Þjóðviljinn - 13.11.1981, Blaðsíða 1
DJOÐVHHNN
Föstudagur 13. nóvember 1981 —255. tbl. 46. árg.
Leiðbeiningar „Menningarstofnunar” Bandarikjanna uni heilaþvott á íslendingum:
Viðskiptamenn
Þjóðviljans athugið!
Komi boðað verkfall bókagerðarmanna til
framkvæmda munu skrifstofur og afgreiðsla
blaðsins Siðumúla 6 aðeins vera opnar milli kl.
13 og 17 virka daga.
Hagstæðust áhrif að láta þá
sofa eina nótt i fhigmóðuiskípi
Menningarstofnun Bandaríkjanna á (slandi vinnur
skipuiega að því að hafa áhrif á skoðanir áhrifamanna í
stjórnmálum, fjölmiðlum, atvinnulífi, félagssamtökum
og menningarlífi. Þetta kom fram á Alþingi í gær er
Ölafur Ragnar Grímsson alþingismaður las upp úr
,,Áætlun um ísland" og leiðbeiningum til starfsmanna
bandaríska sendiráðsins í sambandi við skoðanamótandi
starf Menningarstofnunarinnar á Islandi. Upplýs-
ingarnar voru frá 1978 og greindu frá áætlunum ársins
'79 og '80. Kaf lanir sem lesnir voru á Alþingi eru birtir I
Þjóðviljanum í dag.
Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins sagði I um-
ræðunum á Alþingi I gær, að
koma yrði i veg fyrir aö út-
sendarar erlendra rikja græfu
undan öryggi þjóðarinnar innan
frá. En slikt yrði aðeins gert með
þvi að komið væri i veg fyrir þaö,
að nokkur maður geti hugsaö sér
að ganga erinda erlendra rikja
hér á landi.
„Það þarf aö gera með þvi að
efla með þjóðinni þjóölega vitund,
reisn og sjálfstæö viðhorf gagn-
vart öllum erlendum rlkjum. Þaö
þarf að gerast þannig að enginn
leyfi sér nokkru sinni að taka við
mála úr hendi stórveldanna.
Enda þótt Ragnhildur Helga-
dóttir telji betra aö ganga erinda
Bandarikjamanna en Rússa er
min skoðun sú, að þjóðin þurfi öll,
hver einasti einn, alltaf að vera á
varðbergi andspænis stórveld-
unum hvar sem er og hvenær sem
er og I hvaða formi sem afstaða
stórveldanna kemur fram.”
Ræöa Svavars verður birt I
sunnudagsblaði Þjóðviljans.
„Aðalmarkmið okkar eru aö
efla stuðning Islendinga við dvöl
bandariska varnarliðsins og
áframhaldandi þátttöku tslands i
NATO”, segir I fjárveitingar-
beiöni Menningarstofnunar
Bandarikjanna.
Markmiðinu á m.a. að ná með
ferðalögum sem fjármögnuö eru
til Bandarikjanna og á vegum
NATO meö islenska stjórnmála-
menn, blaöamenn og áhrifamikia
einstaklinga. „Reynslan hefur
kennt okkur, að þaö hefur mjög
hagstæð áhrif á íslendinga að láta
þá sofa eina nótt um borð i flug-
vélamóðurskipi”. Fram kemur
aö fé verði sett I sérstakt prógram
með Stjórnunarfélaginu m.a. til
kynningar á svokallaðri núll-
grunnsaðferð, sem Friðrik
Sophusson þáverandi fram-
kvæmdastjóri félagsins flutti
siðan sem þingsályktunartiliögu
á Aiþingi. Sagt er aö lögö verði
sérstök áhersla á aö rækta sam-
band við islenska hagfræðinga,
menn úr atvinnulifinu og hópa
eins og JC-hreyfinguna. Fram
kemur að vikulegir fundir eru
haldnir meö fulltrúum islenskra
fjölmiðla, og reynt veröi að hafa
áhrif á stefnu Háskóla tslands I
enskukennslu og sögu. Meðal
upplýsinga um boö til Bandarikj-
anna eru þær að hópi úr verka-
iýðsmálaráði Sjálfstæðisflokksins
hafi verið boðið þangað I sérstaka
ferð.
Enginn þingmanna sem til
máls tóku véfengdu þær upplýs-
ingar sem lagðar voru fram og
Menningarstofnun Bandarikj-
anna mun hafa látið fréttamanni I
té samskonar skýrslu um áform
sin um að hafa áhrif á skoðana-
myndun á tslandi árið 1982.
—ekh
Hér að Neshaga 16 er lagt á ráðin um „heilaþvott” á tslendingum til
stuðnings við sjónarmið Bandarikjastjórnar. Ljósm. gel
..
Sjá enfremur síður 8 og 9
Undir ræðu óiafs Ragnars hvisluðust á ýmsir þingmenn sem mikið hafa verið i boðsferðum á vegum
NATO, og bandariska sendiráðsins, m.a. Eiður Guðnason, Friðrik Sophusson og Jóhann Einvarðsson.
Hvort hafa þeir sofið um borð I flugvélamóðurskipi?
Kjaradeila bókagerðarmanna
Fundur fram á nótt
Frestun á boðuðu verkfalli ekki talin óhugsandi
Samningafundur deiluaðila I
bókaiðnaðinum hófst hjá sátta-
semjara um miöjan dag i gær og
stóð hann enn um miönætti, þegar
Þjóöviljinn fór i prentun. 1 kvöld
kemur til framkvæmda boðað
verkfall Fél. bókageröarmanna,
hafi s amningar ekki tekist fyrir
þann tima. I dag kl. 17.00 hefur
verið boðaður féiagsfundur I Fél.
bókagerðarmanna , þar-
sem staðan i deilunni verður
rædd. \
Þeir aðilar, sem Þjóðviljinn
hafði samband við i gær, voru
ekki alltof bjartsýnir á að samn-
ingar tækjust fyrir kvöldið i
kvöld. Þó voru uppi raddir um að
eitthvað boö kæmi fram, sem gæti
valdiö þvi að verkfalli yrði frest-
að um óákveöinn tima. En um
miönætti sl. haföi samt engin slik
tillaga komið fram, en menn
ræddust þó við i fullri alvöru.
— S.dór
| Anker rauf þing!
Dönsku borgaraflokkunum spáð sígri
IFrá Gesti Guðmunds-
syni i Kaupmannahöfn
■ I dag boðaði Anker Jörgensen
Iforsætisráöherra Dana til þing-
kosninga þar eö stjórn hans
varð undir i mikilvaégri at-
• kvæðagreiðslu i þinginu. Kosn-
Iingar fara fram 8. desember
næstkomandi.
Tilefni þingslita og kosninga
* er það, að minnihlutastjórn
Isósialdemokrata hafði lagt
fram áætlun um ráösstafanir
gegn atvinnuleysi þar sem
■ meöal annars var gert ráð fyrir
Iaö skylda lifeyrissjóði til að
leggja hluta fjármuna sinna i
atvinnurekstur. Þeir þrir litlu
■ borgaraflokkar sem stutt hafa
I minnihlutastjórn sósialdemó-
krata vildu ekki fallast á þessa
ihlutun I málefni lifeyrissjóð-
anna.
Alþýðusambandið þrýsti hins-
vegar á stjórn krata að láta
hvergi undan. 1 þingræðu i dag
fengu umræddir borgaraflokkar
samþykkta dagskrártillögu sem
þvertekur fyrir alla ihlutun i
málefni lifeyrissjóðanna, og
lýsti Aneker Jörgensen þá yfir
þvi aö þing yrði rofið og gengiö
til kosninga.
Að baki þessari atburðarrás
býr annarsvegar það, að sósial-
'demokratar, einkum þó verka-
lýðsarmur flokksins, eru orðnir
þreyttir á að framfylgja stefnu
borgaraflokkanna en án
stuðnings þeirra hefur rikis-
stjórnin ekki haft meirihluta.
Þvi taldi stjórnin sig knúna til ■
að láta sverfa til stáls einmitt ■
um ráðstafanir gegn hinu geig- I
vænlega atvinnuleysi.
Borgaraflokkarnir þrir létu ■
hinsvegar ekki undan, og ber |
ekki sist að skoða þaö i ljósi
þess, að samkvæmt skoðana- j
könnunum munu þeir vinna á i ■
kosningunum. Samkvæmt I
þessum skoðanakönnunum
verða sigurvegarar kosning- |
anna einkum ihaldsflokkurinn, ■
og flokkur miðdemókrata. I
Siðastnefndi flokkurinn hefur I
einmitt verið einn stuðnings- |
flokka sósialdemókrata, en eftir ■
aö hann tók að draga úr stuðn- I
ingi sinum jókst fylgi hans, og I
taldi forysta hans þvi ástæöu til |
að ganga lengra. ■