Þjóðviljinn - 07.04.1981, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 7. april 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Ingimundur Jónsson og Sigurður Hallmarsson I hlutverkum sínum I
„Halelúja” eftir Jónas Arnason.
„Halelúja”
Gerði stormandi lukku
pUmsögn FÍugráðs:
Flugstöðin
hafi ekki
forgang
umfram brýn verkefni á sviði öryggismála
— Ég get alveg fullyrt það að ár
og dagar eru síðan leikrit hefur
gert jafn stormandi lukku og
„Halelúja” eftir Jónas Arnason,
á frumsýningu hjá okkur sl.
föstudag, sagði Sigurður Hall-
marsson cr Þjóðviljinn ræddi við
hann i gær um frumsýninguna á
þessu nýja verki Jónasar.
Sigur bætti þvi við að venjulega
væri litil aðsókn að 2. sýningu hjá
þeim á Húsavik, en nú hefði
brugðið svo við að nær húsfyllir
hefði verið á sýninguna. Hann
taldi öll tormerki á þvi að leik-
félagið færi með leikritiö eitthvað
útum land, vegna þess, að svo
miklar tæknibrellur væru i verk-
inu sem leystar hefðu verið hjá
þeim á Húsavik, en erfitt yrði að
framkvæma i öðrum húsum.
Jónas Árnason sagðist vera
ánægður með undirtektir áhorf-
enda á frumsýningu og þá ekki
siður með flutning LH á verkinu,
sem hann sagði vera snilld.
t Þjóðviljanum á fimmtudag
verður viðtal við Jónas Arnason
og fleiri um nýja leikritið.
— S. dór
Baldur fyrir Einar Karl
Einar Karl Haraldsson, rit-
stjóri Þjóðviljan^ verður i leyfi
frá störfum við blaðið i þrjá mán-
uði frá 1. april s.i. til 1. júli n.k.
Með tilliti til fjarveru Einars
Karls hefur Baldur óskarsson
verið ráðinn til að gegna störfum
sem ritstjórnarfulltrúi við Þjóð-
viljannum nokkurra vikna skeið.
A fundi Flugráðs sem haldinn
var 2. april sl. var gerö sam-
þykkt um byggingu flugstöövar
á Keflavikurflugvelli, en utan-
rikisráðuneytið óskaði eftir um-
sögn um teikningar og áætlanir
um byggingu nýrrar flug-
stöðvar á Keflavikurvelli.
„Flugráði hafa verið kynntar
teikningar og áætlanir um
byggingu nýrrar flugstöðvar á
Keflavikurflugvelli. Ennfremur
hefur verið lögð fram áætlun
fjárlaga- og hagsýslustofnunar
um rekstur flugstöðvarinnar.
Bygging flugstöðvar er þáttur i
þeirri stefnu, sem mörkuð var
áriö 1974, að aðskilja almenna
flugstarfsemi á Keflavikurflug-
velli frá starfsemi varnarliðs-
ins.
Flugráð mælir með, að stefnt
verði að byggingu nýrrar flug-
stöövar, og þannig bætt öll að-
staða fyrir flugfarþega og
starfslið á flugvellinum.
Með þessari umsögn um æski-
legar framkvæmdir á Kefla-
vikurflugvelli tekur flugráð
einnig fram, að i henni felast
ekki meðmæli með forgangi
| slikra framkvæmda umfram
Stundakennarar við HI:
Göngum eins langt til
samkomulags og nægt er
,/Við munum ganga eins
langt til samkomulags í
þessari deilu og við getum
og ef hún leysist er það
ekki sist stuðningi
stúdenta og skilningi á
kröfum okkar að þakka,
sagði ólafur Jónsson,
samninganefndarmaður
Félags stundakennara á
blaðamannaf undi sem
stjórn félagsins boðaði til i
gærdag. Þar kynnti
formaður félagsins, Knud
Erik Pedersen, kröfugerð
stundakennara og lýsti
vinnuaðstöðu þeirra i
Háskóla islands.
Samtök stundakennara voru
stofnuð i febrúar 1978,sem hags-
munafélag en ekki stéttarfélag og
hafa bæði Kennarafélag íslands
og BHM neitað stundakennurum
um aðild aö sinum samtökum.
Haustið 1978 fóru stundakennarar
i vikulangt verkfall og eftir það
varsamin reglugerð um greiðslur
fyrir stundakennslu. Það er sú
reglugerð sem stundakennarar
vilja nú fá endurskoðaða og visa
þeir til lokamálsgreinar hennar,
þar sem segir að hún skuli endur-
skoðuð um leið og breytingar
verði a samningum fastra kenn-
ara. Frá þvi reglugerðin tók gildi
1. janúar 1979 hafa tvivegis orðið
breytingar á samningum fastra
kennara, i mars og i desember
1980, og telja stundakennarar það
jafngilda samningsrofi af hálfu
Athugasemd vegna
„Ruglírétta í Þjóðviljanum”
1 baksiðufrétt i Visi sl. laugar-
dag segir að villandi upplýsingar
i útvarpi og „ruglfréttir i Þjóð-
viljanum” hafi verið tilefni
blaðamannafundar sem Ragnar
Arnalds fjármálaráðherra efndi
tU, tU að ptskýra skattafrumvarp
rikisstjórnarinnar. Jafnframt
segir Visir, að Ragnar Arnalds
hafi látið þess getið, að starfs- '
menn Blaðaprents hf. ættu sök á
„ruglinu i Þjóðviljanum” og rit-
stjórnin hefði svarið það af séf. .
Engan dóm legg ég á hvort rétt er ■
eftir ráðherranum háft, en'hitt
get ég vottað, að starfsmenn
Blaðaprents eiga hér enga sök á,
heldur undirrituð. Samkvæmt
Visi er það þvi mér (og einhverj-
um útvarpsfréttamanni) að
kenna — eða þakka — að skatta-
frumvarpið var skýrt svo ræki-
lega fyrir fréttamönnum.
Þannig er mál með vexti, að
umrædd frétt i Þjóðviljanum á
föstudag var of stutt i það pláss
sem henni var ætlaö. Ég var á
blaðamannsvakt f.h. Þjóðviljans
þegarverið var aðvinna blaðið og
tók það ráð að bæca við undirfyr-
irsögnina til að bjarga málunum.
En bæði vegna fljótfærni og ó-
kunnugleika i skattamálum
„ruglaði” ég saman — eða skellti
saman i eitt — tveim atriðum,
þ.e. persónuafslætti og föstum
Jágmarksfrádrætti. Þvi eins og
'Dlaðamaður Visis segir eru
skattamálin „ekki auðskildustu
málin á landi hér”.
Að öðru leyti en hvað þessari
aukaundirfyrirsögn minni viðvik-
ur („og verður þvi 75% hærri en
hjá öðrum”) stenst frétt Þor-
steins Magnússonar ( — þ).
Andrea Jónsdóttir
prófarkalesari
rikisins verði reglugerðin ekki
endurskoðuð.
Kröfugerð stundakennara. sem
lögð var fyrir mennta- og
fjármálaráðuneytið 25. febrúar
s.l. er tviþætt. Annars vegar eru
gerðar kröfur um aukna aöild
stundakennara að stjórnsýslu
skólans: 1. Að stundakennarar
eigi fukltrúa i háskólaráði. 2. Að
stundakennarar sem annast amk.
eitt námskeið á misseri hafi rétt
til setu á deildarfundum. 3. Aö
stundakennarar eigi fulltrúa i
deildarráðum og 4. Að stunda-
kennarar fái aðild að
rektorskjöri.
Hins vegar er gerð krafa um
kjarabætur i 7 liðum: 1. Að
stundakennarar geti færst upp i
launaflokkum eins og fastráðnir
kennarar skólans og til þess þurfi
1000 vinnustundir i stað 1500. Eins
og samningum er nú háttað byrja
allir kennarar háskólans i 109.
flokki, þar sem timakaup er
rúmlega 62 krónur. Stundakenn-
arar geta siðan flust upp i 111.
flokk (með jafnmikilli kennslu og
fastir kennarar i fimm ár!) en
ekki hærra. Fastir kennarar
færast hins vegar upp i 114.
launaflokk eftir starfsaldri.
2. liður kröfugerðarinnar er að
allir stundakennarar hafi sama
prósentuáiag á laun og að nýr
liöur verði tekinn þar inn, 25%
álag fyrir framlagða aðstöðu.
Stundakennarar hafa sem
kunnugt er enga vinnuaðstöðu
innan veggja skólans til að.undir-
búa sig fyrir kennslu eða vinna úr
verkefnum stúdenta, og það sem
meira er: 1 nýbyggingum sem nú
eru að risa á háskólalóöinni er
ekki gert ráð fyrir neinni aðstöðu
fyrir stundakennara.
1 þriöja lagi að greidd verði
yfirvinna umfram 40 stunda
vinnúviku stundakennara og yfir-
vinna veröi greidd fyrir kennslu
eftir kl. 17 og á laugardögum en
engin yfirvinna er greidd nú.
í fjóröa lagi að greidd verði
laun i hlutfalli við kennslu I
brýn verkefni á sviði öryggis-
mála annarra flugvalla um land
allt”.
1 tilefni þessarar samþykktar
leitaði Þjóðviljinn til Skúla
Alexanderssonar og spuröist
fyrir um túlkun þessarar sam-
þykktar. Skúli sagði:
Öryggisbúnaður isl.
flugvalla forgangs-
verkefni
„I fyrsta lagi mælir þessi um-
sögn ekki með byggingu þeirrar
flugstöövar sem óskað var um-
sagnar um, heldur að stefnt
skuli að byggingu flugstöðvar i
framtiðinni. Flugráö undir-
strikar þá skoðun með þvi að
hafa þessa samþykkt skilyrta
„að i henni felist ekki meömæli
með forgangi slikra fram-
kvæmda umfram brýn verkefni
á sviði öryggismála annarra
flugvalla um land allt”.
1 annan stað telur flugráð meö
samþykktinni að setja eigi
öryggisbúnað islenskra flug-
valla sem forgangsverkefni.
Enda er það i samræmi viö
stjórnarsáttmálann aö „fram-
Skúli Alexandersson:
Flugráð hafnar umsögn um
teikningu og áætlun um bygg-
ingu nýrrar flugstöðvar á Kefla-
vikurflugvelli.
kvæmdum við öryggisbúnaö
flugvalla verði að hraða”.
Eitt af stærstu öryggismálum
flugs að og frá tslandi er vara-
flugvöllur. Bygging sliks flug-
vallar ætti þvi skv. samþykkt
flugráös að vera á undan flug-
stöð I Keflavik.
Fyrir þetta fé væri
hægt að mæta öllum
okkar óskum
Sú flugstöðvarbygging sem
við vorum beönir aö tjá okkur
um en tókum ekki afstöðu til
kostar 46 miljónir $ eða 300 \
milljónir nýkróna. Fyrir þetta
fé væri hægt að gera næstum
allt sem við erum með á óska-
skrá um öryggismál og búnað \
flugvalla, ma. varaflugvöll fyrir
millilandaflug á Sauðárkróki
sem talinn er kosta 40 miljónir
króna”.
Stjorn Samtaka stundakennara: Frá vinstri: Jón Óiafur Skarphéðins-
son, Dóra Sigriöur Bjarnason, Pétur Ridgewell, Sigrlður Dúna
Kristjánsdóttir, Knud Erik Pedersen, formaður samtakanna og Helgi
Þorláksson. Auk þeirra sat Ólafur Jónsson fulltrúi I samninganefnd
fundinn.
páskaleyfi og jólaleyfi. I fimmta
lagi að m innst verði greiddar 4(
stundir fyrir undirbúning nýrra
námskeiöa. 6. Að greiðslur i veik-
indaforföllum verði færðar til
samræmis við greiðslur til
stundakennara i KHl og i 7. lagi
að fastir kennarar fái aðiki að
stundakennslunefnd Háskólans.
A félagsfundi Samtaka stunda-
kennara 31. mars 1981 s.l. voru til
viðbótar framangreindu settar
fram tvær nýjar kröfur: — að
viðurkenndur verði réttur
Samtaka stundakennara við HI til
að semja við stjórnvöld um
málefni stundakennara og að
skipan stundakennslu viö H1
verði tekin til gagngerrar endur-
skoðunar i samráöi viö Samtök
stundakennara.
Um 20 stúdentafélög hafa lýst
stuðningi við kröfugerð stunda-
kennara svo og almennur fundur
stúdenta sem haldinn var i gær.
— AI
Stjórn Félags háskólakennara:
Bætt aðstaða stunda-
kennara og fleiri
kennarastöður í HI
Stjórn Félags Háskólakennara
.samþykkti i gær eftirfarandi:
„Aðstaða og aðbúnaöur stunda-
kennara við Hí er lakari en æski-
legt getur talist. Miklu varðar að
hér verði úr bætt. Stjórn Félags-
Háskólakennara skorar þvi á
stjórnvöld að marka nýja stefnu I
þessum efnum þannig að stunda-
kennarar fái vel við unað.
1 tilefni af yfirstandandi verk-
falli stundakennara vill stjórnin
minna á þá staðreynd að um
helmingur allrar kennslu við Há-
skólann er inntur af hendi al
stundakennurum. Astæðan er sO
að stjórnvöld hafa á liðnum árum
virt að vettugi itrekaðar óskir há
skólayfirvalda um fjölgun á föst
um kennarastööum. Viö svo búií
má ekki lengur standa. Þegar um
er að ræða viðamikla stunda
kennslu er nauðsynlegt að stofn
aöar verði fastar kennarastöðui
með rannsóknarskyldu og rann
sóknaraðstöðu, svo Háskólinn
geti haldið uppi merki visinda og
mennta á komandi árum”.