Þjóðviljinn - 14.10.1980, Qupperneq 13
Þriðjudagur 14. október 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Skarphéðinn 70 ára
Spurningakeppni 29
adildarfélaga
A þessu ári eru liðin 70 ár siðan
Héraðssambandið Skarphéðinn
var stofnað. i þvi tilefni mun
sambandið gangast fyrir spurn-
ingakeppni milli aðildarfélaga i
október og nóvember.
Keppnin fer fram viðsvegar um
sambandssvæðið sem er Árness-
og Rangárvallasýsla. Nú er vitað
að öll félögin, samtals 29, munu
taka þátt i spurningakeppninni.
Auk spurningakeppninnar verður
spilað bingó, starfsemi héraðs-
sambandsins kynnt, ýmis
skemmtiatriöi og dans að lokum.
Núverandi stjórn Skarphéðins
er þannig skipuð: Form. Einar
Magnússon, Litlagerði 1. Hvols-
velli, ritari Helgi Stefánsson
Vorsabæ II Gaulvergjabæarhr.
og gjaldk. Kjartan Lárusson
Laugarvatni.
Leiötoganema-braut
í Skálholtsskóla
Skálholtsskóli áformarað hefja
á nýbyrjuðum vetri rekstur svo-
nefndrar leiðtoganemabrautar.
Er þar með komið til móts við
óskir um þjálfun fólks á ýmsum
aldri til forystu i safnaðarstarfi
og ýmiskonar félögum.
Séra Heimir Steinsson rektor
Skálholtsskóla skýröi frá þessu
við skólasetningu 1. okt. sl. Kom
fram hjá honum, að raunar hefði
skólinn frá upphafi haft með
höndum nokkra fræðslu af þessu
tagi, lengst af i samvinnu við
Ungmennafélag tslands. En að
þessu sinni er fyrirhugað að bjóöa
til tveggja mánaða dvalar i upp-
hafi næsta árs, og munu þátttak-
endur hafa leiðtoganám að
meginviðfangsefni, en jafnframt
eiga þess kost að hagnýta sér hina
almennu fræðslu lýðháskólans.
Forystumaður leiðtoganema-
brautar Skálholtsskóla verður
Oddur Albertsson, æskulýðsfull-
trúi. Nánari upplýsingar um
þessa braut má fá á skrifstofu
Þjóðkirkjunnar, Klapparstig 27 i
Reykjavik, eða i skólanum sjálf-
um.
Það kom jafnframt fram hjá
Heimi, að rekstur 9. bekkjar
grunnskóla fyrir nemendur úr
Biskupstungum, sem skólinn
hefur annast undanfarin ár til
bráðabirgða, hefur nú verið
fluttur að Reykholti i Biskups-
tungum og er Skálholtsskóli þar
með að nýju orðinn eingöngu sá
lýöháskóli sem honum er ætlaö aö
vera samkvæmt lögum.
Geirs-armurinn
Framhald af bls. 16
minnihluta, eru boðberi frekari
tiðinda getur tíminn einn leitt I
ljós.”
Við kosningar i nefndir Sam-
einaös þings hlaut stjórnin meiri-
hluta i fjárveitinganefnd, at-
vinnumálanefnd og utanrikis-
málanefnd. Kjöri i þingfara*
kaupsnefnd var frestað. I efri
deild hefur stjórnin meirihluta i
fjárhags- og viðskiptanefnd,
sjávarútvegsnefnd, iðnaðar-
nefnd, heilbrigðis- og trygginga-
nefnd og menntamálanefnd.
Stjórnarandstaðan hefur meiri-
hluta i samgöngunefnd , land-
búnaðarnefnd, félagsmálanefnd
og allsherjarnefnd.
í neðri deild hefur stjórnin
meirihluta i samgöngunefnd,
landbúnaðarnefnd, iðnaðarnefnd,
félagsmálanefnd, heilbrigðis- og
trygginganefnd, menntamála-
nefnd og allsherjarnefnd.
Stjórnarandstaðan hefur meiri-
hluta i fjárhags- og viðskipta-
nefnd og sjávarútvegsnefnd.
—gb
V erksmið juviima
Viljum ráða lyftaramann. Æskilegt er að
hann hafi lyftarapróf. Jafnframt vantar
nokkra menn til verksmiðjustarfa. Mötu-
neyti á staðnum. Ódýrt fæði. Komið á af-
greiðsluna og talið við Halidór.
Fyrirspurnum ekki svarað i sima.
Kassagerð Reykjavíkur
Kleppsvegi 33
erlendar
bækur
Allur akstur
krefst
varkárni
Ytum ekki barnavagni
á undan okkur við
aðstæður sem þessar
UMFERÐAR
RÁÐ
TOMMI OG BOMMI
Sendiherra í Grikklandi
Henrik Sv. Björnsson sendi- lands, trúnaðarbréf sem sendi-
herra afhenti i sl. viku Constan- herra Islands I Grikklandi. Sendi-
tin Karamanlis, forseta Grikk- herrann hefur aðsetur i Briissel.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Umræðufundur um kjaramál
Atvinnulýðræði
Næsti fundur I umræðufundaröð um kjaramál verð-
ur miðvikudaginn 15. okt. kl. 20.30 að Grettisgötu 3.
A fundinum hefur Björn Arnórsson framsögn um
atvinpulýöræði. Félagar fjölmennið og fræðist jafn-
framt þvi að taka þátt i undirbúningi ABR fyrir
landsfund.
Alþýðubandalagið í uppsveitum Árnessýslu
Aðalfundur Alþýðubandalagsins I uppsveitum Árnessýslu verður hald-
inn I Aratungu miðvikudaginn 22. okt. n.k. og hefstkl. 21.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa i kjördæmisráð og á
landsfund.
3. Félagsmálin.
4. Ragnar Arnalds fjármálaráðherra flytur
ræðu um stjórnrriálin og rikisstjórnarþátt-
tökuna.
Stjórnin
Alþýðubandlagið i Hafnarfirði
FÉLAGSFUNDUR miðvikudaginn 15. okt. kl. 20.30 i Skálanum.
Fundarefni: 1. Undirbúningur fyrir landsfundinn 20,—23. nóv. 2. Kosn-
ing fulltrúa á landsfund. 3. Onnur mál. — Félagar eru hvattir til að fjöl-
menna og taka þátt i mótun stefnuflokksins. — Stjórnin.
FÉLAGSGJÖLD ABR
Um leið og stjórn Alþýðubandalagsins i Reykjavik hvetur félaga til að
taka virkan þátt i starfi félagsins minnum við þá sem enn hafa ekki
greittútsenda giróseðla aðgera þaðsem fyrst. — Stjórn ABR.
Alþýðubandalagið i Þorlákshöfn og nágrenni
heldur aðalfund sinn að Reykjabraut 5, Þorlákshöfn,
sunnudaginn 19. okt. kl. 16.00. Venjuleg aðalfundar-
störf. — Stjórnin.
Kjördæmisráð Norðurlands vestra
AÐALFUNDURi félagsheimilinu á Blönduósi laugardaginn 18. októ-
ber kl. 13.
Dagskrá: 1. Formaður kjördæmisráðs, Jón Torfason frá Torfalæk.set-
ur fundinn. 2. Félagsstarfið i kjördæminu. 3. Stjórnmálaviðhorfið.
Almennur opinn fundur verður haldinn i félagsheimilinu kl.
16:30—19:00 um störf rikisstjórnarinnar, kjarasamningamál og hags-
munamál kjördæmisins. — Frummælandi verður Ragnar Arnalds
fjármálaráðherra. — Fundurinn er öllum opinn. Frjálsar umræður og
fyrirspurnir.
Der Sachenspiegel
in Bildern.
Aus der Heidelberger Bilder-
handschrift ausgewahlt und er-
lautert von Walter Koschorreck.
Insel-Verlag 1977.
Rit þetta er frá fyrsta þriöjungi
13. aldar og er fyrsta viöamikla
ritverkið, sem sett var saman á
miðlágþýsku og jafnframt merk-
asta þýska lögbókin frá miðöld-
um. Höfundurinn Eike von Rep-
gow vann þrekvirki i samantekt
þessa rits og málsögulega er hún
álíka þýðingarmikil og Biblíuþýð-
ing Lúters siöar. Lengi vel álitu
menn að ritið væri lögbók Karls
mikla og hún var þýdd á ýmsar
þjóðtungur og höfð sem fyrir-
mynd löggjafar víða. Myndirnar
eru teknar úr Codex Palatinus
Germanicus, frá 1330. Útgefand-
inn skrifar fróðlegan eftirmála.
Pípulagnir
Nýlagnir, breytingar,
hitaveitutengingar.
Sími 36929 (milli kl. 12 og
1 og eftir kl. 7 á kvöldin).
FOLDA