Þjóðviljinn - 20.03.1981, Qupperneq 15
Föstudagur 20. mars 1981. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 15
Hringið i sima 81333 k1. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum
Konur sem
gagn-
rýnendur!
Hvernig er það með lesendur
bjóðviljans,eru þeir alveg stein-
hættir að nenna að stinga niður
penna til þess að halda uppi ein-
hverri umræöu i þessu blaði
okkar, sem vissulega mætti
vera hressilegra? Ég er til
dæmis mjög hissa á þvi að eng-
inn (sérstaklega kvenkynsvera)
skuli hafa látið orð frá sér
heyra um leikritið KONA eftir
þau Darió Fo og France Rame.
Að minum dómi er þar á ferð
leikverk sem gefur færi á um-
ræðum, sérstaklega eftir
slappan og áhugalausan dóm
Sverris Hólmarssonar i Þjóð-
viljanum löngu eftir frumsýn-
ingu Alþýðuleikhússins.
Það kemur svo greinilega
fram að leikdómendur, fleiri en
Sverrir, hafa litinn áhuga og
skilning á leikverkum sem
fjalla um konur. Við fáum að
heyra að vonandi sé þetta nú
ekki svona slæmt hér, það sem
sagt er eigi við italiu (Mbl),
verkið sé skemmtilegt, en, en,
en. Ég er orðin þreytt á þvi að
lesa alltaf dóma eftir karlmenn
hvort sem um er að ræða kvik-
myndir, leikrit eða ballett. Ég
er svo oft ósammála. Það er
hægt að túlka list á marg-
vislegan hátt og fólk sér mis-
munandi hluti út úr verkum. Og
konur oft annað en karlar.
Ég vil beina þeim eindregnu
tilmælum til Þjóðviljans að
hann fái konu til aö skrifa á móti
Sverri (ekki það að Sverrir er
oft mjög góöur), en það er ekki
hægt að ætla einum manni aö
sinna öllum leiksýningum og
það þrengir sjónarhornið meira
en svo að við kvensur ættum að
sætta okkur við það. Hvað segja
aðrir lesendur um þetta? Er
ekki kominn timi til að fá fjöl-
breyttari skrif um listir, af
hverju láta lesendur ekki frá sér
heyra? Eigið þið kannski flest
eftir að sjá konurnar þrjár i A1
þýðuleihúsinu? Kemur slíkt
verk okkur ekki við, höfum við
ekki allar sömu sögu að segja?
Katrín
frá
Stendur til bóta
Guðrún Agústsdóttir stjórnar-
formaður Strætisvagna Reykja-
vikur hafði samband við
Lesendadálkinn vegna kvart-
ana Systu úr Skipasundi i blað-
inu á miðvikudag yfir að enginn
strætisvagn gegni frá skipti-
stöðinni á Hlemmi að Land-
spitalanum, þar sem hún vinnur
auk fjölmargra annarra, auk
þess sem fjöldi borgarbúa á
þangað erindi oft á ári.
— Þetta er hárrétt hjá kon-
unni, sagði Guðrún, þarna er
slæmt gat i kerfinu þar sem
alveg vantar tengsl milli
Hlemms og spitalans. Hins-
vegar vildi ég gjarnan að það
kæmi fram, að góðar strætis-
vagnasamgöngur eru á milli
hinna fjölmörgu hverfa i Arbæ
og Breiðholti og Landspitalans
ogennfremur, að endurskoðun á
kerfinu öllu er að hefjast sam-
kvæmt samþykktstjórnar SVR i
desember sl. og verða þá
vonandi bætt slik göt hjá okkur
ekki siður en þeim i Kópavog-
inum.
lesendum
Hvar eru
gulrætumar
tólf?
Aumingja Kalli kanína
hefur falið gulræturnar
sínar svo vandlega að
hann getur ekki fundið
þær. Geturðu hjálpað
honum að leita og fundið
12 gulrætur í myndinni?
í>
Spaug
Mamma: — ,,Soffía, þú
mátt ekki verða reið og
átt ekki að segja Ijótt. Þú
ættir að tem ja þér að gef a
mýkri svör."
Þegar litli bróðir Soffíu
tók næst upp á því að
stríða henni og angra
hana stundu síðar,
kreppti Soffía litla hnef-
ann sinn framan í hann
og sagði: „Drulla".
Barnahornid
Söknuður um sumar
I kvöld er er bandarisk sjto-
varpsmynd á dagskrá kl.
22.30. Myndin ber heitiö Sökn-
uður um sumar og er gerð á
árinu 1973. A árunum siðari
heimstyrjaldarinnar er hjóna-
band konu að nafni Ellen
Hailey að fara i vaskinn, en
hún á bágt með að viðurkenna
það. Hún vill ekki skilja við
mann sinn en fer þess i stað i
orlof ásamt 15 ára gamalli
«sQ«. Sjónvarp
Ty kl. 22.30
dóttur sinni, og vonast til að á
eftir renni upp i hjónabandinu
betri tið með blóm i haga.
Aðalhlutverkin eru i höndum
Barböru Bain, Kay Lenz og
Michael Moriarty, en þýöandi
er Kristmann Eiðsson.
Hver verður biskup?
Þeir hafa þegar valið sér
kandidatana til biskupsfram-
boðs, fréttamenn sjónvarps-
ins, og ræöir ólafur Sigurös-
son i Fréttaspegli kl. 21.20 í
kvöld við þá þrjá sem honum
þykja liklcgastir: Séra Arn-
grím Jónsson Háteigspresta-
kalli, séra Ólaf Skúlason Bú-
staðaprestakalli og séra Pétur
Sigurgeirsson Akureyrar-
prestakalli.
Þá verða tekin fyrir fram-
tiðarbyggingasvæði Reykja-
vikur, en gert er ráð fyrir
hörðum deilum i borgarráöi i
dag um þær tillögur sem fyrir
liggja. Sigurður Harðarson
formaður skipulagsnefndar
borgarinnarogDavið Oddsson
borgarfulltrúi þræta um þetta
i kvöld.
Leiguflug er ofarlega á
baugi og mun Björn Jónsson
hjá flugmálastjórn útskýra
reglur þaraðlútandi og þeir
Eysteinn Helgason fram-
kvæmdastjóri Samvinnuferða
og Björn Theódórsson
ma rkaðsstjóri Flugleiða
skýra sin sjónarmið.
L Sjónvarp
kl. 21.20
Spánn og tran
Bogi Agústsson fréttamaöur
sér um erlenda hlið Frétta-
spegilsins og ætlar aö fjalla
um valdaránstilraunina á
Spáni nýlega, en komiö er i
ljós, að mun fleiri en i fyrstu
vartalið voru viðriðnir málið.
Verður sýnd fréttamynd úr
spánska þinginu.
Þá fjallar Bogi um ástand
og horfur i tran og valdabar-
áttuna þar, kemur einnig
smávegis inná styrjöldina við
Irak. 1 þessu sambandi verður
sýnt örstutt viðtal sem Magn-
ús Guðmundsson tók upp i
sambandi við Kvennaáratugs-
ráðstefnu SÞ i Kaupmanna-
höfn i sumar við hjúkrunar-
konu frá Iran, sem hafði frá
öðru að segja en hinir opin-
beru fulltrúar landsins á ráð-
stefnunni. — vh
Sveinn Skorri byrjar lesturinn Indriði Einarsson
i kvöld
Æviminningar Indriða
Einarssonar
t kvöld kl. 22.40 byrjar
Sveinn Skorri Höskuldsson
prófessor að lesa æviminn-
ingar Indriða Einarssonar,
,,Séð og lifaö”. Þetta verk
kom fyrst út árið 1936 og var
siðan endurútgefið árið 1972.
Indriði Einarsson fæddist
árið 1851 og lést 1939. Hann
lauk prófi i hagfræði frá Kaup-
mannahafnarháskóla og var
fyrsti háskólamenntaði Is-
lendingurinn i þeirri fræði-
grein. Hann starfaði sem hag-
fræðingur á Islandi m.a. i fjár-
máladeild stjómarráðsins frá
1904og annaðist útgáfu Lands-
hagsskýrslna 1882—1911 og
ritaðiallmikiðum hagfræöileg
efni. Hann var einn af for-
vigismönnum bindindishreyf-
•Útvarp
kl. 22.40
ingarinnar og var lengi stór-
templar.
Auk þess var Indriði einn af
fmmkvöðlum islenskrar leik-
ritunar. Kunnasta leikrit
hans. „Nýársnóttin”, var
frumsýnt árið 1871 af skóla-
piltum i Reykjavik. Hann lét
eftir sig allmikið af ritverkum
sem ekki hafa verið prentuð
m.a. þýðingar á 14 leikritum
eftir Shakespeare. Auk alls
þessa má geta þess að Indriði
var á sinum tima einn ötulasti
talsmaður fyrir stofnun Þjóð-
leikhúss á Islandi.