Þjóðviljinn - 25.07.1981, Síða 17
Helgin 25. — 26. júli 1981 Þ.JÓÐVILJINN — StÐA 17
Það er flestra manna hald, að
þeir þurfi að hverfa margar þing-
mannaleiðir frá iðandi götulffi
borgarinnar til að ganga á vit
þeim fróðleik og þeirri sögu sem
lifir i iandslaginu, gömlum bók-
um og munnlegri geymd hag-
orðra þjóðvitringa. Þetta er sorg-
legur misskilningur. Sá sem
stendur við pylsuvagninn á Lækj-
artorgi ellegar húkir i neyð sinni
og biður kaldur og hrakinn eftir
næsta strætisvagni uppi á
Hlemmi, hann stendur á barmi
hyldjúps sagnabrunns. Göturnar
anga af sögu. Ævintýrailminum
slær fyrir vit þess sem aðeins sér,
veit og skilur. Gengnar kynslóðir
hafa höndlað eiíift lif I aragrúa
örnefna og kennileita borgarinn-
ar (Sjá aðalskipulag Reykjavik-
ur). Þessu til staðfestingar og
frekari upplýsingar munum vér
rekja nokkra þætti af fornum
blöðum og eftir fróðu fólki. Það
skal þó tekið fram að þættir þess-
ir eru ekki færðir i letur fyrir til-
stuðlan Ömefnastofnunar — þó
lesendum kynni i fljótu bragði að
virðast svo. Lesandi góður, við
skulum hverfa aftur um aldir:
Hlemms þáttr
skötutaps
Hlemmr hét maðr. Hann bjó at
H lem mi Hann var sonr Snorra en
móðir hans var Braut. Þau
bjuggu þar sem heitir at Snorra-
braut Hann var giptr Laugu
landnámskonu. Hlemmr átti ok
vingott við Stjörnu dóttur Laugu
(sem Lauga hafði átta fyrri með
Kalkofni landnámsmannisem bjo
atKalkofnsvegi. Laugavegur ber
nafn sitt af Laugu landnámskonu.
Stjarna bjó þar sem nú heitr
Stjörnubió.
Hlemmr var veiðimaðr. Hann
réri ti'tt til fiskjar. Þat var ein-
hverju sinni at Hlemmr renndi
eftir skötu skammt undan landi,
en var treg skatan. Hlemmr lét
sér ekki skipast við tregðuna en
Stlgr sat laungum I brugghýsi
sinu...
hrópaði til skötunnar ókvæðisorð
ok skoraði á hana að bita. Kom
þar að skatan stóðst ekki frýjun-
arorð Hiemms bónda ok mælti:
„skil ek fyrr en skellr i tann,” og
beit svá á öngul Hlemms. Hrósaði
Hlemmr nú happi veiðimanns ok
reri sem ákafast til lands. Vagn
hét maðr ok var nefndr Kaffi-
vagn.Hann beiðHlemms ok vildi
hafa skötuna. Hlemmr klauf
Kaffivagn i' herðar niðr.
Gekk nú Hlemmr i átt til
Hlemms. A leiðinni kennir hann
þarfar þvagláts og ágerist þat
eftirþvi'sem nærdregur Hlemmi.
Leggr Hlemmr þá frá sér sköt-
una. J. Þorláksson og Norðmann
hét maðr, hann hafði flUið til ts-
lands undan ofriki Haralds hár-
fagra. Hann þótti litt við alþýðu-
skap. ErHlemmrhafði látið þvag
sitt réðist J. Þorláksson og Norð-
mann að Hlemmi. Hlemmr sner-
isttil varnar. Flýði þá J. Þorláks-
son og Norðmann til bUðar sinn-
ar. En er Hlemmr landnámsmað-
ur hugðist gripa til skötunnar var
hún hvorfin. Heitir þar siðan
Hverfiskata en hefir breyst i
Hvarfisgala fyrir áhrif latmælgi
og gáíeysis. Þat var ok hald
manna á 19. öld að gatan héti svo
þar sem hún hverfur við Hlemm.
Stígs þáttr
Grandasonar
Stigr hét maðr. Hann bjó at
Mannvits-Brekku. Þar heitir nU
Brekkustígr. Stigr var maðr
drykkfeldr. Móöir hans var Ný-
lenda ok bjó þar sem nú heitir Ný-
lendugata.FaðirStigs var Grandi
landnámsmaðr ok var maðr laus-
girtr.
Stigr reisti brugghýsi þar sem
hann kallaöi at Landakoti Sat
hann þar laungum. Hringr hét
maðr. Hann bjó at Hringbraut
Þeir Stigr þreyttu kappdrykkju
tiðum. Þat var einhverju sinni er
þeir sátu at Landakoti at þeir
gerðusk ölir mjök ok óðir. Rann á
þá berserksgangr. Mokki hét
maðr. Hann bjó at Mokka. Hann
var lika maðr mjaðargjarn. Hann
drakk oftliga meö Torga land-
námsmanni sem bjó at Lækjar-
torgi ÞéirStfgr og Hringr réiusk
nú inngaungu at Mokka og léttu
eigi áðren þeir höföu mölvað hUss
Mokka bónda ok limlest Torga
landnámsmann. Váru nU góðu
ráðin dýr. Þetta fréttu bræðr
tveir er hétu Póstur ok Simi
Moggi hét maðr hægfara ok var i
sendiförum fyrir þá Póst. Er nU
nefndr til sögunnar Slippr land-
námsmaðr. Honum flutti Moggi
tiðendin. Slippr brást hart við ok
snarliga. Hann var maðr vaskr.
Gerði Siippr þeim Stigi fyrirsát.
Tókst þar með þeim bardagi.
Lauk svá at Slippr hneppti þá Stig
ok Hring i bönd. Þat sá Nýlenda
móðr Sti'gs. Hon mælti ,,nU munu
bræðr borga”. Þar heitir siðan
Hlemmr útvegsbóndi.
Bræðraborgarstigur er hon mælli
svá.
MUli hét maðr. Hann var bróðir
Siðu-Halls ok nefndur Siðu-MúlL
Hann átti stein mikinn, holóttan
innan. Þangat flutti Slippr þá
bandingja tvá. SettiSiðu-MUli þá i
staninn ok sváfu þeir þar of nótt-
ina.
(óskar og jón guðni tóku saman ).
Kalkofn landnámsmaðr,faðir
Stjörnu.
AKUREYRI
ER BÆR FRAMFARANNA
ÞAR BÍÐA TÆKIFÆRIN ÞEIRRA, SEM KUNNA AÐ NOTA
ÞAU KOMIÐ — SJÁIЗKYNNIST
AKUREYRI FRAMTIÐARRÆR
Hópferöaskrifstofan Umferðarmiðstööinni
v/Hringbraut — Sími 22300
Stærsti floti
hópferðabifreiða á
landinu.