Þjóðviljinn - 02.09.1981, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 02.09.1981, Blaðsíða 14
1 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 2. september 1981 ALÞÝÐUBANDALAGID Opinn fundur með Svavari Alþýðubandalagið i Vestur-Skaftafellssýslu boð- ar til almenns og opins stjórnmálafundar með Svavari Gestssyni félagsmálaráðherra að Leik- skálum, Vik i Mýrdal föstudaginn 4. september kl. 20.30. Alþýðubandalagið I Vestur- Svavar Gestsson Skaftafellssýslu Aðaifundur kjördæmisráðs á Norðurlandi-vestra: Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra kemur sam- an til fundar á Hvammstanga n.k. laugardag 5. september kl. 13. Venjuleg aðalfundarstörf. Allir félagsbundnir Alþýðubandalagsmenn velkomnir á fundinn. Stjórn kjördæmisráösins Ragnar Arnalds Guðmundur J. Almennur fundur á Hvammstanga 1 tengslum við aðalfund kjördæmisráða Alþýðubandalagsins á Norður- landi vestra verður almennur stjórnmálafundur i Félagsheimilinu á Hvammstanga laugardaginn 5. septembern.k. og hefst kl. 15:00. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands Is- lands, og Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra, hefja umræður og sitja fyrir svörum. Fundurinn er öllum opinn! Alþýðubandalagið VIÐTALSTÍMAR þingmanna og borgarfulltrua Viðtalstimar þingmanna og borgarfulltrúa Laugardaginn 5. september milli kl. 10 og 12 verða til viðtals fyrir borgarbúa á Grettisgötu 3: Guðmundur Þ. Jónsson og Guörún Helgadóttir Eru borgarbúar hvattir til að nota sér þessa viðtalstima. Guðmundur Guðrún Alþýðubandalagið á Vestfjörðum Kjördæmisráðstefna Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum verður haldin iTálknafirðidagana 12. og 13. september n.k. og hefst klukkan 2 eftir hádegi laugardaginn 12. september. Á kjördæmisráðsteínunni verður rætt um stjórnmálaviöhorfið, hags- munamál kjördæmisins, félagsmál Alþýðubandalagsins á Vestfjörð- um, sveitarstjórnarmálin og fleira. Alþýðubandalagsfélögin á Vestfjörðum eru hvött til að kjósa fulltrúa sina á ráðstefnuna hið fyrsta. Stjórn kjördæmisráðs Alþýöubandalagsins á Vestfjörðum Aukafundur i borgarstjóm Reykjavikur: Mörg ágreiningsmál Á fimmtudaginn kemur verður aukafundur i borgarstjórn Reykjavikur og liggja fyrir honum fjölmörg ágreiningsmál, stór og smá, en sem kunnugt er getur borgarráð nú ekki útkljáð slik mál þótt borgarstjórn sé I sumarleyfi. Meðal þeirra mála sem fyrir fundinum liggja er ákvörðun hafnarstjórnar um byggingu skipaverkstöðvar i Reykjavik, en borgarráð visaði þeirri tillögu til afgreiðslu borgarstjórnar. Ágreiningur er um stofnun Fjöl- brautarskóla við Ármúlaskóla og vill meirihlutinn samþykkja samning þar að lútandi við rikið, en Sjálfstæðisflokkurinn er á móti. Agreiningur er um aftur- köllun á byggingarlóð til einstak- lings en meirihluti borgarráðs komst að þeirri niðurstöðu að lóðarhafi hafi beitt blekkingum og skýrt ranglega frá stað- reyndum til þess að fá lóðina. Liggur m.a. fyrir yfirlýsing þess efnis frá starfsmanni mannsins. Sjálfstæðisflokkurinn vill að maðurinn haldi lóðinni. Þá er ágreiningur um fjárveitingar til breytinga á húsnæði Borgar- skipulagsins við Borgartún og flutning fjárveitingar umhverfis- málaráðs til framkvæmda við Tjörnina i Torfuframkvæmd- irnar. Þá er ágreiningur um tillögu Alberts Guðmundssonar um að þegar i stað verði kosin nefnd til að undirbúa 200 ára afmæli borgarinnar árið 1986 en aðrir borgarráðsmenn vilja ekki fallast á hana. Telja þeir eðlilegra að sú borgarstjórn sem kosin verður næsta vor og kemur til með að bera alla ábyrgð á undirbún- ingnum kjósi slika nefnd. Þá má nefna ágreining um að leggja teiknistofu Borgarspitalans niður svo og ágreining sem Albert Guðmundsson gerir um fjárveit- ingar til þess að breyta húsnæði Hvitabandsins þannig að þar verði hægt að sinna öldruðum. Þá verður áreiðanlega hart deilt um þá tillögu meirihluta borgarráðs að láta deiliskipuleggja ibúða- byggö 1 Sogamýri á grundveili þeirrar- teikningar sem fyrstu verðlaun hlaut i samkeppni þar um. Leggur meirihluti borgar- ráðs til að verðlaunateikningunni verði breytt m.a. þannig að lækkuð verði húsin næst Gnoða- voginum. Sjálfstæðisflokkurinn vill hins vegar ekki að byggt verði á svæðinu. Þá má eiga von á deilum um aðild Reykjavikur að nýrri heilsugæslustöö á Seltjarnarnesi en heilbrigðisráð hefur lagt til að þangað sæki Vesturbæingar heilsugæsluþjónustu. Albert Guðmundsson er alfarið.á móti þvi að Reykvíkingar leiti út fyrir hreppamörkin til eins eða annars en Davið Oddsson gerir ágreining um kosntnaðarhliðina og vill ekki að borgin eigi mann i stjórninni. Að lokum má nefna að Sigurjón Pétursson gerir ágreining um kaup borgarinnar á landareign við Grafarholt, sem erfingjar Björns Birnis eru að selja. —AI Offjölgun á arkitektum Nýlega barst blaðinu fréttatil- kynning frá DSSA Deild sjálfstætt starfandi arikitekta. Nýlega var haldinn sameiginlegur fundur stjórna félaga sjálfstætt starfandi arikitekta á Noröurlöndum. Siðan segir i fréttatilkynningunni að i ljós hafi komið að arkitektar eigi á Noröurlöndum við svipuð vandamál að striða, hvaö varði samninga við launþega, öflun verkefna og ýmis innri málefni. Þá segir að lokum i fréttatil- kynningu þessari: Atvinnuleysi meöal arkitekta i Danmörku er um 14%, um 2% i Sviþjóð, en ekki er teljandi at- vinnuleysi i Noregi, Finnlandi og á tslandi. A öllum Norðurlönd- unum er veruleg offjölgun á arkitektum, sem fljótlega mun leiða til aukins atvinnuleysis, að óbreyttu ástandi. Fundarmenn voru sammála um aö leggja þyrfti aukna áherslu á hinn hag- nýta hluta arkitektanámsins. Formaður Islensku deildar- innar er Bárður Daníelsson. Aðrir i stjórn eru arkitektarnir Haukur Viktorsson og Karl-Erik Rocksén. A Bílbeltin ^ hafa bjargað Þjóðviljinn — Sandgerði Þjóðviljinn óskar að ráða umboðsmann i Sandgerði til að annast dreifingu og inn- heimtu fyrir blaðið. Þarf helst að taka til starfa 1. september. Uppl. hjá framkvæmdastjóra i sima 81333. DJOMIUINN Móðir okkar, tengdamóðir og amma Kristin Einarsdóttir Hæðargarði 50 verður jarðsungin frá Fossvogskapellu, fimmtudaginn 3. september kl. 10.30 f.hád. Sigurður Jónsson Erna Jónsdóttir Birna Jónsdóttir Kristinn Sigurðsson Hólmfriður Jónsdóttir Dagbjartur Grimsson Haraldur Ólafsson Gunnhildur Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Blaðbera vantar strax! í eftirtalin hverfí: • Sörlaskjól — Granaskjól tt Efstasund — Skipasund • ' Flyðrungrandi — Meistaravellir • Þingholtin Afleysingar víðsvegar um borgina. Ath. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar! V etrarálag Þjóðviljinn mun i vetur greiða 10% vetrarálag á föst laun blaðbera fyrir mánuðina október—mars. Er þetta hugsað sem ofurbtil umbun til þeirra, sem bera blaðið út reglulega og timanlega i misjöfnum veðrum. Þeir sem hafa byrjað blaðburð 1. september eða fyrr fá álag þetta greitt á októberlaun. Auðvitað fer Þjódviljinn að landslögum og greiðir 8.33% orlof á ÖLL LAUN blaðbera

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.