Þjóðviljinn - 19.02.1981, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 19.02.1981, Qupperneq 5
Fimmtudagur 19. febrúar 1981. ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 5 Svört bók um bandarísk fjárlög: s Helmingur af því sem hann tekur af þutfandi fólki fer beint í herinn Ronald Reagan hefur messað yfir þjóð sinni í sjónvarpi/ stunið þungan yfir „mestu efnahags- öngþveiti síðan í krepp- unni miklu"/ yfir hnign- andi gengi þess dollara- seðils sem hann handlék á skerminum æfðum leik- aratilburðum/ og yfir alltof háum útgjöldum rikisins. Reagan er< eins og menn vita/ harðákveð- inn í því/ að reyna að hressa við efnahagslífið með því að lækka skatta í áföngum og þar með ýmisleg útgjöld. Enn vita menn ekki hvernig sparnaðartillögur Reagans munu endanlega lita út. En menn hafa nú þegar milli hand- anna Svarta bók, sem fjárlaga- nefnd hefur sett saman, og hefur að gevma miög róttækar áætlanir. Aðalhöfundur þessara tillagna er David Stockman, sem hefur tekið að sér að stýra fjármálunum fyrir Reagan i anda seðlahyggjunnar svo- nefndu. Er það meira en ómaks vert að skoða hvað það er sem hin nýja stjórn ætlar einkum að spara á næstu árum. Samkvæmt Svörtu bókinni ætlar stjórn Reagans að draga úr útgjöldum til annarra þarfa en hernaðarfegra um 14—15 miljarða á þeim mánuðum sem eftir eru af fjárlagaárinu 1981. Næsta ár á að skera niður um 40—50 miljarða og enn meira á þarnæsta fjárlagaári. Fátæklingar og atvinnuleysingjar Megininntak þeirra tillagna sem David Stockman og hans starfshópar hafa smiðað fyrir Reagan er blátt áfram fólgið i niðurskurði á „félagsmálapökk- unum”. Til dæmis að taka á að þrengja möguleika þurfandi á að fá „matarmiða” opinbera fyrirgreiðslu til kaupa á matvælum) um 2,6 miljaröa dollara á næsta ári. Það á að draga úr útgjöldum til niður- greiðslu á mat á dagvistarstofn- unum og skólum um 25% og spara þar með miljarð dollara. Þá á að draga úr greiðslum rikisins á lækniskostnaði fátæk- linga og spara strax á þessu ári 100 miljónir dollara, einn milj- arð á næsta ári — og væntanlega allt að ellefu miljarða þegar komið er fram á árið 1985. Stokman vill einnig draga úr atvinnuleysisbótum. Það verður gert m.a. með þvi að hætta greiðslum sem gera einstökum rikjum mögulegt að greiða at- vinnuleysisbætur lengur en 26 vikur. Um leið á að hæta við svonefnda CETA-áætlun, en henni er ætlað að koma i störf á vegum hins opinhera mönnum sem lengi hafa verið atvinnu- lausir. Með þvi móti heföu sparast nær fjórir miljarðar dollara árið 1982. Hætt viö orkunýjungar Aðstoð við framleiðslu á Reagan leikur sér að dollaraseðli. Stockman er aöalhöfundur niðurskurðartillagnanna. nýjum orkugjöfum og við út- flutningsiðnað verður dregin saman um sem svarar sex milj- orðum dollara á næsta ári. Til að mynda verður hætt við fimm áætlanir sem stjórnin hefur stutt, sem miða að þvi að fram- leiða nýjar tegundir eldsneytis, t.d. oliu úr oliumenguðu bergi. Ennfremur verða skornir niður A hverju ætlar Reagan að spara? þeir sjóðir sem eiga að auðvelda Innflutnings- og útflutnings- bankanum að greiða fyrir sölu á bandariskum varningi erlendis (t.d. á þotum frá Boeing). Þá verður dregið mjög úr hagkvæmum lánum til bænda og annarra dreifbýlismanna og rafveitur i sveitum munu ekki lengur hafa aðgang að ódýrum rikislánum. Menning og öryrkjar Umhverfisverndarmenn fá sitt kjaftshögg: skornir verða niður verulega styrkir til vinnslu úr úrgangi ýmisskonar. Og eins og að likum lætur verður menningin fyrir barðinu á skærum hægrimanna: fram- lög til lista og mennta verða minnkuð um helming, meðal annars verður dregið úr fram- lögum til flutnings á sjónvarps- efni sem á að vera farvegur fyrir fræðslu og menntir umfram það sem venjulegt aug- lýsingasjónvarp bandariskt annast. Smám saman verða lagðir niður námsstyrkir til barna verkamanna, sem eru á eftirlaunum, eru örkumla eða látnir. 1 þvi sambandi mætti einnig minna á, að dregið verður úr greiðslum til öryrkja — á að spara 600 miljonir dollara á þeim á næsta ári en alls 5,4 miljarða á kjörtimabili Reagans. Gullöld hjá hernum En eins og Reagan forseti hefur tekið fram, þá munu út- gjöld rikisins ekki dragast saman að sama skapi og félags- legri þjónustu mun hraka i landinu. Verðbólgan mun gera sitt til að halda uppi útgjöldum — en þó einkum hernaðarút- gjöldin. Búist er við þvi, að hinn nýi og herskái varnarmálaráð- herra, Caspar Weinberger, muni leggja til, og Reagan fyrir sitt leyti samþykkja, að á fjár- lagaárinu 1982 verði 220 milj- örðum dollara varið til hersins. Það er 24 miljörðum meira en Carter hafði lagt til og 55 miljörðum meira en Pentagon hefur úr að spila á yfirstandandi fjárlagaári. Þar með hefði i einni svipan verið étinn upp helmingur af þeim peningum, sem Reagan vill helst spara á atvinnuleysingjum, öldruðum og börnum fátækrahverfanna. —áb Mikill ágreiningur enn um fisk- veiðistefnu Efnahags- bandalagsins Þýskur togari: i þessari lotu var mest deilt um fiskveiðisamkomulag við Kanada ' ■ '-W * pöi ] r áfram Þjóðverjar veiða þorsk við Grœnland A fundi sjávarútvegsráðherra Efnahagsbandalagslanda i fyrri viku var samþykkt að leyfa þýskum togurum að halda áfram að veiða þorsk viö Austur-Græn- land fram til 10. mars. Einnig var samið um skiptingu rækjukvóta við Grænland. Aö öðru leyti mis- heppnuðust tilraunir ráðherranna til að ná ná samstöðu um fisk- veiðistefnu Efnahagshandalangs- ins. Samkomulagið felur það i sér, að þeir vesturþýskir togarar sem hafa verið á veiðum við Austur- Grænland geta veitt á næstu vikum 2000 smálestir af þorski til viðbótar þeim afla sem þeir höfðu áður fengið leyfi Dana til að veiða, þrátt fyrir mótmæli græn- lensku landstjórnarinnar. Rækjukvóti aukinn Sjávarútvegsráðherra Dana, Karl Hjörtnæs, gekkst inn á þessa tilslökun við Vestur-Þjóðverja eftir að honum haföi meö nokkrum erfiðismunum tekist að fá rækjukvótann við Grænland hækkaðan i 30 þúsund lestir i ár. Upphaflega hafði verið áformað, að ekki væri ráðlegt að leyfa nema i mesta lagi 28 þúsund lestir við Grænland, og grænlenska landsstjórnin hafði þegar gefið út veiðileyfi til grænlenskra fiski- manna fyrir 27 þús lestum. Með þvi að þoka kvótanum upp verður dönskum fiskimönnum svo leyft að veiða 1000 smálestir af rækju við Vestur-Grænland, norð- mönnum 1000 lestir, færeyingum 600 og frökkum 400. Þá lagði fyrr- greindur ráðherrafundur EBE blessun sina yfir það, að Græn- lendingar vilja leyfa sjálfum sér að veiða meira af laxi i sjó en áður, eða 1270 tonn á ári i stað 1190. Kanadasamningurinn Fundur ráðherranna ein- kenndist annars af djúpstæðu ósamkomulagi og ýfingum milli Josefs Ertls, sjávarútvegsráð- herra Vestur-Þýskalands og hins breska starfsbróður hans Peters Walkers. Walker haföi komið i veg fyrir aö samþykkt yrði á fundinum samkomulag viö Kanada, sem hefði m.a. gefið vestur-þýskum togurum mögu- leika á að veiða 10.000 lestir af þorski i kanadiskri landhelgi gegn vissum tollaivilnunum á innfluttum fiskafurðum frá Kanada til Efnahagsbandalags- ins. Breski ráðherrann haföi á fund- inum andmælt samkomulaginu viö Kanada á þeim grundvelli, að þaö gæti leitt til þess að breski markaðurinn fylltist af kana- dlskum flökum — en þróun nokkur hefur þegar orðið i þá átt, breskum fiskimönnum til sárrar gremju. Ég verð myrtur ef ég kem heim með slikan samning, sagöi Walker á fundinum i Brussel. Bremerhaven lokað Josef Ertl visaði i staöinn til erfiöleika vesturþýskra fiski- manna, sem hafa nú þegar hafið mótmælaaðgerðir gegn stefnu eða stefnuleysi Efnahagsbanda- lagsins i fiskveiðimálum. 1 fyrri viku stöðvuðu þeir danska og hollenska flutningabila sem voru á leiðinni með fisk til Bremer- haven og stöðvuðu löndun á fiski úr útlendum togurum þar i borg. Segjast þeir vera reiðubúnir til að halda lengi áfram slikum að- gerðum. Sem fyrr segir komust ráðherrarnir ekki aö samkomu- lagi, en ákváðu að gera enn eina tilraun tilað smiða sjávarútvegs- stefnu fyrir EBE i Brussel þann niunda mars. Ekki er búist við miklum árangri af þeim fundi. Vestur-Þjóðverjar eru taldir lik- legir til að tengja beint saman viðræður um fisveiöar og land- búnaðarstefnu EBE, sem þeir telja kostnaðarsamarifyrir sig en önnur aðildarriki EBE. áb tók saman.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.