Þjóðviljinn - 20.03.1981, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 20.03.1981, Blaðsíða 10
1« SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. mars 1981. SVÆÐISFUNDUR Kaupfélögin á Suðurlandi halda svæðis- fund með stjómarformanni og forstjóra Sambandsins í félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli, laugardaginn 21. mars 1981 kl. 13.00 — 20.00. Fundarefni: 1. Viðfangsefni Sambandsins. Frummælandi: Erlendur Einarsson, for- stjóri. 2. Samvinna kaupfélaganna og tengsl við Sambandið. Frummælandi: Oddur Sigurbergsson kaupfélagsstjóri. 3. Stefnuskrá samvinnuhreyfingarinnar. Frummælandi: Valur Amþórsson, stjórnar- formaður Sambandsins. 4. Tengsl félagsmanna við kaupfélögin. Frummælandi: Einar Þorsteinsson ráðu- nautur. 5. Önnur mál — almennar umræður. Félagsmenn kaupfélaganna eru hvattir til að koma á fundinn. Kaupfélag Ámesinga Kaupfélag Rangæinga Kaupfélag Skaftfellinga Kaupfélag Vestmannaeyja V erslunarmannaf élag Suðurnesja Allsherj aratkvæðagreiðsla Stjórn og trúnaöarmannaráð Verslunar- mannafélags Suðurnesja hafa ákveðið að viðhaía allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir starfsárið 1981. Framboðslistum sé skilað til formanns kjörstjórnar Matta Ó. Ásbjörnssonar Hringbraut 95 Keflavik eigi siðar en kl. 24.00 mánudaginn 23. mars 1981. Kjörstjórn. T æknif r æðingur' - byggingarfulltrúi Starf tæknifræðings hjá Hveragerðis- hreppi er laus til umsóknar. Starfar einnig sem byggingarfulltrúi. Laun samkvæmt 25. launaflokki BSRB. Umsóknarfrestur er til 28. mars. Nánari upplýsingar hjá undirrituðum á skrifstofu hreppsins, simi 99-4150. Sveitarstjóri Hveragerðishrepps HSHSK mami Frá ráðstefnu á vegum Fræðsluráðs Reykjavíkur Séð yfir ráðstefnusalinn I Hagaskóla. Ljósm. —eik. Ánægjuleg þróun félags- og tómstunda- starfs í grunnskólum Ráðstefnu um félags- og tóm- stundastörf i grunnskólum Reykjavikur lauk á föstudaginn var, en fyrrihluti hennar stóö yfir dagana 7. og 8. mars. Þátttakend- ur voru skólastjórnendur, um- sjónarmenn með félags- og tóm- stundastarfi iskólunum, fulltrúar foreldrafélaga, fulltrúar i F"ræðsluráði og Æskulýðsráði, starfsmenn Fræösluskrifstofu Reykjavikur og fleiri sérfróöir aðilar. Ráðstcfna var haldin á vegum Fræðsluráðs en undirbún- |ng önnuðust starfsmenn ■’ræðsluskrifstofunnar. A ráðstefnunni kom fram ein- dreginn vilji fyrir því að félags- og tómstundastarf i grunnskólum borgarinnar yrði eflt, og margir lýstu yfir ánægju með þá þróun sem á sér stað á þessum vett- vangi. Einnig virtist það vera samróma álit þátttakenda að skólarnir ættu að fá að móta starfið sem mest i samræmi við óskirog áhuga sem vart yrði inn- an þeirra og hjá foreldrum — reglur um lengd og tiðni skemmt- ana og ferðalaga yrðu að vera sveigjanlegar. Skiptar skoðanir voru um að hvaða marki ætti að samræma stjórnun og aðgerðir á vegum Fræðsluráðs og Æskulýðsráðs, sem gengst fyrir margs konar tómstundastarfi fyrir nemendur í 7—9 bekk. Ávegum Fræðsluráðs hefur hins vegar einkum verið veitt fé til starfs fyrir yngri börn- in, þ.á m. svokallaðs „opins húss”þar sem foreldrareru með. Tæplega helmingur þess fjár, sem varið er til félags- og tóm- stundastarfs i grunnskólum Reykjavikur i ár, kemur hins vegar úr rikissjóði i samræmi við ákvæði reglugerðar um félags- störf og félagsmálafræðslu. A ráðstefnunnikom fram áhugi á að félags- og tómstundastarf tengdist sem best hinu almenna skólastarfi en ekki náðist að ræða að neinu ráði um vænlegar leiðir i þáátt. Almennugildi þessa starfs var hins vegar lýst á ljósan hátt i framsöguræðu sem Arnfinnur Jónsson, skólastjóri, flutti á fyrsta degi ráðstefnunnar: ,,Það þroskar nemendur og býr þá und- ir ýmis störf i lifinu, s.s. í ýmsum samtökum, t.d. launþegasamtök- Ingi Kristinsson, skólastjóri, greinir frá umræðum i hóp sem fjallaði um félags- og tómstunda- starf fyrir börn og ungiinga. um. Það auðveldar nemendum siðar að nýta sér á jákvæðan hátt sifellt auknar tömstundir — sam- hliða styttum vinnutima. Það bætir andannf skólanum, en þá er lika skilyrði að samstarf takist milli nemenda og kennara og skólastjórnar og gagnkvæmur skilningur riki milli sömu aðila. Þátttaka kennara i félagsstarfinu getur auðveldað þeim m jög önnur samskipti og annað samstarf við nemendurna i hinu venjulega skólastarfi.” Skiptar skoðanir komu fram á ráðstefnunni um skemmtanahald i skólunum um helgar. Sumir skólamenn töldu lltinn áhuga á því að aðrir álitu að það gæti komið niður á fjölskyldutengsl- um. Samstarfsnefnd Fræðsluráðs og Æskulýðsráðs um tómstunda- og félagsmál i' grunnskólum borg- arinnar hefur hins vegar lagt til „að opið hús og dansskemmtanir verði á föstudaga og laugardags- kvöldum.” Að öðru leyti kom fram eindreginn áhugi á að nýta húsnæði skólanna sem best fyrir hvers konar félagsstarf og skemmtanahald. I því sambandi var bent á nauðsyn þess að mótuð yrði skýrari stefna af hálfú borgaryfirvalda um það hvort halda ætti áfram byggingu sjálf- stæðra félags- og tómstundamið- stöðva I hverfunum eða nýta skólahúsnæði enn frekar en nú er gert. Reynir Karlsson, æskulýðs- fulltrúi rikisins, lýsti þvi yfir sið- asta dag ráðstefnunnar, að þar væru til umræðu þrir jákvæðir þættir sem hann hefði litið orðið var við að ræddir væru annars staðar á landinu: Aukin þátttaka foreldra, frumkvæði og ábyrgð nemenda og starfsemi i skólunum um helgar. Sigurður Tómasson, varafor- maður Fræðsluráðs, sleit ráð- stefnunni og sagði m.a.: „ — að i Fræðsluráði og meðal Reykvik- inga almennt væri mikill áhugi á eflingu félags- og tómstunda- starfs i skólum, bæði til þess að styrkja tengsl foreldra og barna við skólann og laga hann að aukn- um samfélagslegum kröfum”. Astæða væri til að minnast þess sérstaklega að fulltrúar foreldra- félaga hefðu tekið þátt í ráðstefn- unni. Að lokum þakkaði Sigurður ráðstefnustjóra, starfsmönnum Fræðsluskrifstofu Reykjavi'kur, framsögumönnum, hópstjórum og öllum þeim sem lögðu sitt til að ráðstefnan mætti takast jafn vel og raun varð á. Skýrsla verður gefinút um ráð- stefnuna og er ætlunin að leggja hana til grundvallar frekari um- ræðum um þessi mál. H.B. Stjórnandi ráöstefnunnar, Haraldur Finnsson yfirkennari, og ritararnir: Gunnar örn Jónsson, kennari og Karl Kafnsson, kennari.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.