Þjóðviljinn - 07.04.1981, Side 7

Þjóðviljinn - 07.04.1981, Side 7
Þriöjudagur 7. april 1981 ÞJÓÐVILJINN •— SIÐA 7 heldur hún birtist á menningar- sviöinu, I undirlægjunni við er- lenda herstöð eða i afstöðuleysi röttækra samtaka við risann i austri sem á 6. áratugnum stað- festi svik sin við hugsjónir sósial- ismans. Þetta voru ár mikillar menn- ingarumræðu og mikilla þjóð- félagslegra sviptinga — og stund- um hjaðningaviga. Þótt við Einar Bragi ættum nokkur samskipti á 6. áratugnum, og ég ætti td. nokkurn þátt i þvi, að hann var ráðinn ritstjóri Land- nemans 1955, þá get ég ekki sagt, að kunningsskapur okkar hæfist fyrr en i Samtökum hernámsand- stæðinga 1960, þar sem hann var forystumaður og eyddi heilu sumri i fundarhöld og undir- skriftasöfnun á Austfjörðum ásamt fleiri góðum mönnum. Náðu þeir þar slikum árangri að landfleygt varð, og var mörgum stjórnmálaleiðtoganum þungt fyrir brjósti það sumar. Ég held, að þeir, sem þátt tóku i fundar- höldum og baráttu þetta sumar, og undirbúningi Þingvalla - fundar um haustið, gleymi seint þeirri samfylkingaröldu, sem þá reis, og átti Einar Bragi stóran hlut að þvi hve brött hún varð, þótt þróun þessara samtaka yrði með nokkuð öðrum brag en við vonuðum þá. Ég minnist lika góðra ára, þegar við vorum samkennarar við Gagnfræðaskólann i Kópa- vogi, og ég hugsa stundum um það i flatneskju grunnskólans, hvað sumir gagnfræðaskólar gátu hafist til vegs af þvi þeir höfðu á að skipa afburðamönnum, einum eða fleiri. Mönnum sem nú eru vart finnanlegir á skólastiginu vegna sérhæfingar þess og svo- kallaðra kennsluréttinda. Þetta má rekja allt til þess, þegar Þor- valdur Thoroddsen kenndi viö gagnfræðaskóla norður i Eyja- firði, eða siðar á tið, þegar Sverrir Kristjánsson kenndi ungl- ingum sögu vestur i bæ. Það var ekki ónýtt unglinga- skóla að tefla fram til kennslu i is- lenskum bókmenntum manni eins og Einari Braga — og það var heldur ekki ónýtt að geta borið saman við hann bækurnar. Um menningar- og þjóðfrelsis- baráttu Einars Braga mætti skrifa langt mál, en i þetta sinn vil ég flytja honum þakkir og árn- aðaróskir i tilefni sextiu ára af- mælisins — og þá verður maður- inn að baki verkanna hugstæð- astur, og sú gæfa, að eiga mann- kostafólk að vinum. Og satt að segja held ég, að ef mér „lægi lítið á” þá myndi ég einna fyrst banka upp á á Bjarnarstignum hjá þeim Einari Braga og Kristinu, þvi svo raun- góð eru þau, ef þeirra er leitað. Og hjartarúm þeirra hjóna i garð min og minnar fjölskyldu verður kannski best lýst með atviki fyrir nokkrum árum: Við dvöldum þá i Kaupmanna- höfn — og Einar Bragi og Kristin voru þar lika. Við höfðum mikil samskipti, oft dagleg. Svo skildu leiðir um haustið, þegar þau fóru til Stokkhólms. Við fylgdum þeim á flugvöllinn, og sem flugvélin til Stokkhólms var á lofti kom skeifa á andlit ungrar dóttur okkar, sem sagði þessi minnisstæðu orð: ,,Nú verður aldrei gaman, þegar þau eru farin”. Við viljum á þessum timamót- um óska þeim Einari Braga og Kristinu innilega til hamingju og þakka þeim hjartanlega fyrir alit gott. Sigurjón Einarsson. ENDURSKINS- MERKI ERU NAUÐSYNLEG FYRIR ALLA G unnar Thoroddsen forsætisráðherra: Efnahagsaðgerðirnar hafa borið verulegan árangur Verðbólgan fyrstu 4 mánuði ársins er 33% á ársgrundvelli Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra mælti i gær fyrir fjárfestingar- og lánsfjáráætlun rikis- stjórnarinnar fyrir árið 1981. Fram kom i máli forsætisráðherra að þróun og horfur i efnahags- málum þjóðarinnar á þessu ári hafi bæði dökkar og ljósar hliðar og mætti búast við mótbyr i mörgum greinum. Forsætisráðherra sagði að spáð væri að þjóðarframleiðsla yrði svipuð á þessu ári og i fyrra, en þá jókst hún um 2,5% Astæður þess að ekki er um aukningu i þjóðarframleiðslu að ræða sagði forsætisráðherra vera þær að i gildi væru sóknar- takmarkanir til að vernda og varðveita fiskstofnana og einnig drægi orkuskortur úr framleiðslu iðnfyrirtækja, sem nota mikla orku. Aætlað er að viðskiptakjör (hlutfall útflutnings- og inn- flutningsverðs) rýrni um 1—2% i ár, en hafa verður þó i huga að mikil óvissa er um þróun viðskiptakjara og eru áhrifa- þættirnir einkum þrir: verðlag á frystum fiski i Bandarikjun- um, oliuverð og gengisþróun á erlendum gjaldeyrismörkuðum. Gert er ráð fyrir að vöru- skiptajöfnuður geti á þessu ári orðið hagstæður um nálægt 100 miljónir nýkróna en horfur eru á verulegum halla á þjónustu- jöfnuði eða um 500 miljónir nýkróna. Viðskiptahallinn i ár er þvi áætlaður 400 miljónir króna og er það ivið minni halli i hlutfalli við þjóðarframleiðslu en á árinu 1980. Fram kom hjá forsætisráðherra að þróun inn- og útflutnings hefur verið hag- stæð það sem af er árinu 1981. Þannig var innflutningur á fyrstu tveimur mánuðum ársins 15% minni en á sama tima i fyrra og á sama tima var útflutningur 4% meiri en i janúar og febrúar i fyrra. Forsætisráðherra sagði að efnahagsaðgerðir rikisstjórnar- innar um áramót hefðu þegar borið verulegan árangur. 1 janúarmánuði hækkaði visitala framfærslukostnaðar um 1,62% og spá Hagstofu islands fyrir mánuðina febrúar—mai gerir ráð fyrir 8.45% hækkun fram- fræsluvisitölu á þvi timabili. Ef þessi spá gengur eftir, nema verðhækkanirnar á fyrstu fjór- um mánuðum ársins 10,2%, sem gerir, miðað við heilt ár um það bil 33%. Forsætisráðherra sagði jafnframt að miðað við spá Þjóðhagsstofnunar um 8% hækkun i ágúst og 11% hækkun i nóvember þá verði verðbólgan frá upphafi til loka þessa árs um 40%. Forsætisráðherra sagði þó að hafa yrði allan fyrirvara á um þessar spár. Reynslan hefði sýnt undanfarin ár hversu erfitt sé að segja fyrir um verðlags- þróun með nákvæmni. Fram kom hjá forsætisráð- herra að orkuframkvæmdir þ.e. bæði raforku- og hitaveitu- framkvæmdir nema i ár sem og i fyrra um 5,5% af þjóðar- framleiðslu og er það mun Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra. þingsjá meira en undanfarna áratugi, en á áratugnum 1960—69 var þetta hlutfall 2,5% á ári að meðaltali og 4,2% á árunum 1970—79. Forsætisráðherra sagði að þróun innlána i bönkum og sparisjóðum hefði verið mjög hagstæð á siðasta ári. Innlán jukust þá um 67,4%, en 57,4% árið 1979. 1 árslok siðasta árs jukustútlán hins vegar um 56%, en höfðu aukist um 58% 1979. Þróun inn- og útlána hefur verið hagstæð það sem af er þessu ári sagði forsætisráðherra. A fyrstu tveimur mánuðum þessa árs hafa heildarinnlán aukist um 13,3%,en 9.8% á sama timabili i fyrra. Vöxtur útlána er hægari en i fyrra, útlán jukust um 7,4% i jánúar og febrúar, en 10,2% fyrir sama timabil árið 1980. 'Sagði forsætisráðherra að þess- ar tölursýndu að betra jafnvægi væri nú i peningamálum en verið hefur um árabil. Matthias A. Mathiesen tók næstur til máls og sagði að fjölmargir þættir sem rikis- stjórnin hefði gengið út frá við afgreiðslu lánsf járáætlunar i fyrra hefðu ekki staðist og sagðist hann búast við að sama gerðist i ár. Sagði hann að fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir þetta ár bæri þess merki að verðbólgusiglingunni yrði enn haldið áfram eins og hann komstað orði. Sagðist hann ekki geta dregið aðrar ályktanir af fjárfestingar- og lánsfjáráætl- uninni en þær að árið 1981 yrði erfitt ár og gagnrýndi hann rikisstjórnina fyrir skort á hug- myndum og tillögum til lausnar efnahagsvandanum. Jón Baldvin Hannibalsson sem situr á þingi fyrir Benedikt Gröndal gagnrýndi einnig harð- lega fjárfestingar- og lánsfjár- áætlunina og sagði að fjöl- margar forsendur hennar væru ótraustar. Þá sagði hann að efnahagsskipun landsins væri að taka á sig mynd er svipaði til hagkerfis A-Evrópurikja og sagðist hann telja samkeppnis- hagkerfið hefði herlendis verið aflagt að mestu leyti. Væri hér um mjög iskyggilega þróun að ræða. Fleiri tóku ekki til máls um fjárfestingar- og lánsfjáráætl- unina i gær. — Þ Sverrir Hermannsson um gosdrykkjafrumvarp GuðmundarG. o.fl.: í Einber sýndarmennska ( síðus+u viku var umræða á kvöldfundi neðri deildar um frumvarp um lækkun á vörugjaldi á öli og gos- drykkjum úr 30% í 15% Fl utningsmenn eru Guðmundur G. Þór- arinsson, Eggert Haukdal og Jóhann Einvarðsson. Sverrir Hermannsson sagði við umræðu um málið aö frum- varpið hefði öruggt meirihluta- fylgi i neðri deild, þar sem auk áðurgreindra þriggja stjórnarþingmanna myndi stjórnarandstaðan styðja frumvarpið. Hins vegar væri ekki ljóst hvort tryggður hetði verið stuðningur einhverra stjórnarþingmanna i efri deild. Beindi Sverrir fyrirspurn um þetta til Guðmundar G. og sagði Sverrir að ef slikur stuðn- ingur hefði ekki verið tryggður þá væri frumvarpið einber sýndarmennska og máliö fyr- irfram dauðadæmt. Guðmundur G. Þórarinsson sagði að ekki hefði verið tryggöur meirihluti fyrir frum- varpinu i efri deild, en reynt yrði að tryggja slikan meiri- hluta og sagðist hann telja að viðskiptaráðherra hefði m.a. ekki gert upp hug sinn i málinu. — þ. Stjórnarfrumvarp um lífeyrissjóð sjómanna: 'v Opnaður öUum sjómönnum sem ráðnir eru á íslensk skip tólf rúmlestir og stærri L Lagt hefur verið fram st jórnarf rumvarp um breytingu á lögum um (ífeyrissjóð sjómanna og er það í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnar- innar í tengslum við kjarasamninga sjómanna i febrúar s.l. Með frumvarpi þessu er sjóðurinn opnaður öllum sjómönnum sem ráðnir eru á íslensk skip 12 rúm- lestir og stærri. Þar með eru taldir þeir sjómenn sem eru ekki lögskráðir, en vinna tímavinnú í þágu útgerðar. í 4. gr. frumvarpsins er sjómönnum opnaður réttur til ti8iu ellilifeyris við 60 ára aldur, eftir 25 ára starf á sjó og 180 lög- skráða daga að meðaltali á ári. Breyting þessi er I samræmi viö frumvarp um breytingu á almannatryggingalögum i sömu . átt. í 2. gr. frumvarpsins er lagt til að fellt verði niður ákvæði þess efnis að Hæstiréttur skuli skipa odtfamann stjórnar. 1 stað gildandi ákvæða um sjö manna stjórn, og þar af einn tilnefndan.^.f Hæstarétti, er nú gert ráö fyrir að aðilar launþegasamtaka og atvinnu- rekenda eigi jafnmarga i stjórn og fari með stjórnarformennsku til skfptis, ^itt ár i senn. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að iðgjöld sjóðfélaga á fiskiskipum, öðrum en skuttog- urum 500 rúmlestir og stærri skuli reiknast af launum eftir þvi sem kveðið er á um hverju sinni i kjarasamningum hlutaö- eigandi stéttarfélags. ________________________“þ:J

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.