Þjóðviljinn - 04.12.1981, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 04.12.1981, Qupperneq 3
, Föstudaguj 4. desember ,1981. ÞJópyHvJIIVN — SIÐA 3 Hugmyndasamkeppni um Suður-Mjódd: Nýtt íþrótta- og leiksvæði 150 þúsund kr. í verðlaun Opnunartími verslana í desember veröa verslanir opnar framyfirvenjulegan versl- unartímasem hér segir: Laugar- daginn 5. desember til kl. 16. laugardaginn 12. desember til kl. 18, laugardaginn 19. desember til kl 22. Á Þorlaksmessu verða verslanir að vanda opnar til kl. 23, og á aðfangadag og gamlars- dag til kl. 12 á hádegi. Gefa lýsi og fatnað Stjórn Rauða Kross Islands hefur ákveðið aö festa kaup á is- lensku þorskalýsi til þess aö senda til Póllands. Þegar hefur verið gengið frá kaupum á 13 lest- um af lýsi fyrir 150 þúsund krón- ur, sem greiddar verða úr Hjálp- arsjóði RKl, og eftir áramót er gert ráö fyrir, að keypt verði sama magn i samvinnu við rikis- stjórnina, þannig að alls verði unnt að senda 26 lestir af lýsi til Póllands að verðmæti alls 300 tms. kr. Stjórn Rauða Kross Is- ands hefur að undanförnu fjallað um aðstoð við Pólland og á vegum RKl var safnað itarlegum upp- lýsingum um þarfir Pólverja, al- mennt efnahagsástand i landinu og skort á nauðsynjavörum. Á grundvelli þessara kannana, og i samvinnu við Pólska Rauða Krossinn var ákveðið að kaupa lýsi, sem ætlað er fyrst og fremst skólabörnum I Póllandi og er ætl- unin að skipuleggja lýsisgjafir i skólunum likt og gert var hér á landi fyrir u.þ.b. þrjátiu árum. Fulltrúar Rauða Kross tslands áttu fyrir skömmu viðræöur við formann og framkvæmdastjóra Pólska Rauða Krossins, og voru þær viðræður framhald af upplýs- ingasöfnun RKI um ástandið i Póllandi. Þá varð samkomulag um, aö Pólski Rauöi Krossinn annaöist dreifingu lýsisgjafanna og skipulegði i skólum landsins, og veröur það gert i samráði viö Rauða Kross tslands. Þá hefur RKl borist frá Pólar- prjón h.f. á Blönduósi höfðingleg gjöf, þ.e. ullarpeysur i barna- og unglingastærðum, og verður fatn- aður þessi sendur til Póllands og hefur RKI óskað eftir þvi við Pólska Rauða Krossinn, að peys- urnar verði fyrst og fremst gefn- ar fötluðum börnum. Reykjavikurborg hefur ákveðið að efna til hugmyndasamkeppni um skipulag svokallaðrar Suður- Mjóddar, I Beiðholti, sem af- markast af Breiðholtsbraut að norðan, Stekkjarbakka og Selja- hverfi að austan og sunnan og af fyrirhugaðri framlengingu Reykjanesbrautar aö vestan. I framtiðinni er áætlað að þetta svæði verði annað helsta iþrótta- og útivistarsvæði Reykvikinga, næst á eftir Laugardal. Markmið samkeppninnar er að fá fram tillögur aö skipulagi svæöisins þar sem lögð verði áhersla á tengsl milli hinna ýmsu iþróttagreina jafnt fyrir keppnis- iþróttir og áhugamannaiþróttir. Einnig er ætlast til að tillögurnar sýni á hvern hátt má nýta svæðið til samveru og dægrastyttingar fyrir þá sem standa utan skipu- lags Iþróttastarfs. Auk mann- virkja til Iþtóttaiðkana er þvi reiknað með að á svæðinu verði t.d. leikvellir, kaffistofa, heitir pottar og aðstaða fyrir skokkara og þar mætti koma fyrir skvamp- laug, þ.e. úti- eða innilaug md> heitu vatni o.fl. Keppendum eru gefnar frjálsar hendur um það að hve miklu leyti ssi starfsemi öll verður undir ki. Þó er ætlast til að á svæöinu veröi keppnisvöllur fyrir fótbolta ásamt áhorfendasvæði og iþrótta- hús sem nýtist vel hinum ýmsu iþróttagreinum en einnig fjölda- samkomum svo sem mjög fjöl- mennum fundum og hljómleika- haldi. Iþróttafélagi Reykjavíkur, IR hefur þegar veriö ætlaöur hluti þessa svæöisfyrir sina starfsemi. Rétttil þátttöku i samkeppninni hafa allir félagsmenn i Arkitekta- félagi Islands, svo og nemendur á seinni hluta arkitektúrnárric Heildarupphæð verðlauna er 150 þúsund krónur og er dómnefnd auk þess heimiltað kaupa tillögur fyrir aDt að kr. 40 þúsund. Trúnaöarmaður dómnefndar er Þórhallur Þórhallsson, As- mundarsal, Freyjugötu 41, en skilafrestur er þriðjudagurinn 9. febrúar 1982 kl. 18. Lesið þetta HÚS MÁLARANS óborganleg lífstjáning Jóns Engilberts er komin í bókabúðir um allt land Það er á almannavitorði að Hús málarans fjörgar karla og konurtii sálarinnar svo um munar. Bókin er þvi kjörin gjafabók. Konur gefa körlum — og karlar konum. Þeir sem gerst ættu að vita fullyrða að bókin sé mun endingarbetri afþreying en göfugustu vin — og ódýrari. Það er og mál mætra manna að bókin sé ómissandi í hverju heimilisbókasafni. Hvorki upplag né verð bókarinnar er miðað við að standa straumaf auglýsingafári—sem alla er aðdrepa. Forlagið fellir því tjaldið við svo búið í trausti á heil- brigða skynsemi, ergo: kaupi maður góðan hlut, þá láti hann það berast, þannig að maður segi manni. Fríða Á. Sigurðardóttir: SÓLIN OG SKUGGINN Fyreta bók Friðu, smásagnasafnlð „Þetta er ekkert alvarlegt”, sem út kom í fyrra, vakti almenna athygli og umtal bókamanna. Sólin og skugginn er fyrsta skáldsaga hennar og munu bókamenn ekki síóur fagna útgáfu hennar. Sagan er þrungin áhrifamagni, snertir og eggj- ar og er rituó á óvenju fögru og auóugu máli. Þetta er saga um frelsi og helsi mannsins, lífsástina og dauAann, saga af fólki, grímum þess, brynjum og vopn- um, — hún er saga mín og þín. Sóiin og skugginn er bókmenntaviAburAur. Jökull Jakobsson: SKILABOÐ TIL SÖNDRU Jökull Jakobsson hafAi gengiA frá hand- ríti þessarar bókar aóeins fáum mánuA- um fyrír lát sitt. Sagan speglar alla beztu eiginleika hans sem rithöfundar, frásögnin er lipur og lifandi, stór- skemmtileg og bráðfyndin, en undir niðri skynjar lesandinn alvöru lífsins, vandamál samtímans. Meinfyndnarí og háðskarí bók er ekki á bókamarkaði í ár. AAdáendur Jökuls Jakobssonar eru svo sannarlega ekki sviknir af þessarí síðustu bók hans. Hún leiftrar af frásagnargleði og fjöri. SKUGGSJÁ BÓKABÚD OUVERS STEINS SE SKUGGSJÁ BÓKABÚD OUVERS STEINS SF

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.