Þjóðviljinn - 07.04.1981, Side 16
DJOÐVHMN
Þriðjudagur 7. april 1981
Aðalslmi Þjóftviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aöra starfsmenn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Helgarsími aigreiðslu 81663
81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aft ná i afgreiöslu blaðsins i sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Flugleiðir
hóta að
ráða
erlenda
flugmenn
í gær barst Þjóöviljanum
löng greinargerð frá Flug-
leiöum h.f. þar sem gerð er
grein fyrir afstöðu fyrir-
tækisins til kröfu flug-
manna um nýjan kjara-
samning sem hefur verið
laus síðan 1. feb. 1980 og
verkfallsboðunar FiA frá
og með 10. april nk.
í greinargerðinni segir
ma.:
Að óbreyttri afstöðu
F.I.A. til nauðsynlegrar
þjálfunar íslenskra flug-
manna til viðbótarstarfa
er augljóst að Flugleiðir
verða annað hvort að af-
sala slfkum nýjum verk-
efnum til annarra flug-
félaga, innlendra eða
erlendra, eða að öðrum
kosti ráða erlenda flug-
menn til starfa við þau.
Kristján Egilsson
formaður F(A sagði um
þessa hótun, að hún kæmi
sér ekki á óvart, þetta væri
svipað því, sem vænta
mætti frá þeim mönnum,
sem nú stjórna Flugleiðum
h.f.
— Fyrst brjóta þeir á
okkur allt það sem þeir
geta f skjóli þess að engir
kjarasamningar eru í gildi
og virða ekki einu sinni þá
hefð að láta eldri samn-
ingsákvæði gilda þar til
nýr samningur hefur verið
gerður, og þegar við erum
ekki tilbúnir til að kingja
þessu, þá er okkur hótað að
ráðnir verði erlendir flug-
menn. Þetta er eftir öðru
og það er ekki að ástæðu-
lausuað málefni Flugleiða
eru í því ástandi sem raun
ber vitni, sagði Kristján.
í morgun kl. 9 byrjaði sátta-
fundur hjá sáttasemjara i deil-
unni. Kristján Egilsson sagði þau
ummæli sem kæmu þarna fram i
opinberri greinargerð Flugleiða
auka sér bjartsýni á að sam-
komulag væri i nánd. S.dór
Fjögra ára
arengur
drukknaði
Þaft hörmulega slys varft
s! föstudag.aft 4ra ára gamall .
drengur, Hrafnkell Hjartar-
son frá Hænuvik drukknaði i
framræsluskurfti i örlygs-
höfn.
Var Hrafnkell heitinn gest-
komandi i örlygshöfn og var
aðleika sér með systkinum á
bænum sem eru 7 ára
drengur og 3ja ára stúlka og
var það hun sem sagði frá
slysinu.
ts sem var á framræslu-
skurðinum brast og féll
Hrafnkell niður um hann.
Eldri drengurinn reyndi að
bjarga honum, -en féll þá
einnig niður um isinn, en
faðir hans fann hann um 80
metrum fyrir neöan slys-
staðinn. Var hann þá meðvit-
undarlitill, en hresstist fljótt.
Leit að Hrafnkeli bar ekki
árangur fyrr en froskkafari
af varðskipi, sem statt var á
Patreksfirði, kom á staðinn
og kafaöi undir isinn-s.dór.
I------------------------------
1 gærmorgun var glatt a
hjalla i Menntaskólanum vift
Sund, þegar stúdentsefni ársins
heldu sina dimmission með til-
heyrandi ærslagangi og
skemmtilegheitum. Fyrst var
safnast saman fyrir utan skól-
ann, en að lokinni athöfn á
skólalóðinni var fariö inni sam-
komusal hans og kennarar
kvaddir aft gömlum sið. Fékk
þar hver þeirra sina umsögn
auk ýmiskonar uppá komu ann-
arar sem hver bekkur fyrir sig
stóft fyrir.
Eins og sjá má á þessum
myndum sem ljósmyndari
Þióðviljans —gel— tók i gær fór
einn bekkurinn i gervi blóðsuga
og heitaði blóð úr hálsi manna,
auk þess að gefa þeim blóð sem
vildu. A hinni myndinni er aftur
á móti kominn sænskur kór,
sem skálaði fyrir kennurum og
söng — Vem kan segla förutan
vind.
— S.dór
Fjölbrautaskólarnir í Breiðholti og á Akranesi
Verkfall kennara
í öldungadeildum
I gærkvöldi hófst verk-
fall kennara í öldunga-
deildum f jölbrautaskól-
anna í Breiðholti og Akra-
nesi. Ástæðan er tvíþætt
að sögn Matthíasar Frí-
mannssonar, trúnaðar-
manns kennara í Breið-
holti. Annars vegar van-
goldin laun kennara í öld-
ungadeildum og hins-
vegar ágreiningur um,
hvernig haga skuli greiðsl-
um fyrir kennslu i verk-
námsþáttum öldungadeild-
skyldi viðhöfð við öldungadeildir
fjölbrautaskólanna, nema að þvi
er snertir verknámsþættina þar
skyldu greidd aðeins einföld laun.
Forsendur launadeildar eru þær
að þessar greinar sé ekki unnt að
kenna éða nema i tvöfaldri yfir-
ferð. Kennarar telja hins vegar
að svo sé og vitna þvi til stuðnings
i umsagnir framkvæmdastjóra
iðnfræðsluráðs og samþykkt iðn-
þings frá 1979, auk eigin reynslu
og nemenda sinna. Telja kenn-
arar að hér sé verið að mismuna
námsgreinum og að jafnvel megi
hér greina undir niðri hið gamal-
gróná sjónarmið að verknám sé
bókpám inu ■ óæðra.
Þrátt fyrir áðurgreinda sam-
þykkt frá 3. mars hafa stunda-
kennarar i bóknámsgreinum ekki
enn fengið þær greiðslur sem
samið hefur verið um, heldur ein-
ungis einföld laun eins og um dag-
kennslu væri að ræða. Kennsla
hófst um siðustu áramót i öld-
ungadeildunum og er þvi um að
ræða umtalsverðar upphæðir sem
þeir eiga inni hjá rikinu. Vilja
þeir þvi leggja áherslu á að fá
þegar greidd útistandandi vinnu-
laun með þátttöku i verkfallinu og
jafnframt sýna samstöðu sina
með verkmenntakennurum.
— J.
anna.
Háskóladeilan:
Nýtt
tllboð
ríkisins
rætt á
fundi í
kvöld
Stúdentar í samúðar-
verkfalli í dag
A fundi sem Guftmundur
Magnússon, háskólarektor,
gekkst fyrir I gærmorgun meft
stundakennurum og fulltrúum
ráöuneytanna var lagt fram e.k.
tilboð frá rikinu sem almennur
fundur stundakennara tekur af-
stöðu til I kvöld.
A blaðamannafundi, sem stjórn
Félags stundakennara hélt i gær,
sagði Ólafur Jónsson, sem sætiá i
samninganefnd félagsins, að
stundakennarar væru rektor
þakklátir fyrir að reyna að greiða
fyrirsamningum. Tilboð rikisins,
sem stup.dakennarar vildu dtki
fjölyrða um á blaðamannafundin-
um, mun skv. heimildum
Þjóðviljans m.a. jafngilda vilyrði
um samningsrétt stundakennara
svo og gagngera endurskoðun á
stöðu stundakénnslu við Háskóla
Islands. Að öðru leyti mun tilboð-
ið taka til atriða sem áður hafa
komið fram munnlega á samn-
ingafundum þessara aðila.
Stjórnarmenn i Félagi stunda-
kennara sögðust i gær ekki hafa
haft tóm til að skoða tilboðið náið
og hefðu þeir þvi enga afstöðu
tekið til þess enn. Þá óskuðu
fulltrúar ráðuneytanna eftir þvi
að verkfalli yrði aflýst en hvorki
samninganefnd né stjórn hefur
umboð til þess. munu stunda-
kennararræða þá ósk á fundinum
i kvöld.
Undanfarna viku hefur kennslá
verið lömuð i mörgum deildum
Háskólans, ekki aðeins vegna
verkfalls stundakennara heldur
einnig vegna samúðarverkfalla
stúdenta, sem ekki hafa mætt i
tima hjá fastráðnum kennurum. I
dag, þriðjudag, hafa stúdentar
boðað allsherjarverkfall og var
súákvörðun staðfest á almennum
stúdentafundi sem haldinn var i
gær. Þar var einnig samþykkt
ályktun þar sem átalin er sú
•stefna yfirvalda að leysa aukna
kennsluþörf i H1 með siaukinni
stundakennslu og jafnframt skor-
að á stjórnvöld að ganga þegar til
samninga um sanngjarnar kröfur
stundakennara. Lágmarkskrafa
er að þeim sé búin viðunandi að-
staða, segir i ályktun stúdenta-
fundarins. Fundurinn var mjög
fjölsóttur en þar töluðu fulltrúar
stundakennara, háskólarektor og
aðstoðarmaður fjármálaráð-
herra.
- AÚ
Samkvæmt samningum kenn-
ara i bóknámsgreinum við öld-
ungadeildina i Hamrahlið fá
stundakennarar þar greidd tvoföld
laun miðað við stundakennslu i
dagskóíanum á þeirri forsendu að
yfirferð sé helmingi meiri i öld-
ungadeildinni en i dagskólanum
og þar af leiðandf 'mun meiri
undirbúningur fyrir hverja
kennslustund. Fastir kennarar
sem kenna fulla skyldu i dagskóla
en aukakennslu i öldungadeild fá
60% álag á þá kennslu i stað 30%
yfirvinnuálags við dagskólann.
Matthias sagði að á fundi með
fuUtrúum launadeildár þann 3.
mars s.l. hefði verið samþykkt að
sama tilhögun I launagreiðslum
Lóðaúmsóknirnar streymdu inn:
j „Eins og í ríklnu
i á Þoriáksmessnn
L
Gifurleg örtröft var á skrif-
stofu borgarverkfræftings i gær
en þá rann út frestur til aft skila
inn umsóknum um lóftir I
Reykjavlk. Margir þurftu aft fá
leiftbeiningar vift aft útfylla
eyftublöftin og aftrir vildu full-
vissa sig um aft ekkert vantafti á
umsóknina.
A þriðja þúsund umsóknar-
eyðublöð fóru út af skrifstofunni
og er það mun meira en nokkrú
sinni fyrr. Hins vegar verður
ekki ljóst fyrr en i dag hversu
margar umsóknir bárust. Eng-
inn timi vannst til þess að hafa
tölu á þeim i gærdag enda var
örtröðin ,,eins og i rikinu á Þor-
láksmessu” að sögn eins starfs-
manns borgarverkfræðings.
"J