Þjóðviljinn - 20.03.1981, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. mars 1981.
Sparisjóður vélstjóra
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Sparisjóðs vélstjóra verður
haldinn að Borgartúni 18, laugardaginn
21. mars n.k. kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lögð fram tillaga um breytingu á 14. gr.
samþykkta fyrir Sparisjóð vélstjóra.
Aðgöngumiðar að fundinum verða af-
hentir ábyrgðarmönnum eða umboðs-
mönnum þeirra föstudaginn 20. mars i af-
greiðslu sparisjóðsins að Borgartúni 18, og
við innganginn.
Stjórnin.
V eðura thugunarmenn
á Hveravöllum
Veðurstofa íslands óskar að ráða tvo
einstaklinga, hjón eða einhleypinga, til
veðurathugana á Hveravöllum á Kili.
Starfsmennirnir verða ráðnir til árs-
dvalar, sem væntanlega hefst i lok júli-
mánaðar 1981. Umsækjendur þurfa að
vera heilsuhraustir og reglusamir, og
nauðsynlegt er, að a.m.k. annar þeirra
kunni nokkur skil á meðferð véla. Tekið
skal fram, að starfið krefst góðrar at-
hyglisgáfu, nákvæmni og samviskusemi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um
aldur, heilsufar, menntun, fyrri störf og
meðmælum, ef fyrir hendi eru, skulu hafa
borist Veðurstofunni fyrir 15. april n.k.
Allar nánari upplýsingar gefur deildar-
stjóri áhaldadeildar Veðurstofunnar,
Bústaðavegi 9, Reykjavik.
,, Lausar stöður heilsugæslu-
M læknis og tryggingalæknis
Lausar eru til umsóknar tvær læknis-
stöður:
1) . Staða læknis við heilsugæslustöð i
Borgarspitalanum, Reykjavik. Æskilegt
er að umsækjendur hafi sérfræðiviður-
kenningu eða reynslu i heimilislækning-
um.
Um laun fer skv. launakerfi rikisstarfs-
manna.
2) . Staða tryggingalæknis við Trygg-
ingastofnun rikisins. Æskilegt er að
umsækjendur hafi sérfræðiviðurkenningu
eða langa starfsreynslu.
Um laun fer skv. samningi Læknafélags
Reykjavikur fyrir sérfræðinga.
Stöðurnar veitast frá og með 1. júni n.k.
Umsóknir ásamt upplýsingum um læknis-
menntun og læknisstörf sendist ráðuneyt-
inu fyrir 20. april n.k.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
19. mars 1981.
• Blikkiðjan
Asgarði 7, Garöabæ
Onnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboð
SIMI 53468
Finnbogi Hermannsson, varaþingmaöur Framsóknar:
Staðfestir tilvist
^ynisamkomulags’ ’
Segir að ekki sé hœgt að taka
ákvarðanir um framkvœmdir á Kefla
víkurflugvelli, nema með samþykki
allra aðila stjórnarsamstarfsins
A fundi neðri deild&r i gær las
Sighvatur Björgvinsson upp um-
mæli sem hann haföi eftir Finn-
boga Hermannssyni varaþing-
manni Famsóknarflokksins á
Vestfjörðum en þar segir Finn-
bogi að fyrir hendi sé samkomu-
lag n)illi stjórnarliða um að engar
meiriháttar ákvarðanir verði
teknar i rikisstjórn nema með
samþykki allra aðila stjórnar-
samstarfsins. Sighvatur haföi
þessi ummæli eftir Finnboga i
simtali viö hann á miðvikudag, en
svipuð ummæli haföi Finnbogi
viðhaft i Dagblaðinu sama dag.
Sighvatur Björgvinsson óskaði
eftir þvi aö fá að ræða þetta mál
utan dagskrár i gær og beina
ákveðnum spurningum um málið
til Steingrims Hermannssonar
formanns Framsóknarflokksins.
Sverrir Hermannsson forseti
neðri deildar sagöi að hann hefði
rætt þetta við Steingrim Her-
mannsson og hefði Steingrimur
bent á að þetta mál hefði fengið
nægilega umræðu utan dagskrár
á Alþingi. Sagðist Sverrir hafa
metið þessi rök sjávarútvegsráð-
herra gild og þvi væri það hans á
kvörðun að heimila ekki umræðu
um málið utan dagskrár nú.
Hér á eftir fara ummæli Finn-
boga Hermannssonar i sima við
Sighvat Björgvinsson á miöviku-
dag. Finnbogi hefur staðfest þessi
ummæli:
„Frétt Dagblaðsins um sam-
komulag stjórnarflokkanna hefur
verið lesin fyrir mig. Ég staðfesti,
að allt, sem þar er eftir mér haft,
er rétt eftir haft.
Ástæðan fyrir þvi, að ég skýrði
frá samkomulaginu sem gert var
milli oddvita hinna þriggja aðila
rikisstjórnarsamstarfsins er sú
að ég tel fyrirhugaðar fram-
kvæmdir á Keflavikurflugvelli
vera brot á þvi samkomulagi i
þeim anda, að enginn einn aðili
geti tekiö ákvörðun um slikt stór-
mál, sem ríkisstjórnin þarf öll um
að fjalla.
Ég tel ótvirætt, að Alþýðu-
bandalagið geti stöðvað þessar
Finnbogi Hermannsson vara-
þingmaður Framsóknarflokksins
á Vestfjörðum
framkvæmdir með tilvisun til
samkomulagsins um, að engar
meiriháttar ákvarðanir verði
teknar i rikisstjórninni nema með
samþykki allra aðila stjórnar-
samstarfsins með sama hætti og
ég tel að aðrir aðilar samstarfsins
geti með sama hætti stöðvað
ákvarðanir, sem þeir eru á móti
og telja vera meiriháttar, með
visan til þessa samkomulags.”
—Þ
Tillaga 10 þingmanna um veðurfregnir í átvarpi:
Verði á 3 tíma frestí
allan sólarhringinn
Tiu þingmenn úr öllum flokkum
hafa lagt fram á Alþingi tillögu
þar sem skorað er á samgöngu-
ráðherra að beita sér fyrir þvi að
veðurfregnir i útvarpi veröi
jafnan byggðar á nýjustu upplýs-
ingum Veðurstofunnar og útvarp
þeirra verði með jöfnu millibili á
þriggja klukkustunda fresti allan
sólarhringinn og oftar ef sér-
stakar aðvörunar er þörf. Skal
stefnt að þvi, að þetta komi til
framkvæmda i nóvember næst-
komandi.
1 greinargerð meö tillögunni
segja flutningsmenn að nú séu
stórar eyður á landgrunni Islands
hvað varðar veðurathuganir.
Bent er á tvo möguleika til
lausnar. Annars vegar að koma
fyrir svokölluðum rekbaujum
suðvestur af landinu. Sjálfvirkur
búnaður baujunnar sendi út
veðurfregnir sinar sem fjar-
skiptaþjónusta Veðurstofunnar
gæti tekið við um gervihnött. Hins
vegar er bent á þann möguleika
aö öll skip verði skylduð til aö
senda inn veðurlýsingu jafnhliða
tilkynningaskyldu.
Flutningsmenn tillögunnar eru
Pétur Sigurðsson, Alexander
Stefánsson, Jósep H. Þorgeirs-
son, Karvel Pálmason, Skúli
Alexandersson, Tryggvi
Gunnarsson, Stefán Jónsson,
Lárus Jónsson, Salome Þorkels-
dóttir og Jóhann Einvarðsson.
—Þ
Nýr Norðurlandasamningur um félagslegt öryggi:
Énginn mætti á fund!
Svavar Gestsson félagsmála-
ráðherra mælti á fimmtudag fyr-
ir frumvarpi um staöfestingu á
nýjum Norðurlandasamningi um
félagslegt öryggi, en Svavar
undirritaöi þennan samning fyrir
Islands hönd á fundi Norður-
landaráös 5. mars s.1.,1 framsögu
Svavars kom fram að svo sjálf-
sögð þættu nú öll ákvæði um fé-
lagslegt öryggi á Norðurlöndum
að slikt efni væri ekki lengur talið
fréttnæmt. Þannig heföi utan-
rikisráðherra Dana boðaö til
blaðamannafundar vegna undir-
rituiíar samningsins en enginn
blaöamaður eða ljósmyndari
hefði mætt.
I máli félagsmálaráðherra kom
fram aö nýmæli er i hinum nýja
samningi að tekin eru af öll tvi-
mæli um það að hann skuli taka
til tryggingagjalda ekki siður en
tryggingabóta.
Óvissa i þessu efni hef-
ur á liðnum árum valdið þvi að
i sumum tilvikum hfur ýmist átt
sér stað tvigreiðsla gjalda eða
gjaldfrelsi. Enn fremur eru i
samningnum ákvæöi um greiöslu
feröakostnaðar manna, sem
veikjast eða slasast á ferðalögum
á Noröurlöndum utan heimalands
sins, en lausn þessa máls hefur
um langt skeið veriö meðal
áhugamála Norðurlandaráös.
Loks má nefna ákvæði um að
biðtimi annars staðar á Norður-
löndum nýtist þegar úrskurö skal
um rétt til viðbótarliíeyris, þ.e.
lifeyris úr lifeyrissjóði.
Gert er ráð fyrir að islenska lif-
eyrissjóöakerfið falli undir hinn
nýja samning og tengist þannig
allsherjar lifeyrissjóðum eða
allsherjar kerfi lifeyrissjóða
hinna samningslandanna. Af þvi
leiðir að varðveist getur réttur,
sem ella mundi glatast, þegar um
er að ræða starf um skamman
tima utan heimalands, og enn
Framhald á bls. 13
HM
W LAUSSTAÐA
Staða forstöðumanns félagsmiðstöðvar i
Árbæjarhverfi er laus til umsóknar.
Laun skv. kjarasamningi borgarstarfs-
manna.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif-
stofu Æskulýðsráðs Reykjavikur, Fri-
kirkjuvegi 11, og þar eru jafnframt veittar
nánari upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 15. april 1981.
Æskulýðsráð Reykjavikur.
Simi 15937.