Þjóðviljinn - 07.11.1981, Page 9

Þjóðviljinn - 07.11.1981, Page 9
Helgin 7.-8. nóvember 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 bóhmenntir Þetta sígapandi gortandi eindæmi Jón Heigason: Stóra bomban, örn og öriygur, R. 1981.208 bls. Stóra bomban er um einhvern sérkennilegasta hvell sem oröiö hefur i islenskum stjórnmálum. Bókin segir frá þvi, aö veturinn 1930 telur dr. Helgi Tómasson yf- irlæknir á Kleppi, sig hafa komist að þeirri sniöurstööu aö áhrifa- mesti og litrikasti stjórnmála- maöur landsins, Jónas frá Hriflu, dómsmálaráöherra siöan 1927, sé geöbilaöur. Hann haföi lagt drög aö þvl, ásamt nokkrum öörum, aö Jónasi yröi vikiö úr ríkisstjórn. Jónas, einhver mesti ritdeilu- hamhleypa sem sögur fara af, svaraöi meö frægri grein f Tim- anum, sem gefur bókinni nafn. Hann taldi sig sjá f álitsgerö dr. Helga samsæri pólitiskra and- stæöinga, sem vissulega höföu áöur brigslaö honum um geöveiki og reyndar margt fleira. Og þaö var sem hann fengi rök fyrir þessu send á færibandi frá ihalds- mönnum og málgögnum þeirra, sem tóku af miklum áhuga og heift undir kröfur um aö þaö væri ekki hægt aö láta vitlausan mann stjórna landinu. Jón Helgason gerir mjög skil- merkilegan og skemmtilegan hátt grein fyrir þessu máli. Hann rekur i hæfilega itarlegu máli fer- il Jónasar, hugmyndir hans um flokkakerfi á tslandi (sem stóöust allt þar til Alþýöuflokkurinn klofnaöi), stjórnsýslu hans og fleira þaö, sem haföi gert Jónas aö rauöri dulu fyrir augum allra Ihaldskálfa og nauta. Hann rekur einnig striö Jónasar viö samtök lækna, sem ekki vildu una úthlut- un hans á héraöslæknaembættum og varö snar þáttur af bombu- málinu öllu. Heiftin Nútimalesandi, fæddur nokkr- um árum eftir bombuna, getur látiö þessa bók veröa sér, meöal annars tilefni til aö velta vöngum bæöi yfir þvi sem breyst hefur I pólitiskum stil Islenskum, og hvaöa eiliföarþemu þar eru sifellt á feröinni. Árni Bergmann skrifar Annarsvegar viröist hinn heift- úbugi persónulegi sviviröinga- still nokkuö svo annarlegur. Til dæmis aö taka er svofelldum orö- um fariö um Jónas Jónsson dómsmálaráöherra i ihaldsblaö- inu Veröi áriö 1928: „Maöurinn sem gerir sig dag- lega sekan um siöleysi hlut- drægninnar, hatursins og illgirn- innar. Maöurinn, sem berst fyrir straumi ástriöna sinna. Maöurinn sem þverbrýtur lögin, sem hann er settur til aö gæta. Maöurinn sem heldur aö réttlætinu veröi fullnægt án mannúöar og dreng- skapar. Þessi flöktandi, stam- andi, valdagráöugi snápur. Þetta sigapandi, gortandi einsdæmi, sem seilist löngum fingrum í hnútasvipuna”... Blaöamaöur fer nú aö krossa sig og lofa guö fyrir aö hann sé þó ekki eins og þessir millistriöa- skriffinnar! Og geturfundiö mörg dæmi herfileg: I Morgunblaöslýs- ingu á einu kosningaferöalagi Jónasar segir fyrst, aö Skagfirö- ingar hafi mjög undrast þaö hve ljótur maöurinn væri og siöan hnykkt á meö þvi aö segja hann undir áhrifum eiturlyfja! Gamlir kunningjar En hitt er svo annab mál, aö þótt oröbragöiö breytist, þá er mikib og sterkt samhengi i boö- skapnum. Rétt eins og þaö heitir núna upp á hvern dag I Morgun- blaöinu, aö svikahrappar hafi leitt sósialista til allra valda, stób hiö sama upp úr ihaldsblööum þegar Framsóknarflokkurinn myndaöi stjórn meö stuöningi Al- þýöuflokksins 1927. Þá var óspart um þaö talab, aö nú væri „is- lenska bolsarikiö” aö fæöast, aö „sósialistar” réöu öllu aö tjalda- baki, og sjálfur væri Jónas nátt- úrlega laumukommi! Annaö dæmi: ungur rithöfundur, Hall- dór Laxness, hefur leyft sér aö taka upp hanskann fyrir Jónas Jónsson. Umsvifalaust er Hall- dóri likt viö „hræfugla” þá sem kasti sér yfir „mannanna hjart- ans mál” og „jórtra á þeim á hinn ósmekklegasta og viöbjóölegasta hátt og þykjast vera frumlegir og gáfaðir”. Eöa eins og þar i Mogg- anumsegir: „Hinn alkunni trúar- vingull og flagari, kaffihúsaspek- ingurinn Halldór Kiljan Laxness, sá fyrir skömmu bráö á lofti og renndi sér á hana” — náttúrlega til ab „mata sinn eigin ryögaða krók á”. Jahérna, hugsaöi þessi lesari hér, maöur var búinn aö „Hver veit nær söölar Daniel”.. Fræg mynd meö frægu ljóöi f Speglin- um um þaö, er dyravöröur stjórnarráösins var sendur inn aö Kleppi aö reka Helga Tómasson úr starfi. gleyma hve traustum fótum Svarthöföastillinn stendur I hefö- inni. Enn eitt dæmi, þótt annarrar ættar sé. Jónas Jónsson skrifaöi áriö 1922 greinaflokkinn Komandi ár.þar sem hann fjallar m.a. um „samkeppnis- og sameignar- stefnurnar” m.ö.o. kapitalisma og sósialisma, sem hann telur ósættanlegar andstæöur og meira eöa minna gallaöa kosti — annaö mál er svo Samvinnustefnan og hennar flokkur sem miðlar mál- um og leysir allan vanda á sinn hátt. Einhvernveginn finnst manni, að meö þessum greinum hafi Hriflu-Jónas veriö aö sjá Timanum fyrir leiöurum næstu sextiu árin. Hvað er geðveiki? Já þetta var undarlegt mál, og timarnir furöulegir. Sem fyrr segir gerir Jón Helgason góöa grein fyrir málum og foröast hvatvisi I dómum. Hann er sem fyrr skýrleikshöfundur og fer einkar vel meb list ivitnunarinn- ar. Hann ræöur reyndar ekki all- ar gátur bombumálsins. Var dr. Helgi Tómasson i góöri trú þegar hann lýsti dómsmálaráöherra geöveikan? Liklegt aö svo hafi veriö. Hann flækist þá inn i mik- inn úlfaþyt i fyrsta lagi vegna þess, ab hann er bundinn af held- ur þröngum hugmyndum um þaö, hvaö sé normal manneskja og hvaö ónormöl. A hinn bóginn gat ekki fariö hjá þvi, aö geöveikis- grunsemdir dr. Helga væru tald- ar til samsæris. Bæöi vegna þeirrar styrjaldar sem læknar margir áttu þá I viö Jónas, og svo vegna þess ab þaö var engu llkara en ihaldsblööin heföu veríö búin aö undirbúa geöveikisákæruna árum saman. Þetta er skemmtileg bók af- lestrar. En þaö er eins meö hana og abrar heimildabækur um ein- stök mál: manni finnst lika aö hún veröi dálitib endaslepp. Kannski er þab i þessu dæmi hér vegna þess, aö ferill Hriflu-Jón- asar varö allur annar en spáö var um 1930. Hitt er svo rétt, aö þessi bók getur minnt hina yngrí menn á þaö hve merkilegur og sérstæö- ur áhrifamaöur þessi „ljósmóö- ir” bæöi Alþýöuflokks og Fram- sóknarflokks var — og áhuga á aö kynna sér allan hans feríl betur. AB Húsabókin frá Fjölva Byggingarlistasaga Fjölva. Ritstjóri: John Julian Norwich. Þorsteinn Thorarensen þýddi og umsamdi. Fjölvaútgáfa. 1981. Svona bók minnir á þaö um leiö og opnuö er, hve glæsilegar fram- farir hafa orðið á stuttum tima i myndprentun. Og nýir tæknilegir möguleikar hafa aukiö Islenska þátttöku i fjölþjóðaprenti, sem eins og lög gera ráö fyrir fæst mikiö viö listaverkabækur og BYGGINGAR LISTASAGA FJÖLVA menningarsögulegar. Mætti kannski segja aö framleiösla slikra bóka væri hiö „rétta” viö- fangsefni fjölþjóöaprents. Fjölvi er forlag sem komiö hef- ur mikið viö sögu i útgáfu slikra bóka — þaöan hefur komiö skipa- saga og listasaga og bækur um einstaka listamenn. (Þaö var einu sinni sagt að tiunda hver listaverkabók sem út kæmi I heiminum væri um Van Gogh og viti memr: ein Fjölvabókin er um hann, rétt eins og eitt af litlum og skrautlegum myndlistarkverum Iöunnar er um þann sama brjál- aöa Hollending). Nú kemur út mikil bók um sögu byggingarlistar og mun ekki van- þörf á sliku verki. Um þau efni er fátt skrifað á islensku. Og fáar þjóðir hafa byggt jafn mikiö og íslendingar á jafn stuttum tima af jafn litilli fyrirhyggju: Oft er engu likara en menn vilji ekkert af arkitektúr vita og hefur af slitróttu sambandi fjármagns, framkvæmdavilja og byggingar- listarvaxið margur vansi sem við munum lengi súpa seyöiö af. Nema hvaö: þessi bók er bresk, höfundar hennar fjórtán sem hver fer meö sitt sviö, siðan fer ritstjóri yfir allt saman, sam- ræmir og fellur inn I þaö ljós- myndir og skýringarmyndir. Myndakosturinn er hinn prýöileg- asti, tekur lesandann meö I eftir- sóknarvert ferbalag um aldir og álfur, sýnir, minnir á, útskýrir. Myndakosturinn er svo veiga- mikill, aö þaö sem nefna mætti samfellda byggingarlistasögu þokar fyrir sjálfum dæmum sög- unnar — ekki þar fyrir, aö sjálf- sagt er textinn unninn af bestu þekkingu. Þar er að sjálfsögöu bæbi f jallaö um formsögu og vis- ab til þjóöfélagslegra aöstæöna sem breyta kröfum til húsa og metnaöi i byggingum — kannski mætti hinn seinni þátturinn vera sterkari; það geröi slikt verk nokkuö aögengilegra. Þorsteinn Thorarensen hefur i þýöingu og umsamningu sem fyrr þann hátt á, aö hann vill islenska sem flest orð og hugtök. Liklegt er aö lesandi sé ekki jafn sáttur við þá nýyrðasmiöi alla. Það get- ur verið ágætt að kalla barokkið hlaöstii, en hvaö mundu menn halda óviöbúnir aö „fægistill” væri? Verst er að lýsingarorðin, sem dregin eru af islenskum Þor- steins á stilheitum veröa sérlega ógagnsæ. Eöa hvaö segja menn um þá sem leitast viö „aö göfga hinn fægiræna stil i aukinni þekk- ingu á forngnæfum formum”, eöa um „samræmdan gnæfrænan lærdómsstil”? Kannski höfum viö misst af lestinni i nýyrðasmiöi á þessu sviði — I þeim skilningi aö klassik, barokk, rókókó séu aö- gengilegri en nýsmlöi, hvort sem hún er snjöll eöa ekki? Vel má gefa þýöanda plús fyrir1 viöleitni, Islendingar viljum vér allir vera, en eitt hefur honum láöst aö gera sem skiptir miklu um aðgengileika textans. Hann birtir I lok bókarinnar lista meö hugtakaskýringum — þar eru er- lend orö (flest I ensku myndinni) þýdd á íslensku. I fyrsta lagi er þessi listi mjög gloppóttur. I ööru lagi er ekki minni ástæða til aö birta orðaskrá þar sem Islensku oröin koma fyrst og hin alþjób- legu siöaip slikan lista vantar, þvi miöur. AB

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.