Þjóðviljinn - 25.07.1981, Page 6

Þjóðviljinn - 25.07.1981, Page 6
fi SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 25. — 26. júll 1981 Fyrir unga fólkið Það er laugardags- morgunn og ég er að f ara í tveggja daga frí til Þingvalla með mömmu og pabba. Ætli sé ekki best að kynna okkur. Ég heiti Ulla, mamma heitir Hermína og pabbi Hall- grímur en við köllum hann Hagga. Við lögðum af stað klukkan tíu á bílnum okkar sem er Trabant. Ekki byrjaði ferðin vel því þegar við vorum komin upp að Arnarvatni hvellsprakk hjá okkur. Meðan pabbi var að skipta um dekk skruppum við mamma niður að vatni og fengum okkur sundsprett. Ekki leið samt á löngu þar til pabbi kom og sagði okkur að drífa okkur í fötin svo við gætum haldið áfram. Ferðin gekk vel það V 5 4 E R T <X H 5 R T 3 l P ■Ð D /lA I K 5 E L K X L ■Ð Y P F H • 0 0 V n T 9 I 0 R V t F Z' i K K X 5 M 5 5 P N r F P F y % • 0 F H < 5 M 0 0 V R Ð u R k átqjarugl þetfa fe/ur í sér ^rjQ kaapstaði her a lav\dt. t~R a/a tldoÁJÁJ sem eftir var nema i Hveragerði. Þá byrjaði mamma að tuða um það að hún væri svöng (hún var alltaf svöng ef hún sá veitingahús). En pabbi var ekki lengi að svara. Hann sagði að hún væri nógu feit svo hún færi ekki að borða á veitinga- húsi. Klukkan var eitt þegar við komum til Þingvalla og búin að finna tjald- stæði. En nú átti eftir að reisa tjaldið. Við höfðum keypt það áður en við fórum í ferðalagið og auðvitað kunnum við ekki að setja það upp. En loks tókst það og var ekki nema von því til okkar kom maður sem átti eins tjald og hjálpaði okkur að setja það upp. Á meðan við settum tjaldið upp hafði mamma hitað kaffi og smurt brauð. Við drukkum í rólegheitum, töluðum um ferðalagið og gerðum áætlun um hvernig við ættum að eyða þessu fríi. Er við vorum búin að borða ákváðum við að þvo og bóna bílinn að utan og innan. Ekki gekk það alveg átakalaust því þegar mamma var að pússa giuggann að innan rak hún sig í spegilinn og mölbraut hann. Pabbi var að ná í vatn þegar hann heyrði brothljóðið og kom hlaupandi og spurði mömmu hvort hún hefði meitt sig. En þegar mamma sagði að hún hefði ekkert meitt sig bara brotiðspegilinn varð pabbi alveg æf ur og sagði henni að passa sig að eyðileggja ekki bílinn. Sólin var farin að lækka á lofti þegar við vorum búin að taka bílinn í gegn. Þrjú Ijóð Hallgrímur Pétursson Hallgrímur sat f Saurbæ og orti þar Ijóðin sín, þá kom Gudda og kyssti hann svo ósköp sæt og fín, en þá fór Hallgrímur að brosa og sagði: Elsku Gudda mín. Passíusálmar og kvæðin mörg voru ort svona lon og don, skáldið mikla heitir sem sé séra Hallgrímur Pétursson Sigríður Hafberg Forvitni Klukkan. Hvað er klukka? Er það hlutur? Er það dýr? Pabbi? Pabbi minn, af hverju ertu svona skrítinn? Hættu að vera svona skrítinn og segðu mér heldur hvað klukka er? Mamma af hverju liggurðu þarna? Hvað er í glasinu hér? Hvers vegna er pabbi svona valtur? Mamma gerðu það segðu mér það? Erla M. Haraldsdóttir Bjarni Thorarensen Bjarni var námfús maður það var ekkert þvaður. Hann var dómari strangur enda tveggja metra langur. Baldur Guðnason Efnið hér á síðunni er sótt í fjölritaða bók sem krakkarnir í 6. bekk 29. stofu Lundarskóla á Akur- eyri gerðu veturinn 1978—79 í samráði við kennara sinn. Eins og þið sjáið skortir ekki hug- myndaflugið þar nyrðra. Myndirnar af krökkunum eru hins vegar frá því í sumar. Því miður náðist ekki í Baldur Guðnason þegar Ijósmyndari blaðs- ins var á ferð um Akureyri um daginn. Valgeir Blöndal Magnússon. Sigrlöur Hafberg. Erla M. Haraldsdóttir. Pétur Halldórsson.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.