Þjóðviljinn - 10.12.1980, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 10. desember 1980.
Þing Bandalags háskólamanna.
Umboðsmenn
Happdrættis
Þj óðvilj ans
Happdrætti Þjóðviljans 1980. Skrá yfir umboðsmenn.
Reykjaneskjördæmi:
Mosfellssveit: Gisli Snorrason, Brekkukoti, s. 66511
Kópavogur: Albvðubandalaesfélagið.
Garðabær: Björg Helgadóttir,Faxatúni 3, simi 42998.
Hafnarfjörður: Alþýðubandalagsfélagið.
Alftanes: Trausti Finnbogason, Birkihlið, s. 54251 vs. 32414
Seltjarnarnes: Þórhallur Sigurðsson Tjarnarbóli 6, s. 18986.
Kefiavik: Alma Vestmann, Faxabraut 34c, vs. 92-1450.
Njarðvíkur: Sigmar Ingason, Þórustig 10, s. 92-1786 vs. 92-1696
Gerðar: Sigurður Hallmansson, Heiðarbraut 1, s. 92-7042
Grindavik: Kagnar Agústsson, Vikurbraut 34, vs. 92-8020.
Sandgerði: Elsa Kristjánsd., Holtsgötu 4, s. 92-7680.
Vesturland:
Akranes: Sigrún Gunnlaugsd. Vallholti 21. s. 93-1656 vs. 93-1938
Borgarnes: Halldór Brynjúlfsson, Böðvarsgötu 6. Simi 93-7355.
Borgarfjörður: Haukur Júliusson, Hvanneyri, s. 93-7011.
Hellissandur: Hólmfriður Hólmgeirsd, Bárðarási 1, s. 93-6721.
Ólafsvik: Ragnhildur Albertsd, Túngötu 1, s. 93-6395.
Grundarfjörður: Matthildur Guömundsd. Grundargötu 26, s.
93-8715.
Stykkishólmur: Ólafur Torfason, Skólastig 11, s. 93-8426.
Búöardalur: Gisli Gunnlaugsson, Sólvöllum, s. 93-4142 vs.
93- 4129.
Vestfirðir.
Patreksfjörður: Bolli Ólafsson, Sigtúni 4, s. 94-1433, vs. 94-1477.
Tálknafjörður: Lúövík Th. Helgason, Miötúni 1, s. 94-2587.
Bfldudaiur: Smári Jónsson, Lönguhlíð 29,
Þingeyri: Davið Kristjánsson, Aðalstræti 39, s. 94-8117.
Flateyri: Guðvarður Kjartansson, Ránargötu 8, s. 94-7653 vs.
94- 7706
Suðureyri: Þóra Þórðardóttir, Aðalgötu 51, s. 94-6167.
ísafjörður: Elisabet Þorgeirsd. Túngötu 17, s. 94-3109.
Bolungarvik:Kristinn Gunnarsson, Vitastig 21, s. 94-7437.
Hólmavik: Hörður Asgeirsson, Skólabraut 18, s. 95-3123.
Borðeyri.Strand: Guðbjörg Haraldsd. s. 95-1116.
Norðurland vestra.
Hvammstangi: örn Guðjónsson, Hvammstangabraut 23, s.
95- 1467.
Blönduós:Sturla Þórðarson, Hliðarbraut 24, s. 95-4357.
Skagaströnd:Eðvarð Hallgrimsson, Fellsbraut l,s. 95-4685
Hofsós:GIsli Kristjánsson, Kárastig 16, s. 95-6341.
Sauðárkrókur: Friðrikka Hermannsd. Hólmagrund 22, s.
95- 5245.
Siglufjöröur: Kolbeinn Friðbjarnarson, Hvanneyrarbraut 2, s.
96- 71271 vs. 96-71404
Norðurland eystra.
Ólafsfjörður: Agnar Viglundsson, Kirkjuvegi 18, s. 96-62297 vs.
96- 62168.
DalvIk:Hjörleifur Jóhannsson,Stórhólsvegi 3, s. 96-61237.
Akureyri:Haraldur Bogason, Noröurgötu 36, s. 96-24079.
Hrlsey :Guöjón Björnsson, Sólvallargötu 3, s. 96-61739.
Húsavík:MarIa Kristjánsd. Arholti 8,s.96-41381.
Mývatnssveit:Þorgrimur Starri Björgvinsson, Garði
Raufarhöfn: Angantýr Einarsson, Aðalbraut 33,s. 96-51125.
Þórshöfn: Arnþór Karlsson.
Austurland.
Neskaupstaður: Guömundur Bjarnason, Melagötu 11, s. 97-7255,
vs. 97-7500.
Vopnafjörður: Agústa Þorkelsdóttir, Refsstað.
Egilsstaöir: Ófefgur Pálsson, Artröð 8, s. 97-1413.
Seyöisfjörður: Guölaugur Sigmundsson, Austurvegi 3, 6. 97-2374.
Reyðarfjöröur: Ingibjörg.Þórðard. Grlmsstöftum, s. 97-4149.
Eskifjörður: Strandgötu 15, simi 97-6494.
Fáskrúösf jörður: Þorsteinn Bjarnason, Skólavegi 138, simi 97-
5270.
Stöðvarfjöröur: Ingimar Jónsson, Túngötu 3, . 97-5894.
Breiödalsvfk: Guðjón Sveinsson, Mánabergi, s. 97-5633.
Djúpivogur: Þórólfur Ragnarsson, Hraunprýði, s. 97-8913.
Höfn i Hornafirði: Benedikt Þorsteinsson, Ránarslóð 6, s.
97- 8243.
Suðurland.
Vestmannaeyjar: Edda Tegeder, Hrauntúni 35. Simi 98-1864.
Hveragerði: Þórgunnur Björnsdóttir, Þórsmörk 9, s. 99-4235.
Selfoss: Iðunn Gisladóttir, Vallholti 18, s. 99-1689.
Laugarvatn: Torfi Rúnar Kristjánsson, s. 99-6153.
Þorlákshöfn:Þorsteinn Sigvaldason, Reykjabraut5, s. 99-3745.
Eyrarbakki: Auður Hjálmarsd. Háeyrarvöllum 30. s. 99-3388
Stokkseyri: Margrét Frimannsd. Eyjaseli 7, s. 99-3244.
Hella: Guömundur Albertsson, Geitasandi 3, s. 99-5909
vs. 99-5830.
Vik I Mýrdal: Magnús Þórðarson, Austurvegi 23, s. 99-7129 vs.
7173 Og 7176.
Kirkjubæjarklaustur :Hilmar Gunnarsson s. 99-7041 vs. 99-7028.
Launafólk verji
frjálsan samnings-
rétt
IV. þingi BHM lauk siðdegis á
laugardag. A þinginu var kjörin
stjórn bandalagsins til næstu
tveggjaára.ValdimarK. Jónsson
prdfessor var endurkjörinn for-
maður og ómar Arnason mennta-
skóiakennari var kjörinn vara-
formaður. Aðrir i stjórn voru
kjörnir Guðmundur Hjálmarsson
tæknifræðingur, Kristin Indriða-
dóttir bókasafnsfræöingur og
Þorvaldur Veigar Guðmundsson
læknir. t varastjórn voru kjörnir
Már Pétursson lögfræðingur og
Jafet ólafsson viðskipta-
fræðingur.
Frá þingi BHM á Hótel Loftleiðum, sem lauk sl. laugardag.
(Mynd: — gel)
A þinginu var fjallað um starfs-
áætlun BHM næstu tvö ár. M.a.
var samþykkt að vinna sérstak-
lega að stefnumótun banda-
lagsins i fjölskyldumálum. Þá
var samþykkt að gera úttekt á
áhrifum þeirra breytinga sem
orðið hafa á húsnæðislánakerfi og
halda sérstaka ráðstefnu um þau
mál.
Fjallað var um verkfallsrétt
rikisstarfsmanna innan BHM.
Þvi var beint til aðildarfélaga
BHM að ræða þessi mál og var
ákveðiðað halda fund i Kjararáði
BHM i byrjun febrúar n.k. og er
gert ráð fyrir að þar verði tekin
ákvörðun um hvort teknar verða
upp viðræður við rikisstjórnina
um verkfallsrétt rikisstarfs-
manna innan BHM.
A þinginu flutti Kristinn
Sigtryggsson erindi um skatta-
mál Þau voru siðan rædd i sér-
stökum vinnuhóp og samþykkt
ályktun um þau.
Loks var rætt um kjaramál og
samþykkt ályktun, segir þar m .a.
„IV. þing BHM haldið dagana
28.-29. nóvember 1980, krefst
þess að hlutur háskólamanna sé
ekki fyrir borð borinn, þegar stór-
auknum fjármunum er varið til
félagslegra úrbóta á kjörum
launafólks.
Þingið heitir á önnur samtök
launafólks að sameinast i baráttu
fyrir dagvinnutekjum er veiti
afkomuöryggi.
Þingið hvetur háskólamenn til
að stuðla að skynsamlegri ráð-
stöfun fjármuna og hagsýni i
rekstri fyrirtækja. Þingið leggur
áherslu á umbætur i fræðslukerfi
landsins er miði að markvissari
tengingu þarfa einstaklings og
þjóðfélags i heimi tækni- og
visindabyltingar. Samtök launa-
fólks og atvinnurekenda kapp-
kosti að mðta stefnu i atvinnu- og
efnahagsmálum sem leiði til
skynsamlegrar ráðstöfunar
þjóðartekna, en ekki sé hlaupið
eftir stundarhagsmunum ein-
stakra hagsmunaaðila.
1 framhaldi af þvi mótmælir
þingið þeirri viðleitni stjórnvalda
að nota verðbætur á laun sem
stjórntæki og hafa áhrif á visitölu
framfærslukostnaðar með
aðgerðum,sem eiga ekkert skylt
við stjórnun efnahagsmála . Þess
vegna tekur þingið undir kröfu
ASI að Olafslög verði numin úr
gildi.
Þingið mótmælir afskiptum
löggjafans af gerðum kjara-
samningum og hvetur allt launa-
fólk til að slá skjaldborg um
frjálsan samningsrétt.
Rikisvaldið neitar að verða
við kröfum BHM um sambærileg
laun og greidd eru á almennum
vinnumarkaði. Þingið krefst leið-
rétinga á kjörum rikisstarfs-
manna innan BHM og skorar á þá
að láta einskis ófreistað i' baráttu
sinni fyrir bættum kjörum.”
Eitthvað er það ekki gott
Arásir þeirra Alþýðubanda-
lagsmanna á Karl Steinar Guðna-
son, formann Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavikur og vara-
formann Verkamannasambands
Islands hafa vakið undrun okkar
og hneykslun. Og svo mun fleir-
um farið i verkalýðshreyfingunni
sem þekkja til Karls Steinars og
starfa hans þar.
Hvaðerþaðsem fer svona fyrir
brjóstið á þeim Alþýðubanda-
lagsmönnum og Þjóðviljaskrif-
finnum?
Er það sú virðing og það traust
sem Karl Steinar nýtur i Verka-
lýðs- og sjómannafélagi Kefla-
vikur?
Er orsökin kannski það traust
og fylgi sem Karl Steinar á hjá
láglaunafólkinu i Verkamanna-
sambandi Islands, sem kemur
m.a. fram iþvi, aðþaðhefur valið
hann iyrir varaformann sam-
bandsins um áraraðir?
Ec orsökinef til villsú, að ágætt
samstarf Karls Steinars við suma
Alþýðubandalagsmenn i verka-
lýðshreyfingunni er eins og
þyrnir i holdi mestu öfgamanna i
Alþýðubandalaginu, þyrnir sem
þeir kveinka sér undan og veldur
þeim sviða?
Eða skyldu orsakir árásanna á
Karl Steinar vera slæm samviska
Alþýðubandalagsins vegna óværu
I flatsænginni með ihaldinu i Al-
þýðusambandi Islands?
Eitthvað er þaö ekki gott, sem
veldur þessum lúalegu árásum á
Karl Steinar Guðnason.
En það getum við sagt þessum
ofsóknarmönnum Alþýðubanda-
lagsins, að Karl Steinar stendur
eftir sem áöur óhaggaður með
traust allra sanngjarnra manna i
og smá
athugasemd viö
varnarræöuna
verkalýðshreyfingunni að baki
sér. Svo lengi er hann búinn að
starfa I íslenskri verkalýðshreyf-
ingu, svo vel þekkjum við flest
störf hans þar. Við erum lika full-
vissarum það, að árásir af þessu
tagi á forystumenn verkalýðs-
hreyfingarinnar eru viðsfjarri
vilja og skapi núverandi forseta
ASl, Asmundar Stefánssonar.
A siðasta ASl-þingi bauö Karl
Steinar upp á samstarf verka-
lýðsflokkanna i kosningum til
miðstjórnar ASl eins og verið
hefur undanfarin ár. Um það
hafði hann samráö við okkur Al-
þýðuflokksfólkið á Alþýðusam-
bandsþinginu.
Þetta þotti harðlinumönnum
Alþyðubandalagsins ekki gott.
Þeir höfðu löngu áður ákveðið
samstarf við Sjálfstæöisflokkinn,
framkvæmt það sem áður hét á
þeirra máli „að ganga á mála hjá
ihaldinu” eða „að gerast hækjur
ihaldsins”. Þegar þeir neituðu til-
boði Alþyðuflokksfólksins stóðu
þeir eftir berstripaðir. Þeirra
valkostur var Sjálfstæðisflokkur-
inn. Er nema von að sumum
bregði I herbúðum Alþýðubanda-
lagsins og að þeir missi dóm-
greindina, þegar þeir standa ber-
skjaldaðir frammi fyrir þessari
staðreynd?
Karl Steinar naut yfirburða-
stuðnings flokkssystkina sinn á
Alþyðusambandsþingi til þess að
verða fulltríri i miðstjórn ASl. En
hann hafði skilning á þvi, að
hvorki væri sanngjarnt né skyn-
samlegt að ganga þar fram hjá
konunum, en þær voru um einn
þriðji hluti þingfulltrúa. Hann
óskaði þess vegna eftir þvi að
vera ekki i kjöri i miðstjórnina,
en setja þar konu i sinn stað.
Þetta hefur hann gert áöur.
Það er kannski þetta, sem
sumir Alþýðubandalagsmenn
þola ekki hjá Karli Steinari. Þeir
létu sig að minnstakosti ekki juna
um það að fórna Bjamfriði Leós-
dóttur á altari Ihaldssamvinn-
unnar. Kannski er það bara for-
smekkurinn af þvi sem koma skal
i hinum nýju vinnubrögðum Al-
þýðubandalagsins innan ASI?
Það er að minnsta kosti stað-
reynd, að Alþýðubandalagið sá
enga ástæðu til að hafa konu úr
sinum röðum i miðstjóm ASI.
Kona frá þeim þar i hópi fyrir-
finnst nú engin. Var Þjóðviljinn
nokkuð að tala um jafnrétti kynj-
anna? Nei, hann þagði þunnu
hljóði um það. Þess i stað var
hann önnum kafinn við að hamast
á KarliSteinari. Kannski var það
eðlilegt, þvi að Karl Steinar hafði
þar önnur viðhorf en harðlinu-
menn Alþýðubandalagsins og
tryggði konu sæti i miðstjórn ASI
með þvi að draga sig i' hlé i mið-
stjórnarkosningunni. Þessi var
munurinn og eftir honum hefur
verið tekið.
Guðriður Ellasdóttir
Ragna Bergmann
Athugasemd blaða-
manns:
Þar sem undirritaður var
blaðamaðurÞjóðviljansá nvliðnu
Framhald á bls. 13