Þjóðviljinn - 04.09.1981, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN: Föstudagur 4. september 1981
kærleiksheimilið;
„O, hvað mávar eiga gott. Þeir f á að vera við
ströndina allt árið".
9 ára
gamall
vinningshafi
Þórhildur llalla Jónsdótt-
ir, 9 ára, sótti í gær verðlaun
sem hún haföi hlotiö i áskrif-
endaþraut Þjóöviljans. Þór-
hildur vann plötu sem hún
valdi sjálf i hljómplötuversl-
un Steina h.f. i Karnabæ.
Hljómplatan Deió með
Ladda varöifyrir valinu, en
Þórhilt’i fannst frekar fáar
barnapiutur til.
A föstudaginn byrjar svo
Þórhildur i skólanum eftir
sumarleyfið sem hún eyddi
með ömmu sinni. Amma
henna. á sumarbústað við
Elliðavatn og er i honum allt
sumarið og hefur þaö gott
sagöi Þórhildur.
Vonandi gengur Þórhildi
Þórhildur Halla meö plötuna
sem hún valdi sér.
vel i skólanum, og vonandi
fær hún ekki strax leið á plöt-
unni hans Ladda.
viðtalið
Rætt við Ragnar
Georgsson
á fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur
13000
nemendur
og 700
kennarar
1 vikunni hófst skólastarf aö
nýju eftir sumarfri. t fram-
haldsskólum og Háskóla fer
nemendum sifjölgandi ár frá
ári, en okkur lék forvitni á aö
vita hversu margir settust á
grunnskólabekk f Reykjavik í
vetur og höföum þvi samband
viö Ragnar Georgsson á
fræösluskrifstofu borgarinnar.
„1 grunnskólunum i Reykja-
vfk veröa tæplega 13 þús. nem-
endur, börn og unglingar og þá
er miðað við 10 aldursflokka.
Þetta er mjög svipað og var á
siöasta skólaári, en við teljum
að nemendum fækki ekki jafnt
ört og undanfarin ár. Aldurs-
flokkarnir eru ekki lengur eins
misstórir og áður, elsti árgang-
urinn hefur ætið verið langfjöl-
mennastur, en nú hefur þetta
jafnast meira út.
Hvaöeru margir grunnskólar
starfandi I Reykjavik?
„Grunnskólarnir eru 24 af
ýmsum stærðum. Sumir hafa
ekki nema fyrstu 6 bekkina eins
og gömht bamaskólarnir en
langflestir hafa alla bekkina.
Kennslustaðirnir eru 24 og þá
eru meö taldir tveir einkaskól-
ar,Landakotsskóliog ísaksskóli
og ennfremur æfingaskóli
Kennaraskólans, sem er rekinn
ööruvisi en aðrir skdlar en hefur
engu aö síður sitt skólahverfi.
Eitthvaö er enn i smföum?
„Jú, það eru ekki f ullbyggðir i
Ragnar Georgsson: Helmingur grunnskólanema i Reykjavik
býr austan viö Elliöaár. Mynd — gel.
Breiðholti, ölduselsskóli Selja-
skóli og Hólabrekkuskóli. Þetta
eru fjölmennir skólar, en eru
ekki komnir i fullt gagn ennþá.
Hvaö eru margir skólar I
Breiðholti?
„Þar eru 5 skólar og það má
benda á það, að barnafjöldinn i
borginni hefur færst þannig til,
að helmingur þeirra á heima i
Breiðholti og Arbæ, þannig að
miðlína erum Elliðaár. Þetta er
mikil breyting frá þvi sem áður
var.
Erhætt viö þær hugmyndir aö
aka börnum milli skólahverfa
til aö nýta skólana betur-
„Bömum er ekki ekiö milli
skólahverfa, heldur er táll i för-
um til afskekktari bústaða i
bæjarlandinu. Hins vegar var
gerö sú breyting i vetur að
draga tír mikilvægi hverfa-
marka sem áður hafa gilt. Nú er
einungis talað um heildarskóla-
hverfi ai innan þeirra eru
mörkin óljós, þannig að við get-
um, ef á þarf að halda, stýrt
börnum i þann skóla sem ekki
endilega er næstur þeirra bú-
stað, heldur næstnæstur, til að
þurfa ekki að fjölga bekkjar-
deildum.
Hvaö veröa margir kennarar
starfandi til aö fræöa þessi
börn?
„Þeir verða öðruhvoru megin
við 700. Kennurum hefur f jölgað
nokkuð, þvi' það hefur farið vax-
andi að hafa skertar stöður.
Konur eru alltaf að vinna á i
kennarastétt og þær óska mikið
eftir skertum stöðum. Þetta
veldur fjölguná höfðatölu kenn-
ara en kennaragildum hefur
farið fækkandi að undanförnu,
samfara færri nemendum.
— ig-
D allas-konurnar
Glæsimennska ár hverju strái
Dallas. Dallas. tsienskir
sjónvarpsglápendur hafa ekki
farið varhluta af frægö þessarar
borgar i Texas sem fyrir tæpum
tveimur áratugum komst i
heimsfréttirnar þegar forseti
Bandarikjanna var myrtur þar
á götu. Þessa dagana eru þaö
fjölskylduvandamál vægast
sagt leiðinlegra broddborgara
sem fá i þaö minnsta suma til aö
stökkva upp og slökkva á kass-
anum meö hraði. Þaö vita vist
allir viö hvaö er átt, sjálfan
sjónvarpsþáttinn Dallas, um
þetta forrika auðvaldspakk þar
sem karlarnir vaöa I auöi og
völdum, en konurnar eru puntu-
dúkkur og kynverur, annaö
ekki.
En það er ekki nóg meö að
sjónvarpið hampi þessu liöi,
bókaútgefendur hafa slegist i
hópinn og nú getur að lesa um
Dallas konurnar á litlum 223
siðum frá Setbergi, en höfundur
er Burt Herschfeld.
Hverjar eru þessar konur? Jú
það eru þær Ellý hin sterka og
trausta eiginkona, Sue Ellen
glæsileg og greind, Kristin
einnig fögur. Pam hrifandi og
aðlaðandi og Lucý ung og ljós-
hærð. Þessar upplýsingar eru
fengnar af bókakápunni.
Þegar gluggað er i textann
kemur i ljós að bókin er að
mestu uppfuli af samtölum milli
persónanna, en inn á milli eru
stuttar lýsingar sem gefa til
kynna hvers konar lifi er lifað.
„Það var á tuttugasta og
fyrsta degi hitabylgjunnar aö
Ellý Ewing tók stóra ákvörðun.
Hún hafði lokið við morgun-
snyrtinguna og sat fyrir framan
spegilinn og horfði á sjálfa sig.
Þetta andlit i speglinum kom
henni ekki ókunnuglega fyrir
sjónir. Hárið var ennþá ljós-
jarpt og augun blá og kvik. En
úr þroskuöum andlitsdrátt-
unum mátti lesa áhyggjuvott,
kviöa sem hún gat ekki lengur
dulið... Hún var ekki lengur
unga fegurðardisin sem hún
hafði áöur veriö. Arin höfðu
markað henni spor, sem minntu
á að hún var komin af léttasta
skeiði”.
Um aðra konu i Dallasborg
segir þetta: „Kristin var bráö-
falleg, þótt hún væri alls ómáluö
og hún var aðeins klædd nær-
fötum þegar hún sneri aftur inn
i svefnherbergið með kaffibolla
i hvorri hendi”.
Um lækninn Harlan Danvers
segir hins vegar og takið eftir á
hvað er lögð áhersla i hans lýs-
■■■■■■■■■■■■■■■■■■1
ingu: „Harlen Danvers læknir
var fyrirmannlegur i fasi og hélt
sjúklingum sinum og vanda-
málum þeirra i hæfilegri fjar-
lægð, svo sem mörgum læknum
er tamt. Hann var sannfærður
um að með þvi móti gæti hann
hagnýtt visindalega þekkingu
sina best. Þrátt fyrir smjaðurs-
lausa framkomu hafði hann
rikulega samúð með þvi fólki
sem leitaði til hans á
raunastund”.
Og enn ein lýsing I lokin: „Sue
Ellen sat við snyrtiborðið og
farðaði á sér andlitið af sér-
stakri nákvæmni. Úr fögrum
andlitsdráttum hennar mátti
lesa mótsagnakennda þætti
mannlegs eölis, kalda harð-
neskju og ástriðufulla hlýju”.
(Skyldum við hin ganga með
eiginleika okkar svona utan á
okkur?)
Sem sagt: fegurðin, glæsi-
mennskan og rikidæmið drýpur
af hverju strái i Dallas, en það
rignir jafnt yfir réttláta sem
rangláta segir þessi saga okkur.
JR og fjölskylda fær lika aö tak-
ast á við lifsins öldurót!!!