ráð fyrir minni
háttar skábrautum til þess að
komast yfir þröskuldana. Stigar
inni i skipum eru oftast torveldir
fötluðum, þar sem þeir eru of
brattir og eru gerðar tillögur um
fyrirkomulag á stigum. Með tilliti
til fatlaðra sem ekki geta farið úr
stólum sinum verður þó að hafa
lyftur af ýmsu tagi á skipunum.
í skýrslunni er einnig fjallað
um sjónskerta og heyrnardaufa
og gerðar tillögur um fyrirkomu-
lag á skiltum og notkun á hátölur-
um og ljósmerkjum.
Skýrslan verður nú send þeirri
embættismannanefnd Norður-
landa sem fjallar um samgöngu-
mál, en formaður hennar er
Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytis-
stjóri. Siöar mun samgöngumála-
nefnd Norðurlandaráðs fjalla um
skýrsluna og leggur væntanlega
til við rikisstjórnir Norðurlanda
að tillögurnar verði framkvæmd-
ar i tengslum við breytingar á
skipum eöa nýbyggingar.
í ár lauk ennfremur fyrsta
áfanga i rannsóknar- og þróunar-
störfum nefndarinnar, er sendar
voru skýrslur um ferðir fatlaöra
með járnbrautalestum og lang-
ferðabifreiöum. Samgöngumála-
nefnd Norðurlandaráðs hefur
ekki enn fjallað um þær skýrslur,
en búist er við að tekið verði til
viö þær í haust. Þá var á Laugar-
vatnihafist handa um lokaáfanga
þ.e. um ferðir fatlaðra með flúg-
vélum.
Fyrstu 6 mánuði
ársins slösuðust
Eigum við ekki að
sýna aukna aðgæslu?
^ UXFEBÐAR
FÉLAGSFUNDUR
um samningamálin
Alþýðubandalagið í Reykjavík gengst fyrir fundi um yfir-
standandi kjarasamninga á Hótel Esju í kvöld, 21. ágúst kl.
20.30. Fulltrúar verkalýðsfélaga og sambanda halda stutt inn-
gangserindi og sitja að þeim loknum fyrir svörum.
Fundarstjóri verður ólafur Ragnar Grímsson.
Stjórn ABR.
Stefánsson Daviðsson Bjarnason Pétursson Jónsson
ólafur Ragnar
Haraldur
Steinþórsson
Guðm. J.
Guðmundsson