Þjóðviljinn - 26.05.1981, Qupperneq 10
0
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 26. mal 1981
iþróttir (/) íþróttir\A íþróttir
Humsjén: Ingólfur Hannesson. V J ffii
Ólafur Sigurgeirsson
Forsvarsmenn Lyftingadeildar KR, Ólafur
Sigurgeirsson og Birgir Þór Borgþórsson,
um hið svokallaða ,,Magnúsarmál”:
,,LSI verður að
hlýta lögum og regl-
um Alþjóða kraft-
lyftingasambandsins”
Birgir Þór Borgþórsson
„Rétt fyrir síðasta
Meistaramót Islands í
kraftlyftingum fréttist,
að á innanfélagsmóti Ár-
manns í kraftlyftingum
hafi einum keppanda
verið leyft að nota ólög-
legt hjálpartæki, er hann
náði lágmarki til þátttöku
á meistaramótinu og
jafnframt, að hann
hyggðist mæta eins búinn
á því.
Atvik þetta var af KR-ingum
tilkynnt stjórn LSl og þess farið
á leit, að með hlutlausum yfir-
domara verði tryggt að atvikið
endurtæki sig ekki. Þess var
jafnframt getið, að kæmist við-
komandi keppandi upp með að
nota þetta hjálpartæki yrði það
kært. Með frekju og yfirgangi,
sem ávallt einkennir ákveðna
aðila, er ennþá hafa ekki sætt
sig við, að lyftingaiþróttimar
seu orðnar almenningsiþróttir,
en ekki einkamál 3ja manna,
var þvi komið i gegn að félagi
keppandans fékk yfirdómara-
stöðuna. Var nú ljóst að hverju
stefndi.
Forsaga málsins
Forsaga þessa máls er
væntanlega su, að á Lyftinga-
þingi árið 1976 (Lyftingaþing
fjallar um málefni tveggja
iþrótta, lyftinga og kraft-
lyftinga), var Magnúsi Óskars-
syni veitt undanþága til að nota
ól á vinstri hendi i keppni i lyft-
ingum. 1 framhaldi af þessu tók
MagnUs þátti nokkrum mótum i
olympi'skum lyftingum.
Um gildi slíkrar samþykktar
gagnvart reglum alþjóða
lyftingasambandsins verður
ekki fjallað hér, en þar sem for-
ráðamenn lyftingadeildar Ár-
manns eru slegnir svo mikilli
blindu að telja þessa samþykkt
æðri lögum alþjóða kraftlyft-
ingasambansins vil ég fára um
það örfáum orðum.
Á árinu 1975 gerðist Lyftinga-
samband Islands aðili að
alþjóða kraftlyftingasam-
bandinu (IPF) og gekkst með
þvi undir þær skyldur að hlýta
iögum þess og reglum. Reglur
IPF eru settar á þingum sam-
takanna, sem haldin eru sam-
fara heimsmeistaramótum og
fær aðildarsamband 1 atkvæði
og ræður einfaldur meirihluti
samþykktum. Með aðild að IPF
L
Magniís Óskarsson festir ól sina fyrir réttstöðulyftu á Meistaramóti
tsiands I kraftlyftingum.
Skotar lögðu Englendlnga
Skotar komu ákaflega á óvart
sl. laugardag þegar þeir sigruðu
Knglendinga i knattspyyrnu-
landsleik á Wemblev-leikvang-
inum í London. Leikurinn var
liður i hresku heimsmeistara-
keppninni.
. Mikil fjölmenni skoskra áhorf-
enda fyigdist með viðureigninni
og réðu þeir lögum og lofum á
áhorfendabekkjunum. Eina mark
leiksins kom á 65. min. Steve
Arcibald var kominn i gegnum
vörn Englendinga þegar honum
var brugðið. Úr vitaspyrnunni
skoraði John Robertson af öryggi,
1—0. Bæði lið fengu þokkaleg
tækifæri til þess að breyta
markatölunni, en tókst ekki að
nýta þau.
England: Corrigan, Anderson,
Sansom, Wilkins, Watson,
Robson, Coppell, Hoodle, Rix og
Woodcock. Skotland: Rough,
Stewart, McGrain, Miller,
McLeish, Gray, Provan, Archi-
bald, Jordan, Hartford og Ro-
bertson.
er lagasetningarvald landssam-
bandanna varðandi tæknilegar
reglur, sbr. 8. gr. 7. töluliðs laga
LSl, fengið i hendur þingi IPF
og reglur samþykktar þar öðl-
ast þvi sjálfkrafa gildi i aðildar-
löndum og þeim einungis fglið
að þýða reglurnar á tungu
viðkomandi landa, en ekki sam-
þykkja sérstaklega innanlands.
Sli"k þýðing var siðast gerðhér á
landi 1979.
Aðild að IPF fylgja ekki ein-
ungis skyldur, heldur einnig
réttindi. Það eru réttindi til setu
og atkvæðis á þingum IPF, þátt-
töku á heimsmeistaramótum og
keppendur aðildarlanda fá rétt
til að setja heimsmet. Þessi
réttur er þó ekki algildur, þar
sem einungis má setja heims-
met i'aðildarriki, sem er i góðu
álitihjá IPF (sbr. kafla G 10. lið
i reglum IPF). Fram að þessu
hefur Island verið i góðu áliti og
ekki fallið blettur á þá 8 alþjóð-
legu dómara islenska, sem
skráðir eru hjá IPF og rétt hafa
til að dæma heimsmet. Þessu
áliti vilja allir unnendur krai't-
lyftinga halda, jafnvel þótt það
kosti félaga okkar MagnUs
heldur lakari árangur i rétt-
stöðulyftu.
Þetta er
dómarahneyksli
Samkvæmt IPF eiga kepp-
endur við vigtun inn i þyngdar-
flokka að koma með allan sinn
keppnisUtbUnað, þ.e. sérhvern
þann hlut sem nota a i keppn-
inni, i skoðun hjá þeim þremur
dómurum, sem dæma eiga hans
flokk. Dómararnir skulu skrá
niður hvern þann hlut, sem
samþykktur hefur verið á sér-
stakt eyðublað. Hafi dómarar
með góðri samvisku talið ól
MagnUsar löglegan keppnis-
búnað, bar honum að sýna
dómurum hana og þeir að sam-
þykkja með þvi að færa inn á
skoðunarskýrsluna. Þetta var
ekki gert og átti yfirdómari þá i
samræmi við 13. tölulið kafla A i
reglum IPF að visa MagnUsi frá
keppni. Það voru þvi tvær
ástæður, sem skylduðu dómara
til þeirra aðgerða, i fyrsta lagi
ólöglegt hjálpartæki og i öðru
lagi notkun UtbUnaðar, sem ekki
var samþykktur af dómurum.
Þetta er dómarahneyksli.
Frá upphafi vega hafa gilt lög
og reglur um sambUð manna og
hefur tilvist þeirra og nauðsyn
raunar aldrei verið umdeild.
Sama nauðsyn hefur siðan
valdið þvi, að flóknar reglur
hafa verið settar um allar
nUtima keppnisiþróttir og eiga
þæraðganga jafnt yfir alla, háa
sem lága, jafnvel litilmagna.
Þar sem ekki hefur verið talið
að fatlaðir iþróttamenn væru
færir að hlita þeim keppnis-
reglum, sem gilda fyrir aðra
íþróttamenn, var valin sU leið
að fylkja þeim saman i sérstök
iþróttafélög fyrir fatnaða. Hafa
lög og reglur þeirra iþrótta-
félaga verið sniðin að getu fatl-
aðra til iðkunar hverrar iþrótta-
greinar fyrir sig.
Magnús öskarsson hefur
fram að þessu keppt innan vé-
banda Lyftingasambands
íslands og þvi ekki talið sig fatl-
aðan, enda valda meíðsl hans
honum engum óþægindum i
tveimur keppnisgreinum af
þremur og ekki meiriháttar i
þeirri þriðju. Benda má á að
Bretinn Peter Fiore, sem stal
naumlega heimsmeistaratitl-
inum af Skúla Öskarssyni i
Turku 1978 er álika skaddaður á
hendi og Magnús. Notkun ólar i
keppni er bönnuð vegna þess að
hUn gefur ýmsum keppendum
forskot yfiraðra, t.d. lyfta SkUli
og Óskar Sigurpálsson tugum
kílóa meira fái þeir að nota ólar.
Er því allt tal um að fatlaður
maður sé með lögleiðingu ólar
settur jafnfætis ófötluðum
óráðshjal, sem ekki er mark á
takandi.
KR-ingar ætíö boðnir og
búnir fötluðum til að-
stoðar
Lyftingamenn hafa alla tið átt
mjög gott samstarf við fatlaða
iþróttamenn og þá einkanlega
þá sem keppa i lyftingum. Má
minna á, að tveir fatlaðir
lyftingamenn fengu að keppa
sem gestir á tslandsmeistara-
mótinu 1977 og i nokkur skipti
siðan hafa fatlaðir og ófatlaðir
keppt saman á móti og hver virt
reglur hins og ekki greint á um
hvar draga skuli mörkin milli
iþróttanna. Er þvi skiljanlegt
hvers vegna formaður iþrótta-
sambands fatlaðra og formaður
iþróttafélags fatlaðra i Reykja-
vík telja kærumál MagnUsar sér
viðkomandi.
Varðandi þau ummæli Arnórs
Péturssonar að með kærumáli
þessu hafi KR-ingar greitt fötl-
uðum iþróttamönnum hnefa-
högg i andlitið, má taka fram,
að einu hnefahögg sem KR-
ingar hafa rétt fötluðum er að
hafa einir lyftingafélaga ætið
verið boðnir og búnir þeim til
aðstoðar og ekki krafist endur-
gjalds fyrir eins og Ármenn-
ingur gerði sig sekan um fyrir
nokkrum árum. Varla hefur
fram farið það lyftingamót fatl-
aðra hér á landi að ekki hafi það
verið KR-ingar, sem séð hafa
um að Utvega dómara og aðra
starfsmenn. Hafi Arnór þökk
fyrir auðsýnt þakklæti sitt. ”
(Fyrirsagnireru Þióðvilians
Fatlaftur maftur kæröur útúr keppni lyílingamanna
^aunveralegt
hneiahogg 1
andlit fatlaðra ”Lágkúrufnykur
íþróttamanna”
af þessu máli’'
— scgir formaður Lyflingailolilar
Armanns. (iuðmundur Sigurösson
V-Þjóðverjar sterkir
John Robertson skoraði sigur-
mark skota.
Vestur-Þjóðverjar unnu
öruggan sigur yfir Finnum þeg-
ar liðin mættust i 1. riðli undan-
keppni HM i knattspyrnu um
siðustu helgi 4-0.
Briegel skoraði fyrsta mark
þýskra á 25. min. Fischer og
Kaltz skoruðu fyrir leikhlé, 3-0.
Skömmu fyrir leikslok skoraði
Fischer sitt annað mark og
fjórða mark Þ jóðverjanna, 4-0.
Staðan í riðlinum er nú þessi:
V-Þýskaland ... 4 4 0 0 ll-i 8
Austurriki..... 4 3 0 1 8-2 6
BUlgagia....... 4 3 0 1 9-4 6
Albania........ 5 1 04 3-10 2
Finnland....... 5 0 0 5 0-14 0
Eins og sjá má standa V-Þjóð-
verjarnir með pálipann I hönd-
um og þeir hafa m.a. sigrað sina
helstu keppinauta, Austurríkis-
menn á Utivelli.