Þjóðviljinn - 10.12.1980, Blaðsíða 1
UOÐVIUINN
Miðvikudagur 10. desember 1980. — 280. tbl.—45. árg.
jBankamenn aö j
semja?
Jóla-
blaö
Þjóðviljans
Jólablað Þjóðviljans, fyrri
hluti, fylgir blaðinu i dag.
Meðal efnis: Vestur-Berlin,
borg í gerjun, frásögn eftir
Sigurð A. Magnússon:
Eggjapúns, smásaga eftir
Tove Ditlevsen: Er þetta
ekki sonur hans Jóseps og
hennar Mariu? Ágúst Vig-
fússon rif jar upp kynni sín af
Jóhannesi úr Kötlum:
barnasaga, ljóð, greinar
o.m.fl.
Verkfall bankamanna:
i
í
■
i
■
i
■
i
■
i
■
L
— Við höfum unnið sleitu-
laust undanfarna daga,
það hefur aldrei unnist betur
en i dag og við vinnum enn af
kappi, sagði Vilhjálmur
Hjálmarsson foringi rikis-
sáttanefndar, er hann var
spurður tíðinda úr banka-
mannadeilunni, rétt um mið- ■
nætti i gær. *
i viðtölum við ýmsa aöila i
gær, sem tengdir eru banka-
mannadeilunni, rikti óvenju
mikil bjartsýni um að lausn
deilunnar væri á næsta leiti
og þau ummæli Vilhjálms
um að aldrei hafi unnist
betur cn i gær styðja þetta.
I
■
I
■
I
-S.dór
Undanþága fyrir lyf
Erum annars
strangir á hvers
konar undanþágur
segir Jón ívarsson
í verkfallsnefnd
SÍB
— Þetta hefur allt verið i föst-
um skorðum hjá okkur i dag,og
ekkert það hefur komið upp varð-
andi verkfallið sem við höfum
þurft að skipta okkur af, sagði
Jón ivarsson,sem á sæti i verk-
fallsnefnd bankamanna,i viðtali
við Þjóðviljann i gær.
Aftur á móti hafa okkur borist
all margar beiðnir um undanþág-
ur, sagði Jón, en það eina sem
gefin hefur verið undanþága fyrir
er afgreiðsla á lyfjum, og við
treystum þvi að innflytjendur
þeirra segi það satt að skortur sé
á þeim lyfjum, sem þeir báðu um
afgreiðslu á. Annars er reglan hjá
okkur sú,að það er verkfall hjá
bankamönnum og undanþágur
ekki veittar nema i neyðartilfell-
um.
Jón sagði að mest af þeim
undanþágubeiðnum sem borist
hefðu væru frá innflytjendum,
sem vildu leysa út vörur. Ein
undanþágubeiðni barst frá fyrir-
Áburðarverksmiðjan:
50% stækkun
fyrirhugud
Ákveðið á nœstunni hvort tekið
verður þýsku eða frönsku tilboði i
verksmiðjuna
Um nokkurra ára skeið hafa átt
sér stað umræöur um stækkun
Áburðarverksmiðjunnar i Gufu-
nesi, sem orðin er alltof litil. Hún
framleiðir aðeins 43 þúsund lestir
af áburði á ári, en heildar notkun
á áburði hér á landi er um 70 þús-
Nú tekur
ÁTVR við
ávísunum!
Afengis- og tóbaksverslun
rikisins hefur ákveðið að taka
við ávisunum sem greiðslu fyrir
áfengi á meöan verkfall banka-
manna stendur. Verða ávisan-
irnar að vera stílaðar á ATVR
og gefnar út fyrir sömu upphæð
og keypt er fyrir. Fyrir nokkr-
um árum hætti ATVR að taka
við tékkum vegna misferlis, en
verslunarstjórar i áfengisútsöl-
unum höfðu þá lent i vandræð-
um vegna innistæðulausra
ávisana.
und lestir. Nú hefur verið ákveðið
að hefjast handa um að stækka
verksmiöjuna um 50%,cn að sögn
Ifjálmars Finnssonar, fram-
kvæmdastjóra Aburðarverk-
smiðjunnar,hefur enn ckki verið
ákveðið hvenær hafist verður
handa.
Annars varðist Hjálmar allra
frétta af málinu, sem hann sagði
vera á viðkvæmu stigi, en eftir
svo sem eins og tvær vikur myndi
málið skýrast.
Eftir þvi sem Þjóðviljinn kemst
næst er það ákvörðunartaka um
tilboð i verksmiðjustækkunina
sem á stendur. Þarer um að ræða
franskt og v-þýskt tilboð, sem
liggja mjög nærri hvort öðru en
eru þó ólik hvað gerð búnaðar
snertir. Heyrst hefur að tslend-
ingar hallist fremur aö franska
tilboðinu, en Þjóðverjarnir eru
mjögýtnirog munu ætla að senda
menn til tslands i þvi skyni að fá
stjdrn Aburöarverksmiðjunnar til
að taka þýska tilboðinu.
Aðspurður sagði Hjálmar
Finnsson, að Aburðarverksmiðj-
an hefði öll tilskilin leyfi til aö
hefjast handa við stækkun verk-
smiðjunnar og það væri ekki
spurning um hvort, heldur
hvenær hafist yrði handa.
—S.dór
Verkfallsverðir bankamanna ráða ráðum sínum i húsakynniim SiB i gær. (l.jósm. —gel-
tæki sem sagðist þurfa að fá út-
leysta ávisun svo hægt yrði að
greiða laun hjá fyrirtækinu um
næstu helgi. Þvi miður getum við
ekki sinnt slikum málum, sagði
Jón.
Þá sagði Jón að margir byðu
sigfram til starfa á verkfallsvakt
og annað sem sinna þyrfti i verk-
fallinu og að það væri mikill
baráttuhugur i bankamönnum.
— Auðvitað vona allir að verk-
Yoko Ono Lennon og John Ono Lennon. Myndin er tekin i haust I
tilefni nýrrar plötu þeirra hjóna, fyrstu Lennon plötunnar i sex
ár.
John Lennon
myrtur í New York
fallið leysist sem fyrst, en við er-
um ákveðnir i að ná fram okkar
rétti; það er búið að fella ein
samningsdrög og eina sáttatil-
lögu, sem sýnir að menn lúta ekki
að hverju sem er og það þýðir
ekkert að sýna bankamönnum
annað en raunhæf samningsdrög
eftir þá samningalotu sem nú
stendur yfir, sagði Jón.
Það var mikill mannfjöldi i
húsakynnum SIB, þegar Þjóö-
viijamenn bar þar að garði i gær,
fólk sem býður sig fram til starfa
fyrir stéttarfélag sitt i verkfall-
inu.
Að lokum skal það tekið fram
að i fyrradag náðist fullt sam-
komulag milli SÍB og Seölabank-
ans um hverjir mættu sinna þar
störfum. Það er ekki rétt sem i
Þjóðviljanum sagði i gær aö þar
hefði. deila átt sér stað.
—S.dór
John Lennon, tónskáld,
tcxtahöfundur, söngvari og
bi'till var myrtur i New York
borg i fyrrakvöld. Að þvi er
segir i fregnum sat 25 ára
gainall maður fyrir honum er
hann kom heim ásamt konu
sinni Yoko Ono og hóf á þau
skothrið eftir að hafa skömmu
áður beðið um eiginhandar-
áritun á nýja plötu þcirra.
Lennon lést þegar i stað, cn
Yoko siapp ómcidd.
John Lennons verður eflaust
lengi minnst af þeirri kynslóð
sem nú er að lifa sin
mannddmsár. Hann og félag-
ar hans I The Beatles voru
undanfarar þeirrar miklu
uppreisnarbylgju sem reis
hvað hæst árið 1968. Þeir
komu af stað bitlaæðinu svo-
kallaða; börn og unglingar
risu gegn viðteknum hefðum,
létu hár sitt vaxa, klæddust
nýrri tisku og gerðu tónlistina
að miðpunkti lifsins. Lengst
verður Lennons þó minnst fyr-
ir lögin sem hann samdi og
söng. Hann var eitt af táknum
sjöunda áratugsins, sem
hafði mikil áhrif á ungt fólk,
en hann var um leið maður
sem hafði boðskap að færa,
boðskap ástar og friðar (All
you need is love). Sælir eru
friðflytjendur þvi þeir munu
rikið erfa,segir á einum stað;
vist er um það að arfur John
Lennons lifir áfram i tónlist-
inni og minningum þeirra sem
á hann hlýddu. _ká
• r
sja opnu
Spáð tannskemmdum
i skepnum:
Varað við
heyi af
öskufalls-
svæðinu
Mælingar á flúormagni i bein-
um Ursláturlömbum af öskufalls-
svæðunum, sem tekin voru til
rannsóknar i haust, sýna aö
beinin hafa tekið til sin verulegt
flúormagn á öskumenguðu landi.
Búast má við, að eitthvað muni
bera á tannskemmdum i skepn-
um sem eru að taka út vöxt á
þessum svæðum.
Ariðandi er að tryggja öllu búfé
á öskufallssvæðinu næga stein-
efnagjöf i vetur.
Komið hefur i ljós, að verulegt
öskumagn hefur borist i hlöður
með öskumenguðu heyi. Flúor-
magn i sliku heyi er svo hátt, að
varastber að gefa það ungviöi, og
helst ætti ekki að fóðra annað bú-
fé á þvi eingöngu, ráðleggur sam-
starfsnefnd rannsóknastofnana
um flúormælingar vegna siðasta
Heklugoss i fréttatilkynningu
sem hún sendi frá sér i gær.