Þjóðviljinn - 02.09.1981, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 02.09.1981, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN MiOvikudagur 2. september 1981 Framkvæmdastofnun rfldsins óskar að ráða vélritara vanan almennum skrifstofustörfum nú þegar. Skriflegar umsóknir sendist lánadeild Framkvæmdastofnunarinnar, Rauðarárstig 31. "j~T= ORKUSTOFNUN 1 I GRENSÁSVEGI 9 - 108 REYKJAVÍK óskar að ráða vanan vélritara. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar til Orkustofnunar, Grensásvegi 9, Reykjavik, fyrir 8. sept. n.k. Orkustofnun Bókasafns fræðingur Hálf staða bókasafnsfræðings við Heilsu- verndarstöð Reykjavikur er laus til um- sóknar. Upplýsingar um starfið veitir fram- kvæmdastjóri. Skriflegar umsóknir á eyðublöðum sem stofnunin leggur til sendist fyrir 10. september n.k. Reykiavik Tilkynning um lóða- skráningu i Reykjavík Hér eftir verður ekki lengur nauðsynlegt að láta framvisa sérstaklega til lóða- skrárritara afsölum og öðrum skjölum, sem þinglýsa á varðandi fasteignir i Reykjavik. Reykjavik 2/9 1981 Skráningardeild fasteigna íslenska járnblendifélagid hf. óskar að ráða MÁLMIÐNAÐARMANN sem þarf að geta hafið störf sem fyrst. Um er að ræða vélvirkja eða plötusmið. Nánari upplýsingar gefur Jón Gunnlaugs- son,tæknifræðingur, i sima 93-2644 milli kl. 8.00 og 12.00 daglega. Umsóknir skulu sendar Islenska járn- blendifélaginu hf. á þar til gerðum um- sóknareyðublöðum, sem fást á skrifstofu félagsins á Grundartanga og Tryggvagötu 19, Reykjavik, svo og Bókaverslun Andrésar Nielssonar hf., Akranesi, fyrir 10. september n.k. Eldri umsóknir þarf að endurnýja. Grundartanga 1. september 1981. Húsnæði óskast Kennaraskólanemi og skrifstofustúlka óska eftir 2 - 3ja herbergja ibúð sem fyrst. Upplýsingar i sima 35571 og 71516 á kvöld- in eða á daginn i 84111. Guömundur Sœmundsson: Ekki vísitölu,hækkun’ 1. sept heldur stað- festing kjaraskerðingar Það má blekkja fólk mikið með orðum og tölum, en hvergi sé ég það gert jafn hrikalega og i kjara- málunum, t.d. i sambandi við visitöluna. Á þriggja mánaða fresti er þvi logið að fólki að laun þess hækki um ákveðin prósent, þetta 7 - 12% i einu. Auðvitað er þetta kjaftæði, — og verkalýðs- forystan gerir ekkert til að leið- rétta lygina, — tekur jafnvel und- ir hana. Sorglegur andskoti, en þvi miður rétt. Ég er enginn hagfræðingur og ræð ekki yfir neinni hagdeild, eins og forysta ASl, en ég tel mig nú samt botna talsvert i þessum málum. Og þetta er svo sem ekk- ert flókið, ef maður lætur slæma framsetningu og setningarfræði- legt pirumpár ekki fæla sig frá. Hinn 1. sept. nk. verður ein þess- ara „hækkana”. Þá skulu laun „hækka” um 8.92% vegna visi- tölu. En hver er sannleikurinn á bak við þessi ósannindi? Svo fikta þeir viö vísitöl- una Laun rýrnuðu jafnt og þétt mánuðina mai til júli sl. og höfðu i lok júli verið skert vegna hækk- andi verðlags, þannig að i dag þurfa þau að vera 8.96% hærri til að halda sama kaupmætti og 1. júni sl. Þessi 8.96% eru fundin á grundvelli gamals og úrelts út- reiknings á framfærsluvisitölu. Þvi má reikna með að raunveru- leg framfærsla fólks hafi að með- altali hækkað nokkuð meir á þessu timabili en nemur þessum 8.96%. Þá er vert að minna á að verð- lagshækkanir i ágúst koma ekki inn i útreikninginn nú, heldur að- eins smá brot af þeim. Skiptir sú staðreynd verulegu máli, þar sem allar rikisstjórnir leyfa ætið mestu hækkanirnar i mánuðin- um, þegar verið er að reikna út visitöluuppbót á laun. Og þær hækkanir koma ekki inn i visitöl- una fyrr en 4 mánuðum siðar. Kannski hafa einhverjir tekið eftir að hér eru tvær örlitið mis- munandi tölur. Framfærsla hækkaði um 8.96% á timabilinu, en laun hækka 1. sept. um 8.92%. Þjóðviljinn upplýsti á dögunum, að mismunurinn væri „tæknilegs eðlis”. Jú ókei. Það sem raun- verulega er hér á seyði er að hækkanir á áfengi og tóbaki hafa ekki áhrif á kaupgjald. En það merkir þó að ég gefi atvinnurek- enda minum eftir 10-kall af laun- um næstu þriggja mánaða. Ég vildi heldur gefa þennan 10-kall i styrktarsjóð Áhugahópsins um aukið lýðræði i verkalýðshreyf- ingunni. Nú, þann 1. sept. kemur 8.92% uppbót á launin. Af framansögðu er ljóst að þetta er ekki hækkun. Og þetta er ekki einu sinni uppbót sem vegur upp á móti verðlags- hækkunum i mai - júli. Til þess kemur hún of seint. Til þess er hún reiknuð út frá of hæpnum for- sendum. Uppbótin 1. sept. nk. er ekkert annaö en staðfesting þess að kjaraskerðing hafi farið fram. Viö viljum visitöluuppbæt- ur jafnóðum! Vinnuveitendasambandið hefur nú lýst þeim vilja sinum að breyta visitölukerfinu til að koma i veg fyrir vixlhækkanir verðlags og launa. Glöggur maður, Þor- steinn Pálsson! En hvernig á að fara að þessu? Að minu vesæla viti er aðeins til ein leið, — nefnilega að koma i veg fyrir að einhverjir aðilar hagnistá vixlhækkunum verðlags oglauna. Og nú skulum við sjá til, hvernig þetta er hægt. Segjum sem svo að i sept. nk. sæki 20 aðilar um það til Verð- lagsstjóra aö hækka framleiöslu sina eða þjónustu. Verðlagsráð ákvæði þá hversu mikla hækkun hver aðili fengi og tilkynnti þeim að þeir mættu hækka verðlag sitt 15. okt. nk. Þá hefðu Þjóðhags- stofnun og Hagstofa hálfan mán- uð til að reikna út áhrif þessara 20 verðhækkana á framfærslukostn- aö. Þann 15. október — eöa um leið og verðlagshækkanirnar tækju gildi — væru svo öll laun hækkuð i samræmi viö verðlags- hækkanirnar. Með þessu móti mundi enginn græða á vixlhækkununum og allir halda sinu. Ég geri ráð fyrir að við slika kerfisbreytingu mundi ásóknin i verðlagshækkanir minnka stórlega. Og þá færi ekki hjá þvi að verðbólgan hægði á sér. Og þá væru allir ánægðir — eða hvað? Hin breytingin sem við þurfum að hjálpa Þorsteini Pálssyni & Co að gera er svo eins og ég ýjaði að áðan, að gera forsendur visitöl- unnar réttari en þær eru i dag, altso að búa til nýjan visitölu- grunn sem miðist viö raunveru- lega framfærslu og neyslusam- setningu dagsins i dag. 24. ágúst 1981 Guðmundur Sæmundsson verkamaður, Akureyri PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða SENDIL, til starfa allan daginn, sem fyrst. Nánari upplýsingar verða veittar hjá starfsmannadeild. Fóstra Óskum að ráða fóstru á dagheimilið, Dyngjuborg frá miðjum október. Upplýs- ingar hjá forstöðumanni i sima 31135. I kLL FHUMSÝNIR: Þriðja augað Stolin leynivopn — Barátta upp á lif og dauða milli dularfullra afla i hinni dularfullu borg Hong Kong. JEFF BRIDGES —JAMES MASON tslenskur texti — Bönnuð innan 14 ára Sýndkl. 5 — 7 — 9og 11.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.