Þjóðviljinn - 02.09.1981, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 2. september 1981 þJOÐVILJINN — StÐA 5
Vetrarstarf Þjóðleikhússins
Hefst með gamanleik
lýkur með óperettu
Þjóðleikhúsið hefur nú kallað
fólk sitt tilstarfa, haustið nálagst
og nú um helgina verður tjaldið
dregið frá er finnskir leikarar
gista húsið. Lcikhúsið sjálft hefur
starfsemi sina með frönskum
gamanleik, en I kjölfarið fylgja
nýtt islenskt verk eftir Steinunni
Jóhannesdóttur leikkonu og leik-
gerð Sveins Einarssonar á Húsi
skáldsins, einni bókanna um ólaf
Kárason Ljósviking.
Sveinn Einarsson Þjóðleikhús-
stjóri kallaði blaðamenn á sinn
fund i gær til að kynna vetrar-
starfsemina sem að vanda er fjöl-
breytt. A fjölunum i vetur veröa
Islensk verk sem erlend, óper-
etta, ballett og bamaleikrit.
Dans á rósum
Hinn 25. sept. verður frumsýnt
leikritið Hótel Paradls eftir
Frakkann Georges Feydeau sem
nokkrum sinnum áður hefur
kitlað hláturtaugar islenskra
leikhúsgesta, ma. i Fló á skinni.
Sigurður Pálsson þýðir, en leik-
stjóri er Benedikt Arnason.
Ýmsirreyndustu leikarar hússins
eru i aðalhlutverkum svo sem
Róbert Arnfinnsson, Bessi
Bjarnason, Sigriður Þorvalds-
dóttir, Guörún Stephensen og
Arni Tryggvason.
Það verk sem eflaust á eftir að
vekja hvað mesta athygli i vetur
er Dans á rósum eftir Steinunni
Jóhannesdóttur sem frumsýnt
veröur i október. Það f jallar um
þrituga konu sem fer norður til
Akureyrar i þeim tilgangi að
halda upp á 10 ára stúdentsaf-
mæli sitt. Þar gerist eitt og annað
sem veröur til þess að hún fer að
gera upp lif sitt. Leikstjóri er
Lárus Ymir Óskarsson sem i
fyrsta sinn leikstýrir i Þjóðleik-
húsinu, leikmynd er eftir Þórunni
Sigriði Þorgrfmsdóttur og i aðal-
hlutverkinu er Saga Jónsdóttir
Ólafur Kárason og
Mozart
Jólaverkefni Þjóðleikhússins
verður Hús skáldsins i leikgerð
Sveins Einarssonar, en svo sem
áður segir liggur ein bókanna um
Ólaf Kárason eftir Halldór
Laxness til grundvallar. Halldór
Laxness veröur áttræður á næsta
ári og þessi sýning er honum til
heiðurs, en skáldiö hefur oft
komiö við sögu leikhússins bæði
með leikverkum og setu i Þjóð-
leikhúsráði. Það verður Eyvindur
Erlendsson sem leikstýrir en
leikmynd gerir Sigurjón Jóhanns-
son.
Eftir áramót eru á dagskrá
leikrit Peters Shaffers Amadeus
um tónskáldið Mozart, sem að
undanförnu hefur vakiðumræður
og athyg'li leikhúsgesta austan
hafs sem vestan. Helgi Skúlason
leikstýrir verkinu en Valgarður
Egilsson þýðir.
Ballettinn Giselle verður settur
upp i febrúar og er stefnt að þvi
að islenskir dansarar eigi sem
allra stærstan hlut að sýningunni.
Sögur úr Vinarskógieftir Odön
von Horváth verður frumsýndur i
mars, en sá höfundur hefur verið
mikið leikinn úti i Evrópu að
undanförnu. Hann skrifar um
millistriðsárin, sem jafnt i leik-
ritum sem kvikmyndum hafa
verið mikið til umfjöllunar, að
likindum vegna skyldleika við
okkar tima. Haukur J. Gunnars-
son verður ieikstjóri og Alister
Powell gerir leikmynd.
Ástarsaga aldarinnar
Óperetta leikársins verður
Meyjaskemman, tónlistin er
eftir Shubert, en verkið fjallar
einmitt um ævi hans. 1 óperett-
unni eru mörg hlutverk og sagði
Þjóðleikhússtjóri aö ætlunin væri
að gefa ungu kynslóöinni tæki-
færi, en undanfarin ár hafa ýmsir
Nýtt leikrit
eftir Steinunni
Jóhannesdóttur
frumsýnt
í október
nýir söngvarar komið fram á
sjónarsviðiö.
Litla sviðið veröur i notkun að
venju og þar verða spennandi
verkefni á fjölunum nú i haust.
Fyrster að geta Ástarsögu aldar-
innarsem byggð er á kvæöabálki
finnsku skáldkonunnar Mörtu
Tikkanen. Þaö er Kristin Bjarna-
dóttir sem þýöir og hún fer jafn-
framt með eina hlutverkið. Leik-
stjóri er Kristbjörg Kjeld, en
Guðrún Svava Svavarsdóttir ger-
ir leikmyndina. Skáldkonan er
væntanleg til landsins i haust og
er ekki að efa að margan fýsir að
sjá hana og heyra, en Marta
Tikkanen ersú kona i rithöfunda-
stéttsem vakið hefur hvað mesta
athygli á Noröurlöndum að
undanförnu.
Kinverska óperan
Annað verkefni sem sýnt
veröur á litla sviöinu er Kisu-
leikur eftir István örkney,
ungverskan höfund sem leikhús-
gestir þekkja frá þvi að verk hans
Það er kominn gestur var sýnt i
Iönó fyrir nokkrum árum. 1 leik-
riti þessu eru mörg kvenhlutverk
og fá leikkonur hússins að spreyta
sig i kisuleik.
Barnaleikritið aö þessu sinni
veröur Gosi i leikgerð Davids
Robinson, en margir kannast
eflaust við söguna um spýtu-
strákinn Gosa. Arni Ibsen þýðir.
Þar með eru upptalin helstu
verkefni Þjóðleikhússins i vetur
og aðeins eftir aö nefna gestaleik-
ina sem eru ekki af verra taginu.
Fyrst er aö nefna franskan leik-
hóp sem kennir sig við rauða
hattinn. Vwkið er að miklu leyti
látbragðsleikur og verður kynnt
betur siðar. Peking-óperan
kemur i heimsókn i október og
sýnir tvö prógrömm meö þremur
verkum hvort.
Að ldcum má geta þess að ein
sýning veröur tekin upp frá fyrra
ári, Sölumaður deyreftir Miller
sem sýndur var við mjög góðar
undirtektir á siðasta ári.
Sala áskriftarkorta hefst á
morgun 3. sept. og kosta frá 376
kr. upp i 420 kr. en almennt miða-
verð er 62 kr. Jafnframt hefst
sala á gestaleik Sænska leikhúss-
ins frá Helsinki á fimmtudag en
það sýnir aðeins tvisvar sinnum,
á laugardag og sunnudag.
—ká
Peking-óperan kemur i heimsókn I október
Alþýöubandalagiö rœðir orku- og iðnaðarmál
Ráðstefna í Verkalýðs-
húslnu á HeUu 19.-20. 9,
Æmk
7 ■
Svavar
Hjörleifur
Guðmundur Þ
rV»*
Skúli
Elsa
Guðmundur
fi
I
p*
Þórir
Bragi
Ragnar
Alþýðubandalagið efnir til ráðstefnu um orku- og iðnaðarmál
dagana 19. og 20. þessa mánaöar i Verkalýðshúsinu að Hellu á
Rangárvöllum.
Dagskrá:
Laugardagur 19. sept.
Kl. 10—12 Ráðstefnan sett: Guðmundur Magnússon
form. iðnaöarnefndar Alþýðubandal.
Stefnumótun i orku- og iðnaðarmálum:
Hjörleifur Guttormsson iönaðarráðherra
Vaxtamöguleikar og vandamál
ialmennum iðnaði: Skúli Alexandersson
alþingismaöur.
kl. 12.-12.30 Matarhlé.
kl. 13.30—16 Nýting auölinda, iðnþróun og
rekstrarform i iðnaöi: Ragnar Arnason
hagfræðingur.
Samfélagsleg áhrif iönaðar:
Bragi Guöbrandsson félagsfræðingur.
Iðnþróun og byggðastefna:
Elsa Kristjánsdóttir oddviti
Kjör og aöbúnaður I iðnaöi:
Guðmundur Þ. Jónsson formaður Lands-
sambands iðnverkafólks, Þórir Daniels-
son framkvæmdastjóri Verkamanna
sambands Islands.
kl. 16—18 Almennar umræður
kl. 18—19 Umræðuhópar aðstörfum.
kl. 21 Kvöldvaka.
Sunnudagur 20. sept.
kl. 9—12 Umræðuhópar að störfum
kl. 12—13.30 Matarhlé
kl. 13.30—17 Alit umræöuhópa — Almennarumræður
kl.17 Ráðstefnunnislitið: Svavar Gestsson
formaður Alþýðubandalagsins.
Bílferð veröur frá Umferðarmiðstööinniki. 8 á laugardagsmorgni
og frá Hellu til Reykjavikur kl. 18 á sunnudag.
Ráðstefnan er opin öllum liðsmönnum Alþýðubandalagsins. Þátt-
taka tilkynnist skrifstofu Alþýðubandalagsins hið fyrsta og eigi síð- I
ar en 10. september. Þátttökugjald er kr. 100. Allar nánari upplýs- |
ingar fást á skrifstofu Alþyöubandalagsins Grettisgötu 3. simi 17500.
lðnaðarnefnd Alþýðubandalagsins