Þjóðviljinn - 13.11.1981, Page 12

Þjóðviljinn - 13.11.1981, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. nóvember 1981 i skóla og á mörgum vinnustöö- um. Þær lýsingar eru óneitanlega dálitiö kaldranalegar, þaö er fátt sem höföar til hans. Mér finnst þessi persóna áhugaverö sem undantekning, þetta á ekki aö vera dæmigeröur hvunndagsmaöur. Var þaö ekki Dostóéfski sem sagöi mönnum aö lýsa öfgunum til aö lýsa veruleik- anum? Þessi karakter, sem er hálf utanveltu lendir um leiö i hversdagslegustu hlutum, en hef- ur dálitiö annaö sjónarhorn á þá en flestir aörir. En hvernig sem til hefur tekist er hugmyndin lika sú aö lýsa þvi sem allir i hans stööu gætu lent i. Guöjón kynnist iika stúdenta- pólitikinni og þaö er mjög spaug- aö meö einn af helgidögum vinstrimanna, 1. des. Sumum gæti fundist þær lýsingar ómóralskar. Spurningin sem maöur spyr sig slikar lýsingar er hvort þaö sé veriö aö falsa, veriö aö ljúga ein- hverju. Þetta er engin greining á baráttu stúdenta, þetta er sýn ut- anveltu persónu. En sé ekki rangt meö fariö er engum greiöi geröur, allra sist málstaönum, meö þvi aö heimta fegrun eöa þögn um mis- tök og vitleysur. Rætt við Einar Kárason í tilefni fyrstu skáldsögu' hans Um þessar mundir kem- ur út hjá Máli og menningu fyrsta skáldsaga Einars Kárasonar, 26 ára gamals Reykvíkings: ,,Þetta eru asnar, Guðjón" heitir hún og gerist á (slandi á nýliðn- um áratug. Nýr skáld- sagnahöf undur sætir alltaf tíðindum meðal íslensks áhugafólks um bækur og því upplagt á þessum miklu viðtalatímum að sækja Einar heim á Eyrar- sundskollegíinu í Kaup- mannahöfn og spyrja um Hefði Einar Kárason: þaö sakar ekki aö reyna aö hræra upp i lesendum. Bogart leikið Skarphéðin... viðhorf til sagnagerðar og f leira. Einar, þú byrjar einsog öll önn- ur isiensk ungskáld nú oröiö meö þvi aö gefa út eina ljóöabók á eig- in kostnaö (Loftræsting 1979), og hefur svo snúiö þér að skáld- sagnaforminu. Nú viröist aö visu ekkert lát á skáldsagnagerö, en samt heyrast alitaf ööru hvoru þær raddir aö hún sé úrelt. Og er ekki rétt aö þaö er einsog ákveöin stöönun sé i islenskri skáldsagna- ritun. Þaö félagslega raunsæi sem menn voru aö reyna aö end- urvekja fyrir áratug er á undan- haldi, óvissa um framhald ný- stefnu eöa módernisma — menn skrifa helst um sjálfsævisögulegt efni? Fjötrar og nýjungar Auövitaö getur komið stöönun- artimabil i öllum listgreinum, en ég get ekki imyndað mér að frá- sagnarlist leggist af, meöan tim- inn færir mönnum stööugt ný söguefni. Og skáldsagan er nú einu sinni þróaðasta form frá- sagnarlistar. Ef menn segja aö skáldsagan hafi runnið sitt skeiö á enda, eftir bara 150 til 200 ár, ættu þeir aö hugleiöa hvaöa val- kostir eru fyrir hendi. Söguefni nútimans á margt sameiginlegt meö Hómerskviöum, tslendinga- sögum, rimum eöa Niflunga- kviöu, meö öllum sinum persónu- lýsingum, herleiöingum, ástum og styrjöldum, en formiö hefur breyst. Skáldsagan er frjálsasta form frásagnarlistar, og bindur menn ekki meö alls kyns form- kröfum, svo meöan fólk hefur ennþá þörf fyrir að heyra sögur og segja sögur, hverfur skáldsag- an seint. A tslandi komst umræö- an um dauða skáldsögunnar á dagskrá í kjölfar atómljóöanna. Þaö er einsog menn hafi hugsab: Jæja, nú erum viö búnir að losa okkur úr þessum ævafornu fjötr- um rimsins og stuölanna, er þá ekki skáldsagan næst i rööinni? En fjötrar skáldsöguformsins eru ekki jafn augljósir, og stundum fór svo aö þegar átti ab rjúfa þá, varö skáldsagan einsog lokaðri og njörövaöri. Og þrautirnar sem voru lagöar fyrir lesendur voru oft tiigangslausar, menn voru kannskiengu nær þegar þeir voru- búnir að komast I gegnum þær. En upp úr tilraunum einsog þess- um sprettur auðvitaö fjölmargar nýjungar sem visa fram á viö — einsog til dæmis þegar mönnum læröist aö nota frásagnarháttinn til aö túlka ákveöið ástand, svo sem snöggar setningar til aö gefa til kynna hraöa, þaö kunnu til dæmis höfundar Islendingasagna ekki. Eins lærðu menn að brjóta upp frásagnarháttinn til aö lýsa ákveönu hugarástandi. Sumar nýjungar eru raunar frá 19. öld, þaö er til dæmis meginmunur á skáldsagnagerð um 1800 og svo aftur 1870. Islenski módernisminn eða nýstefnan átti sér 50 ára gamlar fyrirmyndir. Og er ekki Sultur Hamsuns frá 1890 nútima- lesanda jafn fersk fyrirmynd og bækurnar sem Joyce og Proust skrifuðu aldarfjóröungi siöar? Ég held aö ihaldssemin birtist ekki fyrst og fremst i forminu, miklu fremur i söguefninu. Nýjungar Halldórs Laxness felast til dæmis I þvi ab hann rifur sig frá gömlu söguefni, hættir að skrifa um vonda presta, einsog hann segir i einni endurminningabókinni. Fé- lagslegu skáldsögurnar islensku voru komnar meö tilhneigingu til aö staöna vegna ihaldssemi i söguefni, samanber þessar lýs- ingar á spilltum stórum borgara- fjölskyldum og einni aöalpersónu sem kynnist þessu öllu og öölast svo nýja sýn á samfélagiö, helst róttæka. Skilningsleysið En þegar menn velta fyrir sér þróun nútimaskáldsögunnar miö- aö viö 19. öldina, hafa menn þá ekki svolitiö annaö i huga? Grundvallarátök skáldsögunnar standa oftast milli einstaklings og samfélags. 19. aldar höfundar ef- uöust sjaldnast um aö þeir heföu fuiikomna yfirsýn yfir þessar stæröir, en eru ekki margir nú- timahöfundar aö draga einmitt þann möguleika i efa, telja okkar margbrotna borgarsamfélag fióknara en svo aö þaö rúmist innan heföbundinnar raunsæis- skáldsögu? Mér finnst nú að þessi verk þar sem einstaklingurinn stendur andspænis samfélaginu sem al- gerum kaos heppnist best þegar þetta skilningsleysi á sér aö ein- hverju leyti rætur i frásagnarefn- inu sjálfu. Tómas Jónsson hjá Guöbergi er einangraö farlama gamalmenni sem enga yfirsýn getur fengið. Svipaöa einangrun aöalpersóna má finna hjá Beckett eða Proust. Einangrun eöa sér- staöa persónanna skýrir aö nokkru leyti skilningsleysi þeirra, alveg einsog fylieríiö á persónum Steinars Sigurjónssonar varpar ljósi á sýnir þeirra og tal. Kannski veröur heimur Kafkas skiljanlegur ef menn túlka hann sem eins konar martraöarástand aðalpersónunnar — en auðvitað segja slikir draumar sitt hvaö um samfélagið I vöku. Höfundar 19. aldar vöktu einsog guöir yfir sinu samfélagi. Sú tegund skáldsögu hefur verið á undanhaldi á þess- ari öld, fyrir ýmis konar módernisma. En ég held að það verði aö fara varlega meö kenn- ingar um að þaö sé vegna þess hve samfélagið er orðið miklu flóknara, þvi það eru til góöir höf- undar sem skapa sinn eigin heim, einsog Marquez, þótt hann beiti auövitaö ýmsum nýjungum frá- sagnarlistarinnar. Okkur er alltaf hætt viö einföldunum þegar talaö er um nýjungar i sagnagerö, rétt einsog þegar menn eru sífellt að nefna Thor, Guöberg og Svövu sem eitthvaö trió — thorguðberg- ur&svava. Þau hafa öll komið meö nýjungar, en hvert á sinn hátt, og eiga kannski ekkert meira sameiginlegt en Jón Trausti og Jón Óskar. Að boða lausnir Tengist þessi umræöa um raunsæi módernisma ekki lika mismunandi hugmyndum um hugmy ndafræðilegt hlutverk skáldsögunnar, hvort hún eigi aö afhjúpa heiminn og boöa lausnir. Kannski er meö raunsæi oftast átt viö þjóöfélagslegt raunsæi, viðleitni til aö afhjúpa ófremdar- ástand og skiija menn eftir meö nýja framsækna skoöun á þjóöfé- lagslegum úrlausnum. Módernistar eru þá ásakaðir fyrir aö skilja lesendur sina eftir ráö- villta. Ég hef ekki komiö auga á aö raunsæið þurfi endilega aö vera leiö til boöunar, eöa aö kaó- tisk heimssýn rúmist ekki innan ramma þess. Sjálfur reyni ég fyr- ir mér meö raunsæislegri frá- sagnaraðferð, en reyni þar I móti aö nálgast tilgang módernist- anna, og flyt enga sérstaka boö- un. Mér finnst þetta vera miklu frekar spurning um trúveröug- leika. Höfundinum hefur heppn- ast eitthvað þegar lesandinn segir steinhissa viö sjálfan sig: Þetta er alveg rétt! Innan ramma trú- verðugleikans gefa auðvitaö bæöi rúmast kaótisk heimssýn og sam- félagsleg róttækni. Stundum setja menn sig I móralskar stellingar og segja aö þeir höfundar séu betri sem skilja lesandann eftir i vissu, heldur en þeir sem rugla hann enn meir i rlminu. En hvaöa siðferöi er í þvi ef menn gripa til einfaldana og falsana tii aö skilja lesandann eftir I sálarró og vissu. Jákvæö áhrif þeirra sem rugla lesandann geta falist f að sýna honum fram á aö einhverjar við- teknar hugmyndir standist ekki, jafnvel þótt ekki sé neytt upp á hann nýjum. Ég held aö þaö sé jákvætt að hrista dálitið upp i huga lesenda og vildi gjarnan gera þaö Hverer Guðjón? I sögunni þinni kemur aöal- persónan Guöjón viö á ýmsum stoppistööum íslensks samfélags, En er ekki hægt aö lesa bókina sem eins konar uppgjör við heila kynslóö æskulýösuppreisnar eöa hvaö menn vilja kalla það. Eru þetta allt asnar, Einar? Allt þetta kynslóðatal fer nú hálfpartinn I taugarnar á mér. Vandinn sem Guðjón lendir i er sigildur árekstur draumanna og veruleikans. Þaö er ekki veriö að áfellast neinn, hvorki samfélagið eða einhverjar kynslóðir, né vingulshátt hans sjálfs. Lesandanum er eftirlátiö aö fella sina dóma. Reynslan Þessi fyrsta saga þin viröist aö •talsveröu leyti unnin úr eigin reynslu. Hvar á aö leita fanga i næstu sögur? Þaö er nú kannski of mikið sagt að sagan sé unnin upp úr eigin reynslu, þótt þaö gildi kannski um sögusviðiö. En það er af og frá að maður fari aö verða uppiskroppa með söguefni, þaö er alltaf eitt- hvaö merkilegt aö gerast. Eitt af þvi sem mjög höföar til min er spurningin um amerisk áhrif á lslandi, sem auövitaö hefur oft verið f jallað um en sem mig lang- ar til aö taka kannski dálitið öðru visi fyrir. Þaö er þessi spurning um menningarmun Ameriku og Evrópu, ameriska söguleysiö andspænis þessari endalausu ev- rópsku hefð, þar sem kynslóðirn- ar elta hver aöra eins og á talna- bandi. Mig langar til aö skoöa hvernig ameriska landnemamýt- an fellur inn i Islenskan hugsun- arhátt, og getur raunar skýrt margt i honum. Islenski þjóðararfurinn er land- námiö og raunar endalaust land- nám siðan. íslensk hetja er Grett- ir, útlaginn i landnámsheimi, sem er mjög hliðstæð ameriska kúrek- anum, einmana utangarðsmaöur, sem til dæmis Clint Eastwood hefur túlkaö i kvikmyndum. Eöa hetja einsog Skarphéöinn Njáls- son, þessi töff ógæfumaður, þetta er alveg sama manngerðin og ameriska týpan sem Humprey Bogart túikaöi best. Hugsaðu þér ef Bogart heföi leikið Skarphéö- inn i’ liösbónaleiðangri Njálssona á alþingi. Þaö heföi verið stórkost- legt! 1 upphafi 20. aldar var aö visu Islenska landnámiö 1000 ára gömul staðreynd, en samt hefst á margan hátt nýtt landnám þá. Menn standa eiginlega meö tvær hendur tómar, engin borgar- menning, mest óbyggt land. Inn i þetta söguleysi koma svo ame- risku áhrifin, sem túlka á sinn hátt söguleysi og landnám. Að sumu leyti veröa amerisk menn- ingaráhrif sérstaklega spennandi á Islandi, þvi þau veröa svo grótesk þegar þau koma inn i þetta sveitalubbasamfélag. 1 tengingu þessara menningar- heima held ég aö megi finna mik- iö og merkilegt söguefni. Myndir og texti:HalldórGuðmundss. „Home Sweet Home” Einar fyrir utan EyrarsundskoIIegiiö á Amager. Lyfjaverksmiöjan Dumex I baksýn.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.