Þjóðviljinn - 07.07.1981, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 7. júli 1981
leigjandans
taktu víxil
grafðu grunr
bíttu á jax c
seldu konuna
seldu kjarvalinn hans afa *
seldu löduna
kjóstu alþýðuf lokkinn
hrósaðu Reagan
leggstu í svaðið
og hús þitt rís
KÆRLEIKSHEIMILIÐ
viðtalið
/Til að keppa við mann.
Því hef ég sko tekið eftir!
Vitið þið að maður geturí
veriö ánægöur. leiöur, /
friskur osfrv. þegar
maður vaknar?
t morgun vaknaöi
ég og var montinn.
/ Þvi miður satt:
( Montinn!
Með sleggju á Japanann
Styrjöldin milli bandariskra og japanskra bilaframleiöenda getur
tekið á sig hinar undarlegustu myndir. Hér eru meðlimir sambands
bandariskra bilasmiða að skeyta skapi sinu á Toyotabil, einum
þeirra sem hafa aö undanförnu verið að senda þá út i atvinnuleysiö,
með þvi að lemja bilinn i klessu með sleggjum. Mundi margur kalla
vanmáttuga hefnd.... --
Rætt við
Norðmanninn
Bernt Skrede
Búinn að
þýða
Skjaldhamra
og Sauma-
stofuna ■
Bernt, Margrét og Stefán Viöar. Ljós: eik.
Bernt Skrede heitir Norðmað-
ur. Hann er nú staddur hér á
landi ásamt konu sinni Margréti
og syni þeirra Viðari Stefáni.
Margrét er islensk og kynntust
þau hér á landi. Bernt er kenn-
ari, en hefur fengist við að læra
islensku og lagt fyrir sig þýðing-
ar af islensku á norsku. Hann
þýddi meðal annars Skjald-
hamra, leikrit Jónasar Arna-
sonar sem aö öllum líkindum
verður sýnt í Regionalteatret i
Sognsfirði á næsta leikári.
— Hvernig stóð á þvi að þú
fórst að læra íslensku?
Ætli það séu ekki þessi sam-
eiginlegu vikinga- og irsku
þrælablóðdropar sem drógu mig
hingað. Það kom lika til að ég
átti kunningja i hópi þeirra sem
sigldu hingaö út á seglskipunum
1974 sem geíin voruhingað, örn-
inum og Hrafninum. Enn bætt-
ist við að systir min var hér 1970
og sá þá Heklugosið og lýsti þvi
mikilfenglega. Allt þetta varð til
þess að ég kom hingað 1975 og '
fékk þá tækifæri til að ferðast
um með norskum þjóðdansa-
flokki spilandi á harðangurs-
fiðlu.
Seinna fékk ég styrk til að
kynna mér islenska heimavist-
arskóla, en þá var ég kennari
við danskan lýöháskóla. Ég var
hér i tvö ár, kenndi i Skálholti,
Sólheimum i Grimsnesi og
seinna i Námsflokkunum i
Reykjavik.
Það eru þrjár góðar leiðir til
að læra tungumál, sú fyrsta er
að lesa barnabækur og læra
barnaljóð til að byrja með. Hin
önnur að reyna sig við þýðingar
og hin þriðja að verða ástfang-
inn af einhverjum sem talar
málið og allt þetta gerði ég.
— Hefurðu þýtt meira en leik-
rit Jónasar?
Ja, ég er búinn með Sauma-
stofuna eftir Kjartan Ragnars-
son, en það er ekki enn komið
svar frá neinum aðilum sem ég
sendi það til, enda tekur langan
tima að taka ákvarðanir um
sýningar. Það bendir allt til
þess að leikrit Jónasar verði
sýnt, búið að ráða tékkneskan
leikstjóra Karel Hlavati sem er
mjög fær að minum dómi og
hefur brúöuleikhúsreynslu frá
Tékkóslóvakiu. Annars er ég
sjálfur búinn að skrifa leikrit
sem hlaut 2. verðlaun i áhuga-
mannakeppni og einnig hef ég
ásamt krökkunum sem ég kenni
verið að skrifa barnabók um ís-
land. Hún er um 12 ára strák
sem fer til tslands og inn i hana
blandast þjóðsögur, álfatrú og
fleira. Ég sendi bókina til útgef-
enda, en þeím fannst of mikill
landafræðikeimur af henni.
Meðal annars fundu þeir að þvi
að það væri allt of ótrúlegt að
strákurinn færi og heimsækti
forsetann, en eftir að ég er
sjálfur búinn að heimsækja Vig-
disi get ég sannfært þá um að
það er ekkert ómögulegt fyrir
barn að hitta hana, þeir halda
sennilega að þetta sé eins og i
Ameriku þar sem vopnaðir
veröir umkringja forsetann.
Bókin er annars um tsland séð
með augum barns.
— Þú kemur greinilega viða
við, en hvað er framundan?
Fyrst á dagskrá er að láta
skira barnið og hingað urðum
viö að koma til að finna prest
sem getur borið nafniö rétt
fram. Sá maður er séra Heimir i
Skálholti.
' — ká
Börnin stækka af að
fara snemma að sofa...
Hvað hef ég stækkað
mikiö i nótt, mamma?
Mótmælir
Þeir eru hýrir framan I Ijósmyndarann, strákarnir á Stokkseyri. — Mynd: —gel.
Páfagaukar eru greind dýr og
skemmtileg og vinsæl húsdýr
eftir þvi. En röng meðferö
leikur þá marga grátt — meðal
annarra Hinrik þann sem hér
sést á myndinni. Hann hefur
verið geymdur einn i búri og
ekki fengið þann félagsskap
sem hann þarfnast. Taugarnar
hafa þá bilað („fangaveiki”
heitir það) og hann hefur i heift
sinni reytt af sér fjaðrirnar.
Það er m.ö.o. ekki öllum gefið
að umgangast páfagauka með
þeirri vinsemd og skilningi, að
þeir fallist á hlutskipti sitt og
geri mannfólkið að einskonar
„staðgenglum páfagauka” i
umhverfi sinu.
Grátsöngur
Ekki var fyrr búið að vernda
Bakarabrekkuna fyrir Stjórnar-
ráðinu en að taflmenn gleyptu
hana... Svona er að ráða FIDE.
ófrelsinu