Þjóðviljinn - 25.06.1981, Page 11
Fimmtudagur 25. júní 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
íþróttir [A] iþróttirg) iþróttir í
3. deild fót-
boltans
Fjölmargir leikir voru á
dagskrá 3. deildar knattspyrn-
unnar og urðu Urslit þessi: A-riðill: þeirra
Grindavik —Grótta 4:0
Hveragerði—1K 1:2
Afturelding—Ármann 1:1
B-riðill:
Njarðvik—Léttir 7:0
Stjarnan—1R 2:1
Þór, Þ.—Viðir 2:5
C-riðill:
Grundarfj.—Vikingur, O 2:3
D-riðill:
Reynir, A—KS 2:6
Leiftur—Tindastóll 0:3
Guðrún
setti
/
Islandsmet
Guörún Fema Agústsdóttir,
Ægi setti glæsilegt Islandsmet i
100 m bringusundi á Reykjavik-
urmótinu, sem fram fór i gær-
kvöldi i Laugardalslauginni.
Hún synti vegalengdina á 1:17.5
min. Eldra metið, 1:20.1 min.
var i eigu Sonju Hreiðarsdóttur,
Ægi.
— IngH
/»V staðan
Staðan i 1. deildinni er nú
þessi:
Vikingur .......8 6 1 1 12:4 13
UBK.............8 3 5 0 9:3 11
Valur...........8 3 3 2 12:6 9
ÍBV.............7 3 2 2 9:7 8
ÍA..............8 2 4 2 4:5 8
Fram ...........8 1 5 2 6:9 7
KA..............6 2 1 3 7:7 5
FH.............8 2 1 5 10:15 5
Þór.............7 1 3 3 3:9 5
KR.............8 1 3 4 4:10 5
Eins og lesa má úr svip strákanna á myndinni hér að ofan var ekkert gefið eftir I leik KA og UBK i gær-
kvöldi. Biikarnir voru hins vegar harðari við markaskorunina og sigruðu 3-0. Mynd —eik—.
Blikarnir gefa
ekkert eftir
Sigruðu KA 3:0 í gærkvöldi og fylgja
Vikingum fast á eftir á toppi 1. deildar
Breiðabiiksstrákarnir siá ekki
slöku við i baráttunni á toppi 1.
dcildarinnar. i gærkvöldi lögðu
þcir KA að velli i Kópavoginum 3-
0 og eru nú aðeins 2 stigum á eftir
Vikingum.
Blikarnir höfðu undirtökin i
byrjun. Jón Einarsson komst inn-
fyrir vörn KA, en skaut beint á
Aðalstein. Eftir þvi sem á leið
hálfleikinn tókst norðanmönnum
að jafna leikinn, án þess þó að fá
almennileg marktækifæri.
I upphafi seinni hálfleiks skor-
aði Jón fyrir UBK eftir að Helgi
hafði rennt sér i gegnum vörnina
og sent til hans, 1-0. Jón komst
aftur innfyrir vörn KA og brást
bogalistin sem fyrr. Um miðbik
hálfleiksins skoraði Vignir hörku-
fallegt mark með þrumuskoti af
25 m. færi, 2-0. KA^menn neituðu
að gefast upp og börðust af krafti.
Hressilega var tekið á móti, gul
spjöld sáust á lofti og Ölafur
Breiðabliksmaður Björnsson fékk
að sjá það rauða þegar skammt
var til leiksloka.
Fáeinum minútum áður skor-
uðu Blikarnir sitt þriðja mark og
var Jón Einarsson þar að verki
eftir aukaspyrnu Hákons. Jón
komst á auðan sjó og skoraði
örugglega, 3-0. Sigurinn i öruggri
höfn.
Ólafur, Vignir, Sigurjón, Helgi
og Jón áttu allir góðan leik i liði
Breiðabliks. Hjá KA bar mest á
Jóhanni og Elmari. RS/IngH
Jöfn og
spennandi
keppni
Um siðustu helgi fór fram
heljarmikið iþróttamót á
Laugardalsvelli þar sem krakk-
ar sem höfðu stundað iþrótta- og
leikjanámskeiö i borginni
reyndu með sér. Sigurvegaar i
einstökum flokkum urðu eftir-
taldir:
60 m hlaup:
Stúlkur: Hildur Siguröardótt-
ir, 12 ára, 9,2 sek, GuðrUn
Sigurðardóttir, 11 ára, 9.0 sek og
Rósa Margeirsdóttir, 10 ára, 9.1
sek.
Drengir: Heimir Guöjónsson,
12 ára, 8,5 sek, Þorsteinn Guð-
mundsson, 11 ára, 8.8 sek og
MagnUs örn Ragnarsson, 10 ára
9.6 sek.
Boltakast:
Stúlkur: Karolina Guðmunds-
dóttir, 12 ára, 46.0 m, Hafdis
Gissurardóttir, 11 ára, 35.5 m og
ölrún Marðardóttir, 10 ára, 30.5
m.
Drengir:TómasÞráinsson, 12
ára, 62 m, Guðmundur A.
Arnarsson, 11 ára, 45.5 m og
Hannes Þorsteinsson, 10 ára, 48
m.
Langstökk:
Stúlkur: Hildur Sigurðardótt-
ir, 12 ára, 4.30 m, GuðrUn
Sigurðardóttir, 11 ára, 3.86m og
Rósa Margeirsdóttir, 10 ára,
4.22 m.
Drengir: Heimir Guðjónsson,
12 ára, 4.35 m, Þorsteinn Guö-
jónsson, 11 ára 4.34 m og Gunn-
laugur Einarsson, 10 ára, 3.55m.
1 boðhlaupi stUlkna sigraði
sveit Laugardalsvallar og i
strákaflokki sigraði sveit Mela-
vallar. Þá var keppt i knatt-
spyrnu og þar urðu Vesturbæ-
ingarnir frá Melavelli hlut-
skarpastir.
Unglingar voru það
t Þjv. i fyrradag var sagt frá
væntanlegu Meistaramóti ts-
lands i frjálsum iþróttum, en
þeirri frásögn átti að fylgja að
hér er um að ræða mót unglinga
15 til 18 ára. Rétt skal það vera,
eins og þjóðskáldið sagði...
Marteinn Geirsson var nokkuð atkvæðamikill I Ieiknum i gærkvöldi og
skoraði m.a. jöfnunarmark Framara.
Marteinn tryggði Fram
jafntefli gegn Val 1:1
Segja má að Valur og Fram
hafi nælt sér í dýrmæt stig i gær-
kvöidi og jafnframt tapaði dýr-
mætu sigi einnig, a.m.k. annað
liðið. Bæði lið lögðu ofurkapp á að
sigra til þess að hanga áfram i
toppliðum 1. deildarinnar og varð
þvi jafntefli næsta rökrétt niður-
staða, 1-1.
Valur náði undirtökunum þegar
i upphafi og strax á 1. min. bjarg-
aði Þorsteinn á marklinu.
Þorsteinninn i Valsliðinu komst
nokkru seinna skyndilega á auðan
sjó eftir mistök Trausta, en skot
hans hafnaði framhjá. Um mið-
bik hálfleiksins fékk Pétur
Ormslev tvö gullin tækifæri til
markskorunar, en honum brást
bogalistin i bæði skiptin. Skömmu
seinna barst boltinn fyrir Fram-
markið til Njáls Eiðssonar og
hann þrumaði boltanum i netiö af
stuttu færi, 1-0. Snaggaralega
gert.
Sævar kosinn
,,maður leiksins”
Miðherji Vals, Sævar Jónsson,
var að leikslokum i gærkvöldi
kosinn „maður leiksins” af þar til
Utnefndri kjörnefnd.
Eftir tiðindalitlar upphafsmin.
seinni hálfleiks jafnaði Marteinn
fyrir Fram. Hann fékk knöttinn
óvaldaður og skot hans frá vita-
punkti fór rakleiðis i Valsmarkið.
Eftir þetta reyndu Valsararnir að
sækja i sig veðrið og fengu nokk-
ur góð færi. Hilmar Sighvatssori
komst t.a.m. innfyrir vörn Fram,
en skot hans fór rétt framhjá
marki Framaranna. Jafntefli,
1-1.
Þrátt fyrir næsta slakan leik
tókst Fram að krækja i annað
stigið. Það eitt lofar e.t.v. góðu i
þeim herbUðum. Guðmundur var
öruggur i markinu og hinn ungi
bakvörður, Þorsteinn, stóð vel
fyrir sinu. Miðveröirnir,
Marteinn og Sighvatur voru
traustir.
Það sem helst háir Valsliðinu
þessa dagana er að framlinu-
mennina skortir alla grimmd og
kraft til þess að koma boltanum i
netið þvi færin gefast. Þorvaldur,
Njáll, Sævar og Siguröur mark-
vörður áttu ágætan leik. — IngH
rEnn tekst f A i
| ekki að skora S
Það ætlar ekki að ganga andskotalaust fyrir Skagamenn að koma |
“ boltanum i mark andstæðinganna. 1 gærkvöidi gerðu þeir enn eina 11
Iatlöguna án árangurs, en sú varð einnig niðurstaðan hjá and-1
stæðingunum. KR 0—0.
■ KR-ingarnir einbeittu sér að grimmum varnarleik i 90 min með ■
I ágætum árangri. Hins vegar voru spörk þeirra til litillar ánægju |
■ fyrir áhorfendur. IA skoraði að visu 2 mörk i leiknum, en þau voru ■
I bæði dæmd af og voru ekki allir á eitt sáttir um réttmæti þeirra I
jj dóma.
IJón Alfreösson stóö nokkuð uppUr i liði IA og eins átti Guðbjörn ■
ágæta spretti. I varnarþvögu KR-inga sáust litil tilþrif.
HJH/IngH S