Þjóðviljinn - 21.01.1981, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 21. janúar 1981
Kærleiksheimilid
Hjóladellan hefur tröllriðið
Englendingum eins og fleirum.
En þeir láta sér ekki allir nægja
bara þessi venjulegu 10 gira ný-
tfsku eða þau gamaldags
dönsku.
Hér eru tveir félagar i
hjólaklúbbnum Plonk’s Peddl-
ers og hafa tekið ofn og hliöar-
grind i sina þjónustu. Klúbbfé-
lagar hjóla vitt og breitt um
landið og safna fé til góðgeröar-
starfsemi.
sporum
RAFORKU
viðtalið
Rætt við Ævar
Kjartansson,
Grímsstöðum
V etur-
seta á
Gríms-
stöðum
— Þetta er djöfuls frost-
gaddur hér núna, sagði Ævar
Kjartansson á Grimsstöðum á
Fjöllum er við áttum tal við
hann á föstndaginn var. — Ég
held að frostið hafi komist fast
að 25 stigum i gær en það er nú
talsvert minna i dag. Bót va‘r þó
imáli, að logn var i gær.annars
hefði nú kuldinn tekið i hnjúk-
ana. Þetta er búinn að vera
fremur veðrasamur vetur,
ákaflega litið um logn og stillur
en hér er ekki mikill snjór.
— Og þú fórst i að hafa vetur-
setu þarna á Fjöllunum?
— Já, eg er hér eiginlega
vetrarmaður og kenni svo
krökkunum hérna. Bróðir minn
býr hérna en kona hans er við
nám i Handiða og myndlistar-
skólanum i Reykjavik i vetur og
hann er þá einnig I höfuðstaðn-
um og gerir bara svona hitt og
þetta. Þau búa i minni ibúð
syðra iveturen égtók að mér að
sjá um bú þeirra hér og kann þvi
bara ljómandi vel.
— Fjárhirðingin hefur verið
Ævar Kjartansson: Vetrar-
maður á Grimsstöðum.
fljót að rifjast upp fyrir þér?
— Furðanlega, já, en annars
hef ég ekki komið nálægt henni
frá þvi ég var um fermingu og
þar til nú.
— Og þú kennir krökkunum
lika segirðu. Er þá kennt þarna
heima hjá ykkur á Grims-
stöðum?
— Já, og þetta er nú ekki bein-
linis fjölmennur skóli. Krakk-
arnir eru fimm. Tveir af þeim
eru frá Möðrudal. Þeir búa hér
yfir vikuna en fara svo heim um
helgar. Við kona min hjálpumst
að við kennsluna.
— Þú sagðir að snjór væri
ekki mjög mikill hjá ykkur. Er
þá sæmilegt akfæri?
— Nei, þótt snjór sé ekki
blöskrunarlega mikill þá eru
vegir ófærir venjulegum bilum
og rétt I þessu var snjóbíll að
fara i póstferð ofan i Mývatns-
sveit. Og eðlilega er heldur
dauft yfir félagslifinu, litið um
bölL
—Hvað eru mörg býli i
byggð á Fjöllunum?
— Það eru núei$nlega fjögur
býli hér á Fjöllunum og svo eru
Hólssel og Nýhóll I byggö. Þessi
býli eru i Fjallahreppi en svo
eru Möðrudalur og Viðidalur á
Efra-Fjalli en þeirbæirtilheyra
Austurlandinu, Múlasýslunum.
— Svo að við víkjum aftur að
færinu, er lengi búið að vera
ófært hjá ykkur?
— Af og til siðan um jól. Ég
held að búið sé að fara eina
póstferð á bil siðan um hátiðar
en þegar allt er með felldu er
farin ein póstferð i viku til Mý-
vatnssveitar. Færi mátti heita
sæmilegt fram undir jól a.m.k.
tókst alltaf að þvælast þetta.
— Finnast þér ekki mikil við-
brigði að vera allt i einu kominn
úr höfuöborginni og norður á
Hólsfjöll?
— Jú, aö mörgu leyti en að
oðru leyti er bara hvild i þvi.
Og þó að menn séu einangraðir i
bókstaflegri merkingu hérna þá
er það nú svo, að margir, sem I
þéttbýlibúa, eru, þráttlfyrir allt,
ekkert siður einangraðir. Hins-
vegar má segja, að þetta sam-
félag hér á Fjöllunum sé einum
of litið. Það er i raun og veru of
litið til þess áð hægt sé að halda
uppi venjulegu félagslifi og svo
eru f jarlægðirnar miklar.
— Eruð þið með snjóbila
þarna?
— Það er hér einn snjóbill
sem hreppurinn á en á hverjum
bæ eru vélsleðar og þeir eru
mjög þarfir þjónar hér.
— Er nokkurntima messað
hjá ykkur?
— Nei, ekkert núna. Oftast
hefur þó verið messað hér einu
sinni um jólin, en það fórst fyrir
i þetta skiptið. Þaö er Skútu-
staðaprestur, sem þjónar.
— Er það ekki af sem áður
var aö sauðfé sé beitt þarna að
vetrinum?
— Jú, það hefur minnkað
mjög mikið hér eins og annars-
staðar. Hér hefur engin skepna
verið látin út siðan talsvert
löngu fyrir jól, en ég held, að
bændur séu birgir af heyjum.
— mhg
Stjörnuspá
fyrir húsdýrin
Ellerti Schram áskilur sér rétt
til aö fjalla um þaö á öðrum stað
að kommúnistar skrifa Svart-
höfða á laun til þess að eyði-
leggja orðstir borgaralegrar
pressu innanfrá....
I Molar
Tilviljunin er duinefni sem
guð notar þegar hann viil ekki
skrifa sjálfur undir það sem
hann hefur gert.
X
Menn vita ekki ailt, en þeir
segja allt.
X
Það er betra að skilja litið en
misskiija einhver ósköp.
X
I hátignarlegum jöfnuði sin-
um banna lögin jafnt rikum sem
fátækum að sofa undir brúnum,
elta á götunum og stela sér til
matar.
Það er greinilegt að viö liggj-
um langt að baki Bandarikja-
mönnum eða Englendingum á
vissum sviöum. Sem kannski er
eins gott.
EBa hvað segir fólk
um bækur I Bandaríkjunum eins
og „Húsdýrin okkar og stjörn-
urnar þeirra”, þar sem i fúlustu
alvöru er birt stjörnuspá fyrir
dýr.
EBa um bresku konuna sem
nýlega kom þar fram i sjón-
varpi og sýndi hvernig hún gæti
lesiö skapgeröareinkenni katta
og hunda úr linunum i þófum
þeirra. Það sem allt sló út var
þó þegar hún gat spáð þvi fyrir
gullfiski eftir að hafa „túlkað
titringinn i vatninu i skálinni
hans”, að hann mundi eiga fyrir
höndum langt feröalag!