Þjóðviljinn - 25.07.1981, Blaðsíða 10
10 SÍPA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 25. — 26. júll 1981
I sumar-
bústaðinn
og
ferðalagið
Björgunarvesti
Árar — Arakeipar
Bátadrekar. Keðjur
Kolanet — Silunganet
önglar. Pilkar. Sökkur
Vængjadælur
Bátadæiur
íslensk flögg
Fiaggstangarhnúðar
Flaggiinur. Festlar.
•
Sólúr
Vasaljós
Viöarkol
Grillvökvi
Gasferðatæki
Olíuprímusar
Steinolía, 2 teg.
Plastbrúsar
•
Minkagildrur
Músa- og Rottugildrur
Slökkvitæki
Brunateppi
Dálkar — vasahnifar
Olíulampar
Olíuofnar
Olíuhandlugtir
Olíulampar
10, 15, 20 litra.
Garðyrkjuáhöld
Skóflur allskonar '
Kantskerar
Garðhrifur
Garðkönnur
Garðslöngur
Vatnsúðarar
Hrifur. Orf. Brýni.
Garðsláttuvélar
Handverkfæri allskonar
Kúbein. Járnkarlar.
Jarðhakar. Sleggjur.
Múraraverkfæri
Málning og lökk
Fernisolia. Viðaroiia
Hrátjara
Carbólin
Blakkfernis
Plasttjara
Penslar. Kústar.
Rúllur
Ryðeyðir — Ryðvörn.
Varmapokar, ál
Regnfatnaður
Kuldafatnaður
Ullarnærfatnaður
Termo-nærföt
Ullarsokkar
Ferðaskyrtur
Gúmmístigvél
Veiðistígvél
Ferðaskór
V
Ananaustum
Simi 28855
r<£
Við riðum bara berbakt i dag—þeir eru svo mjúkholda þessir hestar i sveitinni.
Bændur og ferðamálin
Fyrir nokkru hitti ég
kunningja minn á götu,
bónda af öðru landshorni.
Við látum nafn hans liggja
miili hluta.
— Þú vilt gjarna taka á
móti ferðamönnum í sum-
ar, segi ég.
— Já, ég hef f ullan hug á
því, vilji einhver líta inn.
Bændur hafaekki til þessa
verið fyrirferðarmiklir í
ferðamannaþjónustunni.
Það hefur engum dottið í
hug að þeir gætu sinnt
henni, ekki einu sinni þeim
sjálfum. Og auðvitað eru
fæst sveitaheimili undir
þetta búin. En þau eru þó
til og fer f jölgandi.
Ferðamannaþjónusta okkar Is-
lendinga hefur til þessa einkum
verið fólgin i þvi, — og þá á ég viö
erlenda ferðamenn fyrst og
fremst, — að aka þeim i hópum á
einhverja ákveðna, fagra og sér-
kennilega staði og búa þeim gist-
ingu á hótelum. Með þessu móti
fá hinir erlendu gestir að visu
nasasjón af landinu i nokkrum
mæli en um þjóðina sjálfa og lifs-
hætti hennar eru þeir litlu nær.
Dvölin á bændabýlunum yrði
með nokkuð öðrum og ég vil segja
mannlegri hætti. Fegurð landsins
er ekki bara bundin viö fáeina
staöi. Hún mætir okkur við hvert
fótmál ef viö höfum augun opin.
Ég held, að með nokkurra daga
dvöl á bændabýli, komist gestur-
inn i nánari snertingu við náttúru
landsins, kynnist fjölbreytni
hennar og töfrum betur en með
nokkru móti öðru, auk þess sem
hann kynnist bændafólkinu, störf-
um þess og lifsviðhorfum. Og hér
er ég ekki aöeins að tala um er-
lenda gesti heldur einnig, og að
sumu leyti ekki siður tslendinga,
islenskar fjölskyldur.
Þetta sagði nú bóndinn og mér
fannst honum segjast vel. Og nú
hafa þeir bændur, sem I stakk eru
búnir til þess að taka á móti
ferðamönnum, stofnað meö sér
landssamband. baö hefur látiö
gera skrá yfir þá sveitabæi, sem
reiðubúnir eru til þess aö taka á
móti feröamönnum og hvaö til
boða stendur á hverjum stað.
Listi yfir þessa bæi liggur hjá
ferðaskrifstofum og upplýsingar
er einnig að fá hjá Stéttarsam-
bandi bænda og Búnaðarfélagi Is-
lands i Bændahöllinni. Hér verður
þessara bæja getið og stuttlega
frá þvi greint, hvað til boða stend-
ur á hverjum stað.
1. Kiðafell I Kjós: Gisting fyrir
8 manns i 3 tveggja manna her-
bergjum og 2 eins manns. Hesta-
leiga, veiðileyfi.
2. Brennistaðir i Reykholtsdal:
Gisting i heimahúsi fyrir 6 manns
I þremur herbergjum. Gisting I 3
sumarhúsum, 2ja til 6 manna.
Hestaleiga, veiðileyfi.
3. Sigmundarstaðir i Hálsa-
sveit: Möguleiki til gistingar,
svefnpokapláss. Lengri eða
skemmri ferðir á hestum. Gestir
sóttir að Reykholti ef óskað er.
4. Húsafell I Hálsasveit: Gisting
i sumarhúsum, 2—5 manna.
Svefnpokapláss í smáhýsum.
Sundlaug, hestaleiga i næsta ná-
grenni. Veiðileyfi I vötnum á
Arnarvatnsheiði. Skiðaaðstaða og
snjósleðaferðir á Langjökul. Opið
allt árið.
5. Fljótstunga i Hvitársiðu:
Gisting fyrir 5 manns i 1—2
manna herbergjum. Surtshellir
og Viðigeimir i næsta nágrenni.
Silungsveiöi, hestaleiga, sundað-
staöa i næsta nágrenni.
6. Bjarnastaðir I Hvltársiðu:
Hestaleiga, sem hefur verið rekin
i 10 ár. Vanur fylgdarmaður. Al-
gengast að farið sé i 1—2 klst.
feröir.
7. Garðar i Staðarsveit: Gisting
I heimahúsi I 1 tveggja manna
herbergi og allt að 6 manns I 2
herbergjum I sérhúsi, laxveiði,
berjaland. Sundlaug, hestaleiga
og bátaleiga i næsta nágrenni.
8. Ytri-Tunga i Staðarsveit:
Gisting i 1 tveggja og 1 eins
manns herbergi. Fjallgöngu-
möguleikar, sjóstangaveiöi,
silungsveiði, berjaland. Báta-
leiga og sundlaug i nágrenninu.
9. Kverná I Grundarfirði:
Tjaldstæði, lax- og silungsveiði,
hestaleiga. Aðstaða til að taka á
móti hópum hestamanna.
10. Bær i Reykhólasveit: Gist-
ing i 2 húsum 2—3ja manna, her-
bergi fyrir allt að 40 manns.
Verslun á staðnum. Veiðileyfi út-
vegað. Berjaland.
11. Stekkjarholt I Geiradals
hreppi: Svefnpokapláss fyrir allt
aö 10 manns i þremur herbergj-
um. Silungsveiöi I vötnum á
Tröllatunguheiði.
12. Svarfhóli I Geirdalshreppi:
Gisting 11—4 manna herbergjum.
Svefnpokapláss.
13. Brjánslækur á Barðaströnd:
Tjaldstæði. Lax- og silungsveiði.
Berjaland. Möguleikar á að fá
skipulagöar bátsferðir út i
Breiðafjarðareyjar.
14. Staður I Hrútafirði: Gistiað-
staöa fyrir 12 manns i 2 og 3
manna herbergjum. Tjaldstæði.
Greiðasala. Hægt að taka á móti
allt aö 100 manns I mat i einu.
15. Aðalbói I Miöfirði: Veiði-
ferðir á hestum inn á Arnarvatns-
heiði. Skipulagðar 6 daga ferðir
um Miðfjaröardali og Arnavatns-
heiði. Vanur fylgdarmaður. Há-
mark þátttakenda 7 manns i
hverri ferð. Fæði, gisting, reið-
ver og veiðiútbúnaður innifalinn.
16. Geitarskarð I Langadal:
Gisting og fæði. Hestaleiga og sil-
ungsveiði.
17. Steinsstaðaskóii I Skaga-
firði: Gistiaðstaða, svefnpoka-
pláss fyrir 30—40 manns. Hesta-
leiga, silungsveiði, sundlaug.
18. Hraun I Fljótum: Sumar-
hús, hentar vel 4—6 manna
fjölskyldu. Möguleikar til veiða i
sjó og I Miklavatni. Hægt aö fá
leigðan bát. Hestar útvegaðir,
berjaland.
19. Syðri-Hagi, Arskógsströnd:
Gisting I heimahúsi og hjólhýsi.
Sjóstangaveiði frá landi eöa úr
bát. Hestaleiga. Bilar með eða án
bilstjóra.
20. Nes I Aðaldal: Hestaleiga til
lengri eða skemmri feröa. Vanur
fylgdarmaður. Möguleikar til sil-
ungsveiða i Vestmannsvatni og
Kringluvatni. Tjaldstæði.
21. Berunes i Berufirði: Gist-
ing, (farfuglaheimilið), svefn-
pokapláss.
22. Nýi-Bær, Kirkjubæjar-
hreppi: Tvö hjólhýsi, henta vel
allt að 5 manna fjölskyldu.
23. Arbæjarhjáieiga, Holta-
hreppi: Hestaleiga, lengri eöa
skemmri feröir. Vanur fylgdar-
maður.
24. Sel I Grimsnesi: Gisting.
Veiðileyfi. Sundlaugar I nágrenn-
inu.
Hér hefur verið getið þeirra 23
sveitabýla, auk Steinsstaðaskóla,
sem opin standa ferðamönnum
en aðeins stiklað á stóru um það,
hvað tll boöa stendur á hverjum
stað. Fæði mun viðast hvar eöa
allsstaðar hægt að fá. En eins og
fyrr segir: allar nánari upplýs-
ingar er aö fá hjá ferðaskrifstof-
unum og félagasamtökum bænda
I Bændahöllinni. — mhS
íiestum þeim sveitabæjum. sem taka á móti ferðamönnum,
er hægt aö fá að renna fyrir lax eða silung.