Þjóðviljinn - 19.02.1981, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 19.02.1981, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 19. febrúar 1981. UQÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóöfrelsis útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann. Kitstiórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Auglýsingastjóri: Þorgeir Ólafsson. Umsjónarmaöur sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Afgreiðslustjóri: Valþór Hlöðversson. < Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Ingi björg Haraldsdóttir, Kristin Astgeirsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. íþróttafréttdmaður: Ingólfur Hannesson. Útlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Sævar Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elisson. llandrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Auglýsingar: Svanhildur Bjarnadóttir. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Afgreiösla: Kristin Pétursdóttir, Bára Sigurðardóttir. Símavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir. Bilstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Slöumúla 6, Reykjavik, simi 8 13 33. Prentun: Blaðaprent hf. Reynsla og fyrirhyggja • Veðurhamurinn í byrjun vikunnar er enn ein áminn- ingin um að aldrei má sýna náttúruöf lunum kæringar- leysi, eða treysta því að tækniöld geri okkur í stakk búin til þess að lifa áhyggjulaus um veður og vinda. Þjóð sem í sífellu stendur f rammi f yrir hamförum af völdum eld- gosa, jarðskjálfta, snjóflóða, skriðufalla og veðurgangs á sjó og landi verður að sýna ýtrustu fyrirhyggju og samábyrgð ef vel á að fara. • Ljóst er að í óveðrinu hefur orðið verulegt og til- f innanlegt tjón, en þó misjafnt eftirlandshlutum og jafn- vel hverf um í þéttbýli. I sumum tilfellum er um að ræða minniháttar tjón og smávægileg, en í öðrum alvarleg og þar verður að koma til stuðnings heildarinnar með ein- hverjum hætti. Fyrst liggur f yrir að sveitarfélögin kanni tjónið, og komi niðurstöðum slíkrar könnunar á fram- færi við rétta aðila, tryggingarfélög og stjórnvöld. Á þeim grundvelli ber síðan að taka ákvarðanir. • Þeir einstaklingar sem keypt hafa húseigendatrygg- ingar, óveðurs- og foktryggingar og glertryggingar standa vel að vígi eftir óveðrið. Hið sama er ekki að segja um bíleigendur, þvi jafnvel reglur trygginga- félaganna um altryggingu bila virðast ótrúlega flóknar og kúnstugar. Almennt má segja að tryggingarskilmálar hjá félögum hér séu alltof flóknir, skilyrðin sem upp- fylla þarf til þess að njóta bóta óljós aðgöngu fyrir almenning, og nauðsynlegt að brýna það fyrir trygg- ingaraðilum að skilmálar þeirra verði skýrari en áður, eins og tryggingaráðherra bendir á í viðtali við blaðið í dag. • Fyrir nokkrum árum voru sett lög á Alþingi um Við- lagatryggingu íslands, og er þar gert ráð fyrir bótum á brunatryggðum eignum vegna tjóns af völdum náttúru- hamfara, öðrum en óveðurs og foks. í framhaldi af óveðrinu nú i vikunni hlýtur það að koma til alvarlegrar skoðunar, hvort ekki sé nauðsynlegt að breyta lögum um Viðlagatryggingu íslands, þannig að hún nái framvegis til óveðurstjóns. • Viðlagatryggingin er skyldutrygging á öllum fast eignum og því hafa landsmenn allir tekið þátt í að búa sig undir að bæta þeim tjón,sem í framtíðinni verða illa úti í náttúruhamförum. Af óveðrinu má draga þann lær- dóm,að það geti komið sér vel að taka á sig minniháttar byrðar á líðandi stund í hærri iðgjöldum til Viðlaga- tryggingar í því skyni að menn standi betur að vígi and- spænis slíkum náttúruhamförum. • Ölíklegt er hinsvegar að Bjargráðasjóður komi við sögu eins og eftir fárviðrið 24. september 1973, er hann veitti 40 sveitarfélögum vaxtalaus og óverðtryggð lán til þess að endurlána til þeirra sem beðið höfðu umtalsvert tjón af völdum óveðursins. Þegar kuldi og haf ís herjaði á Norðlendinga á árinu 1979 átti sá sjóður að hlaupa undir bagga, enda stendur óveðurstjón lögum samkvæmt honum einna næst. Þegar núverandi rikisstjórn tók við varð að byrja á því að taka lán til þess að sjóðurinn gæti staðið viðskuldbindingarsínarvegnaársinsl979 og hefur hann því enga tekjustofna nú né f jármagn aflögu. Bæði stjórn Bjargráðasjóðs og tryggingaráðherra virðast telja eðlilegra að leysa mál af þessu tagi innan trygg- ingakerfisins með breytingum á lögum um Viðlaga- tryggingu heldur en á vegum sjóðsins með beinum f ram- lögum úr ríkissjóði. • En að fleiri atriðum þarf að hyggja og fyrir tíu mánuðum skipaði tryggingaráðherra nefnd til þess að kanna möguleika á því að tryggja landsmenn fyrir tjóni á stórmannvirkjum, eins og virkjunum og raflínum, vegna meiriháttar náttúruhamfara. Slíkar tryggingar eru vafalaust dýrar, en þó nauðsynlegar, ef við ætlum að hafa í heiðri lágmarks fyrirhyggju gagnvart framtíð- inni, eins og ráðherra hefur bent á. öll reynsla okkar segir að við getum hvenær sem er átt von á verulegum skakkaföllum og tjóni af völdum náttúruhamfara. Tryggingamál einstaklinga og þjóðarinnar í heild verða að vera í samræmi við þau reynsluvisindi. ----ekh Hlfppt ! Framhaldssaga Framhaldssaga hefur nú I verið rakin um stund i Tim- , anum og Morgunblaðinu, i henni ■ er brotist um á hæl og hnakka, I og þótt menn verði ekki sárir E eru þeir afskaplega móðir. a Sagan hófst á þvi, að á ein- ■ hverri veikleikastund sálar- I innar féll Þórarinn Þórarinsson | Timaritstjóri i þá synd að ■ hlusta á liðsmann sinn Jónas ■ Guðmundsson, stýrimann i I menningunni, en Jónas hafði I áður hlustað á Indriða G. Þor- ■ steinsson og Hilmar Jónsson. ■ Niðurstaðan varö sú, að Þórar- I inn skrifaði leiðara sem gerði mun hafa gefist upp við leikrita- gerðina að mestu eða öllu. Hann vildi þó ekki leggja skáld- skapariðju alveg á hilluna. Til þess að tryggja sér nokkurn vinnufrið gekk hann til liðs við þá sem höfðu ófrægt hann”. Þetta kallar Þórarinn að Matthias hafi verið „barinn til ásta” og segir að svo muni hafa farið um fleiri höfunda. Eigi hræöist ég... Vitanlega er Matthias litið hrifinn af þessari málsmeðferð, enda er hún lika tóm vitleysa. Hann skrifar heillanga grein um málið i blað sitt i gær og segir þá meðal annars um Þórarin: „Sist af öllu átti ég von á, að hann færi að gera mér upp litil- mennsku og margvislegar Samsæris sálarfrœöi Satt að segja erum við ekki ■ miklu nær um samsæriskenn- | ingar Þórarins, þótt hann hafi | notað tækifærið til að senda ■ Matthiasi kveðju „undir rós og I belti”. Þórarinn er, eins og I menn vita, ekki einn um kenn- | ingar af þessu tagi. Það versta • er að þegar i þeim er vikið að I einhverjum tilteknum persón- j um (náttúrlega hlýtur sá sem | lengst hefur skrifað um nýjar ■ bækur i Þjóðviljann að vera inni I i myndinni) — þá reynist það | gjörsamlega út i hött að gera | minnstu tilraun til að afneita ■ samsærisaðild. Kenningasmið- I irnir gera ekki annað en hress- | Undir merki Don Quijote ■r óftkiljanlrg ‘ Ixirri Ut». Þórarinsion. Barðir til ásta i aó ) mu aó því. aó Moripinblaóió hafi •itthvert handalax- ■:* ----- Fyrir nokkrum árum sýndi Þjóðleikhúsið leikrit eftir nýjan höfund, sem margir höföu gert sér góð- ar vonir um fyrirfram, þar sem hann haföi unniö sér viöurkenningu sem orösnjall og hugmyndarik- ur rithöfundur. Styrmw Qunnaraaon marga menn ákaflega hissa. Þar var óspart látið að þvi liggja, að þótt Morgunblaðið og Þjóðviljinn skömmuðust sitt á hvað,færi á milli þeirra blaða leyniþráður menningarsam- særis, sem réði þvi, hverjir væru taldir skáld á tslandi og hverjir ekki. ETT yann sjálfur Klippari sagði frá þessu i Þjóðviljanum og spurði nánar út i þetta merkilega menningar- samsæri, en fékk að sjálfsögðu engin svör. Aftur á móti urðu Morgunblaðsmenn reiðir og skrifuðu leiðarastúf um Þórar- in og sögðu á þá leið, að Þórar- inn gripi til þess að veifa framan i landsmenn menn- ingarsamsæri ihalds og rauðliða vegna þeirrar vondu samvisku, sem hann hefði af þvi sjálfur að leiða komma til áhrifa á öðrum sviðum. Skeyti til Matthíasar Jæja. Þórarinn gat náttúrlega ekki tekið þessu þegjandi. Skrif- aði hann á laugardaginn leiðara i blað sitt, þar sem hann eins og reyndi að verða við áskorun um að nefna ákveðin dæmi af Sam- særinu mikla gegn Jónasi stýri- manni og bræðrum hans. Hann nefndi að visu engin nöfn. En hann sá svo um að allir máttu skilja sem vildu. Inntak leiðar- ans var i stuttu máli á þessa leið: Einu sinni skrifaði Matthias Johannessen ritstjóri leikrit sem var sýnt i Þjóðleikhúsinu. Þá, segir Timaritstjórinn kom „harðsnúinn hópur sem vill beygja skáld og rithöfunda til ákveðins forms og átrúnaðar i skáldskap og öðrum listum” og skaut leikritið i kaf með harðri gagnrýni Og svo gerðist, segir Þórarinn, svofelld harmsaga: „Svo þungt féll þetta hinum unga leikritahöfundi að hann ávirðingar aðrar i forystugrein- um sinum, enn siður að hann færi að telja lesendum sinum trú um slikar ávirðingar, þegar hann trúir þeim ekki sjálfur, en þarf samt af einhverjum ástæðum á þeim að halda i póli- tisku ströggli sinu — og þá svifst hann einskis. Eða hver trúir þvi, að kommúnistar hafi barið mig til ásta vegna óláta út af einu leikriti eftir mig fyrir mörgum árum? Ég hef skrifað önnur leikrit, sem litil eða engin læti hafa orðið út af og tel rétt að láta öðrum eftir leikhúsin i bili. Þar er löng biðröð. Eða hver trúir þvi, að ég hafi orðið svo hræddur við marxistana að ég hafi nánast hætt að skrifa?” Og svo kemur aftur itrekun á fyrra stefi: það eru ekki við Morgunblaðsmenn sem erum i samsærí við kommanna heldur þiöTimamenn. Eða eins og þar segir: „Við (ritstjórar Morgun- blaðsins) höfum reynt að benda á, að þeir sem nú eiga samstarf við kommúnista bæði i rikis- stjórn og borgarstjórn Reykja- vikur hljóti fremur að teljast til samsærismanna en við”. Af hverju Don Quijote? Ýmislegt fleira hefur Matthias um málið að segja, sem vonlegt er. Það er þó undarlegt, að hann skuli undir lok greinarinnar og i fyrirsögn spyrða saman þá Þórarin Timaritstjóra og Don Quijote, sem barðist við vindmyllurnar og hélt sig vera að leggja risa að velli. Likingin er kannski freist- andi — en þýðingarmeira þó að gleyma þvi ekki, að Don Quijote er einhver göfugust persóna i heimsbókmenntunum og passar þvi illa inn i þá framhaldssögu sem nú var rakin. •a ast allir við — allar útskýringar eru þeim ekki annað en stað- festing á þvi, að viðkomandi gangi með vonda samvísku! Eða þá að hann sé svo afskap- lega slóttugur við að afvopna þá sem á varðbergi sitja gegn véla- brögðum andskotans. (Likt þvi og Guðmundur H. Garðarsson telur að sósialistar skjóti i sundur áróður og sjálfshól Sovétmanna til þess eins að gera veg þeirra meiri!). Nei, sá sem er á kafi i samsærissúp- unni, mun ekki ljós sjá, það er margreynt. Þjóöarballett En svo eru lika til þeir sem veifa samsærum öðru hvoru, án þess að trúa á þau sjálfir. Þeim er þetta allt partur af hinum pólitiska leik. I þeim efnum er fyrir löngu upp komin föst hlut- verkaskipan, sem mótaðist þegar á árum Nýsköpunar- stjórnarinnar. Borgaralegur flokkur vill fá sósialista með i rikisstjórn — ekki af neinum kærleikum, vitaskuld, heldur til að auðvelda sambúð sina við verkalýðshreyfinguna. Sá flokkur til hægri eða i miðju, sem ekki er með i sliku stjórnarsamstarfi, hann rekur upp stórar rokur: það er verið að leiða kommúnista til áhrifa, lýðræðið er i hættu! En mun að sjálfsögðu ganga til samstarfs við sósialistaflokkinn sjálfur siðar meir, ef honum þurfa þykir. Og sá sem þá er i stjórnarandstöðu mun taka upp kommúnistaspangólið eins og ekkert hefði i skorist. Og svo koll af kolli. Með öðrum orðum, góðir hálsar: andi yðar skelfist ekki. Þetta er allt saman partur af hinum islenska þjóðarballett þar sem viss háski er fastur liður i listrænum áhrifabrögð- um. > _^áb skorrið

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.