Þjóðviljinn - 20.03.1981, Síða 5
Föstudagur 20. mars 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
18% Vestur-Þjóðvetja
vilja fá Hitler aftur
Hatur á Gydingum, útlendingum, menntamönnum og þingræði
Nýnasistar í Vestur-
Þýskalandi haf a lengst af
verið afgreiddir í um-
ræðu með því, að þar
færu fámennir hópar fá-
ráðlinga, sem lítil hætta
stafaði af. Nú hefur hins-
vegar komið fram, að
næstum því fimmti hver
þegn ríkissins hefur
sterkar taugar til Hitlers-
tímanna og 13% kjósenda
hafa mjög öfgakennd
hægrisjónarmið— svo að
nýfasismi hefur sannar-
lega af nógum orkulind-
um að ausa.
Athugun þessi var gerð að
frumkvæði kanslaraembættis-
ins og stóð í eitt ár. Niður-
stöðurnar þóttu það iskyggileg-
ar að Helmut Schmidt hefur
haldið skýrslu um athugun
þessa leyndri mánuðum saman.
Það var svo hið þekkta vikurit
Spiegel sem komst yfir hana og
upplýsti m.a. að 18% vestur-
þýskra kjósenda teldi að það
hefði verið betra að lifa undír
alræði Hitlers en nú. 13% kjós-
enda aðhylltist ótvirætt ýmis
þau sjónarmið sem eru talin
einkenna „öfgamenn til hægri”'
t.a.m. eru þeir gyðingahatarar
og vilja helst að sterkur „leið-
togi” sé yfir þeim. Um það bil
helmingur þessa fólks mælir
með pólitiskum hermdarverk-
um — og ætti það út af fyrir sig
. að auðvelda skilning á þvi að
ofbeldisverkum nýnasiskra
sveita hefur fjölgað verulega i
landinu á seinni misserum.
Hafa ekkert lært
Það er huggun harmi gegn, að
aðeins um f jögur prósent yngstu
kjósenda sem eru á aldrinum
18—21 árs hafa hin nýnasisku
sjónarmið. En þeim mun út-
breiddari eru þau i efri aldurs-
flokkum, einkum hjá fólki sem
komiðeryfir fimmtugt. Með þvi
að það er einmitt þetta fólk sem
man Hitlerstimann af eigin
raun, sýnist hér komin enn ein
staðfesting á þvi, að fólk lærir
ekki af sögunni. Hinn dæmigerði
„nýnasisti” er einmitt kominn
yfir fimmtugt, mestar likur eru
á þvi að hann eigi heima i smá-
bæ, sem hefur 2000—5000 ibúa og
þá i landinu sunnanverðu.
Stríðið Bandamönnum að
kennai
Rannsóknin sýnir ennfremur,
að þetta hægralið lætur sér gyð-
ingaofsóknir Hitlers i léttu rúmi
liggja, og margir eru sjálfir
gyðingahatarar. Þessu fólki
þykir litið til vestur-þýska hers-
ins koma og telja hann litils
virði i samanburði við her
Hitlers. Þeim finnst áð stjórn
Vestur-Þýskalands sé ekki ann-
að en leikbrúða i höndum sigur-
vegaranna i heimsstyrjöldinni
siðari. Það fylgir sögunni, að
hægrimenn þessir telja að það
hafi.einmitt veriö Bandamenn
t nýnasistahópunum sjálfum er mest ungt fólk, en meira en nóg er af foreldrum til að hvisla þeim orð i
eyra...
Meira en tiundi hver maður ját-
ar á sig gyðingahatur. Aletrun á
götuhorni i Köln: Burt með
Gyðinga.
sem neyddu Hitler til að fara i
strið: það sýnir að annaðhvort
er uppfræðslu i sögu gifurlega
ábótavant i landinu eða þá að
hér sannast enn að menn heyra
alls ekki þær staðreyndir sem
menn vilja ekki heyra af þvi að
þær trufla þá veruleikamynd
sem þeir hafa gert sér.
Allt er „hinum" að kenna
Þessir fjölmörgu aðdáendur
Hitlers vilja að Vestur-Þýska-
land eignist „einn sterkan
flokk” sem geti tekið til bæna
hið „óvirka þing”. Þeir telja að
það fyrsta sem ný og sterk þýsk
stjórn eigi að gera sé að henda i
fangelsi fjórum af hverjum
fimm blaðamönnum og
menntamönnum!
Þetta hægralið vill einnig visa
úr landi farandverkamönnum,
sem þeir telja stórhættulega
þýsku þjóðerni.
Ofan á allan fjandskap við
málfrelsi, þingræði, vinstri-
menn hverskonar og mennta-
menn, eru hinir nýju nasistar
afar gramir út i Bandarikja-
menn, sem þeir telja að hafi
drekkt hefðbundnum verðmæt-
um Þýskalands i „kókakóla-
heimsvaldastefnu og eiturlyfj-
um .
áb tók saman
A skiltinu stendur: „Mönnum er ráðið frá þvi að baða sig á milli brimbrjóta 41 og 42, en þar er leitt fram
úrgangsvatn. Það er hreinsað og undir eftirliti yfirvalda, en við teljum samt það sé betra að fara I sjóinn
annarsstaðar. Með vinarkveðju. Cheminova h.f....” Þarna fannst kvikasilfur í fiski og kræklingi.
Mengun í dönskum fiskafurðum
Fiskveiðibann
var ekki sett
á fyrr en út-
flutningurinn
var í hættu
Fyrir viku var í breska
útvarpinu BBC varað við
dönskum fiski: sjávarút-
vegsráðuneytið hafði jafn-
vel krafist innf lutnings-
banns vegna kvikasilfurs-
eitrunar í fiski sem veiðst
hafði vestast í Limafirði
og í Norðursjónum út af
Harboeyrartanga. Danska
stjórnin brá við skjótt og
bannað fiskveiðar á þessu
svæði og hefur miklar
áhyggjur af því að tíðindi
þessi spilli mjög fyrir orðs-
tfr danskra f iskafurða.
Fyrir þrem árum varð nokkur
hvellur út af eitrun frá verk-
smiðju sem Cheminova heitir og
liggur á tanga þessum. Þaðan
hafði efni sem nefnist ethyl-
parathoin siast út i sjó og fannst
það i hundruðum dauðra fugla á
ströndinni. A sömu slóðum fund-
ust og uppbelgdir dauðir fiskar.
En einhvernveginn var málinu
eytt með þeim hætti að ekki þótti
alveg vist hvaðan eiturefnin
kæmu og kom ekki til neinna ráð-
stafana af hálfu yfirvalda.
Sinnuleysi.
Það hefur heldur ekki til þessa
haft nein áhrif, að fiskimenn þar
um slóðir hafa vitað af þvi að
eitthvað af úrgangsefnum frá
verksmiðjunni hefur siast út i sjó
og liffræðinemar við Árósa-
háskóla (en háskólinn er reyndar
eigandi Cheminova) sendu fyrir
tveim árum kæru á fyrirtækið til
lögregluyfirvalda.
Það er ekki fyrr en sex miljarða
króna gjaldeyristekjur af út-
flutningi fisks frá Danmörku
eru i húfi, eftir að bresk
rannsóknarstofa finnur háskalegt
magn af kvikasilfri i Limafjarð-
arfiski, að eitthvað er gert. Tals-
maður fiskimanna i Thyborön,
Kaj Rosenkvist, hefur sagt i
blaðaviðtali, að fiskimenn hafi
kvartað við umhverfisverndarráð
og ráðuneyti yfir háskalegu um-
burðarlyndi við efnaverksmiðj-
una, en það hafi ekki borið árang-
ur.
Hver á aö borga?
Erik Holst umhverfismálaráð-
herra hefur látið i ljós þá skoðun
að það sé ekki óeðlilegt að rikið
taki þátt i þeim kostnaði sem nú
verður af þvi að hreinsa upp eftir
efnaverksmiðjuna — á þeim for-
sendum að úrgangsgryfjur henn-
ar séu „syndir fortiöarinnar” frá
þeim timum þegar ýmis ákvæði
gegn mengun voru ekki enn i gildi
gengin. En talað er um að sótt
verði um 25 miljónir króna til rik-
. isins til að kosta brottflutning eit-
urefna frá svæðinu. Ráðherrann
visar sök á þvi, að ekki var brugð-
ist við kvörtunum sem fyrr komu
fram yfir eitri frá Cheminova, til
staðaryfirvalda, en það sé þeirra
hlutverk að meta háskann.
Fiskveiðibanniö mun að sögn
ekki koma hart niður á fiski-
mönnum i Thyboön, þvi að niu ti-
undu hluta afla sins sæki þeir
miklu lengra út á Norðursjó.
(Skv. Information)
Verkbann
sett á
danska
prentara
Danskir blaðaútgefendur hafa
itrekað ákvörðun sina um að efna
til verkbanns á um 7000 prentara
og stöðvast þar með útgú dag-
blaða annarra en nokkurra
vinstri blaða.
Er þetta gert vegna þess að
prentarar hafa hafnað mála-
miðlunartillögu. Vilja blaðaút-
gefendur og atvinnurekendasam-
bandið berýnilega sýna prent
urum i tvo heima til þess að aðrir
viti hverju þeir eigi von á, ef þeir
haldi sér ekki innan dansks
kreppuramma i launamálum.
Blaðaútgefendur ætla að reyna
i fyrstu að senda annað starfsfólk
blaða og prentsmiðja heim á at-
vinnuleysisstyrki ( sem eru
greiddir af rikinu að mestu), en
siðan er liklegt að einnig þetta
fólk lendi i verkbanninu beinlinis.
Blaðamenn eiga einnig i launa-
deilum við útgefendur, en til
þeirra kasta kemur nokkru siðar
— prentaraverkbannið gæti hins-
vegar skollið á strax þann fyrsta
april.
t Þakka innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför mannsins mins Brynjólfs önfjörð Steinssonar Hulda Steinþórsdóttir