Þjóðviljinn - 20.03.1981, Síða 11
Föstudagur 20. mars 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Yfir 5 þús.
meðlimir
lón Diðriks
íþróftamaður
Borgarfiarð-
ar 1980
A siðasta ársþingi UMSB, sem
haldið var i síðasta mánuði, var
Jón Diðriksson kjörinn „iþrótta-
maður Borgarfjarðar 1980.” og
hlaut hann veglegan farandgrip
og silfurdisk til staðfestingar
sæmdarheitinu. Jón vann mörg
frækileg afrek á hlaupabrautinni
á síðasta ári og keppti m.a. fyrir
islands höndá oiympiuleikunum i
Moskvu.
1 næstu sætum i kjörinu urðu
Einar Vilhjálmsson, Ragnhildur
Sigurðardóttir, iris Grönfeldt og
Gunnar Jónsson, allt iþróttafólk i
fremstu röð héríendis.
.. -,n8H
Dómara-
námskeið
Dómaranámskeiö verður
haldið i Haukahúsinu Hafnarfirði
21. og 22. mars. Leiðbeinandi
verður Kristbjörn Albertsson.
• •
Lands-
flokkagbma
Landsflokkaglima verður háð i
iþróttahúsi Kennaraháskólans
næstkomandi sunnudag og hefst
hún kl 14. Fjórir flokkar munu
mæta til leiks.
í UMSK
Ungmennasamband Kjalarnes-
þings, UMSK, hélt fyrir skömmu
ársþing sitt. Þar kom m.a. fram,
að fjöldi félaga i sambandinu er
13 með yfir 5 þús. skráða með-
iimi.
A ársþinginu var samþykkt
ályktun þar sem mótmælt er
mjög ákveðið þeirri hugmynd, að
skerða þann tima sem sjónvarpið
ver i iþróttaefni.
••
Ljómamót 1A
Ljóma-badmintonmótið sem
haldið er árlega á Akranesi i
meistaraflokki karla og kvenna
fer fram sunnudaginn 22. mars kl.
12.00 árdegis.
Mótið fer fram i iþróttahúsinu
við Vesturgötu og kemur allt
besta badmintonfólk landsins
til keppninnar.
• •
Jón Diðriksson, lengst t.v. (416), i
800 m hlaupiá olympíuleikunum i
Moskvu.
Nokkrir þátttakenda i Biáfjallagöngunni 1980.
Einn leikur verður i fallkeppni
j 1. deildar handboltans i kvöld.
Fram og Haukar leika og hefst
viðureignin kl. 20. i iþróttahúsinu
v/Strandgötu i Hafnarfirði.
Með sigri i kvöld geta Hauk-
arnir endanlega tryggt stöðu sina
i 1. deildinni. Sigri Fram eða
verði jafntefli má segja, að allt
verði áfram opið i báða enda.
Haukar eru með 3 stig, KR með 2
stig og Fram er með 1 stig.
Staðan i fallkeppninni er nú
þessi:
Haukar 2110 43:42 3
KR 2020 37:37 2
Fram 2011 39:40 1
Stefán Jónsson
verður örugglega i
fuilri ferð með
Haukunum i kvöid
og vist er að hann
mun ekki láta sitt
eftir liggja i slag-
num.
Ur einu
í annað
íþróttir /1 íþróttirb- íþróttir
L J I Umsión: Ingólfur Hannesson. V J
Umsjón: Ingólfur Hannesson.
/
„Tittlingaskíturiiin”
var litlar 7 miljónir
Júlíus Hafstein, formaður HSÍ, talar út um ráðningamál Jóhanns Inga
Gunnarssonar í viðtali við Iþróttablaðið
■ -£g hafna svona
sögusögnum alfarið”
i viðtali Ingva Hrafns Jónssonar við formann HSI, Július i
íþróttablaðinu er komið inná hin svokölluðu „agabrot” í B-keppn-
inni í Frakklandi. Þar gerir Július hreint fyrir sinum dyrum:
,,Þú heldur þvi fram, að frá
þvi að þið hélduð utan 19.
febrúar og þar til að þið lékuð
siðasta leikinn 28. febrúar,
hafi ekki verið um vinneyslu
að ræða hjá leikmönnum?
— Okkur sem stóðum að
ferðinni er ekki kunnugt um
það, og ekkert bendir til að
svona hafi verið. Ég hafna
svona sögusögnum alfarið.
— Tölum ekki bara ekki um
vinneyslu leikmanna, en þeir
fóru i bjórinn?
— Ekki er mér kunnugt um
það.
— Það var sem sagt engum
leikmanni refsað eða hann
settur út úr liðinu vegna
neyslu áfengra drykkja, víns
eða bjórs?
— Nei.
— Fullyrðir þú fyrir hönd
HSt að um slíkt hafi ekki verið
að ræða?
— Að sjálfsögðu fullyrði ég
það, meðan ég veit ekki ann-
að.
— Ég veit, að þaö kom fyrir
oftar en einu sinni, að leik-
menn laumuðust út og laum-
uðust heim undir morgun?
— Það er ekki rétt að það
hafi komið fyrir oftar en einu
sinni og að þeir hafi komið
heim undir morgun er heldur
ekki rétt. Þetta vandamál sem
ég var að tala um var á þá
leið, að nokkrir leikmenn fóru
i gönguferð seint um kvöld og
komu flestir fljótlega heim, en
þeim siðasta mætti ég sjálfur
klukkan hálffjögur.
— Kallar þú ekki hálffjögur
um nótt, rétt fyrir leik, að
koma heim undir morgun?
— Jú vissulega, enda voru
þeir er siðast komu heim ekki
meö i leiknum um kvöldið.
— Sást þú vin á þessum
manni?
— Nei.
— Nú veit ég að eitt sinn er
þú varst að fara á veitingahús
með fréttamönnunum sem
fylgdu liðinu, til þess að rabba
við þá, að þá voru tveir leik-
menn þar fyrir, en þeim var
gert viðvart og þeir flýttu sér
út um bakdyrnar?
— Já, þetta er rétt, en hverj-
ir gerðu þeim viðvart og hvers
vegna? Og hver er ástæðan
fyrir þvi að formanni HSl var
ekki sagt frá þessu?..
— — ... Það eru til gamlar
sögur af ævintýralegum ferð-
um islenskra iþróttamanna og
það er einu sinni svo, að menn
halda lengst á lofti gömlum
sögum. Ég get aðeins sagt, að
við hjá HSl höfum ekki þurft
að hafa áhyggjur af þessu
undanfarin ár. Ég er að mörgu
leyti sammála Hilmari um
það, að ef við treystum þess-
um mönnum til að koma fram
fyrir tslands hönd i heims-
meistarakeppninni þá hljótum
við að treysta þeim persónu-
lega.
— Hversu stór hópur átti
þátt i þessu agabroti, sem þú
kallar svo?
— Það voru sex menn.
— Þriðjungur landsliðsins?
— Já.
— Attu þessi agabrot þátt i
útreiðinni sem við fengum?
— Nei, mér er alveg sama
hversu hátt menn hrópa um
það, ég visa þvi algerlega á
bug.
— Ef við þá ljúkum þessum
kapitula og göngum út frá þvi
að aðeins hafi verið um sak-
laust og vinlaust agabrot að
ræða...
— Ég sagði aldrei að aga-
brot væru saklaus.”
Bláfjallaganga 1981
Laugardaginn 11. apríl, kl. 2
eftir hádegi hefst almennings-
ganga á skiðum. (Ef veður
leyfir). Gengið verður frá Blá-
fjöllum til Hveradala um
Þrengsli. Þetta er um 16 km. leið
og létt ganga. Mikill hluti leiðar-
innar er undanhald.
Þátttaka er öllum heimil oe til-
kynnist skrifstofu Skiðafélags
Reýkjavikur að Amtmannsstig 2,
föstudaginn 10. april kl. 18-21, i
allra siðasta lagi kl. 12, laugardag
við Bláfjallaskála. Þátttökugjald
er kr. 70.- og greiðist á innritunar-
stað. Þeir sem þess óska geta
fengiðhressingu á leiðinni og eins
er framreidd heit súpa og drykkir
á áfangastaö og er það innifalið i
þátttökugjaldinu.
Talsverður hvellur varð i heimi
handboltamanna s.I. sumar, þeg-
ar Ijóst var að Jóhann Ingi Gunn-
arsson yrði ekki ráðinn sem
landsliðsþjáifari fyrir keppnis-
timabilið sem nú er senn á enda.
Menn deildi þá mjög á um það
hverjar launakröfur Jóhann hefði
gert og hve stóran þátt þær áttu i
þvi að honum var hafnað.
1 siðasta hefti Iþróttablaðsins
gerir Július Hafstein, formaður
HSl, grein fyrir sjónarmiðum
sins sambands i fjörlegu viðtaii:
Fer litill hluti þess hér á eftir:
„Eftir keppnina i Danmörku
var mörkuð sú stefna að ráða einn
þjálfara til að sjá um liðið næstu
fjögur ár og var Jóhann Ingi
Gunnarsson ráðinn. Siðan gerist
það i sumar vegna ágreining um
laun, sem sumir vilja halda fram
að hafi verið tittlingaskitur að
hann hættir og Hilmar tekur við?
— Það væri gleðilegt að þeir
Framhald á bls. 13
V íðavangshlaupi
Islands frestað
Þar sem mikill klaki og snjór er
enn yfir öllum túnum hefur verið
ákveðið að fresta Viðavangs-
hlaupi íslands sem vera átti á
Selfossi n.k. laugardag til sunnu-
dagsins 12. april. Þær þátttökutil-
kynningar sem nú þegar hafa
verið sendar inn gilda áfram en
tekið verður við nýjum fram til 6.
april.
Alafosshlaup Umf. Afturelci-
ingarsem vera átti 11. april hefur
verið fært fram i staðinn og
verður það haldið n.k. laugardag
21. mars og hefst kl. 14:30. Keppt
verður i þremur flokkum karla og
kvenna, þ.e. fædd 1968 og siðar,
fædd 1965-67 og fædd 1964 og
fyrr. Keppendur mæti við iþrótta-
húsið að Varmá til skráningar
Fram og Haukar
leika í kvöld
eigi siðar en kl. 14 sama dag og
verður þeim ekið að upphafsstað
hlaupsins. Aætlunarbifreið fer frá
Umferöarmiðstöðinni kl. 13:15 og
frá Hlemmi nokkrum minútum
siðar. Nánari upplýsingar um
.ílaupið gefur Jóhann S. Björns-
;son, simi 66377.