Þjóðviljinn - 25.07.1981, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 25.07.1981, Blaðsíða 11
Helgin 25. — 26. júli 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 11 Rætt viö Hauk Hafstað framk væmdastj óra % ífe' ' \ S ^ " _ - * ■ > ' . Viö I Landvernd teljum aö þessi óskipulegu feröalög um hálendiö gangi ekki lengur Hálendiö og afréttarlönd eru mjög viökvæm svæöi Feröanienn Landgræðslan brýnt verkefni Landvernd eru lands- samtök áhugamanna um umhverf isvernd. Aðildar- félög Landverndar eru 65 talsins, sagði Haukur Hafstað framkvæmda- stjóri þegar Þjv. kom að máli við hann á dögunum: — Markmiö okkar er aö bæta umgengni fólks við landið. Og vernda allt þaö sem mótaö hefur landgæöi fram á okkar daga. Samtökin eru áróðurssamtök meö óbundnar hendur. Náttúru- verndarráö er hins vegar rikis- stofnun og framkvæmdaaðili. Landvernd rekur upplýsingamiö- stöö og heldur gangandi skrif- stofum m.a. meö fjárstyrk frá áhugafólki og samtökum sýslu- og sveitarfélaga, sem aöild eiga aö Landvernd. Viö höfum frumkvæði aö ýmsu sem horfir til betri vegar um verndun náttúru og umhverfis. Þaö eru mörg dæmi þess aö viö kærum land- spjöll eöa önnur brot á náttúrunni til viökomandi stofnana. — Þaö eru þvi miöur fáir sem gera sér grein fyrir þvi, aö viö höfum misst 2/3 af gróðurlendi landsins. Hingaö til hefur eyöst meira af gróöurfari árlega en viö höfum getað grætt upp. Viö höf- um reynt aö sporna viö öfugþró- uninni. Þjóöhátiöargjöfin hefur veriö notuö (frá 1974—79) til land- græöslu — en þvi miöur vitum viö ekki hvort okkur hefur tekist aö halda i horfinu. Meira er þaö áreiöanlega ekki. En land- græöslan er mjög brýnt verkefni. — Hálendiö og afréttarlönd eru mjög viökvæm svæöi, aö ég tali nú ekki um þegar hart er i ári eins og nú, bæöi fyrir ofbeit og túrisma. Náttúran er viðkvæm bæöi gagnvart mönnum og dýr- um. A sama tima og landgræöslu- áætlun hefur veriö i gildi hefur fé og hrossum stórfjölgað, þar meö ofbeitin aukist. Sömu sögu er aö segja af feröafólki. Engir þeirra aöilja sem standa fyrir þessari óheillavænlegu þróun virðast taka tillit til ástandsins. Viö i Landvernd teljum aö þessi óskipulögöu feröalög um hálendið gangi ekki lengur. Þaö er út i hött aö halda áfram að auglýsa erlendis eins og gert er, svæöi sem þola ekki áganginn. Ferða- málaráð og -skrifstofurnar hafa hingað til lagt áherslu á að áuglýsa upp viðkvæmu staðina — á meöan sömu staðireru að glata gildi sinu sem náttúruyndi. — Viö bindum miklar vonir viö þaö sem nú er veriö aö vinna aö viö gerö nýrra laga um umhverf- ismál. Þar er gert ráö fyrir aö flest þessi mál fari undir eitt ráöuneyti. Meö þessum lögum bindum viö vonir um aö hægt veröi aö forðast ósköpin og færa skipulag i rétt horf. — óg. Hótel Borgarnes Aukið gistirými. Gistið i /ögru'- / umhverfi, borðið góðan mat, , ^jótið góðrar þjónuslu « HóJebBorgarnes Simar 93-7 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.