Þjóðviljinn - 07.11.1981, Page 4

Þjóðviljinn - 07.11.1981, Page 4
4 SlÐA— ÞJÓÐVILJINN Helgin 7.—8. nóvember 1981 gpr • stjórnmál á sunnudegi f - J HJörleifur Guttormsson skrifar Hagkvæmni og öryggi ráöi I dag birtum viö hér kafla úr ræ&u Hjörleifs Guttormssonar, iönaðarráöherra sem hann fhitti á vetrarfundi Sambands is- lenskra rafveitna nú i vikunni. 1 ræöunni vék Hjörleifur að fleiri þáttum og þá ekki sist orkunýt- ingunni. Hjörleifur sagöi: Orkuöflun og stofn- linuframkvæmdir Það er ástæöa til að fagna þvi að nú er bjartara yfir raforku- öflun f landinu en fyrir ári, þar sem 1. vél Hrauneyjafossvirkj- unar er nú komin i gagniö og skammteraö biða þess að 2. vél virkjunarinnar taki einnig aö snúast. Framkvæmdir við þá virkjun hafa fyllilega staðist áætlun og veriö á margan hátt til fyrirmyndar, dcki sist þar eö innlendir verktakar höföu þar forystu á hendi. Þessi nýbyrjaði vetur á þannig að veröa raf- orkuiönaöinum og þeim sem viö hann skipta annar og betri en hinn siðasti. Nýjum þáttum i stofnlinu- lögnum miöar einnig vel áfram og eftír um það bil mánuöverð- ur væntanlega búiö a& tengja við landskerfiö sföasta umtals- veröa svæöið, þar sem raforka er enn framleidd meö oliu aö staðaldri. Þar á ég viö lagningu Suöausturlinu og tengingu hennar viö samveitusvæöi Aust- ur-Skaftafelissýslu. Rikis- stjórnin hefur jafnframt tekiö um þaö ákvörðun aö haldiö skuli áfram framkvæmdum viö byggðalinur á næstu árum meö lagningu Suöurlinu milli Hafnar i Homafiröi og virkjananna viö Tungnaá og raforkuhringnum um landiö þannig lokaö, helst fyrir árslok 1983. Með þvi verð- ur miklum áfanga náö til aö auðvelda rdistur stofnlinukerf- isins og auka til muna öryggi i orkuafhendingu, jafnt til al- menningsveitna sem stórnot- enda. Réttmæt stefnumið Þessi áfangi i samtengingu raforkukerfa allra landshluta og miðlun orku á milli þeirra gerir enn augljósara réttmæti þeirrar stefnu: a) aö dreifa virkjunum um landiö og virkja þar sem þjóö- hagslega er hagkvæmast hverju sinni. b) aö jafna heildsöluverö á orku samkvæmt gjaldskrá tfl allra landshluta. c) aö koma meginraforku- vinnslu og raforkuflutningi I hendur eins fyrirtækis, nýrr- ar Landsvirkjunar, d) aö reisa orkufrek iönfyrir- tæki af ýmsum stæröum dreift um landiö i samræmi viö staöarkosti, svo og félags- legar og hagrænar forsendur. Ég ætla hér I stuttu máli að vilcja nánar aö stööu þessara mikilvægu þátta, eigin viöhorf- um og stefnumiðum ríkisstjörn- arinnar þar aö lútandi, og sér- staklega aö forsendum fyrir ákvöröunum um virkjanir og orkunýtingu og stööu undirbún- ings i þeim efnum. Með lögum um raforkuver, sem Alþingi samþykkti sl. vor, voru veittar viötækar heimildir til virkjana, auk aðgerða til aö tryggja rekstur þeirra orkuvera sem fyrir eru á Þjórsársvæöinu. Jafnframt lagöi rikisstjórnin fram stefnumótandi ramma um orkunýtingu og forsendur fyrir uppbyggingu orkufreks iðnaðar i landinu á næstu árum og allt til aldamóta. 1 lögunum er kveöiö á um, að tillögur um fram- kvæmdaröð við umræddar virkjanir veröi lagðar fyrir Al- þingi til samþykktar. Aður ættu aö Kggja fyrir greinargeröir frá Orkustofnun, Landsvirkjun og Rafmagnsveitum ríkisins um þjóðhagslega hagkvæmni virkj- unarleiöa og þýöingu þeirra fyr- ir raforkukerfi landsins. Einnig er gert ráö fyrir, aö rikisstjórn- in leggi fram greinargerð um helstu möguleika varðandi nýt- ingu orkunnar til orkufreks iðn- aðar og sparnaðar á innfluttu eldsneyti. Rikisstjórnin gaf fyr- irheit um að tillögur um þessi efni yröu lagöar fram til ákvöröunar á haustþingi því sem nú er hafið. Hagkvæmni og öryggi ráði framkvæmdum Þessi viðtæka lagasetning um raforkuver og fyrirheit um ákvaröanir á grundvelli hennar byggir á miklu og markvissu undirbúningsstarfi, er unnið hefur verið á siöustu árum og mánuöum. Viö stöndum Ifyrsta sinn I þeim sporum aö vera meö 4 vatnsaflsvirkjanir f þremur landshlutum á hliöstæöu undir- búningsstigi og þvi svigrUm til aö velja milli mismunandi framkvæmdatilhögunar. Við er- um komnir á gdðan rekspölmeð undirbúning aö orkufrekum iön- aöi undir islenskri forystu og frumkvæði, og einnig þaö er ný- mæli hérlendis. Rikisstjómin fjallar nú um tillögur varðandi virkjunarleið- ir og áherslur í orkunýtingu og ég vænti þess aö ákvaröana af hennar hálfu veröi skammt aö Wða. Hér er um stór mál að tefla og mörg álitamál, og þvi ekki óeölilegt aö skoöanir hafi veriö skiptar, bæði me&al tals- manna einstakra landshluta, jafnt almennings og þeirra er til forystu hafa valist. Nú hljótum við hins vegar aö taka ákvaröanir reistar á víö- tæku mati, hagkvæmni og ekki sföur öryggi fyrir almenning i landinu i bráö og lengd. I þvi sambandi hljóta stjórn- völd og Alþingi aö hafa hliðsjón af sérfræöilegum upplýsingum, þótt þæreinar sér segi ekki alla söguna og einnig á þeim vett- vangi geti menn greint á um forsendur, eins og ekki þarf aö fjölyröa um i þennan hóp. Hagkvæmni virkjunar- leiða Ég vil hér greina frá nokkrum meginatriöum, er lesa má út úr þeim greinargeröum varðandi virkjunarleiðir, er ráðuneytiö hefur aflaö að undanfömu. Þaö getur auöveldaö mönnum aö spá i' spilin á meðan beðið er niöurstööu rikisstjórnar og sið- an Alþingis. Viö samanburð, sem tekur miö af kostnaöi viö uppbygg- ingu raforkukerfisins allt til aldamóta, kemur m.a. fram eft- irfarandi: Af þeim fjórum rööum virkj- ana, sem Orkustofnun hefur tekiö til meöferöar i útreikning- um sinum, er virkjanarööin Blanda — Fljótsdalsvirkjun — Sultartangi ótvfrætt fjárhags- lega hagstæöust. Forsendur útreikninganna eruþær, að orkunýting umfram þá aukningu sem spáð er á hin- um almenna raforkumarkaöi, veröi aUt aöþvi 3800 GWh/ári á timabilinu fram til aldamóta. Gert er ráð fyrir að þessi orku- nýting dreifistá einstaka lands- hluta með mismunandi hætti og breytilegri timasetningu. Samanburöur á sex slikum iðnaöarstefnum gefur i öllum tilvikum ofangreinda niður- stöðu, og er þar um marktækan mun að ræða. Aöeins jaðartilvik, sem falla aö ég hygg utan viö rfkjandi viö- horf i öllum st jórnmálaf lokkum, gætu leitt til annarrar niöur- stööu. Þar á ég viö stefnu, sem I útreikningunum er kölluö iönað- arstefna núll, þ.e. engin orku- nýting umfram þarfir hins al- menna markaöar, eöa þá iönaö- arstefna sem fæli í sér, að mest- öll orkunýtingin yrði i einum landshluta. Blöndudeilan Varöandi Blönduvirkjun hafa eins og kunnugt er verið uppi deilur um virkjunartilhögun, deilur sem eiga sér langan að- draganda. Iðnaöarráöuneytiö hefur beitt sér f yrir þvi, að reynt yröi aö ná 'Samkomulagi um þessi mál við heimamenn, þannig að um nið- urstööu geti orðið sæmilegur friöur. Sérstök ráögjafanefnd ráöuneytisins og samninga- nefnd á vegum Rafmagnsveitna rikisins sem virkjunaraöila hef- ur þarna unnið mikiö starf ásamt fulltrúum heimamanna. Málin hafa á þessum tima skýrst og þokast verulega i samkomulagsátt. Enn er þó eft- ir herslum unurinn til aö menn nái saman, og hýtur aö reyna á þaö á næstunni. Öryggi og aukin miðlun Sá samanburöur virkjunar- kosta, sem ég gat um áðan, gengur útfrá fjárhagslegri hag- kvæmni eingöngu.SU hliö máls- ins er vissulega mjög mikilvæg, en þaö eru fleiri atriöi sem máli skipta.Eitt þeirra er vatnsmiðl- uniní kerfinu og þar með örygg- ið i orkuvinnslunni. Við vorum óþyrmilega minnt á það á siö- astliðnum vetri, hversu van- miðlað okkar núverandi raf- orkukerfi er. Það var ekki aflið sem þá vantaöi til að vinna wk- una, þar var vatniö sem skorti til aö knýja hverflana. Miðlun- arstig kerfisins eftir Hraun- eyjafossvirkjun er taliö vera 0.18, það er 18% af orkuvinnslu- getunni á ári, og svarar það til rúmlega 700 GWh miölunar- getu. Kvislaveita ásamt stækk- un Þórisvatns myndi auka miðl- unargetuna um 300 GWh, Blönduvirkjun myndi 'gefa 200—300 GWh i aukna miölun, Sultartangavirkjun gæfi 138 GWh, en Fljótsdalsvirkjun gæfi ein sér hvorki meira né minna' enrúmarlOOO GWh.Hér er veru- legur munur á, sem knýr á um aö Fljótsdalsvirkjun veröi reist fyrr en seinna. Fleiri þætti mætti telja. Dreif- ing virkjana um landið er mikil- vægur öryggis- og hagkvæmni- þáttur. Sem stendur er nánast allt landiö utan Reykjavíkur- svæöisins og suðvesturlands háð einni raflinu. Ef stórbilun yrði á Hvalfjarðarlinu milli Geitháls og Brennimels, eða á Norður- linu milli Vatnshamra og Lax- árvatns, vofir harkaleg raf- orkuskömmtun yfir heilum landshlutum. Virkjun Blöndu og Jökulsár i Fljótsdal gerbreytir þessu til hins betra og felur ekki siöur i sér öryggi fyrir þéttbýliö hér suðvestanlands. Áframhaldandi a’kufram- kvæmdir á Suðurlandi 1 Utreikningum Orkustofnun- ar á hagkvæmri röðun virkjana er i öllum tilvikum gert ráö fyr- ir, aö samfara framkvæmdum við næstu virkjanir verN áfram unniö aö aukinni orkuöflun og auknu rekstraröryggi i kerfinu á Suöurlandi. Þær framkvæmd- ir eru taldar geta gefið allt að 750 GWh/ári i aukinni orku- vinnslu og vera ódýrasti orku- öflunarkostur, sem völ er á, samkvæmt áætlunum Lands- virkjunar. Stifla á ármótum Tungnaár og Þ jórsár er þar efst á blaði. Sú stifla er talin auka orkuvinnslu- getuna um allt aö 150 GWh/ári, einkum þar eö minni þörf verð- ur á vatni til isskolunar við BUr- fellsstöö. Aðalatriðiö er samt aukið rekstraröryggi sem hún skapar þessari stærstu virkjun landsins, sem frá upphafi hefur veriö I vissri hættu aö stöövast vegna ísvandamála meö ófyrir- sjáanlegum afleiöingum. Aörar framkvæmdir sem ráö er fyrir gert i lögum um raf- orkuver eru svokallaöar Kvisla- veitur, aukiö miölunarrými i Þórisvatni og viðbótarafl i nú- verandi virkjunum viö Sigöldu og Hrauneyjafoss. Framkvæmdum þessum má auöveldlega dreifa á nokkurt tímabiieftir þvi sem orkumark- aðurinn gefur tilefni til, en i heild er hér um rúmlega 1000 ársverk að ræöa samkvæmt fyr- irliggjandi áætlunum. Til samanburöar má geta þess, aö Sultartangavirkjun án stiflu ertalin kalla á um 950 árs- verk. Til viðbótar þessum fram- kvæmdum kemur siöan lagning Suöurlinu frá Sigöldu aö Höfn i Hornafiröi, eins og ég gat um i upphafi. Þaö er þvi' engan veginn svo aö framkvæmdir viö orkumann- virki á Suöurlandi stöövist, þótt næst veröi virkjað i öörum landshlutum. Ofangreind verk- efni eru bæði nærtæk og nauö- synleg og samsvara fram- kvæmdalega meiriháttar virkj- un. Og svo a& enn sé vikið aö Ut- reikningum Orkustofnunar, er þar gert ráö fyrir aö næstu virkjanir á eftir þrieykinu, Blanda — Fljótsdalur — Sultar- tangi, veröi þær virkjanir sem hagkvæmastar eru taldar á Þjórsá r-Tungnaársvæðinu. Ég hef hér fyrst og fremst rakiö niöurstöður úr hag- kvæmniathugun OrkustofnunaT; sem mikiö hefur unniö aö sam- anburði virkjunarleiöa á undan- fórnum árum og lagt fram um þaö efni gildar skýrslur. Þessar niöurstöður eru eindregiö studdar f nýlegri greinargerð Rafmagnsveitna rikisins og meö vissum hætti einnig af bráðabirgðaáliti frá Lands- virkjun. Kaflar úr rœðu iðnaðarráðherra á fundi Sambands íslenskra rafveitna 2. nóv.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.