Þjóðviljinn - 14.10.1980, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 14. október 1980.
Þriöjudagur 14. október 1980. ÞJÓDVILJINN — SIÐA 9
Ferðaskrifstofan Útsýn
Heldur
upp á
afinœlið
í Mexíco
Ferðaskrifstofan Útsýn hefur á
þessu ári haldiö upp á 25 ára af-
mæli sitt meö ýmsu móti innan-
iands og utan en aöalhátiöin, sjálf
afmælisferöin, veröur farin i
nóvember til Mexicoborgar og til
baöstaöarins Acapulco viö
Kyrrahafsströnd.
Flogiö veröur meö Boeing þotu
Arnarflugs, fyrst til Mexicoborg-
ar þar sem dvalist veröur i þrjá
daga, en siöan haldiö landleiöina
til Acapulco og komiö viö i silfur-
námuborginni Taxco i leiöinni. I
Acapulco verður dvaliö i lúxus-
hóteli i 12 daga og flogið beint
þaöan heim til Islands og komið
til Keflavikur aö morgni 24.
nóvember.
Kynnisferöir veröa um Mexico-
borg og nágrenni hennar meöan
þar er staöiö viö, m.a. skoöaðir
pýramidarnir viö Teotihuacan og
i Acapulco og á ieiöinni þangaö er
einnig nóg aö skoöa aö degi og
nóttu.
í frétt frá Útsýn segir, aö verö
fararinnar sé ótrúlega lágt og
litlu hærra en i venjulegum sólar.
landaferðum, en fáum sætum
mun enn óráöstafaö I feröina sem
er lokaþáttur 25 ára afmælis-
hatíöarhaldanna hjá feröaskrif-
stofunni.
Veiðisvæðið
út af Faxaflóa
Sjávarútvegsráöuneytið hefur,
eins og undanfarin haust gefiö út
regiugerð um sérstakt linu- og
netasvæöi út af Faxaflóa. Sam-
kvæmt reglugerö þessari eru all-
ar botn- og flotvörpu veiöar
bannaðar timabiiiö 20. október
1980 til 15. mai 1981 á svæöi út af
Faxaflóa, sem aö sunnan mark-
ast af linu, sem dregin er réttvis-
andi vestur af Sandgeröisvita, aö
vestan afmarkast svæöiö af 23
gráöu 42 '0 V og aö noröan af 64
gráöu 20 ’O N.
Reglugerð þessi er sett vegna
beiöni frá Útvegsmannafélagi
Suöurnesja og aö fenginni um-
sögn Fiskifélags tslands, en á
undanförnum árum hefur veruleg
aukning oröiö I linuveiöum á
þessu svæöi yfir haust- og vetrar-
mánuöina.
Myndin er tekin inni Isal veituhúss Mjóikárvirkjunar og sést út um gluggann aöVetur konungur hefur
heilsaö uppá Vestfiröinga, þótt enn sé aöeins miöur október. — Ljósm. — gel —
Þaö var ekki tekiö út meö sitjandi sældinni aö komast yfir Hrafnseyrarheiöi frá Þingeyri yfir í Mjólkár-
virkjun. Bilarnir festust i sköflum, og meö samgönguráöherra Ibroddi fyikingar tóku menn til viö aö ýta
bflunum I gegnum ófæröina og fórst þaö vel. — (Ljósm. — gel—)
Hann var mikill hátíðisdagur á Vest-
f jörðum sunnudagurinn síðasti,þegar hin
langþráða Vesturlína var formlega tekin
í notkun. Hjörleifur Guttormsson iðn-
aðarráðherra hleypti straumi á línuna kl.
14.00 á sunnudag í Mjólkárvirkjun í
Arnarf irði meðþeim orðum.að hann lýsti
línuna tekna í notkun og þakkaði þeim
sem að verkinu hefðu unnið. Að lokinni
þessari stuttu athöf n var haldið til Þing-
eyrar, þar sem RARIK hélt veislu í til-
efni þessa merka áfanga í rafmagns-
málum Vestfirðinga.
Hátíðisdagur
áVestfjörðum
þegar Vesturlínan var formlega tekin í notkun
Undir borðum voru margar
ræður fluttar. Fyrstur talaöi iðn-
aðarráðherra, Hjörleifur Gutt-
ormsson, og rakti hann aödrag-
anda byggöarlinu, en hún var for-
senda þess að Vesturlina kæmi
til. Hann minnti á aö þegar
Magnús Kjartansson, þáverandi
iðnaðarráðherra, hóf lagningu
rafmagnslinu norður, heföu
margir verið andvigir þeirri
framkvæmd og kallaö hana
ýmsum ljótum nöfnum. Þaö heföi
siöan sýnt sig aö þessi fram-
kvæmd heföi veriö ein sú merk-
asta sem framkvæmd hefði verið
i rafmagnsmálum hér á landi og i
dag fögnuöu flestir byggöarlinu,
sem nær frá Suðurlandi og allt til
Skriödals á Austurlandi. Út úr
þessari linu er Vesturlina tekin i
Hrútafiröi. Þá ræddi hann um
hringtenginguna, en senn verður
hafist handa um aö ljúka henni,
þ.e. aö leggja linu frá Sigöldu og
austur til Hafnar i Hornafiröi.
Norðurlína
upphafíð
Þá minnti hann á aö byggöar-
linana væri mun sterkbyggöari en
rafmagnslinur á Suöurlandi, enda
væru þær lagðar um heiöar og
fjöll þar sem allra veöra er von,og
menn væru sammála um aö þær
þyrftu aö vera þetta sterkar til
þess að bilanahætta á þeim væri
ekki meiri en á öörum rafmagns-
linum, sem liggja á mildari
veöursvæöum. Loks ræddi Hjör-
leifur um raforkuverö i landinu
og nauösyn þess aö samræma
veröiö, þannig aö allir landmenn
sætu þar viö sama borö, og var
þessu málí mjög vel fagnaö
meöal þeirra sem hófiö sátu.
Erfiðasta tínulögnin
Næstur tók til máls Kristján
Jónsson, forstjóri RARIK. Hann
rakti fyrst gang mála viö lagn-
ingu Vesturlinu og ræddi um þá
miklu erfiöleika sem viö var aö
etja viö hönnun og lagningu lin-
unnar. Sagöi Kristján aö vestur-
linan væri erfiöasta lina sem
byggð heföi veri hér á landi og ein
sú sterkbyggðasta. I þessu sam-
bandi minntist hann sérstaklega
á lagningu linunnar yfir Gilsfjörð
og Þorskafjörö þar sem Hnuhafiö
er rúmlega 800 og 600 metrar. í
þvi sambandi hefði tekist aö
vinna bugáöllum erfiöleikum, og
væri linan og möstur hennar á
þessum stöðum svo rammgerð að
ekki ætti að vera meiri hætta á
bilunum þar en á öörum raflinum
i landinu. Hann minnti menn þó á
að auðviíað gæti Vesturlinan
bilað eins og öll önnur mannanna
verk. Loks minntist hann á hve
fljótt og vel heföi tekist aö leggja
linuna og að hún myndi spara á
vetri komanda á milli 1,5 og 2
milljaröa króna i dísilkeyrslu,
sem annars heföi orðiö aö fram-
kvæma til rafmagnsframleiöslu á
Vestfjöröum.
Hundur að sunnan
ekki æskilegur
Steingrimur Hermannsson.
samgönguráöherra og þingmaöur'
Vestfiröinga, tók þar næst til
máls. Sagöi hann m.a. frá þvi að
fyrir um þaö bil 10 árum
heföi hann veriö staddur á fundi i
þessu sama samkomuhúsi, þar
sem veriö var aö ræöa raforku-
mál Vestfirðinga. Þá heföi einn
fundarmanna staöiö upp og and-
mælt þvi ákaft þegar minnst var
á lagningu byggöarlinu og
Vesturlinu útúr henni og sagt að
Vestfiröingar óskuöu ekki eítir
neinum „hundi” aö sunnan.
Steingrimur kvaö þaö sina skoöun
aö engin framkvæmd i landinu
heföi veriö meira áriöandi en
lagning þessarar Vesturlinu,og
þvi fagnaöi hann þvi aö verkinu
væri nú lokiö. Þá sagöist hann
ennfremur fagna þvi aö nú stytt-
ist óöum þar til samtengingu alls
landsins yröi lokiö,og ennfemur
hvatti hann til þess aö sem allra
fyrst yröi lokiö viö aö samræma
raforkuverð i landinu.
Langþráður draum-
ur hefur ræst
Ólafur Kistjánsson, formaöur
stjórnar Orkubús Vestfjaröa.tók
næstur til-máls og sagði lang-
þráöan draum hafa ræst hjá Vest-
firðingum. Benti hann á aö til-
koma Vesturlinu yröi til eflingar
alls atvinnulifs á Vestfjörðum og
aö lifsafkoma Vestfiröinga myndi
batna.
En hann minnti menn einnig á
að margt væri enn óunniö innan
fjóröungsins til þess að Vestur-
linana nýttist fullkomlega. Samt
sem áöur sagöi hann daginn mik-
inn hátiðisdag á Vestfjöröum.
A eftir ólafi tóku til máls þeir
Guömundur Ingólfsson,formaöur
Fjóröungssambands Vestfjaröa,
Þorvaldur G. Kristjánsson
alþingismaöur, Jakob Björnsson
orkumálastjóri, Jóhann Már
Mariusson, yfirverkfræöingur
Landsvirkjunar, Hafsteinn
Daviösson, rafveitustjóri á Pat-
reksfiröi,og Jóhannes Arnason
sýslumabur. Allir tóku þessir
ræðumenn i sama streng, fögnuðu
opnun Vesturlinu og sögöu hana
myndi bæta afkomu fólks og efla
atvinnulif á Vestfjörðum.
—S.dór.
Iönaðarráðherra, forstjóri RARIK og aörir gestir skoöa mannvirki viö Mjólkárvirkjun tengd Vesturlfn-
unni. (Ljósm. — gel —)
Kristján Jónsson, forstjóri Hjörleifur Guttormsson iönaöarráöherra flytur ræöu sina I hófinu á
RARIK, I ræöustól. Þingeyri sl. sunnudag.
Steingrlmur Hermannsson sam-
gönguráöherra flytur ræöu.
á daaskrá
Mál er til komið að hagsmunaaðilar
í byggingariðnaði leggi metnað sinn
í það að vinnuumhverfi verkafólks
í þessari starfsgrein verði ekki
öllu lengur til skammar
Grétar
Þorsteinsson:
Betri „kaffiskúra”
Þaö er sannarlega ástæöa til að
leiða hugann aö aðbúnaöar-
málum okkar byggingamanna,
nú þegar dregur aö vetri, þvl svo
slæmt sem er aö una ófull-
komnum aöbúnaöi yfir sumar-
mánuöina er i raun óþolandi meö
öllu yfir vetrarmánuöina hvernig
búiö er aö byggingamönnum á
mörgum byggingavinnustöðum.
Vinnuumhverfismál bygginga-
manna fengu allmikla kynningu
siöast libinn vetur, bæöi i sam-
tökum okkar byggingamanna
og i fjölmiölum. Þar kom glögg-
lega I ljós hversu ástand þessara
málaeri miklum ólestri. Hér á ég
sérstaklega við „kaffiskúrana”
og hreinlætisaðstöðuna.
Þessi húsakynni eru I mörgum
tilvikum óupphituö, án einangr-
unar og gjarnan notuö jafnframt
til geymslu á efni og verkfærum.
Hvaö hreinlætisaöstööuna varöar
er þaö svo aö hún er oft engin.
Þaö er þ.ví ekki aö ófyrirsynju aö
leiða hugann að þessu vandamáli
nú þegar haustar, og velta enn
einu sinni fyrir sér hvaö er til
ráöa.
„Vinnuverndarvikan” sem
Fræöslumiöstöð Sambands bygg-
ingamanna stóö fyrir siöast liöinn
vetur hefur sýnilega haft nokkur
áhrif, en ekki sllk áhrif aö þau ein
og sér valdi þáttaskilum. Sama
máli gegnir um afskipti sveina-
félaganna af einstökum vinnu-
stööum. Aróbur félaganna fyrir
úrbótum viröist, ef litiö er til liö-
inna ára, skila takmörkuöum
árangri.
Hér kemurmargttil og þá ekki
sist vaninn. Sveinarnir hafa
margir hverjir ekki kynnst ööru,
og atvinnurekendur I bygginga-
iðnabi komist upp meö aö búa
svona illa að sínum starfs-
mönnum, þrátt fyrir skýr ákvæöi
kjarasamninga um hiö gagn-
stæöa. Þ á er rétt aö velta fy rir sér
hvers vegna sveinafélögunum
hefur ekki orðið meira ágengt en
raun ber vitni. Þvi er fyrst til aö
svara, aö sjálfsagt heföu félögin
getaö gert betur, þó sitthvaö hafi
veriö reynt af þeirra hálfu til aö
fá fram úrbætur.
Höfuðvandinn er trúlega sá að I
byggingaiönaöinum eru mun
fleiri atvinnurekendur aö tiltölu
en I nokkurri annari starfsgrein
og má sem dæmi nefna aö meist-
arar i húsasmiöi á Reykjavikur--
svæöinu munu vera á 4. hundraö,
auk annarra verktaka.Vinnustaö
irnireruþvifjölmargirog vinna á
mörgum þeirra stendur aöeins
yfir i nokkrar vikur. Þetta er aö
minu viti ein aöal*skýringin á þvi
hversu félögin hafa litlu áorkaö
þrátt fyrir viöunandi ákvæöi
kjarasamninga um þessi mál.
Þaö var því ekki aö ástæöu-
lausu aö byggingamenn fögnuöu
heimildarákvæbi I nýrri bygg-
ingareglugerö, þar sem bygg-
ingafulltrúum er heimilaö aö
stööva byggingaframkvæmdir á
byrjunarstigi, ef ekki er fyrir
hendi viöunandi aöstaöa, þ.e.a.s.
matstofa og hreinlætisaöstaöa
þannig úr garöi gerö, aö ekki
brjóti i bága viö lög, reglugeröir
og kjarasamninga.
Ég tel aö þaö eigi öllum aö vera
ljóst, sem til þekkja, aö fram-
kvæmd þessa heimildarákvæðis
er langwliklegust til aö valda
þáttaskilum til hins betra i aö-
búnaðarmálum byggingamanna
á útivinnustööum.
Borgaryfirvöld hér I Reykja-
vik hafa tekið þetta mál upp og
hafa veriö geröar samþykktir
bæöi i Heilbrigöisráöi og borgar-
stjórn þess efnis, að þessu heim-
ildarákvæöi veröi framfylgt.
Þvi er hér viö aö bæta, aö s.l.
sumar voru haldnir fundir hjá
byggingafulltrúa, ásamt full-
trúum sveina og meistara til
undirbúnings aögerða bygginga-
fulltrúa i málinu.
Ég hef ekki ástæöu til aö ætla
annaö, eftir þessa fundi, en aö þaö
sé fullur vilji hjá byggingafull-
trúa aö gera fyrmefnd heimildar-
ákvæöi virk og aö meistarar séu
tilbúnirtilsamstarfsi þessu máli.
En timinnliöur og komiö fram i
október og allra veöra von. Þaö er
sannarlega litiö tilhlökkunarefni,
þegar kominn er vetur og oft og
tiðum unpiö viö heldur kaldrana-
legar aöstæöur, aö hafa þá ekki i
önnur hús aö venda á matmáls-
timum en þau sem ég gat um i
upphafi þessarar greinar.
Ég tel því, að nú á haustmán-
uöum veröi aö taka heimildar-
ákvæöi hinnar nýju bygginga-
reglugeröar til framkvæmda og
vona aö allir málsaöilar leggist á
eitt til þess aö svo megi verða.
Ég hef hér fjallaö sérstaklega
um vinnuumhverfismál á úti-
vinnustööum byggingamanna, og
dregiö upp nokkuö dökka mynd af
ástandinu, þó þar finnist, sem
betur fer, vinnustaöir sem eru til
fyrirmyndar á þessu sviöi, en þeir
eru frekar undantekningar.
Ég tel þvi að þaö sé mál til
komið aö hagsmunaaöilar i bygg-
ingaiönaöi leggi metnaö sinn i
þaö, aö vinnuumhverfi verka-
fólks i þessari starfsgrein veröi
ekki öll lengur til skammar.
Grétar Þorsteinsson.
Tónlistarskóli F.Í.H.
Býður fræðslu í tónlist
án hljóðfærakennslu
Hinn nýstofnaöi Tónlistarskóli
F.Í.H. hefur tekiö upp þá nýjung
aö taka fulloröinsfræöslunám-
skeiö inn á starfssviö sitt. Þar
veröur alme nningi I fyrsta skipti
boöin fræösla I tónlist án hljóö-
færakennslu, og er kunnátta i tón-
list ekki nauösynleg til þess aö
geta sótt námskeiöiö. Leiöbein-
endur viö fulloröinsfræösludeild-
ina veröa þekktir tónlistarmenn
og er ætlunin aö koma vlöa viö i
hinum stóra heimi tónlistar.
Innritaö veröur 1 tvo hópa, og
verbur hverjum hópi leiðbeint i
tvo samfellda tima einu sinni i
viku. Verður annars vegar kennt
á þriöjudagskvöldum kl. 20-22 en
hins vegar á fimmtudögum kl. 18-
20. Þetta fyrsta námskeib
stendur alls I níu vikur og hefst
þriöjudaginn 14. október næst-
komandi en lýkur fimmtudaginn
11. desember.
Fyrstu þrjár vikurnar mun Atli
Heimir Sveinsson leiöbeina hóp-
unum og erviöfangsefnið sinfónfa
klassiska timabilsins. Næstu
þrjár vikurnar rekur Jón Múli
Árnason sögu djasstónlistarinnar
með spjalli og dæmum. Jónas
Ingimundarson pianóleikari sér
um vikurnar tvær þar á eftir,en i
siöustu viku þessa námskeiðs
mun Manuela Wiesler kynna
þátttakendum hljóöfæri sitt —
flautuna. Þátttökugjald er kr.
30.000 fyrir þetta fyrsta námskeiö
og fylgir bók Jóns Þórarinssonar
„Stafróf tónfræðinnar” hverju
þátttökuskírteini. Innritun I full-
oröinsfræölunámskeiöiö fer fram
á skrifstofu F.I.H. aö Laufásvegi
40 milli kl. 14 og 17 alla virka
daga eöa i sima 23780 á sama
tima.