Þjóðviljinn - 22.08.1980, Blaðsíða 12
12 StÐA — ÞJÓDVILJINN Föstudagur 22 ágiist 1980
skák
Umsjón: Helgi ólafsson
Áskorendaeinvígin:
Kortsnoj
vann
Viktor Kortsnoj sigraði í ein-
viginu við Sovétmanninn, Lev
Polugajevsky, sem staöið hefur
yfir i Buenos Aires, Argentlnu, nú
að undanförnu. 14. skákinni i ein-
viginu lyktaði með sigri Korts-
nojs. Hann hlaut alls 7.5 vinninga
gegn 6.5 vinningum Poluga-
jevskys. Það er athygiisvert, hve
góð frammistaða Kortsnojs er,
þegar hann stýrir svörtu mönn-
unum, en þannig hefur hann ein-
mitt náð I vinningana.
14. skákin bauð upp á mikil til-
þrif eins og lesendur geta sann-
fært sig um hér á eftir:
Hvitt: Lev Polugajevsky
Svart: Viktor Kortsnoj
Enskur leikur
1. Rf3-Rf6
2. c4-c5
3. Rc3-d5
4. cxd5-Rxd5
5. e4-Rb4
6. Bc4-Rd3+
7. Ke2-Rf4 +
8. Kfl-Re6
9. b4-cxb4
10. Rd5-g6
11. Bb2-Bg7
12. Bxg7-Rxg7
13. Rxb4-0-0
14. d4-Bg4
15. Ke2-Dd6
16. Dd2-Re6
17. Bxe6-Dxe6
18. Ke3-f5
19. Dd3-fxe4
20. Dxe4-Dxe4
21. Kxe4-Rd7
22. Hhcl-Hf5
23. Hc7-Rf6
24. Kd3-a5
25. Rc2-Rd5
26. Hxb7-Rf4 +
27. Ke4-Rxg2
28. Re5-Hf4+
29. Kd5-Bf5
30. Hc7-Hd8+
(Hvitur fær nú ekki umflúið
mannstap og gæti með góðri sam-
visku gefist upp nú þegar).
31. Kc5-Bxc2
32. Rc6-He8
33. Rxe7 + -Kf8
34. Rc6-Hf5 +
35. Re5-Rf4
36. Hxh7-Kg8
38. Hd7-Rd3+
38. Kb6-Rxe5
39. dxe5-H8e5
40. Hcl-Hf6+
41. Ka7-Hxf2
(Polugajevsky gafst upp. Astæð-
an fyrir þvl að hann hélt svo lengi
út var dæmigert timahrak Korts-
nojs, sem hélt þó vel á spilunum i
þetta skipti.)
—eik—
Hiibner hefiir
tekið forystuna
Vestur-Þióöveriinn/
Robert Hubner, vann i gær
biðskakina úr níundu skák
einvigis þeirra Lajos
Portisch/ sem haidið er í
Abano Terme á italíu.
Hiibner hefur þvi 5 vinn-
inga gegn 4 Portisch og
þarf aðeins jafntefli í sið-
ustu skákinni/ til að öðlast
rétt til að tefla við Viktor
Kortsnoj. eik"
Viktor Kortsnoj
Frá Bfldudal
Guömundur Hermannsson, Bíldudal:
Fólkiö kemur til baka
— Atvinnuástandið hér á
Bildudal gjörbreyttist við komu
togarans hingað. Hann hefur
aflað ágætlega og leggur hér al-
farið upp. Þannig hljóðar upp-
hafið að rabbi okkar Guðmund-
ar Hermannssonar, sveitar-
stjóra Suðurfjarðarhrepps sl.
miðvikudag.
Viðunandi atvinna
— Þar að auki hafa svo lagt
hér upp tveir og þrir djúprækju-
bátar, sagði Guðmundur. Eru
það aðkomubátar. Þeir eru enn
að rækjuveiðum en ég veit nú
ekki hvað það verður lengi úr'
þessu.
Atvinna hefur verið alveg við-
unandi hér I sumar en þess ber
þó að gæta, að frystihúsið hefur
verið lokað um hrlð. Það mun
nú I þann veginn að opna á ný
núna alveg næstu daga. Togar-
inn er að veiðum en kemur inn I
þessari eða næstu viku og þá
tekur húsið til starfa. Rækju-
vinnslan hefur hinsvegar alltaf
verið I gangi.
Hörpudiskur
— Frá þvi má svo segja, að
framan af i vor var tekið hér á
móti hörpudiski og var hann
unninn hér í verksmiðjunni. En
þar sem verið var að byggja við
verksmiðjuna var ekki unnt að
vinna þar samtimis hörpudisk
og djúprækju. Næsta sumar má
aftur á móti gera ráð fyrir að
það verði hægt. Þetta bjargaðist
þvi allt saman þó að frystihúsið
hafi verið lokað þennan tima.
— Spretta hefur verið hér
mjög mikil seinnipartinn I sum-
ar, sagði Sigurður Þórisson,
bóndi á Grænavatni I Mývatns-
sveit. — Veður hefur verið
mjög hlýtt og öðru hvoru duniö
yfir helliskúrir. tJthagi er þvl
mjög vel gróinn og þau tún, sem
fyrst voru slegin, hafa sprottið
mjög vel.
— En hey hafa dálltið hrakist,
sumsstaðar, nokkuð misjafnt
eftir þvi hvað menn hafa verið
heppnir, eins og alltaf, þegar
svona viðrar. Að visu var, fram-
an af sumri, — i júni og fyrri-
hlutann af júll, — framúrskar-
andi heyskapartið en það var
svo þurrt hér i vor, að sláttur
byrjaði seinna fyrir það hvað
seint spratt.
I undirbúningi er að sveitar-
félagið hefji byggingu á fjórum
leiguibúðum. Verður byrjað á
þeim næstu daga. Auk þess eru
þrjú hús i smiðum, sem ein-
staklingar eiga og önnur þrjú,
sem verið er að ieggja grunninn
að.
Þá er verið að undirbyggja
hér götur og leggja hoiræsi i
þær.
Fólki fjölgar hér alltaf heldur
núna en þvi fækkaði þegar at-
vinnuleysið var hér mest. En
það er greinilega að koma hing-
að á ný, bæði sumir þeir, sem þá
fóru og aðrir, sem hér hafa ekki
búið áður en virðast gjarnan
vilja setjast hér að. Þetta breyt-
ist strax þegar fólk sér betur til
jarðar með atvinnu og afkomu.
Þá virðist það ekki siður vilja
búa úti á landi en i „kraðakinu”
og hamaganginum á Reykja-
vikursvæðinu. Fyrsta desember
i fyrra voru ibúar sveitarfélags-
ins 354.
Fá sveitabýli
Sveitabýli hér i hreppnum eru
nú æði fá orðin. Eiginlega ekki
nema þrjú þar sem segja má að
fullur búskapur sé rekinn. Aftur
á móti helst byggð nokkuð úti i
Ketildölunum. Mér er ekki
grunlaust um að þar séu þeir að
huga að loðdýrarækt.
Þetta er nú það helsta, sem ég
get sagt þér af mannlifinu hér
svona i fljótu bragði a.m.k.,
sagði Guðmundur Hermanns-
son.
Guðmundur Hermannsson er
búinn að vera sveitarstjóri Suð-
En nú er frábær sprettutið,
jörðin falleg og grasið þýtur upp
úr túnunum jafnóðum og þau
eru slegin. Það er komið alveg
legugras á það, sem fyrst var
slegið. Eflaust verða öll þau tún
tvislegin, sem búið var að hirða
af um miðjan júli. Og þegar kal
eða bruni er annarsvegar þá
sprettur betur þegar búið er að
slá. Og svo er úrkoman fyrir
öllu upp á sprettu hjá okkur hér
á sandlendinu.
Stormar hafa aldrei komið i
sumar, lygnan hefur verið alveg
rikjandi, en fyrir það þornar
lika seinna.
Við erum núna þessa dagana
að slá hafra og hirða i vothéy og
hafa þeir ekki I annan tíma ver-
ið betur sprottnir. sþ/mhg
ureyrarhrepps i eitt ár. Hann
sagði að sér likaði ljómandi vel
þarna i Arnarfirðinum og hefði
engar áætlanir um að flytja
þaðan I brott að sinni. gh/mhg
Freyr j
Okkur hefur borist nýtt tbl. af I
búnaðarblaðinu Frey. Meðal >
efnis blaðsins að þessu sinni er: I
Forystugreinin „Búvöru- I
framleiðsla og byggð landsins”, I
eftir ritstjórann, Matthias •
Eggertsson. „Breytingar á gæð- I
um mjólkur frá júgri til tank- I
bils”, útdráttur úr erindi As- I
björns Karbö, en hann er ráðu- *
nautur Sambands norskra I
mjólkurframleiðenda. „Hér vil I
ég una I góðri sveit með góöu I
fólki”, nefnist viðtal þeirra ■
Matthiasar Eggertssonar og I
Sverris Magnussonar, bónda I I
Efra Asi I Hjaltadal. Sveinn I
Hallgrimsson, sauðfjárræktar- ■
ráðunautur, skrifar um aukna I
fjölbreytni i sauðfjárfram- I
leiðslu. „örðug barátta við I
vargdýr”, Július J. Danielsson, ■
aðstoðarritstjóri ræðir við Svein i
Einarsson, veiðistióra. Einar E. I
Gislason, ráðunautur á I
Syðra-Skörðugili i Skagafirði
skrifar um „nýja kjötmatið”.
Halldór Pálsson, fyrrverandi
búnaðarmálastjóri og Sigurgeir
Þorgeirsson segja fréttir af
fjárræktarbúinu á Hesti. Sagt er
frá vigslu hins nýja og glæsilega
húss Osta- og smjörsölunnar á
Bitruhálsi. Loks eru bréf frá
bændum og sögð deili á nokkr-
um starfsmönnum bændasam-
takanna. — mhg
Sauðfjársýningar:
t haust
Á þessu hausti verða aðalsýn-
ingar á sauðfé, — hrúta- og af-
kvæmasýningar, — haldnar á
Vesturlands- og Vestfjarða-
svæði, frá Hitará aö Hrútaf jarð-
ará.
Afkvæmasýningar á sauðfé og
millisýningar búnaðarsam-
banda á hrútum verða haldnar á
Miðvesturlandi og Norðurlandi
til og með Eyiafirði.
I öðrum landshlutum munu
búnaðarsamböndin sá um sýn-
ingar á veturgömlum hrútum,
berist tilmæli um það frá fjár-
ræktarfélögum eða búnaðarfé-
lögum.
Sýningar hefjast um miðjan
sept. og standa til veturnátta.
Ariðandi er að sótt verði strax
um fyrirhugaðar sýninear til
héraðsráðunauta. — mhg
Hafrar aldrei
sprottið betur