Þjóðviljinn - 07.04.1981, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 7. aprll 1981
KÆRLEIKSHEIMILIÐ
vidtalid
....og veistu hvað, amma? Pabbi og
mamma rifust alveg ferlega af þvi að....
Fljúg-
andi
spila-
víti?
Sumum hefur alltaf þótt það
áhættuspil að fljúga. Frá og
með júni nk. ætla Singapore
Arlines að gera það að áhættu-
spili i alvöru. Til að ná til sin
nýjum farþegum á leiðinni Los
Angeles-Tokyo-Singapore ætlar
SIA að koma fyrir peningaspila-
kössum i vélum sinum. Verði
viðtökurnar góðar ætlar flug-
félagið að búa allar flugvélar
sinar svipuðum tækjum.
Sá sem átti hugmyndina er
David Flexer, en hann hefur
eytt nærri fjórum árum i að full-
smiða létta spilakassa sem
ganga fyrir rafhlöðum og full-
nægja flugöryggisreglum. Nú
ætlar hann að hefja framleiðslu
slikra kassa, þúsund stykki á
þessu ári.
bettaerekki i fyrsta sinn sem
uppfinningamaðurinn Flexer
snýr séraðfluginu. 1959stofnaði
hann fyrirtækið Inflight Motion
Helgi
gegn
lesendum
Mikill fjöldi lesenda simaöi
fyrsta leik i skák sinni við
Helga ólafsson, til Þjóöviljans I
gær. Greinilegt var að lesendur
vilja tefla ýmsar fjölbreytilegar
byrjanir.eins og Sikileyjarvörn,
Franska vörn, Caro-icann, en
hlutskarpastur varð leikurinn
l....-e7-e5.
Helgi hefur þegar ákveöiö
sinn næsta leik sem er 2. Rgl-f3
'm- w %
yM ® “n* ■ I
mm ðf |114}ii!
i|| igMgg |
abcdefgh
Lesendur eiga þvl leikinn, og
geta hringt i sima 81333, milli kl.
9 og 18. Sá leikur sem flestar
tilnefningar fær er þá leikur
lesenda. Ath. breyttan
simatima.
Picture Co. sem setti fyrstu
kvikmyndasýningarvélarnar i
flugvélar. Áður en hann hætti
með það fyrirtæki höfðu 42 flug-
félög keypt útbúnað hans.
Sem stendur visa önnur flug-
félög en SIA hugmyndinni um
spilakassana á bug ýmist
hneyksluðeða sem grini. British
Airways segjast of heiðvirð til
þess arna og talsmaður Japan
Air Lines taldi hugmyndina
fáránlega. ,,Ef við færum út i
slikar öfgar — sem við ætlum
okkur ekki, — þá myndum við
mikiu frekar koma fyrir gamla,
japanska, heita baðinu.”
Eftir að Reagan var skotinn
hefur hann orðið næstum þvi
eins vinsæil f Bandarlkjunum og
hann var á kjördegi. Liklega
vinnur sá frambjóðandi næstu
forsetakosningar sem tryggir
sér eins og tvö banatilræði I
kosningaslagnum.
Rætt við Jóhann Óla
Hilmarsson fyrrum
eftirlitsmann
tjarnarinnar:
Sérþekking
á fuglum
látin lönd
og leið
Fyrir tæpum mánuði
ákvað borgarstjórn
Reykjavíkur að leggja
niður starf umsjónar-
manns Tjarnarinnar í
Reykjavík, en árum
saman hefur verið haft
fræðilegt eftirlit með
fuglunum þar, auk þess
sem hlúð hefur verið að
varpi. Jóhann óli
Hilmarsson, sjálfmennt-
aður f uglaf ræðingur,
hefur haft þetta starf
með höndum undanfarin
ár og var hann tekinn tal i
af þessu tilefni.
— Hvert var upphafið að
þessu umsjónarmannsstarfi?
Við getum sagt að byrjunin
hafi verið þegar fluttar voru
endur frá Mývatni á árunum
1956 og 1957. Þær voru væng-
stýföar og aldar á Tjörninni og
Jóhann óli Hilmarsson:
U ppbyggingastarfið i hættu
maður fenginn til að gæta
þeirra. Siðan urðu afkomendur
þeirra fleygir og sumir þeirra
ilentust sem varpfuglar á
svæðinu. Starf þess manns sem
sá um endurnar var lagt niður
1971 en siðan var það 1973 að
ráöinn var eftirlitsmaður á ný
að tilhlutan dr. Finns heitins
Guömundssonar, fuglafræðings.
Sá heitir Ólafur Karl Nielsen.
Þá var allt komið I niðurniðslu,
t.d. var krian hætt að verpa i
stóra hólmanum. ólafur starf-
aði við þetta þar til ég tók við.
Hann hafði nokkuð frjálsar
hendur viö að byggja upp starfið,
en dr. Finnur var honum mjög
innan handar, enda var honum
mikiö kappsmál aö vel væri hlúð
að fuglalifi Tjarnarinnar.
— t hverju hefur svo þitt starf
verið fólgið?
Á vorin þarf að hirða hólmana
og undirbiía varpið, lagfæra
skemmdir af völdum iss og þess
háttar. bá þarf að framkvæma
reglulegar talningar allt árið,
og skrá komu farfugla og verja
varpið fyrir vargfugli. Einnig
hef ég gert atferlisathuganir,
fylgst með flækingsfuglum og
séö um hreinsunarstörí og aðra
umhirðu.
Athuganirnar eru skráðar i
dagbækur, sem ég hef skilað til
garðyrkjustjóra sem umhirða
Tjarnarinnar heyrir undir og
einnig til Náttúrufræðistofnun-
ar.
Þá höfum við verið með ýms-
ar tilraunir i sambandi við
fjölgun tegund^t.d. voru s.l. vor
flutt húsandaregg frá Mývatni
og látin klekjast hér út, en
húsöndin er fastur gestur á
Tjörninni á sumrin eftir eggja-
flutninga 1977.
Vatnsmýrin er aðalvarpland
þeirra fugla sem halda sig við
Tjörnina, annarra en æðar-
fuglsins, sem verpir i hólmun-
um, en umhverfismálaráð hefur
nú ákveðið að friða varpland i
mýrinni.
Er þetta starf ekki forsenda
þess að fuglalifið við Tjörnina
haldist i horfinu?
JU, — ef enginn er til þess að
fylgjast með, gæti fuglalifið
hreinlega verið i hættu. Það má
i þvi sambandi gjarnan minna á
að 1973 voru krian og æöarfugl-
inn svo til horfinn af tjarnar-
svæðinu. Til að verjast
aðvffandi hættum þarf lika að
hafa glöggar upplýsingar um
fuglana, háttu þeirra og
viðbrögð, annars er hætta á að
varnaraðgerðir komi of seint
eða hafi ekki áhrif. Nú skilst
mér að garðyrkjustjóri ætli að
ráða mann i hálft starf við að
hreinsa rus^ en það er engin
trygging fyrir þvi að
viðkomandi hafi nokkra
þekkingu á fuglum. Þaö á þvi að
láta alla sérþekkingu lönd og
leitýog ég óttast aö öll uppbygg-
ingarstarfsemi sé i hættu ef
misvitrar skrifstofublækur hjá
borginni eiga aö ráða þessum
málum i einu og öllu.
— j
Jónas tekur lagið meö Hriseyjarkrökkunum — Mynd: Guðjón Björnsson.
Glatt á hjalla í Hrísey
Leikklúbburinn Krafla stóð
nýlega fyrir kynningu á verkum
Jónasar Arnasonar og var þar
bæði upplestur og söngur. Jónas
var sjálfur viðstaddur þessa
kynningu verka sinna og tók þá
m.a. þátt i almennum söng af
þessum smitandi lifskrafti sem
honum er svo eiginlegur.
Börn og unglingar fengu að
sækja lokaæfinguna og var þá
tekin meðfylgjandi mynd þar
sem Jónas syngur hraustlega i
glöðum hópi.
— G.Bj.
<
Q
O
CL,