Þjóðviljinn - 03.09.1981, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 03.09.1981, Qupperneq 4
4 SIDA — ÞJÖÐVIUINN Fimmtudagur 3. september 1981 DIOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýds- hreyfingar og þjódfrelsis Otgefandi: Otgáfufélag bjóöviljans. Frarnkvæmdastjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ölafsson. Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Þórunn Siguröardóttir Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson Blaöamenn: Alfheiður Ingadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Kristin Ástgeirsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórs- son.Jón Guðni Kristjánsson. Iþróttafréttamaður: Ingólfur Hannesson. (Jtlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Björn Br. Björnsson . Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Eliasson. Hantírita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Auglýsingar: Unnur Kristjánsdóttir Skrifstofa: Guðrún Guövarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Afgreiösla: Kristin Pétursdóttir, Bára Sigurðardóttir. Simavarsla: ölöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns- dóttir. Ctkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Slðumúla 6, Reykjavik, simi 8 13 33. Prentun: Blaðaprent hf„ Sálrœn útbrot • Jón Baldvin Hannibalsson gerði sem kunnugt er til- raun til þess að komast til þings á vegum Alþýðubanda- lagsins fyrir 14 árum. Honum var haf nað enda þótt hann beitti föður sfnum fyrir sig. • Æ síðan hefur honum sviðið þessi niðurstaða og kemur það einkar skýrt fram í Alþýðublaðinu nú að undanförnu þegar hann ræðst með ódrengilegum hætti að formanni Alþýðubandalagsins. Telur Jón Baldvin að félagsmálaráðherra fáist einkum við það í ráðuneyti sínu að koma feðrum vina sinna til verka á vegum þess. Svona málf lutningur dæmir sig sjálf ur og er ástæðulaust að gera veður út af honum. • Hitt verður kannski fleirum Ijóst en áður af hverju Vilmundur Gylfason gatekki unnið með Jóni Baldvin. Er það vissulega íhugunarefni fyrir aðra Alþýðuflokks- menn, meðal annars þá sem hafa viljað efla félags- legar íbúðabyggingar. En það breytir ekki því að skrif Jóns Baldvins Hannibalssonar um Alþýðubandalagið eru fyrstog fremst sálræn útbrot, en ekki raunveruleg póli- tísk barátta. Á þann hátt verður f ramlag hans til stjórn- málaumræðunnar vegið og léttvægt fundið. —ekh Staöfesting # Stuðningsmenn álsamninganna með Morgunblaðið í broddi fylkingar lögðu ofurkapp á það, þegar skýrsla Coopers og Lybrand um súrálsmálið lá f yrir, að slík tak- mörkuð úttekt segði litla sögu, fram þyrfti að fara al- hliða skoðun á rekstri ISAL og viðskiptum millil dótturfyrirtækisins og móðurfyrirtækisins Alusuisse. Slík alhliða endurskoðun á vegum óháðs aðila eins og gert er ráð fyrir í álsamningnum hef ur nú farið f ram á reikningum íslenska álfélagsins 1980. # Og hvað kemur i Ijós? Niðurstaða bresku endurskoð- endanna er sú að nettóhagnaður ÍSAL sé vantalinn um 70 miljónir króna á árinu 1980. Það þýðir að Alusuisse hefur skotið undan nærri tveimur þriðju af hagnaði sínum vegna reksturs álverksmiðjunnar í • Straumsvík sl. ár. I samræmi við þetta hef ur framleiðslugjald ÍSAL verið endur'reiknað og rúmlega tvöfaldað. Vangreitt framleiðslugjald ársins 1980 nemur samkvæmt niður- stöðum bresku endurskoðendanna 21 miljón ísl. króna og hef ur f jármálaráðuneytinu verið falið að innheimta það með vöxtum frá 1. janúar sl. # Það er talandi dæmi um f ramkomu Alusuisse gagn- vart íslenska ríkinu og virðingu svissneska auðhringsins f yrir gerðum samningum, að bresku endurskoðendurnir telja að leiðrétta þurfi ársreikninga ISAL í 6 atriðum. Veigamestu leiðréttingarnar eru í sambandi við verð- lagningu á súráli og rafskautum, sem Alusuisse selur fSAL, svo og þarfnast afskriftir leiðréttingar við. # Alhliða endurskoðun Coopers og Lybrand á ársreikn- ingum ISAL 1980 er enn ein staðfestingin á því að beita verður fyllstu hörku til þess að fá Svisslendingana til að standa við samninga. —ekh ÍSAL-forstjórinn • Ragnar Halldórsson forstjóri ISAL ber brigður á niðurstöður Coopers og Lybrand varðandi ársreikninga 1980. Hann heldur því meðal annars fram að Alusuisse haf i sýnt reikninga sem sanna eigi að þeir haf i ekki látið ISAL greiða of hátt verð fyrir rafskaut (sbr. viðtal í AAorgunblaðinu). Hér fer forstjóri ISAL með rangt mál. Hið rétta er að Coopers og Lybrand fengu ekki aðgang að neinum frumgögnum né reikningum frekar en fyrri daginn. Á síðustu stundu bauðst Alusuisse til þess að leggja fram kostnaðartölur um framleiðslu rafskauta í verksmiðju sinni í Hollandi. En vel að merkja ekki fyrr en í nóvember, enda þótt bein fyrirmæli séu um það í ál- samningunum að endurskoðun sé lokið fyrir 1. septem- ber. Þá er einnig rétt að fram komi að Coopers og Lybrand nota útreikningsaðferð frá Alusuisse til þess að finna út viðmiðunarverð rafskauta. # Og svo hótar forstjóri ÍSAL að kæra! —ekh Samband ungra steinaldarmanna Eldri maöur um nútímann En úr þvl að þetta ber á góma er ekki ilr vegi að halda til haga kafla úr skýrslu eftir Willy Brandt formann jafnaðar- mannaflokksins i Vestur- Þýskalandi um framkvæmda- stjómarfund Alþjóöasambands jafnaöarmanna, sem haidinn var 15. til 16. júli sl. Hún er birt i Alþýðublaöinu sl. þriðjudag. Kaflinn er svona: „Vinir okkar frá Norður Evr- ópu útskýrðu afstöðu sina til umræðu sem fariö hefur fram, um kjarnorkuvopnalaust svæöi á Norðurlöndum, og hvernig þetia hefur áhrif á önnur svæöi i Evrópu. Þetta er spurning, sem mun verða þýðingarmeiri I framtiöinnien hún er Idag.For- sætisráðherrar Noregs, Dan- merkur og Finnlands sögðu okkur af sinum viðhorfum. Við hinir ættum einfaldlega að hlusta til að byrja með, þvi þetta mdl kemur okkur ekki beinlinis viö. Auðvitað vonumst við til þess, aö einhvern daginn verði hægt aö ræða þetta mál i viðara samhengi.En það verður ekki fyrr en hið viöara sam- hengi er orðið ljóst sem þetta mdl snertir okkur beint.” Willy Brandt gerir sér sem- sagt ljóst aö umræðan um kjarnorkuvopnalaust svæði á Noröurlöndum „mun verða þýðingarmeiri I framtiöinni en hún er i' dag”. Samband ungra steinaldar- manna hefur hinsvegar meiri áhuga á fortiðinni i vigbúnaðar- málunum, heldur en nútíð eöa framtiö. Lokið við Hafin bygging 1976 561 754 1977 737 478 1978 621 511 1980 542 536 1980 818 479 Ég vilgjarnan að þeir gefi sig fram, sem véfengdu þessar töl- ur.” 2000 löðir, 3729 íbúðir Hvað svo með úthlutun lóða? „Nærtækast er að fletta upp I Arbók Reykjavikur, sem borg- arhagfræðingur sér um útgáfu á. Samkvæmt henni hefur lóða- úthlutun veriö sem hér segir: 1975 — 292 lóðir 1976 — 714 lóðir 1977 — 217 lóðir 1978 — 508 lóðir 1979 — 156 lóðir 1980 — 425 lóðir Samband ungra „steinaldar- manna” hélt þing á Isafirði um siðustu helgi. Fáttmarkverter i ályktunum þingsins nema hvað lagt er til að lýðræðislegt mið- stjórnarvald flokksstofnana verði aukið, svo að hvorki al- mennir flokksmenn né þing- menn komist upp meö múður eöa sérskoöanir. Þó er vert að halda tii haga tveimur klausum úr samþykkt- um „steinaldarmanna” á tsa- firöi. Engir jafnaðarsinnar eða landsbyggðarmenn hafa komist upp með moðreyk á hinu mið- stýröa þingi. Samanber þessa klausu i stjórnmálaályktun: „Byggðastefna stjórnvalda veröi uppbyggingarstefna en ekki jöfnunarstefna. Dregið verði úr niöurgreiðslum og jöfnun á verði einstakrá vöru- tegunda og unnið aö þvi aö af- nema þær með öllu.” Um þetta gæti Matthias Bjarnason hafa sagt aö svona færi þegar „gróðapungar að sunnan” koma á Isafjörð til þess að gera samþykktir. r Ahugasamir um fortíðina Og svo er það hernaðarjafn- vægið sem „steinaldarmönn- um” er ákaflega annt um og vilja I engu raska. Þeir lýsa þvi aö sjálfsögðu harðri andstööu við kjarnorkuvopnalaust svæði 'á Norðurlöndum: „Viöleitni til að raska þessu jafnvægi, m.a. meö einhliöa yf- irlýsingum um kjarnorku- vopnalaust svæöi á Norðurlönd- um (þar sem reyndar er ekki nein slik vopn aö finna) getur aöeins orðið til að veikja stöðu lýöræðisrikjanna gagnvartSov- étri'kjunum í okkar heimshluta. öllu nær væri að semja viö Sov- étrikin um að lýsa Norðurlöndin og Kolaskaga sameiginlega kjarnorkuvopnalaust svæöi.” „öllu nær” já.... Hvers vegna ekki „Sjálfsagt væri hinsvegar” o.s.frv. LWilly Brandt um kjarnorku vopnalaus Norðurlönd. Ekki fœrri lóðir né íbúðir Tíminn birtir I gær viðtal við Kristján Benediktsson borgar- fulltrúa þar sem hann visar til föðurhúsanna nokkrum Ihalds- rangfærslum i' húsnæðismálum. „En nú er mikiö skrifað um húsnæðiseklu I Reykjavik, og ýmsir segja að ástandiö hafi aldrei verið eins slæmt og núna og vilja kenna meirihluta borg- arstjórnar um og hafa um það stór orö.einkum þeir sem skrifa i Velvakanda. „Rétter þaö. Ýmsir hafalátið stór orö falla i okkar garö I bréf- um til Velvakanda. Þeir fá líka þeim mun stærri fyrirsagnir og stærra letur og stóryrðin eru meiri. Jafnvel er gengiö svo langt að segja að ekkert hafi verið byggt og engum lóðum út- hlutað siðan núverandi meiri- hluti tók við. Þetta lepur svo hver upp eftir öðrum, sumir af vanþekkingu, aðrir af illkvittni i garð okkar I meirihlutanum. Órökstuddar fullyrðingar og rangfærslur lenda venjulega um siðir í föðurhúsunum. Við getum t.d. litiö á skýrslur byggingarfulltrúans I Reykja- vík um fullgerðar Ibúöir og fjölda fbúða, sem hafin var býgging á s.l. 5 ár: --------------©3 Kristján Benediktsson bendir á staðreyndir. Arin 1978 - 80 var hafin bygg- , ing á 336 lóöum á eignarlandi i ■ Selási. Borgin skipulagði það | land og sá um gatnagerð og frá- I rennsli. Þessum 336 lóðum má , þvi bæta við tölurnar fyrir um- ■ ræddar lóðir hér að framan. I Þessi þrjú ár voru þvi samtals 1425 lóöir til ráðstöfunar. Það , sem af er þessu ári er búið að ■ úthluta 474 lóöum. Þannig lætur nærri að heild- artala lóða siðustu fjögur árin , se 2000 hér i' Reykjavik. Er þaö svipað og næsta fjögurra ára I timabil á undan. Arin 1976 - 80 voru fullgeröar , 3279 IbúöiriReykjavik. Sömuár fækkaði íbúunum um 1200 manns. Mikil eftirspurn núna stafar , þvihvorki af þvi að fólkinu hafi fjölgað né hinu að ekki hafi ver- I ið byggt. Astæður þess hljóta aö vera , aðrar.” —e.k.h. | skoríð

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.