Þjóðviljinn - 21.08.1980, Side 10

Þjóðviljinn - 21.08.1980, Side 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 21 ágúst 1980 Skattstjórinn 1 Austurlandsk j ördæmi AUGLÝSING samkvæmt 1. mgr. 98. gr. laga nr. 40 18. mai 1978 um tekjuskatt og eignarskatt með siðari breytingum, um að álagningu opinberra gjalda á árinu 1980 sé lokið á þá menn sem skattskyldir eru hér á landi samkvæmt 1. gr. greindra laga, þó ekki á börn sem skattlögð eru samkvæmt 6. gr. þeirra. Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna þau opinberu gjöld sem skattstjóra ber að leggja á á árinu 1980 á þessa skattaðila hafa verið póstiagðar. Kærur vegna allra álagðra opinbera gjalda sem þessum skattaðilum hefur verið tilkynnt um með álagningarseðli 1980 þurfa að hafa borist skattstjóra eða umboðsmanni hans innan 30 daga frá og með dagsetningu þessarar auglýsingar. Egilsstöðum, 21. ágúst 1980, Skattstjórinn i Austurlandsumdæmi, Bjarni G. Björgvinsson. F j ölbrau taskólinn í Breiðholti Fjölbrautaskólinn i Breiðholti verður settur i Bústaðakirkju þriðjudaginn 9. sept. kl. 10 árdegis. Aðeins nýnemar eiga að koma á skóla- setningu svo og kennarar. Allir nemendur eiga hins vegar að koma i skólann og fá stundaskrár afhentar sama dag kl. 13.30-18.00 og standa skil á greiðsl- um til skólans og nemendaráðs. Kennarar eiga að koma mánudaginn 1. sept. kl. 10, en þá verður haldinn fyrsti kennarafundur skólaársins. Timinn til skólasetningar verður hagnýttur til undir- búnings skólastarfseminnar. Skólameistari. Samtök gegn astma og ofnæmi ÁRLEGA SKEMMTIFERÐIN verður að þessu sinni farin upp i Borgar- f jörð á sunnudaginn 24. ágúst. Lagt verður af stað frá Suðurgötu 10 kl. 10.00 og frá Norðurbrún 1 kl. 10.30. Sameiginlegt borð- hald á leiðinni. Tilkynnið þátttöku i sima 26979 eða á skrifstofu samtakanna kl. 16.00 til 18.00 i sima 22153. Stjórnin. ✓ Iþróttakennara vantar við grunnskólann á Hellissandi, Upplýs- ingar veitir skólanefndarformaður i sima 93-6605. Alþýðubandalagið í Kópavogi Sumarferö félagsins fellur niður vegna Heklugossins Ferðanefndin Magnúsarminitmg Framhald af bls. 6. rei&i sinni. Eins var um annað. Mönnum má þykja hann hafa veriö hlédrægur, sem og hann var, en þegar dómur snerist aö hans eigin verkum, þá var þar engu litillæti fyrir aö fara. Og enn var þaö, aö þessi gáfaöi og viö- sýni maöur gat á stundum átt til svobarnsleg viöhorf, aö nálgaöist helgigáfu á þann vænginn. En ekkert af þessu braut gegn ööru I farihans. Ailt var þar samheilt og innilegt. Þaö á þvi ekki aö vera meö sorg og söknuöi, þvi lif hvers hefur sinn stig, heldur meö þakk- læti fyrir kynnin góöu sem viö fylgjum MagnUsi A. Arnasyni siö- asta jarðarspölinn i dag. Viö Asgeröur biöjum aö heilsa Barböru. Björn Th. Björnsson Kveðja; Frá Félagi íslenskra myndlistarmanna Nú er skarö fyrir skildi i rööum islenskra listamanna. Magnús A. Arnason er fallinn i valinn. Félög- um hans i FÍM finnst þaö undar- leg tilhugsun aö Magnús skuli ekki lengur nærtækur, þegar mikiö liggur viö. Magnús var einn af stofnendum Félags islenskra myndlistarmanna og heiöurs- félagi þess. Hann var sistarfandi að andlegum og veraldlegum vel- feröarmálum myndlistarmanna. Magnús átti sæti i mörgum stjórnum og sýningarnefndum og kom fram fyrir hönd félagsins viö fjölmörg tækifæri. Hann var einn af stofnendum Bandalags islenskra listamanna og fulltrúi FÍM i stjórn þess frá upphafi. Magnús var prúöur maöur og mikiö ljúfmenni. Hann naut trausts og vinsælda félaga sinna og brást ævinlega vel við, ef til hans var leitað um störf i þágu félagsins. Oft var þörf manns meö hæfileika Magnúsar til sátta ogsamkomulags þegar átök voru innan félagsins, en meö sömu lyndisfestu varði hann málstaö listamanna i ræöu og riti, ef hon- um þótti aö þeim vegiö. Magnús var óvenju fjölhæfur listamaöur. Hann málaði ekki aö- eins myndir og mótaöi i leir, held- ur orti hann og þyddi ljóö, samdi lög og skrifaöi bækur. Hann var maöur heimslistar og lifslistar, og þetta tvennt skapaöi órofna heild i lifi hans. Magnúsar veröur varla minnst svo aö ekki komi upp i hugann mynd Barböru, konu hans, svo samstillt voru þau i lífi og starfi. Vinir Barböru og Magnúsar muna margar góöar stundir á heimili þeirra, þar sem naut sin sérstæöur og þokkafullur lifsstill þeirra. Þau Barbara og Magnús ferðuöust víöa, eins og bækur Magnúsar meö myndskreyting- umBarböru sýna.Og þaöber vitni höfðingsskapar þeirra og skilnings á þörf myndlistar- manna á þvi aö komast I snert- ingu viö erlenda menningu, aö lengi styrktu þau árlega einn félaga úrFIM til utanfarar. Eftir andlát Barböru stofnuöu þeir feögar, Magnús og Vifill, Barbörusjóöinn og er úr honum veittur árlegur styrkur á sama hátt og áöur. Félag islenskra myndlistar- manna kveöur meö söknuði góöan félaga. Sigrún Guöjónsdóttir Fyrsti fundur nýs Ferðamálaráðs: Samkeppni í feröa- málum aldrei meiri A fyrsta fundi nýskipaös Ferða- málaráös tslands tii næstu fjög- urra ára kom fram m.a., aö sam- keppni i feröamálum hefur aldrei veriö meiri en nú og til aö ná settu marki þarf gifurlega mikiö starf allra aöila atvinnuvegarins og um fram allt veröa þessir aöilar aö taka saman höndum ef árangur á aö nást. Gera þarf áætlanir fram i timann, annars vegar langtima- áætlun er miöi aö mótun heildar stefnu i Isl. feröamálum og hins vegar skammtimaáætlun er tæki tiilit til rikjandi aöstæöna á hverj- um tima. Sá skilningur var rikjandi á fundinum, aö þvi er fram kemur i fréttatilkynningu ráösins, aö feröaþjónustan sé i raun bæöi út- flutningsatvinnuvegur og þjón- ustugrein og ákveöa þurfi á hvaöa strengi á aö slá i sölustarfsemi og hvort ekki þurfi nánara samstarf við viöskiptaaöila markaðanna og athugun nýrra möguleika i markaösstefnu. Formaöur Feröamálaráös, Heimir Hannesson, lagöi á fund- inum áherslu á aö timabært og veröugt verkefni væri aö gera sér ljósa gréin fyrir efnahags- og þjóöfélagslegum kostum þess aö vinna aö framgangi Isl. feröa- mála, sem vaxandi atvinnugrein- ar ekki sist meö hliösjón af þróun og festu i samgöngumálum til og frá landinu, frekari uppbyggingu Nýtt Ferðamáiaráö á fyrsta fundinum. ferðaþjónustu innanlands og inn- iends samgöngukerfis. Ennfrem- ur aö leggja þyrfti aukna áhersiu á ferðalög Islendinga um eigiö land með mótun heildarstefnu þar að lútandi, jafnframt sem unniö væri aö bættum skilyrðum fyrir slikt. Steingrimur Hermannsson samgönguráöherra, sem sat þennan fyrsta fund ráösins óttaö- ist, aö samdráttar i feröamálum á Bandarikjamarkaði myndi gæta hér sem annarsstaöar. Hann lýsti yfir stuöningi sinum við ferðaþjónustu sem atvinnugrein. Á fundinum kom jafnframt fram, aö brýnt er aö tölulegar upplýsingar um umfang atvinnu- greinarinnar veröi bættar, en gjaldeyristekjur af erl. feröa- mönnum sem veriö hefur nokkurs konar viðmiöun, gefi ekki rétta mynd þar sem tekjur vegna feröalaga Islendinga um eigiö land eru ekki inn i þvi dæmi. FUNDUR UM SOVÉT — Eru Sovétríkin kapítalisk? — Eru Sovétríkin heimsvaldasinnuð? Almennur fræðslu- og umræðufundur í kvöld fimmtudag 21. ágúst kl. 20.30 að Hótel Heklu við Rauðarárstíg. Stuttar framsögur: 0H — Jón Baldvin Hannibalsson P jjjro — Jón Ásgeir Sigurðsson — Ari Trausti Guðmundsson — Magnús Snædal Frjálsar umræður á eftir. Kaffiveitingar. Kommúnistasamtökin.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.