Þjóðviljinn - 10.12.1980, Qupperneq 2
2 SIÐA — Þ3ÖÐVILJINN Miövikudagur 10. desember 1980.
Kærleiksheimilið
Ég var gerður aö gjaldkera.
þúsundkalii.
Ég var sá eini sem gat skipt
Útflutn-
ingur dilka-
kjöts 445
tonnum
minni en
s.l. ár
Gert er ráð fyrir þvi aö flutt
veröi út af dilkakjötsframleiösl-
unni i haust 4000 tonn á móti 4445
tonnum á sl. ári. Reiknað er
með að 2400 tonn fari til Noregs,
650 tonn til Sviþjóöar, 750 tonn
til Færeyja og 200 tonn til Dan-
merkur.
Þegar er búið að senda úr
landi 1257 tonn en jafnan er
nauðsynlegt að afskipa tals-
verðu magni þegar i sláturtið
vegna skorts á frystigeymslu-
rými. Er m.a. aö verða brýnt,
að auka geymslurými Afurða-
sölunnar á Kirkjusandi, sem
fyrirsjáanlegt er að verður
ófullnægjaandi á næstu árum.
Þá er og aukin áhersla lögð á af-
skipanir kjöts i frystigámum
samkvæmt eindregnum óskum
kaupenda. Má búast við að
vaxandi hluti kjötsins verði
fluttur þannig út á næstu árum.
Þetta kom fram á fundi Sam-
starfsnefndar Búvörudeildar og
afurðasölufélaganna, sem hald-
inn var fyrir nokkru.
Nokkur óvissa rikir á Noregs-
markaði vegna þess aö frá og
með næsta ári er gert ráð fyrir
að niðurgreiðslur á kjöti verði
felldar þar niður, en óljóst er
enn hver áhrif það muni hafa á
kjötsöluna héöan. Þá hefur
Efnahagsbandalagið tekið upp
kvótaskiptingu á innflutningi
kindakjöts en á móti lækkaö toll
á þvi um helming, úr 20 i 10%.
Arskvóti íslendinga er ekki að
fullu frádreginn. EBE bauð
upphaflega 440 tonn en tslend-
ingar reyndu að fá a.m.k. 1000
tonna kvóta. Hefur bandalagið
nú boöið 600 tonna kvóta, sem
gildi fram til 1984.
Eins og undanfarin haust var
kælt kindakjöt sent flugleiðis til
Danmerkur nú i sláturtiðinni.
Kjötinu var safnað i frystigáma
hjá sláturhúsunum og flutt til
Reykjavikur. Þar var skrokk-
unum pakkaö tveimur saman i
plastfóðraða kassa og fluttir
þannig út. Þessi meöhöndlun
tókst i alla staði mjög vel en
hinsvegar er verðmunur á þessu
kjöti, sem fryst er á venjulegan
hátt, tæplega nægur til að mæta
þeim aukakostnaöi, sem af
þessu leiöir. Þá voru athugaðir
möguleikar á að senda kælt kjöt
meö flugi til Bandaríkjanna.
Fyrir þvi reyndist þó ekki
grundvöllur vegna hárra flutn-
ingsgjalda.
Þá hafa nær 200 tonn af
hrossakjöti frá haustinu 1979
verði flutt út, mest til Noregs en
einnig til Hollands og Frakk-
lands. Innyfli eru sem áður nær
eingöngu seld til Bretlands, en
nokkur verðlækkun hefur orðið
þar á ýmsum tegundum.
Sala á dúni hefur gengið mjög
vel nú i haust en áframhaldandi
erfiðleikar eru á hinn bóginn á
þvi að selja selskinn.
— mhg
Nýtt versl
unarhús á
Fáskrúðsfirði
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga
hefur nú opnað nýja og glæsi-
lega v.erslun á fyrstu hæðinni af
þremur i nýbyggingu sinni á'
Fáskrúðsfirði. Byrjaö var á
byggingunni vorið 1978 og er
gert ráð fyrir að tvær efri
hæðirnar verði teknar i notkun á
næstu árum.
Verslunarrýmið er um 2800
rúmmetrar. Þörfin fyrir þetta
hús var orðin brýn þvi að sið-
ustu árin hefur félagið verslað i
þremur eldrihúsum, þar af einu
frá 1896.
Teiknistofa Sambandsins
teiknaöi húsið en Birgir Isleifs-
son, verslunarráöunautur Sam-
bandsins annaðist uppsetningu.
— mhg
vidtalið
Nær 10 miljóna
niðurgreiðsla með
hverri lóð:
„Hagkvæm-
ara fyrir
borgina að
úthluta
peningunum
til kaupa
á eldra
húsnæði”
— Mér sýnist að tölur úr
Reykjavlk og Reykjanesi bendi
til þess að um samdrátt sé að
ræða i byggingum á Reykja-
vikursvæðinu, sagði Stefán
Ingólfsson hjá Fasteignamati
rikisins i/ samtali við Þjóð-
viljann. — Bygging fjölbýlis-
húsa i Reykjavik hefur stórlega
dregist saman, en meðalstærð
ibúða er alltaf að aukast. i ár
komu 570 ibúðir i fyrsta skipti til
mats I Reykjavik.
Lóðaverð stórhækkar
Stefánsagði að siðan um
áramótin 1977—78 hefði lóða-
verð hækkað umfram húsnæði
og hefði húsnæði þó hækkað
mikið. Greinileg spenna væri i
byggingamálum samfara stór-
hækkuðu lóðaverði. — Við höld-
um að á næsta ári verði enn
meiri samdráttur i byggingum,
sagði Stefán.
Stefán Ingólfsson: ,,Enn meiri
samdráttur í byggingum á
næsta ári.” — (Ljósm.:
Gerður).
Rætt viö
Stefán
Ingólfsson
hjá Fasteigna
mati ríkisins
— Á fasteignamarkaðinum
rikis spenna og sölutregða til
skiptis. Framboð á skrifstofu-
húsnæðier meira en sem svarar
eftirspurn og gangverð á at-
vinnuhúsnæði hækkar litið. En
atvinnuhúsnæði er leigt á þeim
kjörum, aðhægt er að setja auk-
inn rekstrarkostnað út i leigu-
verðið, sagði Stefán.
Hann sagði að fasteignaverð
hafi i raun lækkað i tvo mánuði i
sumar, en það hafi ekki gerst
siðanárið 1967. — Fasteignamat
hefur hækkað um 7% umfram
byggingarkostnað frá 1976,
sagði Stefán. — Fasteignaverðið
hefur hækkað enn meira, það er
með vissu 7—8% yfir fasteigna-
mati. Gangverð á fasteignum i
Reykjavik hefur þvi hækkað á
þessum árum um a.m.k. 14%
"umfram byggingarkostnaðinn.
Sveiflur á
fasteignamarkaði
Milli áranna 1977 og 78
hækkaði byggingarkostnaður-
inn um 51% en fasteignamat
aðeins um 42%. Hinsvegar
hækkaði byggingarkostnaður
milli áranna 1978 og 79 um 48%,
en fasteignamatið um 58%.
Verð á fasteignum brunaði
siðan upp á við þangað til i april
sl., þegar verðið lækkaði. Ekki
lækkaði þó söluverðið sjálft,
heldur breyttust greiðslukjörin.
Hlutfall útborgunar lækkaði og
þar með raunvirðið. Siðan hafa
verið sveiflur á fasteignamark-
aði og um mitt sumar lækkaði
verðið aftur. Svona ástand hefur
ekki komið upp siðan 1966—67,
þegar stóru gengisfellingarnar
urðu, sagði Stefán.
— Ég held að þetta stafi að
talsverðu leyti af raunveruleg-
um frjárskorti, þvi útborgun er
orðin svo gifurlega há. Fólk sem
áður gat byggt verður nú að
kaupa vegna þess að það fær
ekki lóð. Löggjafinn verður að
gera einhverjar ráðstafanir til
þess að liðka fyrir þessum
markaði. Ef t.d. eftirstöðvar
kaupverðs yrðu fullverð-
tryggðar, væri hægt að lengja
lánstimann talsvert án þess að
seljandi tapaði fé, en nú hagnast
Framhald á bls. 13
íbúar Bygginga
samvinnufélags
Kópavogs:
28,3% tfl
35,4%
ódýrari en á
almennum
markaði
i nóvember afhenti Bygginga-
samvinnufélag Kópavogs fjóröa
fjölbýlishúsið af fimm, sem fé-
lagið byggir við Engihjalla i
Kópavogi. 1 frétt frá félaginu
segir, að mismunur á raungildi
greiðslna fyrir 2ja til 4ra her-
bergja ibúðir hjá félaginu ann-
arsvegar og á markaðsveröi
hinsvegar sé frá 28,33% til
35,4%.
Raungildi greiðslna i október
1980 segja BSFK-menn kr.
20.675.504 fyrir tveggja her-
bergja Ibúð. Verö samskonar
ibúöar samkvæmt visitölu á
tima sé kr. 23.172.399 og mis-
munur á verði visitöluibúðar
hjá BSFK sé þvl 12,08%. Hins-
vegar sé áætlað markaösverö á
ibúðinni 28.000.000 kr. og
munurinn á markaðsverði og
raungildi greiðslna hjá félaginu
þvi 35,4%.
Raungildi greiðslna fyrir fjög-
urra herbergja ibúð i október er
kr. 32.167.045 samkvæmt frétt
BSFK. Verð samskonar ibiíðar
samkvæmt visitölu er kr.
35.661.419 og mismunurinn
10.86% félaginu [ vil. Aætlað
markaðsverð er hinsvegar kr.
42.000.000 og munar þvi 30,57% á
markaðsverði og raunviröi hjá
BSFK.
Framkvæmdir við húsið sem
félagið afhenti i nóvember sl.
hófust sumarið 1978. öllum
ibúðum i húsinu, 48 að tölu, er
skilað fullfrágengnum, sem og
sameign og lóð. Allan kostnað
við bygginguna verða byggj-
endur að fjármagna sjálfir,
utan húsnæðismálastjórnar-
láns.
By ggingasam vinnufélag
vogs var stofnaö áriö 1953.
Frá árinu 1967 hefur félagið haft
stöðug verkefni og nú I haust
var hafist handa um byggingu
tveggja fjölbýlishúsa við Astún.
Auk þess er unnið að uppsteypu
á siðasta húsinu við Engihjalla,
en það verður afhent á næsta
ári.
Um siðustu áramót voru fé-
lagsmenn 2451, en eru nú 2794,
þannig aö þeim hefur fjölgað
um 343 á árinu. öllum þeim
ibúðum sem i byggingu eru
hefur þegar verið úthlutað til fé-
lagsmanna, og um 100 félags-
menn eru á biðlista eftir Ibúðum
sem kunna aölosna. Ljóster þvi
að félagið hefur ekki náð að
anna eftirspurn félagsmanna
sinna.
<
Q
O
Þh