Þjóðviljinn - 07.07.1981, Qupperneq 3
Þriðjudagur 7. júli 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Stjórnmálamenn og fjölmiðlar verða að kynna sér umræðuna á Norðurlöndunv
Erum ad verda viðskila
við önnur Norðurlönd
Gera verður kröfu um að Island verði fullgildur aðili að samningi um
kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd — segir Olafur Ragnar Grímsson
lyorden — karnvapenfri zon
7/7/ Sveriges rcgering och riksdeg.
Vi ar pa v.iq in i det furligaste ártiondet i mansklighélens historid. Risken för ett tredje várldskriq blir jllt mer
overhangdnde.
Idag fmns ca 15 000 kárnvapen i Europa. Ett krig i Europa blir ofránkomligen eít kárnvapenkrig. som skulle ut-
plána den europeiska civilisationen, inklusive Norden. Kárnvapenupprustningen har drastiskt ókat risken for ett
sádant krig.
Europa máste befrias frán kárnvapen - ett steg mot en kárnvapenfri várld. Norden kan gá i spetsen!
Svgryje kan tillsammans med de övriga nordiska lánderna upprátta en kárnvapenfri zon, omfattande Sverige,
Rnland, Danmark och Norqe. ■■■
Vi kráver av Sveriges regering och riksdag:
- att tillsammans med övriga nordiska lánder förbinda sig att kárnvapen inte stationeras inom zonen. Ej heller
skall 2onen i ett akut krisláge kunna utnyttjas för kárnvapenkrigföring.
- att verka för att kárnvapenmakterna garanterar att inte anvánda kárnvapen mot lánderna inom zonen.
- att verka för att ett internationellt kontrollorgan inráttas med uppgift att kontrollera att zonen respekteras.
- att uppráttandet av zonen blir led i en sákerhetspolitik dár nedrustnings- och avspánningsarbetet sátts i
frámsta rummet.
Slíkir undirskriftarlistar ganga nú I Sviþjóð, Noregi, Danmörku og
Finnlandi og á að safna milljón undirskriftum undir áskorun um kjarn-
orkuvopnaleysi Norðurlanda á haustmánuöum. Það eru nefndir um
kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum sem skipuieggja undir-
skriftarherferðina, en á þessum sænska lista, þar sem aðeins fjögur
Norðuriandanna eru talin, kemur fram að aðild að sænsku nefndinni
eiga meðal annarra Internationella kvinnoförbundet för fred och
frihet, Kristna fredsrörelsen, Kvinnokamp för fred, Svenska freds-och
skiljedomsföreningen, Svenska fredskommittén og fleiri.
,,Mér finnst mjög brýnt að
vitneskja um þessar umræður
komist sem fyrst til islenskra
fjölmiðla og til alira stjórnmála-
manna svo að róleg og yfirveguð
umræða getifarið fram um mál-
ið. islendingar verða að fá tæki-
færi til aö kynna se'r það sem er
að gerastá Norðurlöndunum, alla
þá umræðu sem þar er i gangi svo
að við verðum ekki viðskila við
hinar þjóðirnar og vöknum svo
einn góðan veðurdag upp við það
að við erum orðin of sein til að fá
að vera með.”
Þetta sagði Ólafur Ragnar
Grimsson alþingismaður m.a. á
blaðamannafundi sem hann hélt i
gær til að kynna þær umræður
sem nii fara fram i Noregi, Dan-
mörku, Svi'þjóð og Finnlandi um
kjarnorkulaus Nœ-ðurlönd. Kvað
hann lslendinga hafa orðið utan-
veltu við þá umræðu i tvennum
skilningi. Hvort tveggja væri að
helstu rök fyrir nauðsyn alþjóða-
samkomulags um bann viðkjarn-
orkuvopnum á Norðurlöndum
væru litt kunn hérlendis og eins
segðu margir framámenn i Norð-
urlandaumræðunni að Island gæti
dcki fylgt hinum löndunum i
þessu máli. Væri ástæða þess
tengsl Islands við hernaðarkerfi
Bandarikjanna.
Formlegur samningur
um kiarnorkuvopna-
laust svæði
Olafur sagði að nú væri um það
rætt i' löndunum fjórum að nauð-
synlegt væri að gera formlegan
samning um kjarnorkuvopnalaus
Noröurlönd og væru ástæður þess
margslungnar. Þungar á vogar-
skálunum væru áætlanir stór-
veldanna um eflingu og fjölgun
kjarnorkuvopna i Evrópu með
Evrópustriö i huga likt og i fyrri
heimsstyrjöldum.
Vegna þessara fyrirætlana
stórveldanna gætir viða i Evrópu
viðleitni til að koma i veg fyrir
þær. Hafa bæði rikisstjórnir og
stjórnmálaflokkar gert nauðsyn
afvopnunarviöræðna að stefnu-
skráratriði.
Þá skýrði Ólafur Ragnar frá
þvi að Jens Evensen.sendiherra
og einn af fremstu sérfræðingum i
'alþjóðarétti, hefði rakið itarlega
hvers vegna Norðurlönd séu ekki
kjarnorkuvopnalaust svæði sam-
kvæmtskilningi alþjóðalaga. Þau
uppfylltu ekki þær kröfur sem
gerðar eru til þeirra svæöa sem
'fheð réttu hafa hlotið viðurkenn-
ingu sem kjarnorkulaus. Þær
kröfur fela m.a. i sér þetta:
Formlegar yfirlýsingar um að
viðkomandi riki muni hvorki
framleiða, leyfa staðsetningu
né heimila flutninga kjarnorku-
vopna á landi sinu eða á þvi haf-
svæði sem tilheyrir rikinu eða
innan þeirrar lofthelgi sem vald
þess nær til. Bann við kjarnorku-
vopnum veröi þvi í senn að felast I
formlegri yfirlýsingu rikisst jórna
og þjóðþinga og taka til lofts, láðs
og lagar.
2. Bann við staðsteningu og
Framhald á blaðsiðu 14.
Útitaflið:
Framkvæmdir
stödvast í bili
Magnús Skúlason formaður
byggingarnefndar Reykjavíkur
sagði við Þjóðviljann i gær að
ekki væri hægt að halda mikið
lengur áfram við framkvæmd-
irnar við útitaflið, þar sem
endanlegar teikningar lægju ekki
fyrir.
Marga hefur rekið i rogastans
yfir öllu þvi jarðraski sem átt
hefur sér stað á grasflötinni milli
Bakarabrekku: og Lækjargötu.
Magnús sagði að þetta liti að
sönnu illa út meðan á fram-
kvæmdum stæði en ekki mætti
láta það villa sér sýn. Þó væri
vafamál hvort ætti að helluleggja
jafnstórt svæði i kringum taflið
sjálft og ráðgert hefur verið.
Sömuleiðis er á dagskrá að koma
fyrir áhorfendapöllum i brekk-
unni og þyrfti að huga vel að þvi
að heildarmynd svæðisins rask-
aðist ekki við þessar fram-
kvæmdir.
—i
Ekki eru allir hrifnir af útitaflinu. Þetta spjald settu Leigjendasamtökin upp um helgina þegar þau voru
meö aðgerðir sinar i miðbænum. Ljósm: Gel
Bernhöf tstorf umálið:
Formaðurinn andvígur
afstöðu bygglngarnefndar
,,Ég er nýkominn heim erlendis
frá, og var ekki viðstaddur þegar
þessi snurða hljóp á þráöinn,”
sagði Magnús Skúlason arkitekt
og formaður byggingarnefndar,
þegar Þjóðviljinn ræddi viö hann
vegna stöðvunar framkvæmda
við endurbyggingu gamla hússins
á Bankastræti 2. „Meirihluti
by ggingarnefndar viröist hafa
skipt algerlega um skoðun varð-
andi þetta mál, áður voru menn
sammála um að snyrtiaðstaða
fyrir hreyfihamlaða skyldi koma
i næsta byggingaráfanga i Bern-
Magnús Skúlason
höftstorfunni, þ.e. endurbyggingu
bakhúsanna.”
Mér finnst krafa byggingar-
nefndar fáránleg, við upp-
byggingu gamalla húsa er ekki
hægt að gera sömu kröfur og ef
um nýbyggingar væri að ræða.
Enda hefur byggingarnefnd áður
séð i gegnum fingur i hliðstæðum
tilfellum, jafnvellátiö óátalið þótt
tröppur væru upp að inngöngu-
dyrunum og nefni ég veitinga-
húsið Hornið sem dæmi.
Aðspurður sagði Magnús að
engin bráðabirgðalausn væri i
sjónmáli, önnur en sú sem stungið
hefur verið upp á, þ.e. að fresta
úrlausn á salernisaðstööu fyrir
fatlaða þar til tekið verður til við
uppbyggingu bakhúsanna. Þá
sagði hann að hæpið væri að hægt
væri að hrinda i framkvæmd hug-
mynd byggingarnefndar, til þess
þyrfti að færa vegg til, sem ekki
mætti hreyfa vegna burðar
hússins. Hann kvaöst þeirrar
skoðunar að á bak við afstöðu
byggingarnefndar lægi skilnings-
leysi á þeim framkvæmdum sem
eiga sér stað við Bernhöfts-
torfuna.
—j
Jón Helga-
son ritstjóri
látinn
Jón Helgason ritstjóri
Timans varð bráðkvaddur á
laugardag, 67 ára að aldri.
Jón varð ritstjóri Timans
1961, en var áður ritstjóri
Frjálsrar þjóðar og blaða-
maður Nýja Dagblaðsins og
siðan Timans. Jafnhliða
blaðamennsku og ritstjóra-
störfum skrifaði Jón Helga-
son margar bækur, og þýddi
aðrar.
Jón Helgason fæddist á
Akranesi, sonur hjónanna
Helga Jónssonar og Odd-
nýjar Sigurðardóttur og
stundaði nám við Alþýðu-
skólann á Laugum og við
Samvinnuskólann. Eftirlif-
andi kona hans er Guðrún
Margrét Pétursdóttir.
Byggingarnefnd:
Engar
teikningar
til af næsta
byggingar-
áfanga
Byggingarnefnd Reykjavíkur
hefur sent frá sér yfirlýsingu
varðandi deilurnar um salernis-
aðstöðu fyrir fatlaða i Banka-
stræti 2. Þar segir aö aðeins sé
um að ræða af hálfu bygginga-
nefndar að önnur af tveim fyrir-
huguðum snyrtingum i húsinu
verði breikkuð um 50 sentimetra
svo tryggt væri að maður I hjóla-
stól kæmist þar inn. Til að svo
mætti verða yrði að minnka eld-
húsgeymslu um 0,88 fermetra.
Byggingarfulltrúa hefur verið
falið að stöðva framkvæmdir
þangað til þetta mál leysist.
Byggingarnefndarmenn segja aö
ekki sé hægt að taka fyrirheit um
lausn i næsta byggingaráfanga
gild, þar sem engar teikningar
liggi fyrir varðandi þær fram-
kvæmdir og þvi enga afstöðu
hægt að taka til þessara tillagna.
Loks lýsir nefndin furðu á um-
mælum formannsins og visar
þeim á bug.
—j
Aukaviimingur
í áskrif enda-
þrautinni
Aukavinningurinn i Áskrif-
endaþraut Þjóðviljans þessa vik-
una, kaffiboð á Mokka, féll i hlut
Sigurðar Jóhannssonar, Vestur-
bergi 98, Reykjavik. Biðjum við
hann vel að njóta.