Þjóðviljinn - 21.01.1981, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 21.01.1981, Qupperneq 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 21. janúar 1981 Einangrun Plasteinangrun, sieinull, glerull m/eða án ál- f% - pappín, álpappírsrúllur, glerullarhólkar, plast- OyQC|inQ3VOrilQf5IIQ einangrunarhólkar. ■■■ A llt til einangrunar - og verðið hefur náðst ótrúlega _ j Jón Loftsson hf. langt niður vegna magninnkaupa. Hringbraut 121 Simi 10600 Það er munur að hafa nýja sundlaug i hverfinu — Ljósm.gel. Anddyri inni- og útisundlauganna við Fjöibrautaskólann i Breiðholti. — Ljósm :gel. Stelpurnar tóku sundsprett með kork og kút. —Ljósm:gel. Ný þjónusta: Skíðaleiga Tekin hefur vcrið upp ný þjón- usta hjá Tjaldaleigunni við Um- ferðarmiðstöðina i Reykjavik: Skiðaleiga. Ekki er að efa að þessi þjónusta er þörf, bæði fyrir aðkomufólk, utanbæjarmenn og útlendinga, sem langar að bregða sér á skiði en geta ekki komið þvi við að taka þau með sér að heiman, en ekki siður fyrir hina, sem eru að byrja og vilja kanna hvernig iþróttin á við þá áður en f járfest er i dýrum útbúnaði. Auk þess getur það vel borgað sig fyrir þá sem sjaldan fara á skiði að fá þau heldur leigð en að kaupa þau og fyrir þá sem stunda td. aðallega skiðagöngur að geta fengið leigð svigskiði og öfugt. A boðstólnum i skiðaleigunni eru bæöi svig- og gönguskiði og þægilegir skiðaskór af öllum stærðum, einfaldar og öruggar bindingar, sem stilltar eru hverju sinni fyrir skóstærð, þyngd og hæfni viðkomandi. Skiðaleigan er opin bæði virka daga og um helgar og auk þess reynt að fella afgreiðslutimann að opnunartima skiðalyftna og áætlunarferðum. Leigugjald fyrir svigskiði ásamt stöfum og skóm er kr. 90 fyrsta leigudag og kr. 50 fyrir hvern dag eftir það ef um fleiri daga er að ræða. Göngu- skiðin eru á kr. 80 fyrsta daginn og 40 kr. á dag eftir það. r »'* i Bi»*i ■ Sundlaugin vígð við hátíðlega athöfn. Guðmundur Sveinsson skólameistari f ræðustóli, borgar- | fulltrúar og gestir hlýða á. — Ljósm:gel. Fjölbrautaskólinn i Breiðholti | Ný sundlaug til | kennslu og al- i menningsnota J CTISUNDLAUG við Fjöl- brautaskólann i Breiðholti ■ var formlega tekin i notkun sl. ■ laugardag við hátiðlega athöfn, Ien siðdegis var laugin opnuð al- menningi. ■ Það er all-langt um liðið frá LlBHHIBilHilHI mm M þvi að verkið var boðið út, en ýmissa orsaka vegna drógust framkvæmdir. Við Fjölbrauta- skólann eru bæði inni- og útilaug og eru þær bæði miðaðar við kennslu og almenna notkun. Sundlaugamannvirkin eru alls 9940 rúmmetrar, og við þau hefur verið komið upp búnings- klefum, þurrkherbergjum, steypiböðum, gufuböðum og af- greiðslu. Við innisundlaugina eru vegg- skreytingar eftir þær Þorbjörgu Höskuldsdóttur og Hildi Hákonardóttur. Byggingarnar eru hannaðar þannig að fólk i hjólastólum geti notfært sér aðstöðuna. Sund- laugarnar eru hluti af iþrótta- mannvirkjum skólans. Arki- tektar voru þeir Guðmundur Þór Pálsson og Jón Ólafsson. Við athöfnina á laugardag flutti Guðmundur Sveinsson skólameistari Fjölbrautaskól- ans ávarp, en viðstaddir voru borgarstjóri, borgarfulltrúar og fleiri gestir. Eftir athöfnina var spretturinn tekinn i lauginni, þar sem krakkar úr hverfinu svömluðu með kork og kút. — ká

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.