Þjóðviljinn - 07.04.1981, Page 11
Þriðjudagur 7. april 1981 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 11
„Skagadúettiim”
með 7 Islandsmet
„Skagadúettinn”, Ingi Þór
Jonssnn og Ingólfur Gissurarson,
var heldur betur i sviðsljósinu á
tsiandsmeistaramótinu i sundi,
sem fram fór i Sundhöll
Reykjavikur um siðustu helgi.
Þeir félagarnir settu hvert
isiandsmetið á fætur öðru og
þegar upp var staðið lágu 6 met I
valnum og auk þess voru þeir i
sveit 1A, sem sló metið i 4x100 m
f jórsundi.
Ingi Þór setti 4 met. Hann synti
100 m baksund á 1:03,0 min, 50 m
Ingi Þör Jónsson og Ingólfur Gissurarson, Skagadúettinn, ræðast hér við á Sundmeistaramótinu. Þeir félagarnir voru atkvæðamiklir á mót-
baksund á 29.1 sek, 50 m flugsund
á 27.8 sek og 100 m skriðsund á
53,6 sek. Ingólfur setti 2 met.
Hann synti 100 m bringusund á
1:08,3 min og 400 m fjórsund á
4:43,2 min. Þá jafnaði hann 2 met
þegar hann syntiá 31.6 sek i 50 m
bringusundi og á 2:27,9 min i 200
m bringusundi. Auk þessa syntu
þer félagarnir i boðsundssveit ÍA,
sem setti tslandsmet i 4x100 m
fjórsundi á 4:19,5 min.
Guöriin Fema Ágústsdóttir,
Ægi, kom mikið við sögu á mót-
inu. Hún setti tvö tslandsmet i
bringusundi. Hún synti 100 m á
1:17,5 min og 50 m á 36,4 sek. Þar
sem Guðrún er aðeins 12 ára
gömul er hér einnig um að ræða
telpna- og stúlknamet. Guðrún
setti einnig telpnamet i 200 m
bringusundi á 2:49,2 min.
Katrin Sveinsdóttir, Ægi, var
einnig atkvæðamikil á mótinu.
Hún sigraði i 3 einstaklingsgrein-
um og var i boðsundssveitum
Ægis, sem sigruðu örugglega i
kvennaboðsundunum.
Þá féllu nokkur drengja- og
stúlknamet á mótinu og er þvi
sjáanlegt að við megum eiga von
á fleiri góðum afrekum sundfólks
á næstunni.
— IngH.
r---------------1
Olík hlutskipti
inu. — Mynd: — gel.
Fatlaðir
iðnir við
kolann
tsiandsmót fatiaðra Iþrótta-
manna var haidið um siðustu
helgi i tþróttamiðstöðinni i Vest-
mannaeyjum. Um 100 þátt-
takendur voru á mótinu, sem fór
mjög vel fram.
Þrjú ny Islandsmet i lyftingum
sáu dagsins ljós. Sigfús
Brynjólfsson lyfti 103 kg i 100 kg.
flokki og sömu þyngd lyfti Reynir
Kristófersson i 90 kg. flokki. Þá
setti Amór Pétursson met I 60 kg.
flokki þegar hann lyfti 127.5 kg.
— IngH
H.K. sigraði l.R. i siðasta leik
2. deildar i handknattleiknum
sem fram fór að Varmá i gær-
kvöldi, 18-15. Þar með er H.K.
búið að tryggja sér sæti i 1. deild
næsta vetur.
— IngH
Pétur Guðmundsson skoraði flest
stig islensku strákanna i gær-
kvöldi.
Stórsigur
Islenska körfuboltaiandsliðið
lék sér eins og köttur að mús i
gærkvöldi þegar liðið „malaði”
Walesbúa með 104 stigum gegn
65. tsland hafði yfirburöi á öiium
sviðum og áttu Walesbúarnir sér
aldrei viðreisnar von.
Reyndar var ekki ýkja mikill
munur á liðunum i fyrri hálfleik,
en i leikhléi var staðan 39—27
fyrir tsland.
Pétur Guðmundsson skoraði 25
stig fyrir tsland, Torfi 17, Krist-
ján 11 og Valur 10. — IngH
Þeir félagarnir, Halldór Guðbjörnsson, sem hér sést I keppni, og Bjarni
Friðriksson, náðu mjög góðum árangri á hollenska meistaramótinu I
júdó.
Glæsilegt
Evrópumet
KR-ingurinn Jón Páll Sigmars-
son setti nýtt Evrópumet i rétt-
stöðulyftu i 125 kg. flokki kraft-
lyftinga á innanfélagsmóti KR
siðastliðinn laugardag. Þá bætti
Sverrir Hjaltason, KR, met
Óskars Sigurpálssonar i rétt-
stöðulyftu i 100 kg flokki.
Jón Páll lét setja 342.5 kg á
stöngina i fyrstu tilraun, en það er
2.5 kg. meira en Evrópumet
Akureyringsins Arthurs Boga-
sonar var. Jón Páll átti ekki i
erfiðleikum með þá þyngd og lét
hann siðan bæta við 7,5 kg eða 350
kg. Upp fóru lóðin og þar með var
búið að bæta Evrópumetið um 10
kg.
Sverrir bætti met Öskars um
hvorki meira né minna en 20 kg,
hann fór upp með 320 kg, en metið
Óskars var 300 kg. — IngH
Vikmgur-Fram/Þróttur-HK
I gærdag var dregið um það
hvaða lið leika saman i undanúr-
slitum bikarkeppni HSI. Eftir-
talin lið leika saman:
Víkingur — Fram
Þróttur — HK
Þarna má búast við jöfnum og
spennandi leikjum. Framararnir
hafa unnið hvern sigurinn á fætur
öðrum upp á siðkastiðjögðu m.a.
Val að velli. HK sigraði KR i 8-
liða úrslitunum og ætti að geta
staðið i hinum harðskeyttu Þrótt-
urum.
Þessir leikir verða nk. fimmtu-
dagskvöld i Höllinni og hefst fyrri
viðureignin kl. 20 — IngH
Stórgóður árangur
B jarna og Halldórs
lslensku judómennirnir Haildór
Guðbjörnsson og Bjarni
Friðriksson náðu mjög góðum
árangri á Opna hollenska
meistaramótinu í júdó, sem
haldið var um siðustu helgi. Þeir
unnu báðir sinn riðil I undan-
keppninni með umtaisvcröum yf-
irburðum.
I Urslitakeppninni tapaði Bjarni
fyrir Hollendingi og var þar með
úr leik. Halldóri gekk öllu betur.
Hann komst i keppnina um 3.
sætið, en varð siðan að lúta i
lægra haldi fyrir Þjóðverja með
minnsta stigamun.
,,Ég tel árangur Halldórs og
Bjarna á mótinu geysilega góðan,
þvi þetta er sennilega sterkasta
opna judómótið I Evrópu. Til
dæmis er holllenska meistara-
mótið hið eina sem allar Austur-
Evrópuþjóðirnar taka þátt i,”
sgði formaður Judósambands
tslands, Eysteinn Þorvaldsson i
stuttu spjalli við Þjv. i gær.
— IngH
Jafntefli
Breiðabiik og IBK gerðu jafn-
tefli, 1-1, I Keflavik um siðustu
helgi. Leikurinn var i Litlu-bikar-
keppninni. _ In„H
Ólíkt er hlutskipti „tsiend-
ingaliðanna” i belgisku
knattspyrnunni um þessar
mundir. Standard tapar
hvcrjum leiknum á fætur
öðrum og nú siðast fyrir
Molenbeek, 0—2. A sama
tima reitir Lokeren inn
stigin, sigraði FC Brugge
3—1.
Anderlecht er i efsta sæti
með 47 stig, Beveren er með
38 stig og Lokeren hefur 36
stig.
Þjóðverjar
sigruðu Möltu
Austur-Þjóöverjar kræktu
i dýrmæt stig, 1 slagnum i 7.
riðli undankeppni HM i
knattspyrnu, siðastliðinn
laugardag þegar þeir sigr-
uðu Möltubúa, 2—1. Leikur-
inn fór fram á Möltu.
Tap hjá
Feyenoord
Lið Péturs Péturssonar,
Feyenoord, tapaði leik sin-
um i hollensku knattspyrn-
unni um helgina. PSV sigraði
1— 0, en leikið var á heima-
velli Feyenoord-liðsins.
AZ Alkmaar gerði jafntefli
gegn Nijmegen 0—0, og
heldur öruggri forystu i úr-
valsdeildinni þarlendu með
46 stig. Feyenoord er með 36
stig.
Tvöfalt
1A sigraði Hauka I leik I
Litlu bikarkeppninni i knatt-
spyrnu um siðustu heigi,
2— 1. Leikið var I Hafnar-
firði. Mörk IA skoruðu Guð-
björn Tryggvason og Ast-
valdur Jóhannesson.
Nokkra athygli vakti, að
Guðjón Þórðarson lék sem
tengiliður i leiknum. Þá kom
góð frammistaða nýja leik-
mannsins frá Borgarnesi,
Gunnars Jónssonar, á óvart.
I keppni B-liða tA og
Hauka sigruðu Akurnesing-
arnir 5—0.