Þjóðviljinn - 25.06.1981, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 25. júnl 1981
Fimmtudagur 25. júnl 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Björg Hraunfjörö: „Þessir útlendu hagræðingar lfta á Islenskt verka-fólk eins og eitthvert þý. Þeir fengu alla hér upp á móti sér strax I
haust’
gg w 8 Lílg r Jmá .-O .»íásirrÆ*-*- i ■ ... 9 1 I í ^ 2p3?
i 4? mm.. •i Xmmfrr1 i ■ . J í: ■ /• ■ J W> - 1 l, ;!•
„HERÐIÐ YKKUR,
Þegar síldin var söltuð í
gamla daga vafðist það
ekki fyrir neinum hvað
hann eða hún átti að fá f
kaup. Fyrir hverja saltaða
tunnu var greidd viss upp-
hæð og síðan var aðeins að
margfalda þá tölu með
tunnufjöldanum sem hver
og einn saltaði þann daq-
inn. Þá var kaupið fundið.
Nú er öldin önnur og ekki
eins auðvelt f yrir fólk sem
tekur laun samkvæmt
vinnuhvetjandi launakerfi
að reikna út laun sín eða
fylgjast með hvort rétt sé
greitt eða ekki. Og ekki nóg
með það,heldur fær fólk í
fæstum tilvikum greitt i
beinu hlutfalli við aukin
afköst eins og i sildar-
söltuninni áður fyrr, heldur
aðeins einhvern hluta af-
kastaaukningarinnar. Það
kallast bónus og bónus-
vinna er algengust í
„kvennavinnu".
Bónusvinna hefur frá upphafi
verið umdeild eins og önnur af-
kastahvetjandi launakerfi. Sumir
telja hana skaða heilsu verka-
fólks. aðrir telja hana æskilega
vegna þess að þá hlaupi mönnum
heilbrigt kapp i kinn við vinnuna.
Hvað sem þvi liður veröur þvi
varla á móti mælt aö hin ýmsu af-
brigði afkastahvetjandi launa-
kerfa auka streitu verkafólks sem
ekki er á bætandi.
Mismunandi
bónusgreiðslur
Allmörg ár eru siðan bónus-
vinna varö algeng i islenskum
fiskiðnaöi, þar sem konur vinna
nær eingöngu. Nú er veriö aö
koma á bónusvinnu i fataiðnaði i
siauknum mæli um leið og iðn-
fyrirtækin hagræöa rekstrinum á
ýmsan máta. Eins og i fiskiðnað-
inum á sinum tima eru fengnir til
landsins skipuleggjendur og hag-
ræðingar frá ýmsum löndum til
aö kenna eigendum iönfyrirtækja
að reka þau á sem hagkvæm-
astan hátt og verkafólkinu, sem
Heimsókn 1 Akraprjjón
Guðlaug Birgisdóttir trúnaðarkona I Akraprjóni: h.f:
„Mér brá þegar ég sá útkomuna úr þessu”.
Herdis ólafsdóttir formaður kvennadeildar Verka-
lýðs-og sjómannafélags Akraness: „Mér viröist að
iðnaöurinn sé að skipuleggja sig á þann hátt aö
verkafólkið fær nánast ekkert i sinn hlut þrátt fyrir
aukin afköst”.
eingöngu er konur, aö vinna við
nýjar aðstæður. Bónusgreiðslur
munu tiðkast i nokkrum stórum
saumastofum i Reykjavik, m.a.
á saumastofum Karnabæjar og
Hagkaups. Bónusgreiðslur voru
einnig reyndar samkvæmt
ákveðnu kerfi i Akraprjóni á
Akranesi i maimánuði sl. en kon-
urnar neituöu siðan aö vinna eftir
eins og sagt var frá i blaðinu ný-
lega.
Hvers vegna neituðu konurnar?
Var almenn samstaöa þeirra á
meðal eða var hér aðeins um að
ræða upphlaup og nöldur fárra
„æsingaafla”? Okkur hér á blað-
inu langaði til aö heyra söguna
frá fyrstu hendi og skruppum þvi
uppá Skaga á kvennadaginn 19.
júni.
Meingallað kerfi
„Þú mátt vera viss um bað aö
meöal okkar er alger samstaða.
Ekki ein einasta kona greiddi þvi
atkvæði aö vinna samkvæmt
þessu kerfi eftir aö reynslu-
mánuðurinn var liðinn”. „Þetta
er meingallað kerfi og hentar alls
ekki i islenskum prjónaiðnaði eða
isl. fataiðnaði yfirleitt,enda felldi
Iðja á Akureyri aö taka upp þetta
kerfi”. „Nei, konurnar hér eru
ekki svona óduglegar, þvert á
móti, hér vinna konurnar afar
vel. En það var hart fyrir þær
margar hverjar þegar þeim var
sagt aö eiginlega heföu þær aldrei
unniö fyrir kaupinu sinu. Margar
voru gráti nær”.
A þessa leiö fórust orð konunum
sem við töluöum viö i Akraprjóni
á föstudaginn var. Góður vinnu-
andi virtist rikja á vinnustaðnum
og mikil samstaða hjá konunum.
Og engan bilbug var að finna á
þeim konum sem komu nokkuð
vel út i bónusgreiðslunum. Þær
stóðu með hinum sem iíla uröu úti
og neituöu bónusnum.
Björg Hraunfjörð saumakona,
sem er klæðskeri aö mennt og
haföi unnið árum saman viö
saumaskap i Reykjavik sagðist
aldrei hafa lent i öðrum eins þræl-
dómi og þennan mánuð sem
kerfið var reynt. Hún væri enn
ekki búin að ná sér i handleggn-
um. Hún teldi sig fullvana,en það
var sama hvað hún kepptist, hún
fékk ekki nema 2—6% umfram
timakaupiö. Þetta kerfi sem er
Hvað er bónus?
Þreföld afköst
—tvöfalt kaup
Eins og ýjað hefur verið að í greininni um konurnar í
Akraprjóni er það ekki heiglum hent að henda reiður á
bónuskerfum og bónusgreiðslum. Herdís Olafsdóttir
formaður kvennadeildar Verkalýðs- og sjómannafélags
Akraness sýndi mér útreikning á nýtingu og afköstum
einnar konu í einn dag í frystihúsi. Sá reikningur fyllti
þrjár A-f jórar arkir. Það sér hver maður að ekki er viðlit
fyrir konur að reikna út laun sín, nema að hafa tölvu og
dugar þó varla til. Reyndin er sú að þær standa uppi
ráðalausar ef þær hafa grun um að vitlaust sé reiknað,
sem vissulega getur komið f yrir. Herdís kvað þess mörg
dæmi að konur sem hefðu hamast allan daginn og unnið
af vandvirkni hefðuekki fengið neinn bónus. Næsta dag
hefðu þær kannski unnið hægar en þá fengið bónus.
Eða þá bónuskerfin sjálf. Ekki vissi ég það áður að
bónus í iðnaði er ekki reiknaður á tímakaupið heldur á
lægra kaup. Þær konur sem ég talaði við vita ekki hvern-
ig það er tilkomið. I Akraprjóni fá konurnar 24.18 á tím-
ann, en bónusinn sem þær fengu greitt eftir (og trúlega
er það sama talan alls staðar á landinu) var reiknaður
ofan á kr. 23.42 á tímann. Furðulegt. Ég segi nú bara eins
og Orðabókamenn: „Og væri mér þökk á að fá upplýs-
ingar um þetta frá lesendum (hlustendum)".
I þessum bransa er líka talað um alls konar línur,
launalínur og afkastalínur o.s.frv.
Á meðfylgjandi línuriti má sjá hvernig ein tegund af
bónus í iðnaði er mældur. Afkastalínan byrjar í núllLen
bónus er byrjað að mæla við töluna 40. Þegar afköstin
hafa meira en tvöfaldast, þ.e. við töluna 100 á afkasta-
línunnler bónusinn ekki hærri en 60%. Launin hækka
hins vegar ekki ört fyrr en þau hafa tvöfaldast, þ.e. við
töluna 100 á launalínunni.
Annað dæmi. Það er úr frystihúsi. Byrjað er að mæla
bónus við hraðatöluna 67. Þegar sú tala er komin uppí 210
þ.e. hraðinn hefur meira en þrefaldast, þá hefur kaupið
aðeins tvöfaldast. Þrefaldur hraði gefur tvöföldun á
kaupi. Er nokkuð að undra að það eru atvinnurekendur
sem eru forgöngumenn um að koma á bónusvinnu i hin-
um ýmsu atvinnugreinum?
— hs
LAUNALÍNA
I---1---1-------1---1---1 —I----1---------->
40 1C? Afköst MTM
Helga Indriöadóttir og Fjóla Gunnlaugsdóttir. Þeim dettur ekki I hug aö vinna I bónus nema aö hafa nokkuö fyrir sinn snúö. Skyldi þeim vera
þaö láandi.
VINNIÐ HRAÐAR”
enskt væri svo strangt aö kon-
urnar næöu ekki einu sinni
lágmarksafköstum nema meö þvi
aö keppast viö eins og vitlausar
manneskjur allan daginn og
dygöi jafnvel ekki til. Auk þess
kvaö Björg fáheyrt hvaö hinir út-
lendu hagræöingar heföu komiö
fram af miklum hroka viö kon-
urnar. Þeir væru þvi greinilega
vanir aö lita á verkafólk eins og
hvert annaö þý. Islenskir stéttar-
bræöur þeirra væru miklu betri.
Kvaöst hún fyrir hönd verka-
kvenna á staönum frábiöja sér
fleiri slika. Og þetta bónuskerfi
eins og þaö legöi sig. Þaö væri
kerfi sem heföi veriö fundiö upp i
atvinnuleysinu i Bretlandi til aö
halda verkafólki niöri.
Vildu reyna
í sama streng tóku Helga Ind-
riðadóttir og Fjóla Gunnlaugs-
dóttir. Þær sögöust alveg hafa
veriö til i aö prófa ákvæöisvinnu
en þeim heföu gjörsamlega fallist
hendur þegar þær sáu aö þær áttu
svo til ekkert aö fá fyrir aukin af-
köst. Þær voru ánægöar meö
bætta vinnuaöstööu sem varö i
fyrirtækinu viö hagræöinguna.
Saumakonurnar fengu betri og
stærri vinnuborö viö saumavél-
arnar og vagna til aö láta flik-
urnar i og ýta milli boröa og nýja
rekka. Aö þeirra dómi auöveldar
þetta vinnuna og eykur afköstin
en ekki nema aö litlum hluta.
„Framleiösluaukningin sem varö
i fyrirtækinu i mai var fyrst og
fremst vegna aukinna afkasta
kvennanna”, sögöu þær.
2,5%-20,9%
„Satt aö segja brá mér þegar
ég sá útkomuna. Mér var sagt aö
þetta kerfi heföi komiö vel út þar
sem þaö heföi veriö reynt”, sagöi
Guölaug Birgisdóttir, trúnaöar-
kona i Akraprjóni. Hún sagöist
hafa talaö viö verkstjóra i Dúk
h.f. þar sem sama eöa svipaö
kerfi væri i gangi og hann heföi
sagt aö þar fengju konurnar ekki
undir 20% i bónus. Þaö taldi hún
reyndar allt of litiö og sagöist
persónulega ekki myndu vilja
vinna uppá þau býti.
Eins og kunnugt er af fréttum
fengu Akraneskonurnar enn
minna eöa 16.3% meöalbónus sem
segir þó ekki nema hálfa sögu.
Sniöalinan svokallaöa lyfti pró-
sentutölunni töluvert upp, en þar
var meöalbónus 42.7% enda greitt
eftir ööru kerfi. Saumakonurnar
sem eru fjölmennastar fengu frá
2,5% (sláalinan) og uppi 20.9%
(frágangur). Guölaug kvaö þau
bónuskerfi sem þegar væri fariö
aö greiöa eftir i landinu æöimis-
munandi. Þetta á Akranesi væri
kallaö GSD-kerfi og virtist vera
verkafólki ákaflega óhagstætt.
Konurnar i Akraprjóni heföu þó
gengist inn á að vinna samkv. þvi
til reynslu i einn mánuö. Þegar
upp var staöið kom þetta i ljós:
Meöalbónus var 16.3% á meðan
framleiösluaukning allt aö tvö-
faldaöist, kerfiö var svo stift aö
þaulvanar konur náöu ekki aö
skila lágmarksafköstum. Til
samanburöar má geta þess aö
meöalbónus i frystihúsum er
60-70% ofan á kaupiö sem bónus-
inn reiknast ofan á. Guölaug kvaö
kerfiö aö þvi leyti ólíkt öörum
timaniældum ákvæöis vinnu-
kerfum aö þarna er ekki reiknaö
út hversu langan tima tekur aö
vinna ákveöiö verk, heldur er
hverri einustu hreyfingu kon-
unnar gefinn viss timi og ef hún
notar meiri tima fær hún engan
bónus. T.d. var konunum uppá-
lagt aö sauma ermasauma á
prjónaflikunum i einu Iagi,en þaö
er alls ekki hægt. Prjónaefni
veröur aö hagræöa undir sauma-
vélarfætinum, annars gengur allt
á misvixl. Enda fór þaö svc^ aö
mikiö af vörunum sem fram-
leiddar voru i tilraunamánuö-
inum eru gallaöar. Konurnar
uröu aö vinna illa ef þær áttu aö
skila lágmarksafköstum hvaö þá
meira. Sem dæmi um kröfuhörk-
una nefndi Guðlaug aö samkv.
þessu kerfi áttu konurnar að
sauma 60 rennilása i flikur á fjór-
um timum til aö fá 27% bónus.en
samkv. ööru kerfi sem unnið er
eftir i Borgarnesi festa konurnar
25 rennilása á sama tima og fá
20% bónus.
Iðntæknistofnun
Verkalýðskempan Herdis
ólafsdóttir tekur i sama streng.
„Þaö var veriö að undirbúa betta
I allan vetur”, segir hún. „Kon-
urnar voru vitanlega spenntar aö
fá bónus. Þaö er eina leiöin fyrir
þær til aö fá sæmilegt kaup. Þaö
var lika veriö aö kenna þeim og
mér viröist aö viölagiö hafi verið
„Heröiö ykkur, vinniö hraðar”.
Þaö á greinilega aö pressa sem
allra mest afköst út úr þessum
konum.”Hún kvaö Félag isl. iðn-
rekenda hafa menn á sinum
snærpm sem sæju um hagræöing-
ar og skipulagsbreytingar þær
sem veriö er aö koma á i fataiön-
aðinum, en Iöntæknistofnunin
gyldi varhuga viö öllu saman.
Hún kvaöst sjálf ver á móti af-
kastahvetjandi greiðsiukerfum,
en þó tæki steininn úr þegar þau
væru tekin upp og fólk fengi sára-
litiö fyrir stóraukin afköst, eins
og sér virtist fataframleiöendur
ætla aö komast upp meö. Þaö
væri alvarlegast i öllu þessu máli
og mætti ekki gerast. öll verka-
lýöshreyfingin yröi aö standa
með konum i þessu máli.
— hs
Magnfríöur, Berta og Svanheiöur sniöa ásamt 2 öörum allt sem saumaö er i verksmiðjunni. Sniöa-
konurnar unnu líka I bónus I maí en eftir ööru kerfi en hinar konurnar og þær komu mun betur út í laun-
um. Meöalbónus þeirra varö 42.7%.