Þjóðviljinn - 12.12.1981, Blaðsíða 3
Helgin 12,— 13. desember 1981 ÞJ,ÓÐVILJINN — SIÐA 3
Þad er ekkii sama hvaö
börn og unglingar lesa
im
óöar bækur
Bskeli?
Verðlaunabækur
Gunillu Bergström
EINAR ÁSKELL
Nú eru komnar út þrjdr nýjar
boekur í þýðingu Sigrúnar
Ámadóttur um þennan
skemmtilega strók sem býr
einn með pabba sínum.
Hver bjargar Einari Áskeli
Einar Áskell er nýiluttur
í nýtt hverli. Hann er
einmana. þekkir engan og
leikur sér ekki við neinn.
Nema Manga, leynilegan
vin sinn. En þegar stóru
strákarnir œtla að hrekkja
mann er lítið gagn í vini
sem enginn sér.
Þessi saga segir frá þvi
þegar EinarÁskell eignaðist
raunverulegan vin.
Einar Áskell og ófreskjan
Það er laugardagskvöld og
Einar Áskell getur ekki
sotnað. Hann getur ekki hœtt
að hugsa um að hann heíur
barið strák sem er minni en
hann sjálíur.
Á morgun œtlar hann að
finna þennan smápolla og
geía honum gula leikíanga-
bílinn sinn.
Nœsta dag leitar Einar að
litla stráknum, en hann er
horfinn! Hann finnst hvergi
nokkurs staðar.
Ertu skræfa Einar Áskell
Einar Áskell vill ekki fljúgast
á. Þegar krakkarnir eru að
slást úti á götu fer hann bara
burtu. Krakkamir halda að
hann sé hálígerð skrœfa.
Þessi saga segir frá því
þegar þrír nýir ólátabelgir
byrjuðu í leikskólanum og
réðust á EinarÁskel.
Viktor Rydberg
JÓLIN HANS
VÖGGS LITLA
Hið sígilda œvintýri sœnska
skáldsins Viktors Rydberg
um Vögg litla, lítinn, fátœk-
an munaðarleysingja sem
gamli Jólaskröggur tók með
sér í jólaferðina á sleðanum
sínum á alla bœina í sveit-
inni og um það sem þar
bar fyrir augu.
Með gullfallegum mynd-
skreytingum Haralds
Wiberg. Ágúst H. Bjamason
þýddi.
Inger Brattström
HANDAN VIÐ
HRAÐBRAUTINA
Jónas er sextán ára og heíur
fengið vinnu á barnaheimili
í stuttan tíma. Hann er að
undirbúa helgarferð með
félöQrum sínum. Af henni
verður þó ekki, þvi enginn
kemur tíl að sœkja Sólong
litlu, fjögurra ára þeldökka
stúlku. Hið fyrirhugaða
ferðalag verður annars
konar ferð, kynnisferð út í
heim sem byrjar í nœsta
nágrenni en er þó undar-
lega ólíkur öllu sem Jónas
hefur áður kynnst. Fram-
undan eru þrír sólarhringar,
fullir aí áhyggjum, spennu,
kviða og hrœðslu - og þegar
þeir em liðnir er Jónas ekki
lengur sá sami. Þýðandi
Þuríður Baxter.
Þessi bók var lesin í Ríkis-
útvarpi íyrir þremur árum
undir nafninu Ferð út í
veruleikann.
Valdís Óskarsdóttir
FÝLUPOKARNIR
Hefur þú nokkuð komið í
Séstvallagötu? Ekki það
nei. Þetta er líka ósköp
fyriríerðarlítil gafa. Hún sést
varla. og við erum of stór til
að komast þangað inn. Aftur
á móti eiga fýlupokamir
sem eiga heima við Sést-
vallagötu mjög auðvelt
með að koma sér fyrir hjá
þér og mér og okkur öllum.
Ertu ekki viss um það?
Horfðu þá á íólkið í kringum
þig.
Ný og endurskoðuð útgáf a
einnar vinsœlustu bama-
bókar síðari ára. Myndir
eftir höfundinn.
Astrid Lindgren
MADDITT OG BETA
Þetta er sjálfstœtt framhald
sögunnar Madditt sem kom
út í fyrra. Ný bók um
stelpuna Madditt sem dettur
svo margt skemmtilegt í hug
og um litlu systur hennar
Betu sem leikur allt eftir
henni. „Þú ert alveg klikkuð
Madditt," segir Beta. Samt
fylgir hún systur sinni
gegnum þykkt og þunnt,
það gildir einu hvaða
fífldirísku Madditt finnur
upp á.
Bœkurnar um Madditt em á
leiðinni að verða álíka
vinsaelar og bœkurnar um
Emil í Kattholti. Nýbúið
er að gera efiir þeim
skemmtilega íramhalds-
þœtti fyrir sjónvarp.
Myndir eítir Ilon Wikland.
Sigrún Árnadóttir þýddi.
Astrid Lindgren
RONJA
RÆNINGJADÓTTIR
Ævintýraleg og skemmtileg
saga írá rœningjatímunum
um Ronju, dóttur Matthíasar
rœningjaforingja og Birki,
son erkióvinar hans sem
strjúka að heiman út í
skóginn. Þar lifa þau ótrú-
legu og viðburðaríku land-
nemalífi þangað til þau
geta snúið heim aftur og
bundið endi á œvafomar
illdeilur þessara tveggja
rœningjaœtta. En slíkt
gerist ekki átakalaust.
Þessi bók er nýkomin út í
heimalandi höíundar og
hefur fengið frábœrar við-
tökur.
Myndir eftir Ilon Wikland.
Þorleifur Hauksson þýddi.
Andrés Indriðason
POLLI ER EKKERT
BLÁVATN
Hvert getur tíu ára strákur
íarið sem er ákveðinn að
strjúka að heiman og koma
aldrei aítur - að minnsta
kosti ekki strax?
Og hvað getur hann gert
þegar hann kemur heim
aftur og enginn hefur
tekið eítir að hann vantaði
þvi mamma hans og systir
eru farnar að heiman og
pabbi situr einn eltir í öngum
sínum?
Polli getur ýmislegt gert
þegar hann tekur til sinna
ráða. Eftir það fer margt
að breytast í kringum hann.
Andrés Indriðason hlaut
barnabókaverðlaun Máls
og menningar fyrir bókina
Lyklabarn sem kom út í
hitteðfyrra.
Hringur Jóhannesson
myndskreytti
BÚKOLLA
Ævintýrið skemmtilega með
nýjum og íallegum litmynd-
um eftir Hring Jóhannesson.
K.M. Peyton
DAUÐIÁ
JÓNSMESSUNÓTT
Jónatan Meredith situr í
dýra heimavistarskólanum
sínum og þykir lítið til
dýrðarinnarkoma. Ekki
bœtir úr skák að í natni
jaínréttis er búið að taka
stelpur inn í eístu bekkina,
og þœr ekki smávegis
skrítnar sumar! Það eina
sem er gaman er að œfa
íjallgöngu með Hugo stœrð-
frœðikennara, en hann er
með merkilegri mönnum í
augum Jónatans. Svo deyr
enskukennarinn voveiílega
- og fjör fœrist í leikinn.
Dauði á Jónsmessunótt er
sjálfstœtt framhald bókar-
innar Sýndu að þú sért hetja
eftir höfund bókanna vin-
saelu um Patrick Pennington.
Spenna bókarinnar, frábœr
persónusköpun og mann-
skilningur höfundar svikur
engan.
SOja Aðalsteinsdóttir þýddi.
Theódóra Thoroddsen
ÞULUR
Hinar fallegu og vinsœlu
þulur Theódóru Thorodd-
sen haía lengið verið
ófáanlegar. Þetta er 5. út-
gáía þeirra og hér er að
íinna allar þulur sem
Theódóra orti. Kjörgripur
allra barna - og fullorðinna.
Myndir eítir Guðmund
Thorsteinsson og Sigurð
Thoroddsen.
Geoffrey Trease
Á FLÓTTA MEÐ
FARANDLEIKURUM
Þessi saga gerist í Englandi
á síðustu áratugum ló.
aldar. Þetta voru róstusamir
tímar víða í Evrópu, en í
Englandi haíði lriður rikt
óvenju lengi undir stjóm
Elísabetar 1. drottningar.
Ungur drengur, Pétur
Brownrigg, lendir í úti-
stöðum við lénsherra föður
síns og verður að flýja átt-
haga sína. Áílóttanum
verður hann margs vísari,
m.a. um samsœri gegn
drottningu, og lendir í
ýmsum háska. Meðal helstu
persóna bókarinnar er leik-
ritahöfundurinn William
Shakespeare. Silja Aðal-
steinsdóttir þýddi og las
söguna í Ríkisútvarpi fyrr
á þessu ári.
Mál IMI og menning