Þjóðviljinn - 04.09.1981, Side 10
10
SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. september 1981
I
-
|
■
Á síðasta aðalfundi Arnarflugs, sem haldinn var 14. júlí varð sú breyting á
hlutafjáreign í félaginu, að Flugleiðir h/f seldu starfsmannafélagi Arnarflugs hlutafé
og létu þar með af meirihlutaeign sinni.
í dag er því Arnarflug sjálfstætt og óháð fyrirtæki, sem stefnir að vaxandi
hlutverki í samgöngumálum þjóðarinnar.
Arnarflug gegnir, sem kunnugt er, mikilvægú hlutverki í innlendu
áætlunarflugi og stefnir nú markvisst að því að hasla sér völl á alþjóðlegum
flugleiðum til að tryggja enn frekari fjölbreytni og öryggi í íslenzkum flugsamgöngum.
Arnarflug er aöeins 5 ára, en stendur engu að síður á gömlum og grónum
meiði, sem byggist á hinum gífurlegu kröfum, sem gerðar eru í flugöryggismálum. Allt
starfsfólk fyrirtækisins er þrautþjálfað, með það markmið eitt að tryggja
giftusamlegar ferðir flugvéla okkar og góða þjónustu við viðskiptavini.
Fyrir 5 árum voru starfsmenn Arnarflugs 14 taisins, í dag eru þeir 90 og að
störfum í Evrópu og Afríku auk íslands.
Stjórn og starfsmenn Arnarflúgs ætla ekki að láta uppbyggingu
starfseminnar verða á kostnað annarra aðila, sem að ferðamálum starfa. Þvert á móti
viljum við góða samvinnu við alla sem með okkur vilja vinna, þannig að
þjóðarhagsmunir verði ávallt í fyrirrúmi með sterkari og aröbærari samgöngum.
ARNARFLUG HF.
VAXANDIAFL í ÍSLENZKUM SAMGÖNGUM