Þjóðviljinn - 07.07.1981, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 7. júli 1981
íþróttirLA íþróttir ^ íþróttir
Ur einu
í annað
Hans Krankl
Krankl til
Rapid Vín
Um helgina var gengiö endan-
lega frá sölu miðherjans fræga
Kans Krankl frá Barcelona til
Rapid Vin i Austurriki. Sölu-
verðið var 625 þús. dollarar.
Krankl hefur leikið meö
Rapid-liðinu undanfarna mán-
uði sem lánsmaður.
•
Danir- urðu
neðstir
Danir urðu i neösta sætinu i
Skagamenn kræktu í 2 dýrmæt stig í baráttunni um ís-
landsmeistaratitilinn sl. sunnudagskvöld þegar þeir
lögðu Val að velli 2-0 á Laugardalsvellinum. Að sama
skapi minnkuðu verulega möguleikar Valsaranna á að
halda þessum eftirsótta titli.
Hinir fjölmörgu knattspyrnu-
áhugamenn sem leið sina lögðu i
Laugardalinn i bliðviðrinu á
sunnudaginn áttu vafalitið von á
fjörugum og spennandi leik. En
strax i byrjun var ljóst hvert
stefndi, stöðugar kýlingar leik-
manna beggja liða út i loftiö
vitnuðu um að i vændum væri enn
einn hörmungarleikurinn. A 20.
min var Olafur Valsmarkvöröur
nær búinn að slá knöttinn i eigið
mark eftir hornspyrnu Akurnes-
inganna, en Þorgrimi tókst að
bjarga á linu. A 39. min. urðu
Magna á mistök i Valsvörninni,
Július komst á auðan sjó, en
Ólafur bjargaði málunum meö
snaggaralegu úthlaupi_. Búið spil.
I þau 2 skipti sem IA var nær búið
að skora mark var um að ræða
mistök varnarmanna Vals-
manna. Ætli það segi ekki nokkuö
mikiö um gæði knattspyrnunnar.
Seinni hálfleikurinn hófst með
sama hnoðinu, en á 50. min. urðu
skyndilega straumhvörf. Jón
Askelsson tók hornspyrnu fyrir
IA, sendi vel fyrir Valsmarkiö.
Sigurður Halldórsson brunaöi
eins og eimreið inn i vitateiginn
og skallaði knöttinn firnafast f
bláhorn Valsmarksins, 1-0. Glæsi-
legt mark.
Allt i einu var kominn lifsneisti
i leikmenn, einkum hresstust
Valsararnir. Skömmu eftir
markið átti Guðmundur Þor-
björnsson gott langskot á mark
1A, en Bjarni varði. Undirtökin
voru orðin Vals. A 65. min. smaug
hörkuskot Sævars rétt yfir mark
Skagamanna. Sókn Vals varð
aldrei verulega þung vegna þess
að það vantaöi alla snerpu og
grimmd i sóknarmennina. Akur-
nesingarnir vöröust af kappi og
reyndu öðru hvoru skyndisóknir.
Einni slikri náðu þeir þegar 2
min. voru til leiksloka. Arni og
Sigþór brunuðu upp völlinn. Hinni
kappsfulli Magni Pétursson
reyndi að komast á milli Sigþórs
og knattarins en varð fyrir þvi
óláni að spyrna boltanum yfir
Claf og i eigið mark, 2-0 fyrir IA.
Bjarni markvörður Sigurðsson
var algjör yfirburðamaður i liði
1A að þessu sinni, yfirvegaður og
ákveðinn. Þá átti Július nokkra
góða spretti i framlinunni og það
kom þvi verulega á óvart að hann
skyldi vera tekinn útaf undir lok
leiksins. Annars er sú knatt-
spyrna sem ÍA-liðið leikur ekki
beint fyrir augað, eilifur barn-
ingur og langsendingar. Hvar er
hið netta samspil sem svo oft
hefur veriö einkenni Skaga-
manna?
1 rauninni hefði Valur ekki
þurft að sýna nema miðlungsleik
til þess að sigra 1A, en... Vörnin
var ótraust, einkum i fyrri hálf-
leik og alla markagræögi vantaði
i sóknaroddana. Sævar er alltaf
traustur i sinni stöðu, Njáll barð-
ist vel sem fyrr og Valur sýndi oft
góð tilþrif i framlinunni. Guð-
mundur Þorbjörnsson kom inná i
Bjarni Sigurösson, sem var besti maður 1A i leiknum gegn Val, sést hér
fagna marki á einkar ,,frumiegan”hátt. Mynd: —gel.
seinni hálfleik og við það breyttist
allur leikur Vals til hins betra.
Sérstaklega var áberandi hvað
Grimur naut sin vel eftir inná-
komu Guðmundar. Nóg um það.
Valur þarf nú að sækja á bratt-
ann.
-IngH
Valsmenn úr lelk?
• eftir Tap gegn ÍA 0-2
einum af 3 riðlunum i Evrópu-
bikarkeppninni i frjálsum
iþróttum um helgina, en
Ilanirnir sigruöu einmitt fyrir
hálfum mánuði I riðlinum 2
Luxemburg þar sem tsland var
meöal þátttakenda.
Keppnin um helgina fór fram i
Frakklandi og urðu Aust-
ur-Þjóðverjar öruggir sigur-
vegarar, fengu 143 stig. I ööru
sæti voru Italir með 125 stig og
Frakkar i þvi þriðja með 109
stig. Danir fengu 44 stig.
Hörkukeppni
í Póllandi
Keppni i einum riðli Evrópu-
bikarkeppninnar i frjálsum fór
fram i Póllandi um helgina og
þar sigruðu heimamenn eftir
mikinn barning. Þeir fengu 128
stig. 1 öðru sæti urðu Vest-
ur-Þjóðverjar meö 125 stig og
þriðju urðu Ungverjar með 124
stig. ótrúlega jöfn keppni.
Aðeins 2 efstu þjóðirnar komast
i úrslitin i Júgóslaviu i ágúst.
•
S
Islenskur
slgur 3:0
Island sigraði Færeyjar i
drengjalandsleik i knattspyrnu
sem fram fór i Njarðvik siðast-
liðinn sunnudag, 3-0. Mörkin
skoruðu Halldór Askelsson,
Pétur Grétarsson og Hlynur
Stefánsson. Landinn var mun
betri i leiknum og hefði átt að
skora mun fleiri mörk.
Jafntefll
KA og Þór gerðu jafntefli, l-l i
leik sinum á Akureyri sl. föstu-
dagskvöld. Jónas Róbertsson
skoraði fyrir Þór, en Ásbjörn
Björnsson jafnaöi fyrir KA.
Markasúpa í Eyjum
þegar IBV og Fram gerðu jafntefli
IBV og Fram gerðu jafntefli i
sannkölluðum markaleik i 1.
deildinni sl. laugardag, 3-3.
Frammararnir voru ávallt fyrri
til að skora, en heimamenn gáfust
aldrei upp og jöfnuðu jafnharðan.
Eyjamenn léku undan
strekkingsvindi i fyrri hálfleik, en
samt voru Frammararnir fyrri til
að skora.
1-0:
Varnarmenn IBV voru að paufast
meö boltann. Guðmundur Torfa-
son komst inni sendingu og
þrumaði boitanum i netið.
l.-l:
Vitaspyrna á Fram á 37. min.
Dómurinn þótti strangur og um-
deildur. Or spyrnunni skoraði
Ómar Jóhannsson þó að
Guðmundur markvörður hefði
hendur á knettinum.
Bæði lið hófu seinni hálfleikinn
af miklum krafti og ekki leið á
löngu uns Fram hafði tekið for-
ystuna á ný.
2-1:
Páll missti knöttinn úr höndum
sér eftir aukaspyrnu Framara.
Pétur Ormslev var réttur maður
á réttum stað og skoraöi af stuttu
færi.
2-2:
A 51. min voru Vestmanna-
eyingarnir búnir aðjafna leikinn.
Sigurlás brunaði upp kantinn og
gaf fyrir. Gústaf Baidvinsson var
á auöum sjó þegar knötturinn
barst til hans og skoraði með
hnitmiðuðu skoti.
3-2:
Aöeins 3 min. siðar var Fram
enn komið yfir. Eftir heljarmikla
þvögumyndun i vitateig IBV náði
Ársæll að skjóta á mark. Siðasta
spölinn i markið hjálpaði Hafþór
Sveinjónsson knettinum.
3-3:
Þegar skammt var til leiksloka
tókst heimamönnum að tryggja
sér annað stigið. Ómar tók auka-
spyrnu, gaf boltann á Viðar
Eliasson og hann skallaði boltann
i netið.
Sigurlás og Ómar voru nokkuð
áberandi i liði IBV að þessu sinni,
útsjónarsamir og leiknir leik-
menn. Hjá Fram lék Guðmundur
Torfason stórt hlutverk i framlin-
unni og á miðjunni var Arsæll
góður. Hann er að verða einn
burðarása liösins, pilturinn sá.
G/INGH.
Sígurður
fljótastur
FH-ingurinn Sigurður P.
Sigmundsson varð langfyrstur i
mark i Alafosshlaupinu, sem
fram fór siðastliðinn sunnudag.
Hann hljóp hina rúmu 13 km á
44.41 min.
Annar i hlaupinu varð Gunnar
Snorrason, UBK og þriöji
Leiknir Jónsson, Armanni. Voru
þeir talsvert langt á eftir Sig-
urði.
Keppendur i hlaupinu voru 28
og var þeim raðað niður i
fjölmarga flokka.
Lloyd slgraði
Chris Evert Lloyd, Banda-
rikjunum sigraði Hana Mandli-
kova frá Tékkóslóvakiu i úr-
slitaleiknum i kvennaflokki i
Wimbelton-tenniskeppninni, 6-2
og 6-2.
Sigurvegararnir á opna GR-mótinu i golfi, Halldór Ingvarsson og
Stefán Unnarsson. — Ljósm.: —gel.
Halldór og
Stefán bestir
Halldór Ingvarsson og Stcfán
Unnarsson urðu sigurvegarar á
opna GR-mótinu i golfi sem
haldið var um helgina.
Þeir félagarnir fengu 87 punkta.
1 öðru sæti uröu Þorsteinn
Lárusson og Gunnlaugur Jó-
hannsson og i þriðja sæti urðu
Loftur ólafsson og Jóhann
Einarsson.
Verðlaun á mótinu voru hin
glæsilegustu og fengu 19 efstu
pörin einhvern glaðning.
- IngH.
Sveit GR hlutskörpust
Sveit GR varð sigurvegari i
Admiral-keppninni i golfi, sem
fram fór á Hvaleyrarholtsvellin-
um siðastliðið föstudagskvöld.
GR-ingarnir léku á 461 höggi.
1 öðru sæti varð sveit GS á 462
höggum og þriðja sveit NK á 465
höggum. I sigursveít GR voru
Ragnar Ólafsson, Sigurður P.ét-
ursson, Siguröur Hafsteinsson,
Eirikur Þ. Jónsson, óskar
Sæmundsson og Stefán Unnars-
son.
— IngH.