Þjóðviljinn - 17.03.1981, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 17. mars 1981.
Jómfrúrœða Þórðar Skúlasonar á Alþingi:
Nauðsynleg þjónustustarf-
semi verði flutt heim í hérað
Leggur til ad á Hvammstanga verdi starfrækt
umboðsskrifstofa frá sýslumannsembættinu á Blönduósi
Þórður Skúlason sem
setið hefur á þingi sem
varamaður fyrir Ragn-
ar Arnalds flutti jómfrú-
ræðu sina sem þingmað-
ur i siðustu viku. Mælti
hann fyrir tillögu um
bætta þjónustu við ibúa
Vestur-Húnavatnssýslu.
Ræða Þórðar fer hér að
meginefni á eftir:
„Herra forseti. A þingskjali
473 leyfi ég mér aö flytja tillögu til
þingsályktunar um bætta opin-
bera þjónustu viö ibúa Vestur-
Húnavatnssýslu. Tillögugreinin
hljóöar svo meö leyfi hæstvirts
forseta:
„Alþingi ályktar aö fela rikis-
stjórninni aö vinna aö þvi aö á
Hvammstanga veröi starfrækt
umboösskrifstofa frá sýslu-
mannsembættinu á Blönduósi,
þar sem m.a. veröi skrifstofuhald
sýslusjóös og sjúkrasamlags
Vestur-Húnavatnssýslu, umboö
Tryggingastofnunar rikisins, inn-
heimta þinggjalda og veömála-
bækur.”
Skipting
Húnavatnssýslu
Ariö 1907 er Húnavatnssýslu
skipt i Austur- og Vestur-Húna-
vatnssýslu. Astæöa þeirrar skipt-
ingar hefur eflaust veriö sú aö
ibúunum og löggjafanum hefur
veriö ljóst aö landfræðilegar
ástæöur og miklar vegalengdir
kæmu i veg fyrir aö ibúar Húna-
vatnssýslu, óskptrar, gætu mynd-
aö eina félagslega heild. Þaö er
fyrir löngu ljóst, aö þessi skipting
Húnavatnssýslu i tvær sýslur var
skynsamleg ákvöröun og tekin á
réttum tima. Þaö er engin tilvilj-
un aö sýslunefndir Húnavatns-
sýslna hafa löngum veriö starfs-
samari og tekiö aö sér fleiri og
stærri verkefni heldur en aörar
sýslunefndir. En þaö er fyrst og
fremst þvi að þakka að sýslu-
skiptingin var á sinum tima löguð
aö héraöslegum þjónustusvæöum
og byggö upp i kringum verslun-
arstaöi.sem eru þannig i sveit
settir aö allir ibúar sýslnanna
eiga auövelt meö að sækja þang-
aö alla daglega þjónustu.
Hvammstangi er verslunar- og
þjónustumiðstöö Vestur-Húna-
vatnssýslu. Hann byrjar aö
byggjast um líkt leyti, eöa litlu
áöur en Húnavatnssýslu er skipt,
en áöur höföu ibúarnir sótt versl-
un um langan veg, ma. tilBlöndu-
óss'. og Borðeyrar. Þegar eftir
sýsluskiptin hófu ibúar sýslunn-
ar, bæöi i gegnum sýslunefnd og i
frjálsu félagsstarfi, uppbyggingu
verslunar og alhliða þjónustu á
Hvammstanga. Allar götur siöan
hefur sú þróun haldiö áfram.
A Hvammstanga er vöruhöfn
fyrirVestur-Húnavatnssýslu. Þar
er skipað upp þungavöru sem
dreifist um alla sýsluna, og þaðan
eru fluttar iandbúnaðar- og
sjávarafuröir. Kaupféiag Vestur-
Húnavatnssýslu rekur þar versl-
un og sláturhús og kjötvinnslu, og
mjólkursamlag, trésmiðju og
bakarí i samvinnu við aðra. Þar
er verslun Sigurðar Pálmasonar
h/f, gamalgróiö verslunarfyrir-
þingsjá
tæki er kaupir og selur afuröir
bænda úr sýslunni allri og rekur
sláturhús. Þar er bátaútgerö og
vinnsla sjávarafla fer þar ört
vaxandi. Allar stofnanir sýslu-
sjóös Vestur-Húnavatnssýslu eru
á Hvammstanga. Eins er þar
Sparisjóður Vestur-Húnavatns-
sýsluog Sjúkrahús
Hvammstanga, sem einnig er
elliheimili. Þar eru nú samtals
um 35 rúm og i tengslum við þaö
er rekin tveggja lækna heilsu-
gæslustöð. Þá eru flestir hreppar
sýslunnar nú aö byggja saman á
Hvammstanga átta ibúöir fyrir
aldraöa. Bæjarhreppuri Stranda-
sýslu er einnig aðili aö þessu
samstarfi, en Bæhreppingar hafa
um langan tima sótt læknisþjón-
ustu til Hvammstanga og verið i
Hvammstangalæknishéraði. Að
visu var Bæjarhreppur fluttur
undir Hólmavikurumdæmi sam-
kvæmt lögum um heilbrigöis-
Björgunarnet
Markúsar:
Alþingi
vill kanna
notagildi
þeirra
Alþingi samþykkti i siðustu
viku tillögu frá Helga Seljan um
aö skora á rikisstjórnina aö láta
kanna notagildi björgunarnets
Markúsar B. Þorgeirssonar
með það fyrir augum, að séu
þetta talin nauösynleg öryggis-
tæki, þá skuli um þaö sett
ákvæöi i reglugerö um öryggis-
mál, aö skip skuli búin þessum
netum svo og aö þau séu tiltæk á
hafnarsvæöum.
Þá gerir samþykktin ráö fyrir
aö leitaö veröi umsagnar hags-
munaaöila, svo sem Farmanna-
og f iskim annasam ban ds
‘fPg*
íslands,
tslands,
Sjómannasambands
Landssambands
útvegsmanna og farmskipaeig-
enda. —þ
Tillaga sjávarútvegsráöherra:
Skarkolaveiðar verði
leyfðar í Faxaflóa
Steingrímur Hermanns-
son mælti á miðvikudag
fyrir frumvarpi sem hann
flytur um leyfi til drag-
nótaveiða í Faxaflóa. Gert
er ráð fyrir að leyfið sé
bundið við veiðar á skar-
kola. Þá er gert ráð fyrir
að Hafrannsóknastofnunin
geri tillögutil ráðherra um
skipulag þeirra veiða m.a.
um aflamagn, veiðitíma,
veiðisvæði og f jölda veittra
leyfa.
Frumvarpiö er ekki flutt sem
stjórnarfrumvarp þar sem ekki
er samstaöa um þaö I rikisstjórn.
í umræöum um máliö lýsti dóms-
málaráöherra þeirri skoöun sinni
aö mörg og mikilvæg rök mæltu
gegn tillögu Steingrims.
Garðar Sigurðsson lýsti
stuöningi viö frumvarpiö og sagöi
mikilvægt aö breyta reglum til aö
stuöla aö aukinni veiöi á fiskiteg-
undum eins og kola er væri van-
nýttur. Matthias Bjarnason lýsti
einnig stuðningi viö frumvarpiö
nema aö þvi leyti aö hann taldi
ekki rétt aö Hafrannsóknastofnun
geröi tillögu um fjölda leyfa þvi
slikt ætti aö vera á vegum stjórn-
valda. —þ
þjónustu frá 1978. Þaö var gert aö
Bæhreppingum forspurðum, og i
algerri óþökk þeirra og þvi vil ég
beina til háttvirtra þingmanna aö
þessu þarf að breyta. A siðustu
árum hefur veriö komiö á fót lög-
gæslu og viðgeröarþjónustu fyrir
Sima og Rafmagnsveitu rikisins
sem þjónar sýslunni allri. Varla
þarf aö taka þaö fram að á
Hvammstanga er auövitað fyrir
hendi margskonar þjónusta önn-
ur sem ekki veröur talin upp
hér.
Þjónusta sýslumanns-
embættis ekki næg
Af þessu má fullljóst vera að
flestir sýslubúar eiga oft erindi til
Hvammstanga, og þangað vilja
þeir geta sótt sem viötækasta og
besta þjónustu. Þjónusta sýslu-
mannsembættisins er þess vegna
eina opinbera þjónustan sem
sýslubúar þurfa aö hafa greiöan
aögang að og ekki er fyrir hendi á
Hvammstanga. Dómsvald og lög-
gæsla er ekki nema hluti af þvi
starfi sem unnið er við sýslu-
mannsembættið. Ýmisskonar
skrifstofuhald annað er stór hluti
starfseminnar. Innheimta þing-
gjalda, sjúkratryggingagjalda,
söluskatts, launaskatts, bifreiða-
gjalda, kirkju- og kiÁjugarðs-
gjalda og fleiri gjalda fyrir rikis-
sjóö og aöra er einn þátturinn.
Skrifstofuhald sjúkrasamlags er
annað, umboðsstörf fyrir Trygg-
ingastofnun rikisins er sá þriöji.
Ýmiskonar skráningar eru einn-
ig veigamikill þáttur, þinglýsing-
ar, stimplun afsala og kaup-
samninga, útgáfa veöbókavott-
orða og fleira þess háttar. Allt er
þetta þjónusta sem þegnar lands-
ins þurfa að hafa sem greiðastan
aðgang að.
Greiður aögangur skattgreiö-
enda að innheimtustofnunum er
mikilvægur bæöi fyrir innheimtu-
menn og gjaldendur, m.a. vegna
ákvæða um álagningu dráttar-
vaxta. Greiö upplýsingamiðlun
eyöir lika óþarfa tortryggni og
misskilningi og stuölar ab betri
innheimtu. Ekki þarf að eyða
löngu máli i að útlista nauðsyn
þess að fólk hafi góöan aðgang að
skrifstofu sjúkrasamlags, sem
sér m.a. um ýmsar endurgreiðsl-
ur t.d. tannlækninga og sjúkra-
flutninga. Sama er að segja um
umboö Tryggingastotnunar
rikisins. Ég óttast hreint og beint
aö vegna erfiðleika á samskiptum
viö tryggingaumboöiö, þá leiti
fólk ekki bótaréttar sins. Við
skulum hafa þaö i huga að hér er
fyrst og fremst um fólk að ræða
sem gengur ekki heilt til skógar,
er óframfærið og á ekki gott með
aö afla sér upplýsinga. Forsvars-
menn sveitarfélaganna eiga lika
mikil viöskipti við sjúkrasamlag-
iö, m.a. vegna greiösluþátttöku
sveitarsjóöanna. Sama er aö
segja um sýslusjóð sem fjár-
magnaöur er meö áiögum á
sveitarsjóöina. Þá má geta þess
aö nær öllum fjármunum sjúkra-
samlags V-Húnavatnssýslu og
sýslusjóös er ráöstafaö i Vestur-
Húnavatnssýslu.
Húsnædi fyrir hendi
Alla þessa þjónustu þurfa ibúar
V-Húnavatnssýslu aö sækja til
sýslumannsembættisins á
Blönduósi. Hvammstangabúar
þurfa þá að aka 120 km., en þeir
sem lengst eiga aö sækja um 200
km. Þess er hins vegar skylt aö
geta, aö sýslumaöur hefur sýnt
góðan vilja til aö bæta þjónust-
una, þó innan þess ramma aö
skrifstofuhaldiö veröi áfram á
Blönduósi. Þannig kemur fulltrúi
hans oftast einn eftirmiðdag i
viku til Hvammstanga og er þá
meö viðtalstima. 1 flestum tilvik-
um er biöstofan viö afgreiðslu-
herbergi þeirra þéttsetin og þó
eru f jölmargir sem gefa sér ekki
tima til aö bíöa, heldur reyna aö
leysa mál sin eftir öörum leiöum.
Sýslusjóður V-Húnavatnssýslu
er nú að byggja 500—600 fermetra
Þdrður Skúiason
húsnæöi, þar sem m.a. er áætlaö
aö koma upp héraösbókasafni,
lögregluvaröstofu og fleira. Þaö
veröur þvi strax á þessu ári hús-
næðisaðstaða fyrir þá þjónustu-
starfsemi, sem viö ibúar V-Húna-
vatnssýslu viljum flytja inn I
sýsluna,og er húsið m.a. byggt
meö það fyrir augum. Auðveld-
asta og fljótvirkasta leiöin til úr-
bóta i þessu máli tel ég þess
vegna að sé sú, sem þingsálykt-
unartillagan gerir ráö fyrir, aö
umboðsskrifstofa frá sýslu-
mannsembættinu á Blönduósi
veröi starfrækt á Hvammstanga.
Loks skalá þaöbent, aö óliklegt
er, að umtalsverður kostnaðar-
auki hljótist af þvi aö koma skrif-
stofunni á fót á Hvammstanga.
Fyrst og fremst er um það að
ræöa aö flytja þjónustustarf-
semi, sem nú er unnin annars
staöar,heim I héraö til þeirra ibúa
sem hún á að þjóna. Sá kostnað-
arauki er a.m.k. smávægilegur
miðaö við þá hagkvæmni, er um-
boðsskrifstofan heföi I för með sér
fyrir ibiia V-Húnavatnssýslu og
ályktun þessi miðar aö”.
—Þ
Tryggð
réttar-
staða
fisk-
iðnaðar■
manna
Garðar Sigurðsson
formaður sjávarút
vegsnefndar neðri
deildar Alþingis mælti í
síðustu viku fyrir
nefndarálitum er varða
breytingar á lögum um
Fiskvinnsluskóla og
lögum um Framleiðslu-
eftirlit sjávaraf urða.
Garöar sagöi aö markmiö
lagabreytinganna væri aö
tryggja réttarstööu fisk-
iðnaðarmann*, er þeir hafa
lokiö prófi frá Fiskvinnslu-
skólanum, og setja skýrari
ákvæði um lokapróf, verklegt
próf, svo og starfsþjálfun aö
prófi loknu. Jafnframt sé meö
breytingunum stefnt aö þvi aö
afmarka betur en nú er gert
filutverk Fiskvinnsluskólans
og Framleiðslueftirlitsins
varöandi námskeiöahald fyrir
matsmenn svo og endur-
menntun þeirra.
..Neöri deild Alþingis hefur
nú samþykkt breytingarnar
og er máliö komiö til umfjöll-
unar efri deildar.
—Þ-