Þjóðviljinn - 10.12.1980, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 10. desember 1980. ÞJÓDVILJINN — SIÐA 13
Kynningarfundur Amnesty um
Mið-A usturlönd:
Ögmimdur Jónasson
stýrir umræðum
i tilefni Mannréttindadags
Sanieinuðu þjóðanna, sem er i
dag, heldur islandsdeild Amnesty
International almennan fund kí.
20:30 í kvöld í Félagsheimili
stúdenta við Hringbraut.
Þetta á að veröa kynningar-
fundur um Mið-Austurlönd. Það
hefur lengi verið á starfssviði
Viltu lesa
bók á
band fyr-
ir blinda?
Um þessar mundireru liðin 5 ár
siðan Borgarbókasafn og
Blindrafélagið hófu samstarf um
framleiðslu og dreifingu hljóð-
bóka.
Meðal þess sem Blindrafélagið
leggur fram er aðstaða til hljóð-
upptöku, og fer innlestur bókanna
fram i hljóðbókagerð Blindra-
félagsins að Hamrahlið 17,
Reykjavik. Á siðustu mánuðum
hefur verið unnið að stórfelldum
endurbótum á húsakynnum og
tækjakosti hljóðbókagerðarinnar
að tilstuðlan Lionsklúbbsins
Njarðar sem gaf þangað fullkom-
inn upptökubúnað, svo að nú er
fyrir hendi aðstaða sem er fylli-
lega sambærileg við þaðsem ger-
ist i bestu hljóðbókagerðum á
Norðurlöndum. Allur lestur bóka
fer fram i sjálfboðavinnu. Vegna
þess að starfsemin hefur legið
niðri um nokkurt skeið vantar nú
fólk sem vildi taka að sér lestur á
nýútkomnum bókum. Blindir og
sjónskertir njóta aðeins þeirra
jólabókmennta sem lesnar eru
inn hjá Hljóðbókasafninu eða ætt-
ingjar lesa fyrir þá.
Það er alkunna að nýjar bækur
eru meðal helstu umræðuefna um
jól, en komist jólabækurnar seint
eða alls ekki á kassettur fyrir
blinda og sjónskerta eru þeir af-
skiptir þeirri umræðu. Þvi er
mjög brýnt að sem mest sé lesið
sem fyrst — með leyfi höfunda —
af nýútkomnum bókum. Það væri
þvi vel þegið að fólk sem tóm hef-
ur til að deginum gæfi sig fram til
lestrar á svo sem einni jólabók.
Upplýsingar eru gel'nar i Hljóð-
bókasafninu að Hólmgarði 34 i
sima 86922 eða i hljóðbókagerð
Blindrafélagsins að Hamrahlið
17, simi 33301
Gull-
rúsínan í
pylsu-
endanum
Ásgeir Hannes Eiriksson gripur
til ýmissa uppátækja til að hafa
lif og fjör og viðskipti við pylsu-
vagninn sinn i Austurstræti. Nú
hefur hann fengið starfsmenn
Sláturfélags Suðurlands til að
setja forláta gullrúsinu með inn-
greyptum demanti i pylsu nokkra
i stórum pylsupakka og fær ein-
hver viðskiptavinurinn þess«pylsu
næstu daga eða i siðasta lagi á
Þorláksmessu.
Gullrúsinan er smiðuð hjá Gulli
og Silfri að Laugavegi 35 og virt á
hálfa miljón króna eða þar um
bil. Sá sem kaupir pylsu hjá As-
geiri Hannesi á næstunni og verö-
ur var við hart þegar hann bitur i
hana veit þar með að hann hefur
fengið gullrúsinuna i pylsuendan-
Amnesty að kynna málefni ein-
stakra heimshluta. Þá er ein
rannsóknardeild Amnesty i
London helguð Mið-Austurlönd-
um. Til umræðna um málefni
þessara landa hefur islandsdeild-
in fengið fréttamennina Áslaugu
Ragnars, Friðrik Pál Jónsson og
ögmund Jónasson, ennfremur
Björn Þorsteinsson, kennara og
forstöðumann Þróunarhjálpar
islands, og Kristján Búason,
dósent við Guðfræöideild Háskóla
islands. ögmundur mun stjórna
umræðunum. Þá hefur Askell
Másson tónlistarmaður lofað að
vera deildinni innan handar um
val hljómlistar frá þessum
heimshluta.
öllum er heimil þátttaka i fund-
inum. Tilgangur hans er að auka
þekkingu almennings á þessum
löndum og reyna að skapa áhuga-
verða umræðu um ástand þessa
heimhluta sem svo mjög hefur
verið i fréttum.
Hagkvæmara
Framhald af bls. 2
menn á þvi að hafa útborgun
sem hæsta, ekki sist vegna
skattalaganna. Útborgun er nú
að jafnaði 75—80% kaupverðs.
Þetta er óguðlega hátt hlutfall,
sagði Stefán.
Niðurgreiddar lóðir
— Borgin greiðir nú hátt i 10
miljónir með hverju húsi sem
lóð er úthlutað undir.
Þvi væri hagkvæmt að út-
hluta þessum peningum beint i
stað þess að greiða niður
lóðirnar. Reykjavikurborg
fengi af þvi beinan fjárhags-
legan hagnað að úthluta til
dæmis 7 miljónum króna til
barnafjölskyldu svo hún geti
keypt eldra húsnæði i stað þess
að byggja i Breiðholtinu, sagði
Stefán Ingólfsson að lokum.
Þaö verdur
Framhald af bls. 7
með Islendingum,spyr einhver?
— Það er auðvitað öðruvisi.
Allt. Landið. Aðstæður. Veðrið.
Þaðhefði ekki verið hægt að gera
þetta nema með Islendingum sem
þekkja aðstæður, tæknimönnum
og leikurum. Aðrir hefðu löngu
verið búnir að gefast upp. Vissu-
lega hef ég orðið fyrir áhrifum
hér. Það er mikil reynsla að vinna
með nýju fólki, öðruvisi fólki.
Erfitt? Jú. En það er erfitt yfir-
leitt að vera Þjóðverji og eiga
enga sögu lengur, ekkert.
Kannski er það þessvegna sem ég
er hér. —vh
Athugasemd
Kramhald af bls. 10.
þingi ASl og sagöi frá þvi, eins og
raunar blaðamenn annarra blaða
sem sátu þingið, þegar Karl
Steinar fór á bak við krataliðið og
bauð Alþýöubandalaginu uppá
samvinnu, langar mig að gera
stutta athugasemd við þetta bréf.
Um ástarjátningar þessara
ágætu Alþýðuflokkskvenna til
Karls Steinars i fyrri hluta bréfs-
ins læt ég mig engu varða, enda
eiga utanaðkomandi ekki að
blanda sér i slik mál.
En hvað varðar frásögnin af þvi
þegar Karl Steinar bauð Alþýðu-
bandalaginu uppá samstarf vii ég
taka fram, að morguninn, sem
þetta barst út á þinginu, daginn,
sem Vi'sir sagði frá þessu, hafði
Alþýðuflokksfólk á þinginu ekki
hugmynd um tilboð Karls Stein-
ars. Karvel Pálmason sagðist
ekki hafa heyrt á málið minnst og
að þetta væri gert án samráða við
sig. Hann hefur raunar staðfest
þetta óbeint i viðtali við Morgun-
blaðið i siðustu viku, þar sem
hann segir um þetta mál:
„Hinsvegar virðist það vera að
innan hóps kommúnista sé æði
marga menn að finna, sem gjör-
samlega er útilokað að ræða við i
trúnaði”.
Og þótt þær. Guðriður og Ragna
séu að reyna að bera i bætifláka
fyrir Karl Steinar með þvi að
segja, að hann hafi haft samráð
við kratahópinn þegar hann bauð
Alþýðubandalaginu uppá sam-
vinnu, þá vita þær ósköp vel að
þetta er ósatt. Mig grunar eftir að
hafa séð þessa hjartagæsku
þeirra að þær séu i „góðramanna
hópnum” i Alþýðuflokknum,
samkvæmt skilgreiningu Vil-
mundar á flokksfélögum sinum.
Þá segja þær stöllur að Karl
Steinar hafi notið fulls stuðnings
kratahópsins á þinginu, en hann
hafi óskað eftir að hætta i mið-
stjórn ASl til þess aö kona kæmist
að. Að sögn kunnugra lenti Karl
Steinar alltaf i 4. sæti þegar kosið
var innan kratahópsins um
hverja ætti að setja á lista upp-
stillingarnefndar. Maður brosir
að brandaranum um að Karl
Steinar hafi sýnt eitthvert göfug-
lyndi og staðið upp fyrir einhverj-
um úr miðstjórn ASt; Karl
Steinar stendur ekki upp fyrir
einum né neinum i framapoti sinu
i pólitik.
Og þú, Guðriður min, ættir
kannski kvenna sist að tala um
illa meðferð á konum við kjör til
stjórnar ASt; þeir fóru ekki svo
fallega með þig félagar þinir i Al-
þýðuflokknum, þegar þeir felldu
þigúr miðstjórn, þar sem þú áttir
sæti á siðasta kjörtimabili.
Hitt er aftur satt og rétt, að
meðferðin á ykkur Bjarnfriði við
miðstjórnarkjörið er flokkum
ykkar og raunar öllum þingfull-
trúum á þingi ASt til skammar.
Þvi, að jafnvel þótt Þórunn hafi
verið harðari að pota sér áfram
innan kratahópsins á siðasta
þingi en þú Guðriður min, þá var
ástæðulaust að fara svona með
þig. Með von um að sárin grói
fljótt og að einhverntimann komi
að þvi að eining riki innan Al-
þýðuflokksins, þannig að ,,góða
fólkið” „viðunandi fólkið” og
„skitapakkið” nái saman. S.dór.
Ragnar
Framhald af bls. 16
frumvarps frá rikis-
stjórninni um sérstaka
tekjuöflun til styrktar
iðnaðinum i stað aðlögunar-
gjaldsins, sem fellur niður
um áramót. Samkvæmt fjár-
lagafrumvarpinu fyrir næsta
ár var gert ráð fyrir tekjum
af aðlögunargjaldinu upp á
2,8 miljarða króna. — Hjör-
leifur Guttormsson iðnaðar-
ráðherra hefur itrekaö gert
tillögur um framlengingu
aðlögunargjaldsins, þannig
að það félli niður i áföngum á
tveimur næstu árum, en um
það hefur ekki fengist sam-
komulag i rikisstjórninni.
Við minnum á
Happdrætti
Þjóðviljans 1980
Innheimtustarf
Maður með bíl óskast til innheimtustarfa i nokkra
daga. Uppiýsingar gefur framkvæmdastjórinn.
pjoovujm Siðumiila 6
ALÞYÐUBAN DALAGIÐ
Happdrætti Þjóðviljans
Alþýðubandalagsfélagar i Reykjaviksem tekið hafa að sér aö dreifa og
innheimta happdrætti Þjóðviljans 1980 eru hvattir til að ljúka störfum
og gera skii sem fyrst.
Hafið samband við skrifstofuna og fáið gefið upp hverjir eru búnir aö
greiða.
Alþýðubandalagið i Reykjavik
Opið hús á Grettisgötu 3
Alþýðubandalagið i Reykjavik
gengst fyrir opnu húsi n.k.
fimmtudagskvöld kl. 20:30 á
Grettisgötu 3.
Þórhailur Sigurðsson leikari les
kafla úr bók Einars Olgeirssonar
„Island i skugga heimsvalda-
stefnunnar”.
Einar Olgeirsson mætir og rabb-
ar við fólk um efni bókarinnar,
einnig verður tónlist og fjölda-
söngur.
Félagar fjölmennum og njótum
góðrar kvöldstundar yfir kaffi og
Kinar O.
Þórhallur
kökum. Jólaglögg veröur borið
fram fyrir þá sem það vilja.
Stjórn ABR
Vestmannaeyjar -
eyjar
OPIÐ HÚS
verður að Bárugötu 9
frá kl. 4—7 laugardaginn
13. desember.
Garðar Sigurðsson veröur
á staðnum.
Vestmanna-
Garðar
Félagsgjöld ABR
Félagar i Alþýöubandalaginu i Revkjavik sem enn hafa ekki greitt
félagsgjöld fyrir I980er hvattir tíl aðgera þaðsem allra fyrst.
Stiórn ABR
Alþýðubandalagsfélagið i Bolungarvik
Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 10. des. að Holtabrún 14
(heima hjá Gisla Hjartar) kl. 20.30.
Dagskráin: Fréttir af landsfundi — önnur mál.
Stjórnin.
— í blööunum eru skrifaöar æsifréttir um unglingavandamál
og aftur unglingavandamál, sem er í rauninni vandamál þeirra
fullorönu . . .
— Tískuhönnuöir, plötusalar, útgefendur unglingatímarita og
eiturlyfjasalar, allir keppast þeir viö aö sjúga af unglingunum
peninga og gera þá aö sérstæöum þjóðflokki . . .
„Ásdís sá hvar Sævar fékk æöiskast, öskraöi eins og Ijón á
dauöastundu og reiddi hnefann til höggs. Hann skall í maga
Gunnu og hún veinaöi. Ásdís stífnaöi. — Stoppaöu æpti hún.
— Stoppaöu, hún er ófrísk . . .“
— Ég veit þaö, sagöi Erla viö son sinn og var klökk. — Ég get
ekkert aö því gert. Ég er róni og ræfill. Ég er alki. Ég er
djöfulsins alki . . .
— Kíktu inn viö tækifæri, bauö Ásdís. — Viö skulum þá ræöa
þessi mál betur. Ég hef alltaf þörf fyrir samræöufélaga.
Tónninn í oröum hennar var hlýr og tælandi.
Bókin „Gegnum bernskumúrinn" er skrifuð af
unglingi um unglinga. Hún lýsir á spennandi hátt
mnbyrðis baráttu íslenskra ungmenna og átök-
um þeirra við umhverfi sitt. — Gegnum bernsku-
múrinn er bók sem á erindi til okkar allra.
BÓKAÚTGÁFA
ÆSKUNNAR