Þjóðviljinn - 21.08.1980, Page 5
Fimmtudagur 21 ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Jacek Kuron — sovésk innrás I Pólland yröi ekki „ný Prag”, heldur
„nýtt Afganistan” eöa „önnur Búdapest.”
Biöröð viö kjötbúö IGdansk (áöur Danzig) — veröhækkun á kjötvörum og raunar einnig skortur á þeim
hleypti verkfallaöldunni af staö.
Verkalýðsstétt gegn ríkisflokkí
Verkföllin i Póllandi
hafa nú staðið yfir i
nærri tvo mánuði og
þegar þetta er ritað sér
ekki fyrir endann á
þeim. Það sem hleypti
þeim af stað var
verðhækkun á kjötvör-
um, en flótlega varð
ljóst að óánægja verk-
fallsmanna stafaði ekki
fyrst og fremst af þeirri
verðhækkun. Ljóst er,
að aðalkrafa verka-
manna er, að þeir fái
fullan rétt til að stofna
verkalýðsfélög óháð
stjórnarvöldum og þar
með rétt til að semja
sjálfir um kjaramál sin
við ríki og fyrirtæki.
Jafnframt er krafist rit-
frelsis, lausnar fyrir
pólitiska fanga og lýð-
ræðis yfirleitt.
Þessi hreyfing minnir um
margt á lýöræöishreyfinguna i
Tekkóslóvakiu 1968. Munurinn er
meðal annars sá, aö i Tékkó-
slóvakiu varö sjálfur rikisflokk-
uriniu brjóstfylking umbóta-
hreyfingarinnar, þar eö frjáls-
lyndir menn náöu þar yfirtökum.
í Póllandi er hinsvegar fyrst og
fremst um aö ræöa baráttu
verkalýðsstéttarinnar, sem
flokkurinn og rikisapparat hans
andæfir eftir föngum.
Verkamenn samhuga
Krafan um frjáls verkalýðs-
samtök er ákaflega viökvæm
fyrir pólsk stjórnarvöld. Sam-
kvæmt sovéska kerfinu, sem Pól-
land og önnur Austur-Evrópuriki
tóku upp nauöug viljug aö lokinni
siöari heimsstyrjöld, lúta verka-
lýðssamtökin vilja rikisins og
hins alráöa flokks, hafa lltiö eöa
ekkert meö kjaramál aö gera og
sinna fyrst og fremst ýmisskonar
þjónustustarfsemi. Yröi látiö
undan þessari aöalkröfu pólskra
verkamanna — og sumir pólskra
valdhafa veru trúlega ekki með
öllu frábitnir þvi — þýddi það svo
mikilvægt frávik frá sovésku
fyrirmyndinni aö mikil spurning
er, hvort Sovétmenn myndu um-
bera slíkt.
Ekki veröur annaö séö en allur
þorri pólskra verkamanna standi
aömeira eöa minna leyti að verk-
föllunum eöa hafi aö minnsta
kosti samúö meö verkfallsmönn-
um. Verkföllin hafa verið gerö i
hundruöum fyrirtækja um allt
land og i ýmsum starfsgreinum,
þar hafa komið viö sögu verka-
menn i málm- og vélaiönaði,
sorphreinsunarmenn, strætis-
vagnastjórar, kolanámumenn,
hafnarverkamenn og fleiri. Sam-
hug verkamanna i þessari bar-
áttu fyrir betri kjörum og lýöræöi
má meðal annars marka af þvi,
aö sumsstaöar hafa jafnvel hin
opinberu verkalýðsfélög risiö
gegn rikisflokknum (sem kallar
sigVerkamannaflokk og telur sig
kommúnistaflokk) og snúist á
sveif með verkfallsmönnum.
Gagnrýni frá vinstri
Um það er deilt hversu vel
skipulögð og samræmd verkfalla-
Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garðabæ
Ónnumst þakrennusmíöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verötilboð
SÍMI 53468
Símmn er 81333
UÚOVIUINN Siðumúja 6 S. 81333. ,
baráttan sé, en ljóst er aö um
verulega skipulagningu er aö
ræöa meöal verkamanna. Þaö
fullyröir meöal annarra hinn
kunni pólski andófsmaður Jacek
Kuron i viötali viö versturþýska
timaritiö Der Spiegel nýlega.
Heimildum ber saman um aö
Nefndir til félagslegrar sjálfs-
varnar, þekktastar undir
skammstöfuninni KOR, eigi mik-
inn þátt í skipulagningunni. Þær
hafa einnig veriö duglegar aö
kynna málstaö veikfallsmanna
erlendis. Aösögn Spiegels eiga nú
þúsundir manna aöild aö KOR,
sem oröin er alláhrifamikil stofn-
un I pólsku þjóölifi og stjórnar-
völd neyöast til aö taka tillit til.
Kuron, sem mun vera þekktast-
ur talsmanna KOR, er róttækur
vinstrisinni og gagnrýnir pólska
stjórnkerfiö frá vinstri. Gagnrýni
frá vinstri viröist yfirhöfuö áber-
andi i yfirstandandi baráttu, en
telja má vist aö meöal verkfalls-
manna og stuöningsmanna þeirra
sé fólk meö margvlslegar stjórn-
málaskoöanir.
Batnandi skipulagning
Athyglisverö hófsemi hefur til
þessa einkennt aðgerðir beggja
aðila. Verkfallsmenn hafa haft
sig tiltölulega litiö i frammi á göt-
um úti og yfirleitt foröast allt þaö,
sem taka mætti sem ögranir,
gagnstætt því sem var 1 verkföll-
unum 1970 og 1976 — i fyrra skipt-
iökom sem kunnugt er til blóösút-
hellinga. Kuron þakkar þetta
„skipulagsstarfi andspyrnu-
hreyfingarinnar i fjögur ár.”
spyrnumenn hafi, segir Kuron,
lagt áherslu á, aö menn berjist
fyrir rétti sinum á vinnustað, I
fyrirtækjunum, ekki á götunni.
Aö sögn Kurons hefur blaðið
Robotnik (Verkamaöurinn) haft
mikil áhrif I þessu efni. Blaöiö,
sem gefið mun út á vegum KOR
og er eins og vænta mátti bannað
af stjórnarvöldum, er mikiö lesiö
af verkamönnum.
Valdhafar ósammála
Pólsk stjórnarvöld, sem um-
fram flest eöa allt annaö vilja
foröast haröari átök og manndráp
eins og varö I Eystrasaltsborgun-
um 1970 og i Poznan 1956, hafa og
gengið fram með gætni. Þau hafa
látið undan ýmsum kröfum verk-
fallsmanna, veitt launahækkanir,
frestað veröhækkunum, lofaö
meira kjöti í búðirnar. Þau hafa
meira aö segja gengið til
samninga viö nefndir verkfalls-
manna og þar meö aö vissu marki
viöurkennt samningsrétt nefnda
þessarar i raun. Ofan á þaö ræöa
hinopinberu blöö efnahagsmál og
efnahagsvandræöi miklu frjáls-
legar en veriö hefur.
Sagt er að deilur séu i æösta
valdahópnum um þaö, hve langt
skuli gengiö til móts viö verk-
fallsmenn. Frjálslyndari menn i
rikisflokknum eru sagöir hallast
aö þvl i vaxandi mæli aö núver-
andi verkfallsnefndum skuli
breytt i óháð, lýöræöisleg verka-
lýössamtök og frjálsræöi aukiö á
fleiri sviöum. Babiuch forsætis-
ráöherra, sem kvað aö visu ekki
vera neinn sérstakur lýöræöis-
sinni sjálfur, hallast aö þessum
armi þar eö hann telur, aö von-
laust sé aö ráöa bót á efnahags-
vanda landsins nema stjórnin nái
trausti verkamanna.
Að hinu leitinu eru svo ihalds-
menn, sem óttast um völd rikis-
flokksins ef eitthvaö yröi slakaö á
klónni. Þetta kváöu einkum vera
eldri mennirnir í stjórn flokksins.
Gierek leiötogi flokks og rikis
reynir svo aö fara bil beggja.
Koma Rússar?
Erlendis er að sjálfsögöu viöa
fylgst meö gangi máli i Póllandi.
Sovétmenn eru efalaust á nálum
út af ástandinu og miklar likur til
aö þeir gripi fram i meö vopna-
valdi, ef þeir telja hættu á þvi aö
Itök þeirra minnki verulega i
Póllandi eöa ef verulegar
breytingar veröa þar I lýðræöis-
átt. Hvorttveggja myndi hafa
mikil áhrif i öörum Austur-
Evrópurikjum og jafnvel i Sovét-
rikjunum sjálfum. En sovéskir
valdhafareiga erfiðara um vik nú
en 1968, þar eö hluti hers þeirra
situr fastur i Afganistan, og þar
aö auki mætti búast viö miklu
haröari vörn af hálfu Pólverja en
sovésku hersveitirnar mættu i
Tékkóslóvakiu. Kuron segir I
fyrrnefndu viötali aö sovésk inn-
rás IPóllandyröiekki ,,ný Prag”,
heldur „nýtt Afganistan” eöa
„önnur Búdapest.” Hér kemur
viö sögu a'ndúö Pólverja á Rúss-
um, sem er gamalgrónari en i
nokkru ööru Austur-Evrópuriki,
og erföavenjur sem liggja i landi
frá andspyrnu- og neöanjaröar-
hreyfingum fyrri tiöa.
Sambönd við Vestur-
Evrópu mikilvæg
í þriöja lagi er Sovétmönnum
ljóst, aö þeir myndu spilla stór-
um fyrir sér á alþjóöavettvangi
meö siikri innrás, sérstaklega i
Vestur-Evrópu. Vestur-Evrópu-
rikin, meö Vestur-Þýskalandi I
broddifylkingar, hafa I raun tekiö
árásinni á hiö fátæka og lltið
eftirsótta Afganistan meö jafn-
aöargeöi, en ööru máli myndi
gegna um Pólland, sem hefur ná-
in sambönd við Vestur-Þýskaland
og fleiri Vestur-Evrópulönd.
Það mælir sem sagt ýmislegt
gegn þvi, aö Sovétmenn þori aö
gripa fram i mál Pólverja meö
innrás, en samt sem áöur má
reikna meö þvf aö svo fari, ef
valdhafarí Kreml telja hagsmun-
um sinum verulega hættu búna af
þvi, sem er aö gerast i þessu
grannlandi þeirra.
-dþ.
OPNUM
1. september
Tímaleiga er að hef jast, fyrri félagar hafa
forgang að tímum sinum til 22. ágúst.
Unglingatimar — kvennatímar.
Upplýsingar milli kl. 19.00 og 21.00 næstu
daga í síma 82266.
Tennis- og badmintonfélag
Reykjavíkur
Gnoðarvogi 1