Þjóðviljinn - 13.11.1981, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 13.11.1981, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 13. nóvember 1981 Þrjú batamerki í íslensku efnahagslifi Hagur þjóðarbúsins Viðskipti þjóðarinnar við önnur lönd eru nú í betra jafnvægi en oftast áður. Viðskiptahallinn á þessu ári er talinn verða aðeins 0,5%, en á seinustu 10 árum hefur hallinn átta sinnum verið 5 - 20 sinnum meiri en nú (sjá meðfylgjandi súlu- rit). Gífurlegar olíuverðs- hækkanir hafa valdið stór- felldum halla á viðskipta- jöfnuði flestra þjóða und- anfarin ár, en auk þess er fjárfesting þjóðarinnar í mannvirkjum og nýjum at- vinnutækjum hlutfallslega mjög mikil miðað við margar aðrar þjóðir eða sem nemur fjórðungi af þjóðarf ramleiðslu. Viðskiptahalli sem nem- ur aðeins 0,5% af þjóðar- framleiðslu táknar með öðrum orðum sagt, að nær öll f járfesting landsmanna á þessu ári í nýju og glæsi- legu orkumannvirki við Hrauneyjafoss, í nýjum hitaveitum viðsvegar um land, í stórfelldum fram- kvæmdum við Suð-austur línu og í margvíslegum fjárfestingum, skipa- og f lugvélakaupum, sem munu koma okkur til góða um langt skeið, sumar jafnvel í marga tugi ára,— er borguð á borðið af þjóð- l'öa. (Úr fjárlagaræðu að nær öll þessi f járfestinq arbúinu á því ári sem er að Ragnars Arnalds.) % AF GJOLDUM Rekstur ríkfssjóðs Samkvæmt rikisreikn- ingi fyrir liðið ár var ríkis- sjóður rekinn hallalaust árið 1980 í fyrsta skipti um árabil og raunar með tekjuafgangi sem nam 3,7% af útgjöldum. Ekki veitir af, þar sem gífurieg- ur halli var á ríkissjóði um árabil, tímabilið 1975 - 1979 var hallinn að meðaltali -í-3,1%, seinasta árið 1979 var hallinn -4-0,4% (sjá súlurit). Flest bendir til þess, að rekstur rikissjóðs 1 i sé i viöunandi jafnvægi á árinu 1981. Á sama tíma hefur greiðslustaða rikissjóðs gagnvart Seðlabanka batn- að, eins og best sést á því, að skuld ríkissjóðs við Seðlabankann sem hlutfall af þjóðarf ramleiðslu hefur lækkað seinustu árin; var 5,2% af þjóðarframleiðslu 1975 en stefnir í hlutfall sem er innan við 2% í lok þessa árs. (Úr fjárlaga- ræðu Ragnars Arnalds). Rekstrarjöfnuður ríkissjóðs 1970-1980, sem prósent af gjöldum - 8 -10 4-12- ' 1970' '7 1 '72 '73 74 75 76 7 7 78 79 80 'AR Minnkandi verðbólga Verðbólgustigið hefur farið verulega lækkandi á þessu ári. Á árinu 1979 voru verðhækkanir um 61% frá upphafi til loka árs og 59% á árinu 1980, en verða sennilega um 40% á þvi ári, sem er að líða. Þessu marki verður þó fyrst náð í árslok. Verð- bólguþróun er oftast miðuð við hækkun framfærslu- vísitölu á seinustu 12 mán- uðum. í júníbyrjun var verðbólga komin niður í 51% og 1. september s.l. í 49%, en það er fyrst í árs- lok sem 12 mánaða breyt- ingin er komin niður í 40%. Helsta ástæðan fyrir þessum árangri eru efna- hagsaðgerðir í ársbyrjun, m.a. stöðvun gengissigsins og hægari gengisbreyting- ar en áður tíðkuðust. Þann- ig hefur meðalgengi ís- lensku krónunnar aðeins lækkað á árinu um 17% að meðtaldri seinustu gengis- breytingu nú í nóvember. Verðlagsbreytingar miðað við 12 mánuði

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.