Þjóðviljinn - 03.09.1981, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 03.09.1981, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. september 1981 Nýjar bækur óg tímarit * Sögufélag Isfiröinga: Ársritiö komið út KomiO er út ársrit Sögufé- lags Isfiröinga undir ritstjórn Ólafs Þ. Kristjánssonar, sem nýlega er látinn. Þetta er 24. árgangur ritsins, sem er fjöl- breyttog efnismikið að vanda. Meginmál þessa heftis er um hvalveiöar I norðurhöfum 1883 til 1914 eftir Joh. Tönne- sen í þýöingu Skúla Jenssonar og meö inngangi eftir Jón Þ. Þór. Greinin er prýdd fjölda mynda. I ársritinu eru auk þessa greinar eftir þá bórö Flóventsson, Jóhannes Daviösson, Lýö B. Björnsson, Asgeir Jakobsson og Kristján frá Garðsstöðum. Skrímsla- rima Jóns Hjaltasonar er gamankvæöi um smalann I Armúla birt eftir handriti Jó- hanns Hjaltasonar fræöi- manns. Guömundur Ingi Kristjáns- son á þarna Hrafnseyrarkvæöi og er frásögn og myndir af Hrafnseyrarhátiðinni 1980 i ritinu. Þá er grein um Erlend Þórarinsson sýslumann eftir séra Öla Ketilsson. Kápumynd ársritsins er af merki Vest- ur-lsafjaröarsýslu sem var notuö á Alþingishátiöinni 1930 og I timaritinu er teikning eftir Björn Guömundsson á Núpi frá Hrafnseyrarhátiö 1944. Margt fleira er til fróöleiks i þessu mýndarlega timariti Sögufélags Isfiröinga. —óg Samvinnan I nýútkomnu hefti af Sam- \ vinnunni er m.a. aö finna eft- I irtaliö efni: 1 „Baráttan um byggöir f landsins”, ritstjórnargrein. I „Hvernig vill samvinnufólkiö ■ sjálft móta hreyfingu sina”, Valur Arnþórsson segir frá því ■ helsta, sem geröist á fundum ■ stjórnarinnar á siöasta starfs- ® ári. „Núlliö verkar letjandi á ! allan efnahagsvöxt”, sagt frá I ræöu Erlendar Einarssonar ■ forstjóra á siöasta aöalfundi | Sambandsins. „Ýmsar fréttir ■ frá aðalfundi SÍS 1981”. ■ „Hrekkjabragöiö”, bernsku- I mynd eftir Böövar Guölaugs- I son meö teikningu eftir Arna I Elvar. „Kvöld á Þverárbökk- ' um”, kvæöi eftir Pálma Eyj- | ólfsson. „Lftiö lauf á stórum ■ meiöi”, Sigriöur Thorlacius Isegir frá Kvennanefnd Al- þjóöasamb. samvinnumanna, Tryggingafélag samvinnu- manna: „Aðalfundur i nýjum húsakynnum”. Sigriöur Har- aldsdóttir skrifar um neyt- endamál. „Vel heppnuö hús- mæðravika i Bifröst”. „Kost- ur fremur en galliaö búa á af- skekktum stað”, viötal viö Jón Sigurösson, skólastjóra Sam- vinnuskólans. „Annaö lif i þessu lifi”, minnst 100 ára af- mælis Huldu, birt er grein eft- irSigurö Nordal, ummæli Jón- asar frá Hriflu og ljóö eftir Einar Benediktsson. Visna- spjall. Tveir frásagnameist- arar Gyöinga: Gæddur kimni og visku i bland viö barnslega * skynjun, pistill um Nóbels- skáldiö Samuel Josef Agnon, eftir Hjört Pálsson. „Hellis- munnin eöa Sagan um geit- ina”, eftir Agnon i þýöingu Hjartar Pálsspnar. —mhg Æskan Blaöinu hefur borist 7.-8. tbl. Æskunnar. Er þaö aö vanda fjölbreytt aö efni og meðal þess má nefna: Grein um Bertil Thorvalds- sen, myndhöggvara. .JFiskar kunna aö tala”. Kvöldsögur Æskunnar: „Kata i kolakomp- unni”. „I Þrastaskógi”, ljóö eftir Ólaf Jóhann Sigurösson. „Juri Gagarin, fyrsti geimfar- inn”. „öræfatöfrar”, úr ævi- minningum Guömundar Ein- arssonar. „Rauöi kross Is- lands”, eftir Ómar Friöþjófs- son, erindreka. „Fjölskyldu- þáttur” I umsjá Kirkjumála- nefndar Bandalags kvenna i Reykjavik. „Poppþáttur — ævintýriö um Bubba og Utan- garösmenn”. „Reykingar”, eftir Helgu Jakobsdóttur, Lindarbergi, V-Hún., en greinin er úr ritgerðasam- keppni Krabbameinsfélags- ins. „Gagnleg notkun áttavita”. Skólakeppnin 1981 I frjálsum iþróttum. Auk þessa er I blaö- inu margvislegt annaö efni. —mhg Búnaðarblaðið Freyr Meöal efnis i siöasta tbl. ■ Freys er eftirfarandi: | „Skattalögin”, ritstjórnar- [ grein i tilefni af viötali i blaö- inu viö Arna Jónasson. I I greininni er m.a. bent á, aö ■ timabært hafi veriö aö skatt- | leggja veröbólgugróöann. ■ Hinsvegar þykir ósanngjarnt hversu frumbýlingar og þeir, sem standa i byggingarfram- kvæmdum, fá auknar skatta- byrðar i samanburöi viö þá, JJ sem reka gróin bú. „Kartöfl- | umar þurfa aö veröa fyrir ■ sem minnstu hnjaski”, viötal I viö Agúst og Magnús Sigurös- u syni I Birtingaholti, en þeir | hafa náö góöum tökum á kart- ' öflurækt. „Bændur fengu _ nokkrar réttarbætur viö, end- urskoöun skattalaganna”, ■ viötal viö Arna Jónasson, erindreka Stéttarsambands ■ bænda, þar sem hann greinir L. frá breytingum, sem geröar voru á skattalögunum s.l. vor og eru bændum I hag. Jafn- framt lætur hann i ljósi þaö álit sitt aö skattalögin muni ekki standa lengi óbreytt þar sem hinir vel stæöu munu hagnast meira og meira á þeim, en hinum illa stæöu bændum sér gert sifellt erfiö- ara fyrir fæti. „Hvanneyr- inganýlenda i Ultuna i Sviþjóö sJ. vetur”. „Nythæstu kýr nautgriparæktarfélaganna árið 1979”, Ólafur E. Stefáns- son gerir grein fyrir nythæstu kúm nautgriparæktarfélag- anna og birtir töflur annars vegar yfir kýr sem mjólkuöu 250 kg mjólkurfitu eöa meira og hinsvegar kýr sem mjólk- uöu 230 til 249 kg mjólkurfitu og minnst 5500 kg mjólkur ár- iö 1979. — mhg I Já, — tvenn gleraugu eru betrien ein! — Ljósm. —gel, Bókasafn Kópavogs í nýtt húsnæði: Lánþegar aðstoða við flutningana Þessa dagana er veriö aö leggja siöustu hönd á innréttingar i nýj- um húsakynnum fyrir Bókasafn Kópavogs i Fannborg 3—5. Bóka- safniö veröur lokaö frá og meö 7. september n.k. vegna flutnings- ins en til aö Kópavogsbúar veröi ekki bókarlausir á meöan er heimilt aö fá allt aö 10 bókum aö láni I einu þangaö til. Meö þessu móti er lánþegum veitt góö þjón- usta, en um leiö geta þeir iagt. hönd á plóginn viö flutning safns- ins meö þvi aö skila bókunum I nýja safniö. Gert er ráö fyrir aö safniö veröi opnaö á ný um miöj- an september. Stefnuskrárnefnd SÍS Stjórn SIS hefur nú skipaö stefnuskrárnefnd i samræmi viö ályktun siöasta aöalfundar. 1 nefndinni eiga sæti: Hjörtur Hjartar, formaöur, Hjörtur E. Þórarinsson, Olafur Jónsson, Höröur Zóphoniasson, Dagbjört Höskuldsdóttir, Arni Benedikts- son og Þórir Gunnarsson. Meö nefndinni starfa þeir Guömundur Guömundsson og Haukur Ingi- bergsson, starfsmenn Sambands- ins. Nefndinni er ætlaö að semja frumvarp aö stefnuskrá fyrir samvinnuhreyfinguna, er sendist öllum samvinnufélögum til um- fjöllunar ekki siðar en 1. okt. 1981. Er siöan ætlunin aö leggja endurskoðaö frumvarp fyrir aö- alfund Sambandsins 1982, til af- greiðslu. —mhg Nýi tónlistarskólinn: Nýtt húsnæði í Ármúla Á horni Grensásvegar og Ár- múla hefur Nýi tónlistarskólinn tekiö á leigu húsnæöi um 470 ferm aö flatarmáli og flyst öll starfsemi skólans úr Breiöagerö- isskóla I þetta nýja húsnæöi nú i haust. Oll aöstaöa skólans mun gjörbreytast viö tilkomu þessa húsnæöis. M.a. fær skólinn þarna rúmgóöan tónleikasal. Ýmsar nýjungar eru fyrirhugaöar sem kynntar veröa þegar aö þeim kemur. Breytingar i söngdeiid veröa þær nú aö hún skiptist i almenna deild, kórdeild og ljóöa- og óperu- deild. Almenna deildin veröur fyrir byrjendur, Kórdeild veröur starfrækt fyrir þá sem eru I kór- um og þá sem stefna að þvi að komast i kór, fer sú kennsla ein- göngu fram i hóptimum og veröa skólagjöld þar miklu lægri. I ljóöa- og óperudeild veröa ein- göngu þeir sem vel eru komnir áleiöis I námi. Kennari söngdeild- ar er Siguröur Demetz Franzson. Kennslufyrirkomulag i skólan- um veröur þaö sama og veriö hef- ur þau þrjú ár sem skólinn hefur starfaö, þ.e. i öörum hljóðfæra- leikstima vikunnar er nemandinn einn, en i hinum 2—4 nemendur saman, en reynsla þessa fyrir- komulags hefur veriö jákvæö. Skólinn verður settur i hinu nýja húsnæöi skólans þriöjudag- inn 15. september kl. 5/30 s.d. Mánudaginn 7. og þriöjudaginn 8. sept. kl. 5—7 þurfa eldri nem- endur aö staöfesta umsóknir sin- ar frá i vor meö greiðslu fyrri hluta skólagjalds. Miövikudag og fimmtudag 10. og 11. sept. kl. 5—7 þurfa nemend- ur af biðlista aö staðfesta um- sóknir sinar, einnig veröur þá tekiö á móti umsóknum nýrra nemenda og nemenda i forskóla 6—8 ára barna. Nýi tónlistarskólinn þakkar forsvarsmönnum Breiöageröis- skóla, Bústaöakirkju, Karia- kórsins Fóstbræöra og Félags- heimilis K.F.U.K. sem lánaö hafa húsnæöi undir starfsemi skólans frá stofnun hans. Skólastjóri Nýja tónlistarskólans er Ragnar Björnsson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.